Vísir - 31.08.1954, Blaðsíða 8
if
VÍSIR er ódýrasta blaðiS og þó það fjöl-
breyttasta, — HriagiS I síma 1860 og
gerist áskrifendur.
"VlSIR
Þriðjudaginn 31. ágúst 1954
Þeir sem gerast kaupendur VÍSIS eftit
19. hvers mánaðar fá blaðið ókeypis til
mánaðamóta. — Sími 1660.
Evrópnsáíimáliiin:
Krafizt aðgerða af iiálfu
Breta vegna afstöðu Frakka.
Churchill og Eden eiga að taka
forustuna.
Einkaskeyti frá P.
London í morgun.
Þrjú kunn brezk blöð birta í
morgun fregnirnar frá París um
að fulltrúadeildin hefði fellt Ev-
rópusáttmálann,, undir fyrir-
sögninni: Frakkland fellir Ev-
rópusáttmálann.
Krafizt er skjótra aðgerða og
Churchill og Eden hvattir til þess
að laka forystuna í málum álf-
unnar. Blöðin virðast ganga út
;frá því sem sjálfsögðu, að Bret-
land verði að taka á sig nýjar
skuldbindingar, þótt stjórnin
hafi margtekið fram áður, að
hún hafi gengið eins langt í
slíkum skulbindingum og hún
frekast gat.
í>að hlaut að I
'fara svona. '
Mendes-France sagði við
fréttamenn í gserkveldi, að
íhandamenn Frakka hlytu að hafa
gert sér ljóst, að þetta hlyti að
fara svona, því að hann hefði
tekið skýrt og greinilega fram
við þá, að meirihluti væri ekki
■fyrir staðfestingu í deildinni. —
Mendes-France kvað svo að orði,
• að hanh teldi ekki vonlaust um
/nýjar leiðir.
Hið minnsta sem
Frakkland getur gert.,
sagði Times í morgun, er að
leggja engar hindranir á veginn,
. sem liggur að þvi marki, að Vest-
ur-Þýzkaland fái fullt sjálfstæði.
Mörg blöð taka fram, að Bret-
;land og Bandaríkin verði nú að
hefjast handa um það þegar í
stað og veita Vestur-Þýzkalandi
- fullt og óskorað sjálfstæði.
Sögulegur þingfundur.
Það var sögulegur þingfund-
ur í fulltrúadeildinni, er frum-
varpinu var vísað frá með 319 at
kvæðum gegn 216.
Umræður voru mjög harðar á
köflum og er til atkvæðagreiðslu
kom var fyrst borin upp sú til-
KonungsblkiL?.
laga, sem lengst gekk, en hún
var þqss efnis, að málinu skyldi
vísað frá og næsta mál tekið
fyrir. Var hún samþykkt nteð
fyrrnefndum atkvæðamun. Ráð
herrar sátu Iijá. Róttæki flokk
urinn var klofinn, er til atkvæða
kom, svo og flokkur jafnaðar-
manna, þrátt fyrir liótanir mið-
stjórnarinnar um réttindasvift-
ingu, ef þingmenn flokltsins i
greiddul eklci sáttmálanum at-
kvæði. — Eftir atkvæðagreiðsl-
una kyrjuðu andstæðingar sátt-
málans þjóðsönginn og mikið
var um hróp og köll og lá oft
við handalögmáli, og urðu þing-
verðir að ganga á milli — í öll-
ttm ræðum andstæðinga sáttmál-
ans gekk tortryggnin gamla í
garð Þjóðverja ljósum logum.
Áhrifamesta ræðan
sem flutt var við umræðuna
var ræða Herriot, hins aldna
leiðtoga róttæka flokksins og
fyrrverandi þingforseta, sem
kominn er yfir áttrætt, en hann
lýsti yfir þeirri skoðun sinni, að
staðfesting sáttmálans boðaði
endalok Frakklands. Hann kvaðst
vera háaldraður orðinn og mað-
ur á hans aldri hugsaði aðeins
um það hvað ættjörðinni væri
fyrir beztu.
Stjórnarfundir
verða tíðir
hjá vestrænu þjóðunum næstu
daga. Brezka stjórnin kenitir sam
an á fund í vikunni, sennilega
einnig ítalska stjórnin en Scelba
forsætisráðherra, sem var i sum"
arleyfi, fór í skyndi til Rónta-
borgar, er kunnugt var orðið ttm
úrslitin. Franska stjórnin mun
koma saman til fundar þegar í
dag. Er nú spurt hvort þeir ráð-
lterrar, sem vildu Evrópusátt-
málann, muni styðja Mendes-
France áfrant, — einn af þessum
4 ráðherrum hefur þegar beðist
lausnar.
