Vísir - 03.07.1954, Page 1
44. árg.
Laugardaginn 3. júlí Í954.
146. tbl.
Hafa allir getið sér bezta orð.
Sjö íslenzkir flugmenn
starfa hjá erl. félögum.
Um þessar mundir starfa sjö öðru hverju. Tjáði flugvallast.
íslenzkir flugmenn hjá erlend-
um flugfélögum, og hafa þeir-
allir getið sér gott orð.
Vísir hefur leitað upplýsinga
um flugmenn þessa hjá Fiug-
vallastjóra ríkisins, Agnari
Kofoed-Hansen, og getur greint
frá eftirfarandi:
Magnús Norðdahl vinnur hjá
félaginu Arab Airways í Jór-
daníu. Albert Tómasson er flug
maður hjá hollenzka flugfélag-
inu KLM. Til skamms tíma
flaug hann á áætlunarleiðum i
Indónesíu, en mun nú vera á
Evrópuleiðum. Hallgrímur Jóns
son vinnur hjá sama félagi,
svo og Sveinn Gíslason. Sá sið-
astnefndi mun hafa flogið á á-
ætlunarleiðum í Indónesíu und-
anfarið 1% ár. Pétur Pétursson
er flugmaður hjá félaginu
Middle East Airlines í Libanon.
Loftur Jóhannesson er hjá Sky
ways of London, og Magnús
Guðmundsson (alnafni flug-
stjórans hjá Loftleiðum) er hjá
sama félagi.
; Flugmálastjórnin hér hefur
samband við þessa landa okkar
Vísi, að allir hefðu menn þess
ir getið sér hinn bezta orðstír
og oft verið getið í opinberum
skýrslum. Má því segja, að flug
menn þessir séu góð landkynn-
ing og ágætur fulltrúi hinnar
ungu, íslenzku flugmannastétt
ar.
Verkfallsvörður við
bláa hellinn.
Róm (AP). — Enginn ferða-
maðor hefur komizt í „bláa hell-
ian“ á Capri undanfarna viku.
Hafa menn þeir, sem flýtjá
ferðamenn í hellinn, gert verk-
fall og lokað hellismunnanum
með bátum sínum. þeir hafa
einnig haft verkfallsverði við
stíg þann, sem liggur að hellin-
um á landi.
Seldu þorplð í
heiftu Sagio
London (AP). — Erfingjar her-
togans af Bedford, sem dó á
víðavangi í vetur, áttu ekki fé
handbært til að greiða erfða-
fjárskattinn.
Grípu þeir til þess að selja
þorpið Chenies í heilu líki, og
var efnt til uppboðs. þrír aðilar
buðu í þorpið, og bauð hæsi-
bjóðandi 182,000 sterlingspuna.
Var það járnbrautarfélag.
Úlfum fjölgar ört
í M.-Evr6pu.
Vínarborg (AP). — paS ei
langt síðan úlfar hafa verið eins
nærgöngulir að sumarlagi i
Austurriki og nú.
Berast hvað eftir annað fregn-
ir um að úlfahópar ráðizt á bú-
pening. Er þetta talið stafa af
því, að Heppríkjuiium er mönn-
um bannað að eiga veiðibyssur,
svo að úlfum fjölgað óhindrað og
leita þeir vestur eftir meginland-
inu.
Salah Salem, upplýsinga-
málaráðherra Egypta, er nú í
opinberri heimsókn í Sýrlandi.
Notkim kobafísprengj'u væri
sjálfsmorð - ekki styrjöld.
Einkaskeyti frá AP. —
í London í gær.
Sir George Thomson, sem
hlaut Nobelsverðlaun fyrir eðl-
isfræðirannsóknir, lýsti yfir
þeirri skoðun sinni á fundi vís-
indamanna nýlega, að ekki
mundi verða unnt að geyma
vetnissprengjur nema tiltölu-
lega skamman tíma. Orka
þeirra mundi dvína smám sam
an í geymslunni.
Thomson, sem er kjarnorku-
sérfræðingur og forstöðumaður
Corpus Christi háskóladeildar-
innar í Oxford, sagði, að það
væri „fjarstæða“ að hugsa til
framleiðslu á kobaltsprengjum
sem vopni. Notkun kobalt-
sprengju, sagði hann, gæti ekki
talizt hernaðaraðgerð, heldur
alheimssjálfsmorð, því geisla-
verkanir slíkrar sprengingar
myndu ná yfir alla jörðina og
banvænar duftagnir kynnu að
berast til og frá um lönd heims
ins eins og askan eftir eldgosið
í Krakatau 1880.
Thomson kvað það skelfilega
tilhugsun, ef til þess kæmi, að
flokkur brjálaðra valdhafa
hefði í hendi sér að beita slík-
um vopnum.
Myndin sýnir gúmmiekru í Guatemala, en gúmmívinnsla er mikilvægur þáttur ' búskap
landsins. í landinu búa um 3 milljónir manns, og er fátækt sögð mikil í landinu. Bandaríkja-
menn hafa til þess keypt mikinn hluta gúmmívinnslu landsins og eiga í ýmsum gúmmíekrum.
LoftleiÖir geta
ftifitt meiri
vamiitg.
Vöruflutningar með milli-
landaflugvéhun Loftleiða hafa
verið í júni mánuði rúm 11 tonn.
