Vísir - 24.08.1954, Síða 5
Þriðjudaginn 24. ágúst 1954.
VtSIB
Mestur fjöldi ólæsra í
Afríku og Asíu.
Unesco gefur út hagskýrslur í handbókar-
formi.
Að því er síðustu hagfræði-
skýrslur frá Unesco herma, eru
milli 45 og 55 piúsent íbúa
heimsins á aldrinum 10 ára og
þar yfir ólæs.
í Afríku er mestur fjöldi
hinna ólæsu eða 75—85%, en
næst kemur Asía (að frátekn-
um Sovét-ríkjunum) með 65—•
75%. Þá er Suður-Ameríka
með 40—50%, Norður-Amer-
íka með 10—25% og Evrópa
(að fráteknum Sovétrííkjunum)
með 5—10%. Frá þessum stað-
reyndum er sagt í hagfræði-
legri handbók, sem er nýlega
komin út, aukin og endurbætt.
Fyrsta útgáfa hennar kom út
1952.
í þessari handbók, þar sem
skýrt er frá því, hversu mörg
börn séu í barnaskólum og
framhaldsskólum miðað við
barnafjölda hvers lands, er
einnig sagt frá því, að árið
1952 hafi verið mestur fjöldi
erlendra námsmanna í æðri
skólum eða 30.462.
Af heildarfjölda nemenda í
æðri skólum voru hlutfallslega
flestir erlendir stúdentaij við
nám í svissneskum háskólum
eða 4.065.
Mest bókaútgáfa 1952, eftir
bókaheitum fyrstu útgáfu að
dæma, var 13.150 í Bretlandi,
10.536 í Vestur-Þýzkalandi,
10.410 í Frakklandi, 9.643 í
Japan og 9.399 í Bandaríkjun-
um.
Samkyæmt handbókinni voru
til árið 1953 alls í heiminum
230.000.000 útvarpsviðtæki eða
95 fyrir hverja 1000 íbúa. Af
þessum viðtækjafjölda áttu
Bandaríkin um helminginn,
en af því voru 25.000.000 bíla-
viðtæki.
Bandaiiíkjamenn áttu líka
mestan fjölda fjarsýnistækja. í
júlímánuði 1953 voru þau
25,100,000 og slíkum tækjum
fjölgaði um kringum 40% á
ári. í Brjetlandi voru 2,900,000
og nam ifjölgunin um 70% á
á ári. í septembermánuði 1953
höfðu um tuttugu lönd reglu-
legt fjarsýnisútvarp.
Einnig er frá því sagt, að
árið 1952 hafi Hong Kong verið
þriðji stærsti framleiðandi
langra kvikmynda með 259.
Framar stóðu aðeins Banda-
ríkin með 368 og Japan með
261. Indland framleiddi 233 og
Ítalía 148.
En Stóra-Bretland átti hlut
fallslega hæstu bíósókn árið
1953. Það voru að meðaltali 26
bíóferðir á mann á ári. Stóra
Bretland hafði líka mesta dag-
blaðaútbreiðslu á hverja 1000
íbúa árið 1952. Stóra-Bretland
var með 615, Svíþjóð 490. Jap-
an og Bandaríkin voru jöfn í
fimmtasæti með 353.
Þessi nýja útgáfa bæklings-
ins er miklu nákvæmari en sú
fyrri. Allt hefur verið nákvæm-
lega endurskoðað og mörgum
nýjum löndum hefur verið bætt
inn í. Alls eru 18 línurit í bækl-
ingnum varðandi ólæsi, fræðslu,
bókasöfn, önnur söfn, bókaút-
gáfu, blaðaútgáfu, fréttakvik-
myndir, útvarp og fjarsýnisút-
varp.
Auglýsendur athugið:
Áuglýsingar, sem eiga að birtast í laugardags-
blaðinu þurfa að berast auglýsingaskrifstofunni fyrir
kl. 7 á föstudag. 5
Æfagbtaðið VWSÆR
\ •
í
Það bezta verður ódýrast,
notið þvi
BOSCH
í mótorinn.
SKIPAUTGCRÐ
RIKISINS
M.s. Skjaldbreið
fer vestur um land til Raufar—
hafnar hinn 28. þ.m. Vörumót-
taka á áætlunarhafnir á Húna-
flóa og Skagafirði, Ólafsfjörð
og Dalvík í dag og á morgun.
KYNNMÐ YÐMJít HíNA VELÞEKKTU GOEIATH KIEA
ÁÐUR EN ÞÉR FESTIO KAEP ANNARS STAÐAR
GotiatH-werh umboðið
ck.'.í_g*.., C/í
Eyðir 5,6 I. pr. 100 km.
Eyðir 5,6 !. pr. 100 km.
Eyðir 4,9 I. pr. 100 km.
BÚTASALA I ÁLAFOSS
Fjölbreytt úrval af góSum efnum í unglinga- og barnaföt. — Hentug efni í telpukápur og pils.
komio og skooið.
ÁLAFOSS* Þingholtsstræti 2