Vísir - 15.07.1954, Blaðsíða 4

Vísir - 15.07.1954, Blaðsíða 4
4 VfSIR WÍSSK. DAGBLAD Ritstjóri: Hersteinn PálssorL Auglýsingastjóri: Kristján Jónsson. Skrifstofur: Ingólfsstræti 3. Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VlSIR H.F. Afgreiðsla: Ingólfsstræti 3. Sími 1660 (fimm Unur). Lausasala 1 króna. Félagsprentsmiðjan h.f. Bretar ræða fiskveiðarnar. Undaniarið haia talsverðar umræður orðið um það í Bretlan !>, hvernig komið sé hag útgerðarinnar þar í landi — þeirrar, sem lifir á fiskveiðum — og í sambandi við það hefur lóndunar- hannið og bolabrögð útgerðarmanna í þeim efnum borið á góma, enda eru þessi atriði nátengd. Hafa menn verið sammála um það, að eitthvað hljóti að vera bogið við þenna atvinnuveg, ef hann getur ekki með neinu móti borið sig nema útgerðarmönnum sé sköpuð einokunarstaða á markaðinum, eins og gert hefur verið að undanförnu, svo sem Islendingar vita manna bezt . íslendingar munu nú annars ekki vera einir um að hljcta hannfæringu útgerðarmannanna brezku, því að þjóðverjar-munu einnig fallnir í ónáð hjá þeim á nýjan leik. Rekur menn þo minni til þess, að leitað var til þjóðverja á sínum tíma, þegar lítið var um fisk í ! ’.'kum höfnum eftir að þeim hafði venð Jokað fyrir íslenzkum togurum, og þeim boðið að hlaupa í skarðið. En það hefur verið skammgóður vermir, því að nú munu þeir einnig hafa verið útilokaðir, og liaft er fyrir satt, a5 Bretar hugsi fiskimönnum frá fleiri þjóðum, sem enn er leyfi- Jegt að leggja fisk á land í brezkum höfnum, þegjandi þörfina. í sambandi við umræður þessar hefur svo einnig verið drepið á friðun fisldmiða, en þar er afstaða brezkra útgerðarmanna næsta hláleg. þeir hafa margir kveðið upp úr með það, að nauð- synlegt sé að hlífa og friða ýmis fiskimið umhverfis Bretlands- eyjar, því að ]->au sé nú að eyðileggjast af offiski. Á sama tíma taka þeir Islendinga kverkartaki og reyna, ef liægt er, að sveita þá til hlýðni, af því að uppeldisstöðvar ungfiskjarins liér við Jand eru friðaðar. Fyrir nokkru voru birtar mjög fróðlegar tölur um aflabrögö hrezkra togara á ýmsum fiskimiðum á síðasta ári. Hafði a::i farið minnkandi á nær öllum miðum umhverfis Bretlandseyjar en aukizt á fáeinum stöðum, og meðal annars hér við land. Héldu Bretar þó, að þeir mundu missa spón úr aski sínum, er við friðuðum firði og flóa, en reyndin hefur orðiö önnur, og er sennilega afleiðing þeirra ráðstafana, sem gerðar voru hér í friðunarátt. En aflabrögð munu hafa farið minnkandi ár frá ári síðan stríðinu lauk á næstu miðum Breta, og er það raunar endurtekning sögunnar frá því fyrir stríð, en miðin jöfnuðu sig á stríðsánmum, því að þau fengu hvíld, er ekki var veitt á þeim. þrátt fyrir það, að vopnin iiafa raunverulega verið slegin úr höndum útgerðarmanna brezku með þessum upplýsingum, er engin breyting fyrirsjáanleg á stefnu þeirra gagnvart fisksöiu íslcndinga í brezkum