Vísir - 23.09.1954, Síða 4

Vísir - 23.09.1954, Síða 4
VÍSIR Fimmtudaginn 23. september 1954. WlSXR DAGBLAÐ Ritstjóri: Hersteinn Pálsson. Auglýsingastjóri: Kristján Jónsson. Skrifstofur: Ingólfsstræti 3. Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F. Lausasala 1 króna. Félagsprentsmiðjan h.f. Er til amtað Hf ? Kvöldvaka stúdenta amtað kvöld. Þar ganga prestar og verkfræðing- ar undir landspróL Stúdentafélag Reykjavíkur heldur kvöldvöku annað kvöld og hefst hún kl. 9 í Sjálfstæð- ishúsinu. Löngum hefur verið um það deilt, hvort til muni vera líf eftir jarðvist manna, og hefur sýnzt sitt.hverjum eins og gengur, enda oft erfitt að koma við sönnunum, sem allir geta sætt sig við. Sumir eru sannfærðir um, að sálin muni eiga í vændum vist á öðru tilverustigi, er hún hefur yfirgefið húsa- kynni þau, sem henni eru búin hérna megin grafar, en efnis- hyggjumennirnir munu vera alveg eins sannfærðir — ef ekki sannfærðari — um að ekkert slíkt komi til greina. Hér er ekkt ætlunin að bollaleggja verulega um þetta deiluatriði, en um þessar mundir getur þó verið fróðlegt að hugleiða, hvort menn geti risið upp eftir pólitískan dauðdaga. Slíkar hugleiðingar hljóta óhjákvæmilega að gera vart við sig eftir þing Alþýðuflokksins, sem lauk í fyrrinótt, en það batt endi á feril formannsins, sem náði völdum með byltingu fyrir tæpum tveim árum, en það þóttu að sjálfsögðu talsverð tíðindi að sá maður skyldi ná slíkum völdum. Þeir, sem til þekkja í Alþýðuflokknum, vita gerzt um það, að fylgismenn Hannibals gerðu ráð fyrir, að gullöld mundi upp renna hjá þeim ' flokki með formannsskiptunum. Honum átti ekki að vera neitt ómögulegt, og formaðurinn tilkynnti það sjálfur, er hann var staddur í góðum fagnaði meðal manna úr „bræðraflokkunum" á Norðurlöndum, að hann mundi verða maður til að sjá um það, að Alþýðuflokkurinn á íslandi yrði ekki lengur minnsti flokkurinn þar í landi. Og sjá, það varð orð að sönnu, því að þegar gengið var til kosninga á árinu sem leið, rættist sú spá formannsins, að finnast mundi minni flokkur hér á landi. Nýr flokkur var kominn til sögunnar og í honum pólitískir umrenningar úr ýmsum áttum, og þeir höfðu það af að njóta minna fylgis en Alþýðuflokkurinn. Á sjálfan formanninn var það lagt, að hann hratt frá sér fylginu, svo að hann skreið rétt á Alþingi, og má því segja, að flokksmenn hans hafi gert það, sem þeir gátu til þess að gera hann að ómerkingi gagnvart vinum hans úti á Norðurlöndum. Og var mæða hans enn meiri fyrir þá sök, að hann hafði átt vingott við framsóknarmenn, sem höfðu heitið honum stuðningi gegn samskonar hlunnindum í öðrum kjördæmum. En þegar svo illa tókst til með þetta bandalag, sneri formaðurinn sér að kommúnistum og gerði sér vonir um nokkra uppreisn æru af þeirra hálfu, en sú stefnubreyting mun fyrst og fremst hafa ráðið falli hans, þegar gengið var til formannskjörs í Alþýðuflokknum í fyrri nótt. Hefur sú „harmsaga ævi hans“ verið rakin svo oft, að ekki er þörf á frekari endurtekningum, jafnvel þótt sagt sé, að sjaldan verði góð vísa of oft kveðin. Framtíðin verður að leiða í ljós, hvort Hanniabl Valdimars- son sættir sig við að vera settur út úr sakramenti þess flokks, sem hann lyfti upp í að verða næstminnsti flokkur landsins! Hann gaf kost á sér í tvö virðingar- og valdasæti í flokki sínum, formanns- og varaformanssæti, en var hafnað við at- kvæðagreiðslur um bæði. Þá reiddist hann og vildi ekki gefa kost á sér til setu í flokksstjórninni fyrir Vestfirði, og mun þó hafa haft nóg fylgi til að komast þar að. Mun það ekki hafa komið þeim á óvart, sem þekkja skap mannsins, en eftir er að vita, hversu langt hann vill ganga til að jafna metin við þá, sem höfnuðu frekari forsjá hans og völdu ílokknum aðra forustu. Ekki er ósennilegt, að menn hafi fengið sig svo fullsadda af forustu Hannibals Valdimarssonar undangengin tvö ár, að andi hans hafi verið kistulagður innan Alþýðuflokksins. En hitt mnu nokkurn veginn jafn-víst, að hann gerir sér vonir um, að annað líf sé eftir þetta líf, og verði