Vísir - 28.08.1954, Side 8
I VÍSIR er ódýrasta blaðið og þó bað fjöl-
l breyttasta. — Hringið i síma 1660 og gerist áskrifendur. WM
sim
Þeir setn gerast kaupendur VÍSIS eftir
10. hvers mánaðar fá blaðið ókeypis til
mánaðamóta. — Sími 1660.
Laugardaginn 28. ágúst 1954.
Betl látið viðgangast af
hinu opinbera í Moskvu.
Fé fæst ekki tiS að sfofna
dagheimili fyrir betlibörn.
Það ber ekki á öðru en að
fyrirlitlegt auðvaldsfyrirbæri
jhafi gert vart við sig í Rússlandi.
NeVv York Times hefur nýlega
Jbirt um að frétt frá fregnritara
sinúm í Moskvu — senda þaðan
•og því um ritskoðun stjórnarinn-
ar — að blaðið Komsomoletz, sem
■er málgagn Æskulýðsfylkingar-
innar rússnesku, hafi ráðizt á
jþetta fyrirbæri — betl — og gagn
rýnt það.
Sagði blaðið, að það væri ó-
algeng sjón að sjá börn ganga
til fullorðinna í hinum ýmsit
Ihverfum borgarinnar og biðja um
•nokkra kopeka. Venjulega væru
vegfarendur svo góðhjartaðir, að
l>eir vikju einhverju lítilræði að
börnunum, enda þótt það væri
greinilegt af klæðabttrði barti-
anna, að þau þyrftu ekki á öJ-
musu að halda.
Blaðið segir frá því, að kona
æin hafi lagt það í vana sinn að
fara með börn sín til Moskvu á
■degi hverjum, og þar hafi hún
„skipt liði“, sent börnin tíl ým-
:issa staða, þar sem þau vortt lát-
in betla af vegfarendum. Gáftt
vegfarendur börnunum óspart,
•og sagði blaðið, að tekjur þeirra
jhefðu jafnan verði svo miklar,
að þegar dagur hefði verið að
kvöldi kominn, hefði móðir
þeirra getað tekið bíl á leigu til
jþess að halda heimleiðis, þar sem
foreldrar notuðu afganginn af
peningunum til að drekka fyrir.
Komsomoletz taldi þá ekki síð-
ur ámælisverða, sem gæftt betli-
Alþjóðleg vörusýning
í Stokkhólmi.
Frá fréttaritara Vísis. —
Stokkhólmi í fyrradag.
St. Eriksmássan, hin fræga al-
þjóðlega vörusýning, sem hefst
hér á laugardag, verður að lík-
indum fjölsóttari en nokkru
sinni.
Þegar hafa 120.000 aðgöngu-
miðar selzt fyrir fram. Þar verð-
ur margt verðmætra vörutegunda
og gripa, eins og nærri má geta.
M. .a verður þar verðmætt safn
hollenzkra gimsteina, sem metið
er á um 800.000 sænskra króna,
en þar munu hollenzkir demanta-
slíparar sýna listir sínar. Þá mun
flutningavagn, til notkunr í borg
um, vekja athygli, en- hann á að
bera 180 lestir, enda sá stærsti
i Sviþjóð.
Vegleg minningargjöf
til S.V.FÍ
Slysavarnafélagi íslands hefur
borizt 5 þús. kr. minningargjöf
uni Guðmund Ólafsson frá Tröð-
um í Hraunhreppi á Mýrum.
Það eru systkini Guðmundar,
sem hafa fært Slysavarnafélaginu
þessa gjöf með ósk um að lienni
yrði varið til sjúkraflugþjóniistu
félagsins.
Félaginu barst gjöfin í gær, en
þá voru rétt 60 ár liðin frá því
Guðmundur frá Tröðum fæddist.
Foreldrar Guðmundar voru þau
Sigurbjörg Jósefsdóttir, fædd 5.
marz 1854 og Ólafur Sigurðsson,
fæddur 15. mai 1864.
börnum, en hinir, sem teldu ekk-
ert á móti því að börn sníktu fé
á götum borgaririnar. Hét blaðið
á samtök ungkommúnista, Æsku-
lýðsfylkinguna, að skipuleggja
baráttu gegn betli barna og bæta
um leið siðferði æskulýðsins.