hafnarborgum. þarf þá ekki frekar vítnanna við um það, að löndunarbanninu er fyrst og fremst stefnt gegn íslenzkum fiskimönnum og útgerðarmönnum sem keppinautum hrezkra aðila, og var það þó vitað fyrir löngu, að brezka útgerðar- mcnn blóðlangaði til þess að losna við þá af markaðnum, þótt i góð átylla fengist ekki, fyrr, en friðunin kom tii framkvæmda hér á landi, en þá var heldur ekki beðið iioðanna. pað mun vera rétt, sem kupnugir telja, að ahnenningsálitið i Bretlandi sé smám saman að verða andstætt útgerðarmónnum, og voru þeir þó margir, sem sáu strax, hvað fyrir þeim vakti með löndunarbanninu. það er vitanlega neytandinn brézki, sóm verður fyrst og íremst var við afieiðingarnar af þessu, því að hann faer léiegri fisk en áður, en verður að greiða sama verð, þótt um verri vöru sé að ræða. Er ekki néma gott eitt um það að segja frá sjónarmiði fslendinga, ef það gæti leitt til þess, að útgerðar- menn neyddust til að hættta við löndunarbannið og markaðurinn opnaðist aftur. Væntanlega hafa íslenzkir útgerðarmenn vakandi auga með því, sem gerist á þessu sviði, svo að hægt verði að grípa tæki- færið til að-hefja ísfiskflutninga á ný, ef aðstaðan brevtist. Haía og borizt frégnir um það frá Englandi, að íslendingar athugi aðstæður til að koma fiski sínum á land annars staðar en í þeim höfnum, sem venjulega hafa verið notaðar, en hér er allt hljótt um þetta. þótt ísfiskmarkaðurinn enski sé ekki nein allra meina hót, er hann þó góður með öðru, og því her að reyna að opna hann eins fljótt og unnt er. Songskemmtun drengjakórs KFUM „Parkdrengekoret“, drengja- kór K.F.U.M. í Kaupmannahöfn hélt söngskemmtun í Austur- bæjarbíói þriðjudaginn 13. júlí undir stjórn Jörgen Brem- holm. A söngskránni voru m. a.: Lover Herren, han er nær, eftir J. S. Bach. Ave verum, eftir W. A. Mozart. Den hellige stad, eftir Stephen Adams. Váren, eftir E. Grieg. Wiegen- lied, eftir Johs. Brahms. Nu lider dagen, eftir Fr. Kuhlau og Gurre, eftir H. Rung. Þá var ævintýraleikurinn ,.Eld- færin“, en það er söngleikur, byggður á samnefndu ævintýri eftir H. C. Andersen með hljóm list eftir V. Kjær, E. Chris- tiansen, W. Collo, Schubert o. fl. Þá kom sænska þjóðlagið Fjorton ár, Köbenhavnermarch eftir A. Frederiksen, smá söngleikþáttur ,,Kunigunde“ eftir K. V. Thomsen, lagasyrpa úr Meyjarskemmunni, eftir Fr. Schubert og að lokum Dán- árvalsinn, eftir Joh. Strauss. Kórinn hafði góðum röddum á að skipa og var samsöngur þeirra og samræmi í söng gott, þó að lítilsháttar óstyrks gætti í fyrstu, sem þó hvarf með öllu þegar líða tók á söngskrána. í laginu „Nu lider dagen“ var samsöngur góður, og í ,,Gurr.e“ var samræmi og blæbrigði með ágætum. Ævintýraleikurinn „Eldfærin" var hinn ánægju- legasti í flutningi, þó ekki sízt „Hermaðurinn og Nornin“. Tónlistin var smekklega valin og leystu einsögvarar og kór hlutverk sitt vel af hendi, og var samsöngur