það vinir hans, kommúnistar, innan Alþýðusambandsins, sem blási lífsanda í nasir honum, er þar verður efnt til þings, en það verður haldið á þessu hausti. Vafalaust verða kommúnistar fúsir til að ljá fyrrverandi formanni lið, ef hægt væri að ná broti úr Alþýðuflokknum til stofnunar nýs flokks, er gæti síðar sameinazt kommúnista- flokknum. Hitt er aftur vafamál, hvort þar mundi verða um raunverulegt líf að ræða fyrir hinn fyrrverandi formann. Hann mun kannske sætta sig við sitt af hverju eftir það sem á undan er gengið, en hitt er miklu sennilegra, að þar verði aðeins um hin pólitísku fjörbrot hans að ræða — og má hann þá sjálfum sér um kenna og þeim, sem hann hefur þegið Ilest heilræðin af. Margt verður til skemmtun- ar á þessari kvöldvöku. Hljóm- sveit Björns R. Einarssonar leikur stúdentalög, séra Þor- steinn Björnsson fríkirkju- prestur syngur einsöng og Karl ísfeld les upp. Þá verður haldinn spurn- ingaþáttur með óvenjulegu sniði. Nefnist hann „I.andspróf í lesgreinum". Þar verða próf- aðir ýmsir landskunnir menn löngu komnir frá prófborði, til að vita, hvort þeir myndu standast landspróf nú. Prófstjóri verður Einar Magnússon menntaskólakenn- Barnaskemmtun yarnarliðsins. í tilefni af blaðaskrifum um barnaskemmtun á vegum varn- arliðsins á Keflavíkurflugvelli n. k. laugardag, skal tekið fram, að varnarmáladeild utanríkis- ráðuneytisins hefur aflað sér upplýsinga um, að barna- skemmtun þessi er á engan hátt í sambandi við hernað eða sýningu á hernaðartækjum, enda er hún fólgin í hljóm- leikum, sýningum á teiknikvik- myndum eftir Walt Disney og björgun nauðstaddra með þyr- ilflugum. (Fréttatilk. frá ut- anríkisráðuney tinu). ari, en prófdómarar Björn Bjarnason magister og dr. Halldór Halldórsson dósent. Prófsveinar verða þessir af hálfu presta: Sr. Jón Guðna- son, séra Jón Pétursson og séra Jón Skagan. Af hálfu ' verk- fræðinga verða þeir Gunnar Bjarnason, Jakob Guðjohnsen og Sigurður Ólafsson. Að lokum verður dansað. 60 herskip við æf- ingar á NA-hafi. London í morgun. Flotaæfingar hófust í morgun Xýja bíó: Með söng í hjarta. 1 Nýja bíó sýnir um þessar mundir ameríska litkvikmynd- ina „Með söng í hjarta“, frá- bæra mynd vegna leiks og tóna. Við fyrstu umhugsun telja menn, að ævisaga dægurlaga- > söngkonu geti vart orðið efni í mikla kvikmynd, en þó stend-j ur þannig á í þetta skipti, að1 hér er einnig um sögu konu* að ræða, sem hefir verið róm- uð fyrir hetjuskap í báráttu sinni við mikil örkuml. Jae Froman, sem myndin fjallar um — Susan Hayward leikur hana, en það er rödd Froman sjálfrar, sem heyrist syngja — slasaðist í flugslysi við Líssa- bon á stríðsárunum, og munaði I minnstu, að hún missti annan’ fótinn, en með óteljandi skurð- aðgerðum tókst þó að gera við meiðslin. En áður en hún var orðin heil heilsu, var hún far in að syngja opinberlega aftur, ferðaðist t. d. milli hersjúkra-1 húsa í Evrópu, til að gleðja hina særðu þar. Jane Froman syngur fjöl- mörg lög í myndinni, og Susan á Norður-Atlantshafi á svæðinu Hayward leikur hlutverk henn- frá Norður-Noregi til Biskaya-’ar ágætlega, enda er hún við- flóa og út á mitt Atlantshaf. Jurkennd leikkona. Myndin er Uin 60 herskip, brezk (30), mjög skrautleg á köflum og á bandarísk, hollenzk, norsk og skilið, að margir sjái hana - dönsk, taka þátt i æfingunum. 1 og heyri. 22 íþróttafélög og 7 sérráð eru nii í ÍBR. Það er orðið 10 ára ^ainalí. Iþróttabandalag Reykjavikur mun minnast 10 ára afmælis síns með samsæti í JJjóðleikhúskjalI- araunm í kvöld og mun þá sæma nokkra menn heiðursmerkjum jfyrir störf þeirra í þágu íþrótta- jmála Reykjavíkur. íþróttabandalagið var stofnað (31. ágúst'1944 og voru stófneiid- urnir 14 íþróttafélög og 7 séjrráð, sem stjórnuðu einstökum íþrótta- greinum. Aðalhvataniaður að stofmm- inni var Bjarni Benedíktsspn, þá- verandi borgarstjóri,og þorsteinn Einarsson, íþróttafulltrúi. Að bandalaginu standa nú 22 íþróttafélög og 7 sérráð. Félaga- talan er 9 þúsund. Starfsemi bandalagsins cykst með hverju ári sém líður og hefur bandalag- ið því