Hafa félaginu sífellt borizi
beiðnir um vöruflutmnga, sem
ómögulegt hefur r.eynzt að verða
við, því oftast hafa flugvélarnar
verið þéttsetnar farþegum fra
New York og einnig ómögulegt
var að fá leigða viðunandi vöru-
geymslu á flugvelli þar.
Nýlega hefur félaginu tekizt
að fá leigða rúmgóða vöru-
geymslu á Idlewild flugvelli, og
má gera ráð fyrir að vöruflutn-
ingar stóraukist á næstunni.
Stormur á síldarmiðunt
- bátar í höfn eÖa vari.
Sfifldarleit úr lofti fliefst bráðlega
Landslijálftar
á Filippseyjufii.
Einkaskeyti frá ÁP. —
New York i gær.
Miklir landskjálftar hafa
komið á Luzon, Filipseyjum.
Skemmdir hafa orðið á dóm-
kirkju og fleiri byggingum. —
Kunnugt er, að 22 menn hafa
beðið bana.
Einnig hafa borizt fregnir um
eldgos á norðureyjum.
Norðaustan stormur var fyrir
Norðurlandi í gær og engir bátar
á miðunum.
Til Siglufjarðar eru nú komnir
fjöldá margir bátar og lágu, þeir
allir inni í gær. Nokkrir bátar
Jafitvel heyrnarlaifsir
sleppa ekki
Berlin (AP). — Jafnvel
hinir heymarlausu í A-pýzka-
landi geta ekki sloppið við
áróður kommúnista. Hafa
verið útbúnir sérstakir lestr-
arsalir íyrir heymalausa, þar
sem komið er fyrir heymar-
tækjum handa þeim. Biað eitt
i Dresden, Sachsische Zeit-
ung, segir uan þetta: „Allar
umdæmisstjómir ilokksins
eiga að krefjast þess, að
heyrnarlausir ilokksmenn —
einkum ungir — aotfæri sér
þessi tæki“.
Tveir litlir drengir bíða bana
bifreiðarslysi á Patreksfirði.
Atakanlegt slys i gærmorgun,
er bifreið rakst á þrjá drengi.
ri
i
frá Raufarhöfn fóru út i fyrra-
dag, en þeir munu hafa legið í
vaiá í gær vegna stormsins.
Síldarleit.
Fyrirhúguð er síldarleit úi!
lofti og munu þær hefjast bráð-
lega eða þegar veður batnar. —
Blaðinu er kunnugt, að tii Raui-
arhafnar er kominn maður, sena
verður við síldarleit úr lofti. Sér-
stök nefn, Síldarleitarnefnd, ann-
ast yfirstjóm síldarleitar, og eru
í henni Davíð Olafsson fiski-
málastjóri, Sveinn Benediktsson
framkv.stj. og Guðmundur Jör-
undsson Akureyri. Hefur nefndin
ráðið.. sérstakan.. síldarleitar-
stjóra, sem verður staðsettur a
Siglufirði. Er það Guðmundur
Guðjónsson skipstj. Akranesi.
Hann hefur mikla reynslu í
þessutn efnitm. Hefur hann haft
þetta starf með höndum urtdan-
gengin ár.
Til að byrja með mun verða
notuð flugvél frá flugskólanum
þyt, hin sama sem var við þetta
í fyrra, en síðar er ráðgert að
einnig verði Grummanflugvél
frá Flugfélagi íslands.
Ægir mun og verða á síldar-
miðunum við fiskirannsóknir og
sildarleit.
Hörmulegt slys varð á Pat-
reksfirði í gærmorgun, er tveir
litlir drengir urðu fyrir bifreið
og biðu bana, en sá þriðji slas-
aðist.
Nánari atvik að þessu átak-
anlega slysi eru á þessa leið,
samkvæmt símtali, sem Vísir
átti við Patreksfjörð í gær-
kveldi:
Um kl. 11 í gærmorgun var
fólksbifreiðin B-115 á leið upp
Aðalstræti á Patreksfirði. Á
mótum Bjarkargötu og Aðal-
strætis voru nokkrir drengír að
leik. Sjónarvottar segja, að allt
í einu hafi drengirnir hlaupið
fyrir bifreiðina. Bílstjórinn
flautaði, og reyndi að afstýra
slysi með því að fara út af göt-
unni, og rakst bifreið hans á
hús við Aðalstræti. Siysinu
varð þó ekki afstýrt, og urðu
þrír drengir fyrir bílnum. Elnn
þeirra, Guðsteinn Friðgeirsson,
Guðmundssonar, lézt samstund
is. Guðsteinn var 6 eða 7 ára.
Annar drengurinn, Guðjón
Magnússon, Guðjónssonar, and-
aðist í sjúkrahúsi 5 klukku-
stundum síðar. Hann mun hafa.
verio 8 ára. Sá þriðji, Ragnar
Hafliiason, Ottóssonar, hlaut
meiðsl á höfði og marðlst, en
ekki lífshættulega, og lá hann
í sjúkrahúsi í gærkveldi, en
talið líklegt, að hann fengi að
fara heim í morgun.
Göður affi vfð
Grænland.
.. Fjórir íslenzkir togarar stunda:
nú veiðar í salt við Grænland.
þeirra meðal er Bæjarútgerðar-
togarinn þoi'steinn Ingólfsson,
sem hefur aflað ágætlega. Hinir
munu og hafa aflað vel. þeir eru
Gylfi frá Patreksfirði, og Aust-
fjarðatogararnir Egill og Goða'
nes.
Bemhard prins, maður
Júlíönu Hollandsdrottningav
varð 43ja ára á þriðjudaginn.