*
Islenzkur námsmaður fær
verðlaun vestan hafs.
Aðalsteinn Guðjohnseii fra Hnsavik
leggur siíia nri á rafmagnsverkfræði.
Ungur íslendingur Aðal-
steinn Guðjohnsen, hefur feng-
ið heiðursstyrk (honorary
fellowship) frá Stanford
University fyrir frábæra náms-
hæfileika. Hefur hann undan-
farin 3 ár stundað nám í raf-
magnsverkfræði við University
of Pennsylvania og tók þaðan
Bachelor of science-próf s. 1.
vor og var efstur í deildinni.
Aðalsteinn er 22 ára gamall.
19 ára gamall tók hann stúd-
entspróf frá Menntaskólanum
í Reykjavík og fór þá strax
vestur og hefur stundað nám
í rafmagnsverkfræði.
Hann hefur verið hér heima
í sumar, en fór í gærkv. vestur
og mun stunda nám í vetur við
Stanford University, en það er
um 50 km. fyrir sunnan San
Francisco.
Aðalsteinn er fæddur á
Húsavík 23. des 1931. Sonur
hjónanna Einars og Snjólaugar
Guðjohnsen en þau eru nú bú-
sett í Reykjavík.
Hér birtist mynd af „Konungs-
bikár“ — en það er verðlauna-
gripur sá, sem Friðrik Dana-
konungur IX. hefur heitið
þeirri þjóð, er hefir sigur í
norrænu sundkeppninni.
fíók Mst/wt iny —
Franth. af 1. síðu.
Kuhn liafði ýmisf tekið sjálfui-
eða útvegað.
Er það mál manna, að sýning
þessi hafi veTið hin ákjósanleg-
asta landkynning fyrir ísland
og ntjög aukið og giætt áhuga
Kielarbúa fyrir íslandi og ís-
lendingum.
Haftiði Gudmimdsson
goHmeístari Akur-
eyrar.
Akutþyri, í gær.
Golfmeistaramóti Akureyrar
er nýlokið og varð Hafliði Guð-
mundsson golfmeistari.
Bar Hafliði sig ur úr býtum
í 321 höggi. Næstur varð Jó-
hann Þorkelsson með 326 högg
og þriðji Sigtryggur Júlíusson
með 332 högg.
Samtímis fór fram keppni í
1. flokki og þar sigraði Árnþór
Þorsteinsson, en næstur honum
varð Jóhann Guðnason.
Landsnefnd stmdkeppniimar
styrkir HoHandsfara.
Afhendir þeim 5 þús. kr. gjöf í dag.
í dag afhendir landsnefnd
Samnorrænu sundkeppninnar
Hollandsförunum, sem taká þátt
í skákmótinu þar í vikulokin 5
þúsund króna g'jöf, er rennur í
fararsjóð þeirra sexmenninga.
Hlaiupagarpurinn
Whitfíeld kemur
hingað.
..Hingað er væntanlegur í vin-
áttu- og kynnisheimsókn 2. sept.
næstkomandi einn af kunnustu
íþróttamönnum Bandaríkjanna,
Mal Whitfield, sem kunnastur er
fyrir sigra sína í 800 og 400 metra
hlaupi.
Á seinustu Ólympiuleikúm, er
haldnir voru, í Helsinki, varð
hann Ólympíumeistari í 800 m.
hlaupi.
Mal Whitfield kemur hingað
á vegum sendiráðs Bandaríkjanna
er tilkynnti íþróttafulltrúa rík-
isins komu hans, en hann aftur
stjórn Frjálsíþróttasambandsins.
Hyggja frjálsíþróttamenn gott til
komu hins bandaríska íþrótta-
manns. Eigi mun verða úr því
skorið hvort Whitfield tekur þátt
í keppni hér, fyrr en eftir komu
hans, en íþróttamenn og aðrir
vona að sjálfsögðu að þeir fái
tækifæri til að sjá þenna hlaupa-
garp taka sprettinn, og að koma
hans megi verða íþróttamönnum
hér til gagns og ánægju.
Sáttmáli S.Þ. verði
endurskoðaður.