komið upp sérskrifstofu fyrir starfsemi sína, sém er qrðin það umfangsrnikil, að ekki er unnt að anna henni eingöngu í frítímum. Skrifstofán Iiefur starf- að í 6 ár. Störf bandalagsins eru mjög umfangsmikjl og má meðal ann- ars geta þess, að það só millilið- ur milli íþróttafélaga bæjarins og bæjaryfirvaldanna á öllum sviðum og það úthlutar m. a. öll- um styrkjum, sem bærinn veit.ir iþróttafélögunum. Sigurðúr Magnússon var fram- kvæmdastjóri bandalagsins frá 1948—1954. Við störfum hans tek- ur Sigurgeir Guðmundsson. Bandalagið cr eigandi að í- þróttahúsinu að Hálogalandi og hef-m' rekið það síðan í stríðslók. En þar sem hús þetta var reist sem bráðaliirgðahús fyrir lierinn og það hefur verið í nötkun í 12 —13 ár, er það mjög úr sór geng- ið og viðbaldskqstnaður á því mjög mikill. jiað er því framtíð- árdraumur bandalagsins og allra íþróttamanna bæjarins að nýtt í- þróttaliús v.erði reist hér í bæn- uin. Stjói-n jþróttabandalags Itvík- ur er skipuð þessum mönnum: Gísii Halldórsson, fonnaður, og meðstjórnéndur éru Baldur Möíl- er, AndfésBérgman, Bjöm Björg- vinssqn ,og Jón þórðarson. Það var nýstárleg hugmynd, sem skýrt hefur verið frá í frétt- um blaða, að fá bandaríska her- menn með vélbyssur til þess að berjast gegn háliyrningnuni, þeirri skaðræðisskepnu, er mest hefur eyðilagt netin fyrir bát- unum, sem stunda reknetayeiðar. Og skýra fréttir nú frá því, að þessi herferð miini hafa borið nokkurn árangur, og er það vel. Það hefur verið svo um undan- farin ár, að háhyrningur hefur g'ert svo inikil spjöll á veiðarfær- um hjá reknetabátum, að jafn- vel þótt veiði liafi verið sæmileg liafa bátar verið reknir með tapi og' mátti við svo búið ekki standa. Góð veiði. Reknetaveiðin liefur verið nieð afbrigðum góð og hafa út- gerðarmenn vænzt sér mikils af henni. Mun og mörgum bátum ekki veita af því að veiða vel í reknet, þar sem flestir munu liafa borið skarðan hlut frá borði við síldveiðarnar nyrðra i sumar. Háhyrningurinn hafði þó verið búinn að valda allniiklu netatjóni og iiafa margir bátar orðið svo liart úti, að veiðin hef- ur ekki staðið undir netakostn- aði, auk þess sem oft er erfitt ef heilar trossur eru eyðilagðar og aðrar eru ekki til vara, því þá stöðvást bátarnir, eins og eðlilegt er. Ekki vart háhyrninga. Það brá líka svo við eftir að- förina í fyrradag, að þegar bátar frá Suðurnesjum lögðu net sín í gær var hvergi vart háhyrnings. Mun skepnan hafa orðið hvumsa við og flúið á haf út. Væri ósk- andi að þessi aðferð dyggði svo vel að liægt væri að verja veiði- svæði reknetabáta meðan þessar veiðar haldast. í fregnum greinir þó, að skaðræðisskepnu þessarar hafi helzt orðið vart við Snæ- fellsnes, en á þær slóðir fóru engir vopnaðir bátar. Kemur þá i ljós, að herferðin hefur orðið árangursrik, þar sem hennar varð eklci vart þar sem aðförin var gerð að henni. Það sýnist þvi vera ástæða til þess að beita þessari aðferð aftur, ef liáhyrn- ingstorfur skyldu aftur færa sig á miðin. Reka hvalinn á land. En þótt allt sé gott um þessa lierför gegn háhyrningstorfun- uni að segja, hefði kannske verið: skynsamlegra, eins og komið hef ur fram í bréfi frá Siglfirðingi, og birtist í Vísi í gær, að reynt hefði verið að relca vöðurnar á land. Það hefði átt að takast með þeim bátaflota, sem komst í tær£ við tvær stórar torfur. Með þvi móti hefði mátt nýta livalinn og getað orðið mörgum góð búbót- Það verður þó ekki sakast um það úr því sem komið er, því aðal- atriðið var að flæma háhyrning- inn af iniðiinum. En það mætti hafa það til athugunar næst er bátar fara vopnaðir til veiða og komast í tæri við vöður, sem ekki eru mjög fjarri landi. En mörg- um mun hafa þótt þessi herferð allnýstárleg og vel til fundin. —■ Lýkur hér Bergmáli i dag. — kiv Alþing! kvatt samait. Forseti íslands gaf út í gær í Reykjavík bréf um að reglu- legt Alþingi 1954 skuli kom’i saman til fundar 9. október n. k., svo sem gert er ráð fyrir í lögum frá síðasta þingi. (Frá forsætisráðuney tinu).

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.