I.oks sagði blaðið, að samtök
ein í Babusbkin-hverfinu hefðu
lengi reynt að koma upp tóm-
stundaheimilum fyrir börn, en
ekki tekizt, því að ekki liefði
verið hægt að afla fjár til þess.
Virðist því ekki mikill ábugi fyr-
ir æskulýðnum austur þar, þar
sem hið opinbera, sem hefur
valdið og peníngana, vill ekkert
aðhafast. Börn, sem væru tekin
„úr umferð“, væru jafnan geymd
innan um drykkjuræfla og glæpa
menn.
Kynnir verzltin
og viðskipta-
rnál Ísíendinga.
Um bessar mundir dvelur
hér á landi ritstjóri þýzks við-
skiptatímarits, próf. Werner
Altmann, frá Miinchen.
Erindi próf. Altmanns er að
viða að sér efni í tímarit sitt,
sem nefnist Westdeutsche Wirt-
schaft og kemur út mánaðar-
lega. Gangi honum erindið vel
mun hann gefa út sérstakt ís-
landshefti, en til þess þarf
hann bæði að viða að sér miklu
af hverskonar heimildum og
gögnum um verzlun og við-
skipti íslendinga og jafnframt
að safna auglýsingum frá fyrir-
tækjum hér, sem stofna vilja
til eða halda áfram viðskipt-
um við Vestur-Þýzkaland.
Tímarit það, sem hér um
ræðir, Westdeutsche Wirt-
schaft, gefur iðulega út sérhefti
frá ýmsum löndum með rit-
gerðum, myndum og auglýs-
ingum og er þá reynt að draga
fram sérkenni í framleiðslu og
viðskiptum hvers lands. Sjálfur
er próf. Altmann ábyrgðarmað-
ur tímaritsins og ritstjóri
þeirrar deildar þess sem fjallar
um önnur lönd en Þýzkaland.
Próf. Altmann dvelur hér
ásamt konu sinni. Hafa þau
ferðast nokkuð um landið og
munu gera það enn unz þau
hverfa á brott. Láta þau hið
bezta yfir dvölinni hér pg
róma fegurð og sérkennileik
landsins.
Jesúítaprestur
vígður
í Svíþjóð.
Frá fréttaritara Vísis. ■
Stokkhólmi í fyrradag.
Fyrsta jesúítaprestsvígslan
Svíþjóð fór fram hér um daginn,
þegar 32 ára gamall Svíi, sem
gerðist kaþólskur 1943, vígðist
til þjónustunnar.
Ármewiiagar komnir heim eftir
sigurför um Finnland.
Kepptu alls á 5 stöðum og áttu oftast
fyrsta mann í hverri grein.
Ármenningarnir, sem fóru! Komu Ármenningarnir að
til Finnlands, komu heim í gær! kvöldi 12. þ.m. til Helsingfors
með flugvélinni Heklu frá
Gautaborg eftir 15 daga ferða-
..A 15. og 16. öld voru ýmsir i lag. Fóru þeir alls 10 héðan, en
Svíar jesúítaprestar, en þeir voru einn þeirra, Vilhjálmur Einars-
menntaðir erlendis og störfúðu j son, fór til Bern 23. þ.m. með
þar. En þessi nývígði ætlar að finnsku frjálsíþróttamönnunum
starfa í Svíþjóð. I til að keppa þar í þrístökki.
Efnt til brezkrar bókasýn-
ingar hér bráðlega.
Verðnr í Þjóðminiasafninn
frá 4,—14. septembei*.
Fyrsta brezka bókasýningin, þeirra fjalla um ýmis tæknileg
sem efnt er til hér á landi, mun efni, vísindi og þar fram eftir
BílBinn stó5 óhreylður
í 8 ár.