milli kórsins og einsöngvaranna með ágætum. Söngléikurinn féll í góðan far- veg hjá áhorfendum. Seinni hluti söngskrárinnar hófst með sænska þjóðlaginu „Fjorton ár“, sem naut sín vel sökum góðs samræmis. Söng- þátturinn „Kunigunde" var skemmtilegur í meðferð, og var látbragð leikenda gott. Laga- syrpa úr „Meyjarskemmunni“ eftir Schubert var góð að öðru leyti en því, að heildarsvipur- inn hefði mátt vera skýrari. Það er slæmt þegar flutningur tónlistar bíður tjón sökum naums tíma, en fyrir því varð hinn góðkunni Dónárvals Joh. Strauss, sem eflaust hefði notið sín betur í hægari „tempo“ Ör- uggan undirleik annaðist Fru Anna Teglbjerg. Áhorfendur þökkuðu hinum litlu sönggestum með dynjandi lófataki, enda- full ástæða til, þeir voru til óblandinnar ánægju fyrir yngri sem eldri og ekki sízt yngri kynslóðina. M. J. Sleggjukastsnet á móti IR. Mótið £ór iVam i irrradag. Frjálsíþróttamót Í.R. var háð á íþróttavellinum í fyrrakvöld. Þórður B. Sigurðsson setíi Is- landstmet í sleggjukasti, kast- aði 51.56 m. Fyrra metið, 51.43 m. átti hann sjálfur. Torfi Bryngeirsson náði góðum ár- angri í stangarstökki, stökk 4.11 m. Veður var kalt og hlaupa- brautirnar blautar og þungar, svo ekki náðist góður árangur í hlaupunum. Áhorfendur voru fáir eða um 200. Úrslit í einstökum greinum urðu þessi: A flokkur. Hilmar Þorbjörnss., Á. 11.2 sek. Guðm. Vilhjálmss, Í.R. 11.3 sek. Guðm. Láruss., Á. 11.4 sek. B flokkur. Vilhj. Ólafs-s., Í.R. 11.6 sek. C flokkur. Björn Jóhannsson, U.M.F.K. 11.9 sek. 400 m. hlaup. Guðm. Láruss, Á. 49.9 sek. Rafn Sigurðss,, U.Í.A. 54.8 sek. 800 m. hlaup. B flokkur. Dagbj. Stígss., U.M.F.K. 2.07.0 mín. Sig. Gíslas, K.R. 2.07.2 mín. Gísli Sigurðss., U.M.F.S. 2.09.6 mín. 1500 m. hlaup. Sig. Guðnas., Í.R. 4.09.4 mín. Svavar Markúss. K.R. 4.09.8 mín. Halldór Pálss., U.M.F.K. 4.23.2 mín. Langstökk. Einar Frímannsson, U.M.F.S. 6.69 mtr. Björn Jóhannsson, U.M.F.K. 6.31 mtr. Guðjón B. Ólafsson K.R. 6.29 mtr. * . Stangarstökk. Torfi Bryngeirsson, K. R. 4.11 mtr. Valbjörn Þorlákss, K.R. 3.50 mtr. Bjöm Linnet, Í.R. 3.50 mtr. Kúluvarp. Guðm. Hermannsson, K.R. 14.36 mtr. Skúli Thorarensen, f. R. 14.28 mtr. Ág. Ásgrímss., Í.M. 13.34 mtr. Spjótkast. Jóel Sigurðss, í. R. 56.57 mtr. Válbj. Þorlákss., K.R. 45.04 mtr. Pétur Rögnvaldss., K.R. 43.80 mtr. Sleggjukast. Þórður B. Sigurðss. K.R. 51.56 mtr. (ísl. met). Páll Jónsson, K.R. 45,13 mtr., Þorv. Arinbjarnars., U.M.F.K. 42.02 mtr. Boðhlaup. Sveit í. R. 46.2 sek. Sveit K.R. 46.4 sek. (ógilt). Kristián Guðlaugsson, hæstaréttarlögmaður. Skrifstofutíml 10—12 •( 1—5. Austurstrætl 1. Sfml 3400. Fimmtudaginn 15. j úlí 1954. Norræna sundkeppnin. stendur nú sem hæst, en þátt- takan er mjög misjöfn á hinum einstöku stöðum á landinu, sem kannske er von til, því-að mis- munandi aðstaða er til sundiðk- unar. En fyirleitt virðist éhug- inn fyrir keppninni ekki vera eins vakandi