Vísir - 21.09.1954, Side 1
44. árg.
Þríðjudaginn 21. september 1954.
214. tbl
Daufar umræður stúdenta
um vandamál skáldskapar.
Frummælandi áimahiiiidiiiii
vegna luiðnæturboðs!
Stúdentafélag Reykjavíkur hélt
fund í gærkveldi í Sjálfstæðis-
húsinu. Viðfangsefni fundarins
var „Vandamál skáldskapar &
vorum dögum“, og flutti Halldór
Kiljan Laxness framsöguerindi.
Stóð erindið i um klukkutima
og fjallaði um stríð og frið, stefn-
ur og strauma, vetnissprengjur og
atómskáldskap, ljóð og laust mál.
Kom hann mjög víða við og var
erindi hans að vonum mjög
skemmtilegt, en sjálfu viðfangs-
efni fundarins, „Vandamáli skáld
skaparins á vorum dögum“, voru
ekki gerð ýkja mikil skil. Svo virt
ist raunar, sem erindið væri
fremur samið fyrir útlendinga en
íslendinga.
Að framsöguerindinu loknu
töluðu Kristján Albertsson sendi-
ráðsfulltrúi, Lárus Sigurbjörns-
son rithöfundur, Kristján Guð-
laugsson hæstaréttarlögmaður,
Thor Vilhjálmsson rithöfundur,
Þorsteinn Thorarensen blaða-
maður og Ólafur Gunnarsson sál-
fræðingur.
Tveir þeirra, þeir Þorsteinn
Thorarensen og Thor Vilhjálms-
son deildu allhart á frummæl-
anda, en báðir, að því er virtist,
af misskilningi á framsöguræð-
unni, þvi að erindi frummælanda
var þannig samið, að það gaf ekki
mikið tilefni til andmæla. Nið-
„Kfedda Gabler46
á kvikmynd.
Einkaskeyti til Vísis.
Stokkhólmi, í gær.
Samkvæmt frétt frá New
York á hin vinsæla ameríska
leikkona, Audrey Hepburn, að
leika í kvikmynd í Noregi á-
samt Mel Ferror.
Er það „Hedda Gabler“ eftir
Ibsen, og á kvikmyndunin að
fara fram í vetur. Leikur Hep-
burn aðalhlutverkið.
urstaða frunnnælanda virtist vera1
sú, að vandamál skáldskapar á
t'orum dögum Væri að stuðla að
varðveizlu friðarins, og um það
ættu menn að geta verið sain-
mála.
Að lokum talaði frummælandi
aftur. Hafði verið beint að hon-
um nokkrum spurningum, sem
hann kvaðst ekki ha.fa tíma til að
leysa úr, þar eð hann þyrfti í
miðnæturboð.
Deilt ium Filips-
eyjaher.
Bandarísk blöð segja, að ekkii
hafi allt fallið í ljúfa löð milli
Dullesar og valdhafa Filips-
eyja, eij Dulles var þar á dög-
unum þegar SEATO-sáttmál-
inn (SA-Asíu-sáttmálinn) var
undirritaður.
Filipseyjastjórn vill, að
Bandaríkin beri kostnað af her
Filipseyja og greiði m. a. fyrir
einkennisbúninga, matvæli og
kaup hermannanna. Á einum
fundi um þetta varð Dulles svo
reiður, að hann strunzaði út.
Akkerið kom upp
með ájúpspreitgju
Einkaskeyti frá AP. —
London á laugardag.
Þegar flutningaskip x Til-
bury-höfn dró upp akkeri sitt
í gærkvöldi, kom einhver ó-
kennilegur hlutur upp með því.
Við rannsókn kom 1 ljós, að
hér var um djúpsprengju að
ræða, sem einhvern veginn
hefur lent í höfninni, sennilega
á stríðsárunum, en dýpið ekki
verið nægilega mikið til að
hleypa sprengingu af stað. Sér-
fræðingar frá flotanum fjar-
lægðu sprengjuna af akkerinu.
1000 læknar frá 33 k>mhim
á ráðstefnu í Stokkhófani.
40 ern skráðir seui fyrirlesarar.
Einkaskeyti tii Vísis. Á ráðstefnunni eru læknar
Stokkhóhni, í gær. frá 33 löndum.
Eitt þúsund læknar frá öllum
álfum heims eru nú á ráðstefnu
í Stokkhólmi.
Þrír þáttakenda eru Nóbels-
verðlaunahafar — Brain, Dom-
tayk og Hench — og margir
eru heimsfrægir. Ráðstefnan á
að standa yfir í fjóra daga.
Fjörutíu læknar eru auglýst-
ir sem fyrirlesarar. Mikill fróð-
leikur um lyflækningar og
skurðlækniniar verður vafa-
laust á borð borinn áður en
ráðstefnunni lýkur.
Rússar smala bak-
teríufræðingum.
Allmikla furðu vakti í Aust-
ur-Þýzkalandi fyrir skömmu,
að lögreglan smalaði saman
öllum bakteríusérfræðingum
Iandsins.
Sagt er, að úr þeirra hópi
verði valdir menn, sem sendir
verði til Ráðstjómarríkjanna til
rannsókna á sviði bakteríu-
hernaðar.
Stórsókn hófst í rnorgnn
á síldarmiðuin hér syðra.
m vopnsð rifflum, hrefnubyssum 09 , ~7~.
Hrí5skotabyssum á 50 bátutn tekur þátt DailflatejS-
í sóknnmi. áforill á (töfmití.