í Brooklyn, New York stóð
bifreið óhreyfð fyrir utan hús
eitt í samfleytt 8 ár. Eigandinn
bjó í húsinu og kvaðst hafa rétt
til bess að hafa bifreiðina
þarna.
Menrl kunnu því illa, er bif-
reiðinni tók að hrörna, að sjá
hana þarna, og báru títt fram
kvartanir, sem lögreglan loks
sinnti fyrir rúmri viku. Þetta
var Chevroletbifreið, smíðuð
1937.
verða opnuð »' Þjóðminjasafninu
þann 4. september og stendur
til 14. s.m.
Sýning þessi er haldin á veg-
um Brezku menningarstofnun-
arinnar (British Council) og
félagsins Angliu, en það var
brezki sendiherrann hér, Mr.
James Thyne Henderson, sem
fékk hugmyndina að sýning-
unni.
Blaðamenn ræddu við sendi-
herrann í gær, og sagði hann,
að sér hefði þótt miður, að hér
skyldu aðeins sjást brezkar
skáldsögur í verzlunum, en ekki
til dæmis fræðibækur um
tæknileg efni, listir og annað.
Spurði hann bóksala um þetta,
en þeir svöruðu, að slíkar bæk-
ur væru dýrar, og þess vegna
að tefla í tvísýnu að panta þær.
Fannst sendiherranum þá rétt
að efna til sýningar þessarrar,
og er nú verið að taka bækurn-
ar upp og byrja að koma þeim
fyrir.
Alls verða 1350 bækur og
tímarit á sýningunni, og er hér
um bækur hins ólíkasta efnis
að ræða, allt frá tímaiúti um
þyrilvængjur til Kantaraborg-
arsagna Chaucers. Fjölmargar
götunum, sumar hið bezta, sem
til er af þessu tagi í Englandi.
Það er að sjálfsögðu ósk
þeirra, er að sýningunni standa,
að sem flestir sæki hana, en
þegar henni ljúki, verða ekki
og tók þar á móti þeim frú
Forsberg, en hún annast mót-
tökur erlendra íþróttamanna,
sem keppa á vegum frjáls-
íþróttasambandsins finnska.
Fyrst var keppt í Vehan-
kyröen. Þar var keppt í þrí-
stökki, langstökki, 400 metra
hlaupi, kúluvarpi og 800 m.
hlaupi. Áttu Ármenningamir
fyrsta mann í öllum þessum
greinum, nema 800 m. hlaup-
inu, en þar áttu þeir þriðja
mann.
Næst var keppt í Vasa, en
þar áttu þeir fyrsta mann í
langstökki, 400 m. hlaupi, 1. og
2. mann í 200 m. hlaupi, og
settu vallarmet í 1000 m. boð-
hlaupi.
Frá Vasa var farið til Vim-
peli og keppt þar í 100 m.
hlaupi, 200 m. hlaupi, 400 m.
hlaupi, langstökki 4X100 m.
boðhlaupi og kúluvarpi. Unnu
Ármenningar allar þessar
greinar nema kúluvarpið.
Því næst var farið til Pori
allar bækurnar sendar úr landi
Um 1000 þeirra munu verða j (Björneborg), en þar, fór aðal-
settar í bókasafn Angliu, sem j keppnin fram.
f 200 m. hlaupi sigraði Hörð-
ur Haraldsson á 22,1 sek, en
er í húsakynnum brezku sendi-
sveitarinnar í Þórshamri, og
tvöfaldast bindafjöldi safnsins
við það.
í heiðursstjórn sýningarinnar
munu verða Bjarni Benedikts-
son menntamálaráðherra, dr.
Þorkell Jóhannesson, rektor
háskólans, Björn Pétursson,
formaður bóksala, Helgi Elías-
son, fræðslumálastjóri, Krist-
ján Eldjárn, þjóðminjavörður
og dr. Einar Ólafur Sveinsson.
Auk þess mun fulltrúi frá Brit-
ish Council koma til landsins,
meðan á sýningunni stendur.