nú og fyrir þremúr árum er keppnin var háð i fyrsta sinn, en þá sigruðu íslendingar, eins og kunnugt er, með miklum yfirburðum. Hvort svo verður einnig nú, er ekki jafnörnggt; a'ð j minnsta kosti verður þátttakan að örfast almikið, ef svo á að j verða. i ■ ■ Þátttökukeppni. j Landsnefndin, sem sér um sundkeppnina liér, mun gera sér það ljóst, að hætta sé á að þátt- ^ takán verði minni nú en síðasl, j og leitar nú ýmissa ráða til þess að hleypa lífi í keppnina. M. a. hefur hún efnt til þátttökukeppni milli einstakra héraða og bæjar- félaga og má vera, að þarna hafi nefndin hitt naglann á höfuðið, því að nokkur metnaður er jafn- an milli granna. T. d. er nú skír- skotað til Reykvíkinga um að vera ekki eítirbátar Hafnfirðinga, 8en þar hafa 1] % af íbúum bæjar ins lokið við að synda 200 metr- ana, en ekki nema 13.5% af Reykvíkingum. Og þá má búast við að Norðlendingiun hlaupi kapp í kinn er þeir frétta það að þrátt fyrir skussaskap Reykvík- inga með sín 13,5% í þátttökunni, sé höfuðstaður Norðurlands, Ak- ureyri, ennþá verr á vegi stadd- ur, því að þar hafa ekki nema 10% af íbúunum dyfið sér i vatnið. JRifja upp sundkunnáttuna. Annars hittir maður nú marga, sem eru að rifja upp sundkunn- áttu sina, menn og konur, seiri varla liafa drepið fæti sínum í vatn frá því siðasta norræna sundkeppnin fór fram, og æfa nú af kappi undir það að synda 200 metrana. Það skyldi heldur eng- inn vera með minnimáttarkennd út af því, að þurfa að æfa nokkr- um sinnum áður, því að það er síður en svo eftirsóknarvert að ofreyna sig, og það er sjálfsagt , fyrir þá sem ekki eru sundvanir, j að fara að engu óðslega. Sá sem j syndir 200 metrana — þótt það | taki hann langan tima — hefur afrekað nákvæmlega jafnmikið, og j gert skyldu sína við landið, eins og hinn, sem syndir vegarlengd- ina á mettíma. Víkingur. Knattspyrnumenn Víkings eru óánægðir með ummæli „Góa“ um þá hér í Bergmáli í fyrradag. Haía þeir hringt í aðstandendur Bergniáls, og vilja fá að vita, hver maðurinn sé. Ekki er unnt að nafngreina „Góa“, því að öll hréf, sem Bergmáli berast, og ætlazt er til, að birt verði undir dulnefni, eru trúnaðarmál. Hins vegar má vel vera, að „Gói“ liafi verið helzli harðorður. Það er alveg rétt, að Víkingar eru ekki að fara í sýningarför til Danmerkur, held ur eru þeir að endurgjalda vina- heimsókn danskra félaga sinna, og er förin farin í mesta bróð- erni, án þess að ætla sér að sýna íslenzka knattspyrnu. Slíkar gagn lcvæmar heimsóknir eru alltiðar, er oss tjáð, og meira kapp lagt á vinsamlega samveru knattspyrnu manna en harða keppni. Hins vegar er það rétt hjá „Góa“, að vel mættu knattspynumenn okk- ar leggja harðar að sér en verið liefur. — Annars ættu vinir vorir í Víking ekki að reiðast yfir þesu, heldur stiga á stokk og standa sig betur, því að það geta þeir, . ef þeir vilja.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.