Vísir - 28.08.1954, Blaðsíða 1

Vísir - 28.08.1954, Blaðsíða 1
44. árg. «| H*j in«l Laugardaginn 28. ágúst 1954, i <j# ! .-,*i 194. tb!« ■■■ Lögreglan leitar bílþjófa á IVfýrum vestur. Stáki bil í Reykjavík í fyrrinótt en sáust vestur á Mýrum í gær. Frá því var skýrt hér í blað- inu í gær að tveimur bifreiðum hefði verið stolið úr bænum í fyrrinótt. Bifreiðir þessar voru R-13, sem var Buick-fólksbifreið, hitt var einnig fólksbifreið en af Fordgerð og bar skrás'etn- ingarnúmerið R-6369. Rannsóknarlögreglan í Rvík lét lýsa eftir báðum bifreiðun- um í hádegisútvarpinu í gær, því þá voru þær enn ókomnar fram og hafði ekkert til þeirra spurzt. En skömmu síðar bár- ust fréttir af báðum bifreiðun- um. Hafði Buickbifreiðin fund- izt mannlaus og óskemmd suð- ur í Hafnarfirði og þykir lík- legt að einhver sem átt hefur erindi þangað suður eftir, en orðið af seinn fyrir til þess að ná í strætisvagn, hafi gripið til þess úrræðis að taka bifreiðina traustataki. Um hina bifreiðina — R-6369 — barst tilkynning vestan af Mýrum laust eftir hádegið, en þá hafði hún skömmu áður sést fara fram hjá Arnarstapa og var þá á vesturleið. Skömmu síðar barst lögreglunni önnur tilkynning, þess efnis að bif- reiðin væri snúin við og hefði farið aftur fram hjá Arnarstapa þá á suðurleið. Jafnframt var tilkynnt að fjórir menn hefðu verið í bílnum. Rannsóknarlögreglan bað þá lögregluna í Borgarnesi að fara móts við bifreiðina og var það gert. Bíllinn fannst að vísu á veginum, en hann var þá mannlaus orðinn og sökudólg- ana hvergi að finna. Voru þá sendir lögregluþjónar héðan úr Reykjavík vestur á Mýrar til þess að leita bílþjófanna, en fréttir höfðu ekki borizt af þeirri leit, er Vísir fór í prent- un í gærkveldi. Flýðu land Títós. Fyrir skömmu kom ítalskur fiskibátur til Ancona á ítalíu með 34 júgóslavneska flótta- menn. Þetta er einhver stærsti flóttamannahópurinn, sem komið hefur til Ítalíu frá Júgó- slavíu, á síðari árum. í hópn- um voru 6 börn. Fólkið lagði af stað í róðrar- bát, sem sökk nokkrum mínút- um eftir að fólkinu var bjarg- að upp í ítalska skipið um 3 mílur frá Ítalíuströndum. Tveír Eskifjarðarbátar farnir á reknet í hafi. Frá fréttaritara Vísis. — Eskifirði í gærkvöldi. ..Hér hefur verið afbragðs afli á trillubáta, upp í 5 skpd. á 10 línur. Bátar, sem verið hafa á síldveiðum, eru byrjaðir að róa. Á reknet í hafi. Tveir bátar eru farnir á reknet i hafi, Víðir og Hólmaborg. Fór annar í gærkvöldi, hinn fyrir 3 dögum. — Þett eru Svíþjóðarbát- ar, 90 lesta. Síld veiðist í lagnet. Síld veiðist hér stöðugt í lag- net. Fá menn upp í 7—8 strokka i 3—4 net. Sú síld er öli fryst til beitu. Gott tíðarfar. — Heyskap að mestu lokið. Tíðarfar hefur verið gott að undanförnu og hafa flestir hirt hey sín. Mun heyskap að mestu lokið. í gærkvöldi brá til norð- anáttar og rigningar. n Frá fréttaritara Vísis. — Stokkhólmi í gær. Þrátt fyrir sigurinn yfir ís- landi verður ekki sagt, að neinn gleðibragur sé á sænskum knatt- spyrnumönnum. Eftir sigurinn yfir Finnum, sem vannst með 10 mörkum gegn 1, var farið að tala um „endur- fætt landslið", og almennt var talið, að hefna þyrfti hins háðu- lega ósigurs 1951, er Svíar töp- uðu með 3 mörkum gegn 4 i Reykjavík. Menn reyna ekki að afsaka lé- legan leik sænska landsliðsins gegn Íslendingum. íslendingar komu geysilega á óvart, — um það ber flestum saman, og þegar áhorfendur í Kalmar sáu, hve vel gestirnir léku, tóku þeir að Egilsstaðavöllur gerður lendingar* hæfur fyrir millilandaflugvélar. Flugbrauf á Þórshöfn Sending- arhæf í hausf. Sænsk rödd um landsleikinn: íslendnigar veittu Svíun hæfi- tega ráðningu í Kalmar." hrópa fyrir þeim og taka afstöðu gegn Svíum. Ekki er ósennilegt, að það hafi valdið nokkru um lélgegan leik Svía, að hægri útherji þeirra, Kurt Hamrin, einn bezti liðsmað- ur þeirra, meiddist í fyrri hálf- leik, en þó er ekki ástæða til að afsaka sig með því. En hvernig sem þessu kann að vera varið, þá er það vist, að íslendingar hafa með frammi stöðu sinni veitt sænskum knatt spyrnumönnum hæfilega ráðn- ingu, og menn vænta þess, að landslið okkar hafi lært af þess- ari reynslu, bæði í Kalmar-leikn- Um og