Mönnum gefst og kostur á að
kynna sér tímarit, sem þeir
kynnu að vilja gerast áskrif-
endur að, og munu bóksalar
skiptast á að hafa mann á sýn-
ingunni til að taka við áskrift-
Drengja- og uflgfingamót í
frjálsum íþróttum hefst í dag.
1’áÉítakendur ersi 80 frá £6 félögum.
I dag og á morgun; fara
drengja- og meistaramót ís-
lands fram í frjálsum íþróttum
á íþróttavellinum í Reykjavík.
í drengjameistaramótinu taka
þátt þeir sem verða 18 ára á
yfirstandandi ári eða yngri, en
í unglingameistáramótinu 19—
20 ára piltar.
Bæði mótinu eru háð sam-
tímis enda þótt hver aldurs-
flokkur keppi sér, nema í há-
stökki og langstökki, þar er
sameiginleg keppni, en þó
þannig að árangur hvers aldl
ursflokks er reiknaður út af
fyrir sig og verðlaunaveitingu
hagað eftir því.
Þátttakendur í báðum mót-
unum eru 80 frá 16 íþrótta- og
ungmennafélögum víðsvegar
1 um land, þ. á. m. héðan úr
Reykjavík, frá Akureyri,
Hafnarfirði, Kjalarnesi, Siglu-
firði/, Vestmannaeyjum, Kefla-
vík, Borgarfirði, Skagaströnd,
Selfossi, úr Snæfellsnessýslu og
víðar.
Keppnigreinar eru 12 í
drengjaflokki en 14 í unglinga-
flokki. Mest er þátttaka í
langstökki, en þar er 21 kepp-
andi í báðum aldursflokkum.
í mörgum öðrum greinum er
einnig ágæt þátttaka og m. a.
eru 13 þátttakendur í 300 m.
hlaupi í yngri aldursflokknum.
Mótin hefjast bæði kl. 2 e.h.
í dag og fer aðalhluti þeirra
fram í dag og á morgun, en
mótinu lýkur svo með þríþraut
á mánudaginn.
Frjálsíþróttadeild K.R. sér
um mótin.
annar var Hilmar Þorbjörns-
son á 22,3 sek. Þessi árangur
Harðar reyndist vera bezti ár-
angur mótsins samkvæmt
stigatöflu og hlaut hann að
launum forkunnarfagran silfur
bikar. Þórir Þorsteinsson vann
400 m. hlaúpið á 49,6 sek. og
bætti þar með drengjamet
Hauks Clausen um 8/10 úr
sek. Þrístökk vann Vilhjálmur
Einarsson eftir mjög harða
keppni við Finnann Niemále,
en hann hafði áður náð svipuð-
um árangri og Vilhjálmur. Á
þessu móti stökk Sigurður
Friðfinnsson 6,90 í langstökki,
Síðasta keppnin fór fram í
Inkeronen, sem er skammt frá
Helsingfors. Af árangrum frá
því móti má nefna að Hörður
sigraði Finnann Tavisalo og
Norðmanninn Johanson, en þeir
eru báðir þekktir spretthlaup-
arar á Norðurlöndum. Tavisalo
var annar á finnska meistara-
mótinu fyrir skömmu. Hljóp
hann þá vegalengdina á 21,9
sek.
Þar setti Þórir Þorsteinsson
nýtt drengjamet í 800 m.
hlaupi. Hljóp hann vegalengd-
ina á 1,55,7. Er það þriðji bezti
árangur íslendings í því hlaupi.
Þess má geta til gamans, að
á mótinu í Pori keppti ein-
fættur maður í hástökki.
Stökk hann þar 1,75 m. en
hefur stokkið hæst 1,80 m.
Róma Ármenningar mjög
allar móttökur og fyrirgreiðslu
í Finnlandi.
Einkaskeyti frá AP. —■
Málmey í gær.
A.-þýzkur lögregluþjónn og
bróðir hans struku með járn-
brautarferju frá Sassnitz í gær.
Leyndust þeir undir segli á
ferjunni, og gáfu sig ekki fram,
fyrr en ferjan var komin til
Trállenborg. Leituðu þeir til
lögreglunnar • þar og báðu um
hæli sem pólitískir flóttamenn.