Einkaskeyti frá AP.
Vínarborg í morgun
Á alþjóða! þingmannafundin-
urn í Vínarborg hefur verið lagt
til, að sáttmáli Sqjneinuðu þjóð-
anna verði endurskoðaður.
Meðal þingmanna sem gagn-
rýndu Sameinuðu þjóðirnar var
Wiley formaður utanríkisnefnd-
ar þjóðþingsins, einnig Kefativer,
sem gaf kost á sér seinast sem
forsetaefni í Bandarikjunum.
Hann ræddi hættuna, sent af því
stafaði að taka ákvarðanir itm
stórmálin æ meira utan vett-
vangs S.þj. og þar væri hans
land jafnsekt og önnur. Meðal
annarra sent báru frarn gagn-
rýni var fulltrúi PakistanS, sem
kenndi þvi um, að S.þj. væru á-1
hrifalitlar, að þær ltefðu eltki
nauðsynlegt vald en neitunar-
valdið ltefði orðið til tafa og mik-
ils tjóns.
Er Trenker
ritþjófur?
Einkaskeyti frá AP. —
Vín í gær.
Austurríski rithöfundurinn
Fritz Weber hefur höfðað mál
gegn kvikmyndastjóranum og
leikaranum Luis Trenker og
ásakað hann fyrir ritstuld.
Heldur Weber því fram, að
Trenker hafi alls ekki skrifað
fjórar bækur, sem komið hafi
út undir hans nafni, og heita
„Ladurner höfuðsmaður",
„Rocca Alta“, „Elddjöfullinn“
og „Stjörnur yfir tindunum“.
Höfundur þessara bóka sé
Fritz Weber.
Samþykkti nefndin að færa
Hollandsförum þessa gjöf til þes
að þeim yrði gert kleift að keppa
fyrir íslands ltönd á erlendum
vettvangi og til þ.ess að geta sýrit
untheiminúm að við érum engir
veifiskatar, eða amlóðar. Jafn-
framt til þess að sýna það að
iþróttamenn vilja styrkja og
standa við ltlið hvers þess seni
berst fyrii- heiðri og sæmd , ís-
lands.
Forstöðuirienn Sámnorrænu
sundkeppninnar töldu sig viíja
með þessu votta jtakklæti sitt til •
þjóðarinnar fyrir þátttöku henn-
ar í sundkeppninni frá þvi er
hún hófst í vor. Jafnhliða hefur
sala sundmerkjanna í sumar
verið svo mikil og gefið svo góð-
an ágóða að forstöðumenn sund-
keppninnar töldu sig geta var-
ið framangreindum 5 þúsund
krónum í utanfararsjóð Hollands
fara.
En auk framangreindrar 5
þúsund króna gjafar ltafa for-
stöðumenn Samnorrænu sund-
kepþninnar hér ákveðið að 50
aurar af hverju sundmerki, sem
selst frá sunnudageinum 22. ág.
s.l. skuli renna í fararsjóð Hol-
landsfaranna.
Dræm þáfftaka í nor-
rænu sunékeppniniiis.
Þátttaka hefur verið fremur
dræm - sanmorrænu sund-
keppninni. Engar nvjar tölur
hafa borizt, en fyrir um viku
síðan höfðu alls um 30 'þúsund
manns tekið bátt í henni.
Var þá Ólafsfjörður hæstur
með 40%. Næst var Hveragerði
með 33%, Hafnarfjörður með
20%, Reykjavík 16%.og Akur-
eyri og Keflavík með 15%. |
Forsetanum fært
vínglasasett
ai gjöf.
Tékkneska viðskiptanefndin,
sem kom hingað til að ganga
frá viðskiptasamningnum, fer
á morgun.
Nefndin sat nýlega boð að
Bessastöðum, og við það tæki-
færi afhenti formaður nefnd-
arinnar, Schlegl, forsetanum .að
gjöf vínglasasett úr „Moser“-
kristal. Eru þau með fanga-
marki forsetans.
„Moser“-glös eru mikið
keypt af þjóðhöfðingjum,
ríkisstjórnum og sendiherrum
ýmissa landa.
Áætlað hefur verið að hafa
útstillingu í haust á „Moser“-
kristal og öðrum tékkneskum
gler- og kristalvörum.
Umboð fyrir „Moser“-krist-
al hér á landi hefur Jón Jó-
hannesson & Co.