hinum fyrri í Reykjavík. .Og eitt er víst: Haldið verður áfram að heyja landsleiki við ís- lendinga. Á næstunni verður komið fyrir brautarljósum á Egils- staðaflugvelli á Héraði og má gera ráð fyrir að því verki verði lokið innan skamms. Útbúnaður er allur kominn til landsins fyrir nokkru og kostar um 130 þúsund krónur. Flugmálastjóri ríkisins, Agn- ar Kofoed Hansen, sagði Vísi, að um leið og brautarljósum yrði komið upp á Egilsstaða- velli skapaðist þar aðstaða til millilandaflugs, sem gæti verið mjög þýðingarmikið fyrir flugöryggið. Fyrsti flugvöllur úti á landsbyggðinni sem að- stöðu fékk til þess að taka á móti millilandaflugvélum var Sauðárkrókur, en þar var brautarljósum komið upp fyrir nokkru. Er þess skemmst að minnast að sá flugvöllur kom að góðum notum í vetur sem leið, er bandarísk farþega- og flutningavél, sem hvorki gat lent í Keflavík né Reykjavík sökum óveðurs og vegna þess að vellirnir þar voru báðir lokaðir. Er talið sennilegt að þessi vél hefði farizt með allri áhöfn ef hún hefði ekki getað lent á Sauðárkróki. Má því segja að útbúnaðurinn á vell- inum h£(fi margborgað sig með því að bjarga þessum manns- lífum auk geysimikilla verð- mæta. Með hinum fyrirhuguðu að- gerðum á Egilsstaðavelli eykst flugöryggið enn til muna frá því sem verið hefur, enda eru þá komnir flugvellir á Austur-, Norður- og Suðvesturlandi sem hafa aðstöðu til þess að taka á móti millilandaflugvélum. Þá má geta þess að vitakerfi hefur verið komið upp í sam- bandi við aðflug að Egilsstaða- velli. Sá galli er þó á gjöf Njarðar að sökum takmarkaðr- ar raforku er annar vitinn ekki ævinlega nægilega öruggur. Ert úr þessu verður væntanlega bætt á næstunni. Flugmálastjóri tjáði Vísi að nú væri unnið að flugbraut á Þórshöfn á Langanesi. Verður hún 800 metra löng til þess að byrja með og er þess vænst að Douglasvélar og aðrar álíka- stórar vélar geti lent þar í haust. Á Flatey á Skjálfanda hefur verið unnið að flugvallagerð í sumar. Það verður grasvöllur og er jarðvinnu þegar lokið, þannig að völlurin er nú tilbú- inn undir sáningu næsta vor. Míkið lim uniferðarslys Aldrei hafa verið fleiri um- ferðaslys í Svíþjóð en á þessu ári. Fyrir nokkrum dögum var frsi því skýrt, að það sem af er ár- inu 1954 hefðu 500 manns farizt í umferðaslysum og síðan hafa margir farizt. Alvarlegasta slysið var, þegar 6 fórust. Móðirin, sem ók bíln- um, þrjú börn hennar og lor- eldrar hennar. Heima sat faðir- inn og beið fjölskyldunnar, sem hafði verið fjarverandi í sumar- leyfi. Aðvaranir hafa ekki borið á- rangur. Lögreglan fær við ekk- ert ráðið. Hún er of fámenn til að geta hindrað umferðaslysin. KerfingarfjaJlaför Páll Arason efnhí til ferðar í Kerlingarfjöll um helgina. Lagt verður af stað kl. 2 í dag og komið aftur annað kvöld. Farmiðar eru seldir bæði í Ferðaskrifstofu ríkisins og í Orlofi. Leiðangur á Mýrdalsjökul • * Aformað var ab leggfa á jökulinn kl. 6 í morgun. Flugbjörgunarsveitín lágði af stað héðan úr bænum kl. 7 í gær kvöldi í leiðangur á Mýrdals- jökul. Farið verður í bifreiðum aust- ur fyrir Heiði í Mýrdal eins langt og komiz.t verður. Þar eystra sam einast flugbjörgunarsveitin flug- björgunarsveitinni í Vík og yar svo ráð fyrir gert, að allur hóp- urinn héldi á jökulinn kl. 6 i morgun. Yerður þá haldið að flaki banda rísku flugvélarinnar, sem fórst 17. des. s.l. Eins og áður hefur verið getið, var fyrir skömmu þiðnað svo af flugvélinni, að ú hana sást, og verður nú athugað nánara um flugvélina. Frá Raufarhöfn. Frá fréttaritara Vísis. —< Raufarhöfn í gær. Hér er sem stendur verið að yfirtaka síld fyrir Rússa og er væntanlegt skip eftir helgina, sem tekur 300 tn. Áður hafði Fjallfoss tekið 1300 tunnur og annað skip 1000 og fór öll sú síld til Svíþjóðar jg . .Ráðstjórnin hefur hækkað verð laun fyrir hvern úlf, sem drep- inn er. Eru nú greiddar 500 rúblur fyrir hvern úlfshaus, sem kom- ið er með. Vísir gat þess fyrir fáeinum dögum, afi tveir ungir Pólverjar hefðu flúið sæluna á kænu einni úr krossviði, sem þeir höfðu smíðað sjálfir. Flýðu þeir til Danmerkur og er myndin tekia af þeim þar. Brunnsjö.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.