„Samræmdar bernaðaraögerðir--,
esi enginn jfirbersbofðingi — báta-
formenn stjórna.
Samkvæmt einkaskeytum
frá fréttariturum Vísis
á Suðurnesjum.
Snemma í rnorgun létu bátar
frá Sandgerði, Grindavík og Kefla
vík úr höfn — um 50 bátar — og
var ekki farið á reknetaveiðar
að þessu sinni.
Hér var um að ræða vel undir-
búna og skiplagða herferð gegn
háhyrningavöðunum, sem að
imdanförnu hafa valdið svo
miklu veiðarfæratjóni, að ekki
er annað sýnna en hætta verði
veiðúnum, nema herferðin lieppn
ist.
flotinn, eða a. m. k. flotadeild
í kast við vöðu þessa, og er
það háft eftir formanni á ein-
um bátnum, sem heyrðist í
nokkru fyrir hádegi, að atgang-
ur hafi verið harður og gizkað
á, að þegar hafi verið drepnir
nokkur hundruð háhyrningar,
og menn búist við að „skjóta
mikið“.
Aþena (AP). — Papagos
marskálkur, forsætisráðherra
Grikklands, ætlar að ferðast tii
Spánar í næsta mánuði.
Komist hefur á kreik orð-
rómur um, að til athugunar sé
nánar samstarf milli Spánar,
Ítalíu, Grikklands og arabisku
þjóðanna. Er jafnvel sagt, að
af hálfu spænsku stjórnarinn-
ar sé von á tillögum í þessu
efni, og muni Papagos ræða
þær við Franco í Spánarferð-
inni.
Hér er um „samræmdar liern-
aðaraðgerðir" að ræða, eins og
stundum er sagt i erlendum
skeytum. Á öllum bátunum eru
islenzkir sjómenn með sín eigin
vopn, riffla og hrefnubyssur, en
auk þeirra tveir Bandaríkjamenn
á hverjum bát með hríðskota-
byssur.
•Ekki er neinn yfirhershöfðingi
í herferðinni, i rauninni eru það
formenn á bátaflotanum
stjórna henni, þeir hafa stöðugt
talsamband sín í milli, um liversu
hernaðaraðgerðum skuli haga.
Frá Sandgerði fóru bátarnir
kl. 5 í morgun, 7—8 bátar og frá
Grindavík 7 bátar til móts við
Sandgerðisbátana, en hinir eru
flestir frá Keflavík — alls um
50 bátar. Bátarnir dreifa sér
yfir stórt svæði og er ætlunin að
reka háhyrningavöðurnar á und-
an sér til hafs og skjóta eins
marga og frekast er unnt.
Laust fyrir klukkan tíu bár-
ust fregnir um, að orustan
væri byrjuð og margir háhyrn
ingar skotnir og sjórinn all-
ur blóði litaður og horfur góð-
ar, að unnt yrði að gera hinn
mesta usla í óvinaliðinu á
flótta þess út i hafsauga.
Nánari fregna af orustunni er
beðið með miklum spenningi í
verstöðvunum, og eigi síður eft-
ir hvernig gengur, er bátarnir
fara á reknetaveiðar næst, því að
þá kemur árangurinn af henni
í ljós.
Fiskifélag íslands hafði for-
göngu um, að leita aðstoðar hers-
ins í sókn þeirri, sem hafin er
gegn háhyrningunum.
Síðustu fregnir af orrustunni
eru þessar:
Vélbáturinn Guðbjörg frá
Hafnarfirði lét reka sunnar-
lega og urðu skipverjar varir
við háhyrningavöðu, sem kom-
ist hafði í reknetin. Komst
Þessi rússneski skriðdreki, af gerðinni T-34 var sá fyrsti, sem
ók inn í Berlín árið 1945. Hann var settur upp á steinsökkul
og hafður sem minnismerki í Vestur-Berlín. Nú hafa Rússar,
óskað eftir að mega flytja hann á brott.
SpeHvirkiifn skilaði sprengju.
Þáði uppgjafarboð Breta.
Einaskeyti frá AP.
Singapore í gær.
Sprengjuflugvélar hafa í heila
viku haldið uppi loftárásum á
Ofír-fjall í Muar-héraði í Johore-
fylki.
Er nú svo komið, að spellvirkj-
ar hafast einkum við þar, og
hefur Lincoln-sprengjuflugvélum
verið beitt til þess að hrekja þá
úr hælum þeirra. Stórskotalið
hefur einnig komizt svo nærri
fjallinu, að hægt hefur verið að
halda uppi fallbyssuskothríð á
það.
Klukkan sex í morgun var
skothríðinni svo snögglega hætt,
og loftárásunum einnig, en flug-
vél búin sterkum hátölurum flaugþurfa á að halda.
yfir fjallið og tilkynnti spellvirkj
um, að nú væri tækifærið til að
gefast upp. Þeir þyrftu ekki ann<
að en að halda til þorpa þeirra.
sem væru við rætur fjallsins, þvi
að ibúarnir þar mundu vel’ða.
þeim lijálplégir við að koma boð-
um um uppgjöf til brezkra her«
sveita.
Einnig var spellvirkjum til-
kynnt, að engar hersveitir mundu
verða á þessum slóðum næstu
þrjá daga, svo að þeir þyrftu
ekki að óttast, að hér væri um
gildru að ræða.
Þlrír ungir spellvirkjar gáfu
sig fram þegar i stað, og hafði
einn þeirra meðferðis jarð-
sprengju, sem hann kvað þá ekki