Vísir - 23.09.1954, Blaðsíða 5
T'iramtudaginn 23. september 1954.
VÍSIR
8
í hali fengust allt að 21
poka eða 63 lestir.
Sagt frá aflabrögðum á
FyBBuhasnka.
Bftirlarandi grein birtist ný-
lega í Sjómannablaðtnu Vikingi
og leyfir Visir sér að birta hana,
því að svo oít ern Grænlands-
veiðar nú á dagskrá. — Höfund-
nr hennar er Gunnar pórarins-
son.
það var í lok maímánaðar, að
Egill rauði lagði upp rá Norð-j
firði í þessa saltfiskveiðiferð og
var ákveðið að sigla á „Fyllu-J
banka“, sem liggur um það bil(
Wi sólarhrings siglingu frá
Hvar^i, eða suðurodda Græn-]
lands, en þaðan er siglt. norður
með vesturströndinni. Um þenn-
an t.íma er oft mikið um rekís á
þessum slóðum og verður því að
fa.ra um 80 sjómílur frá strönd-.
inni, til þess að forðazt hann.
Er komið var á bankann, mætti
skipverjum sýn, sem auk þess að
glæða aflavonir þeirra, mun og
seint líða þeim úr miiini. Á haf-,
fletinum gat að líta stóra, hvíta
fiekki um allan sjó, sem við nán-
ari athugun reyndust vera breið-'
ur af dauðum, fljótandi fiski, er
flotið hafði úr botnvörpum skip-
anna, er þær sprungu utan af
fiskmagninu, en þarna var fjöldi
skipa frá ýmsum löndum, svo
sem Frakklandi, Spáni, Portú- j
gal, Noregi og víðar að. þarna
,voru einnig móðurskip, sem j
sendu flatbotnaðar doríur frá sér
til veiða. A þeim var oftast að-
eins einn maður, er lagði 50
öngla línu og fengu þær undan-
tekningarlítið fullfermi og voru
stundum með seil.
Slik ódæmi af fiski, sem þarna
var, er vart hægt að gera sér
fulla grein fyrir og alls ekki sam-
bærilegt við neitt, sem við Iiöf-
um þekkt bezt á heimamiðum
okkar.
Hift eftir 2 mínútur.
Egill rauði kastaði fyrsta troll-
inu á 180 til 205 faðma dýpi, en
þar mældist fiskurinn 50 til 80
faðma þykkur frá bot.ni, Eftir
tœpar tvær mínútur var varpan
hífð upp, en þá þegar hafði hún
rifnað þvert yfir undan magn-
inu, svo að ekkert. náðist af fisk-
inum. Egill rauði togaði þarna
um stórt svæðl og hvergi virtist
lát á þessu geysilega fiskimagni.
Áðal vandinn var áð ná vörp-
unni heilli upp áður en hún
sprakk, sem oft vildi verða, er
henni skaut upp á yfirborðið af
miklum krafti, þvi mikið loft var
í fiskinum. Til dæmis skaut pok-
anum stundum upp er 50 faðmar
voru enn úti af vírum.
Sjaldan þurfti meira en tvö
cða þrjú hol á sólarliring til þess
að fylla dekkið, en í þessum
dráttum fengust þetta frá 12 til
21 poki i hol, þ. e. a. s. í þau
skipti, sem netið liélzt heilt og
allt flaut ekki út. Til skýringar
þeim, sem ekki þekkja til, skal
þess getið, að í einum poka, sem
hifður er inn, eru venjulega þrjár
lestir af fiski og fengust því þetta
frá 36 til 63 lestir i liverjum
drætti.
LegiS um kyrrt
í íimm sólarhringa.
Á Agli rauða voru 44 skipverj-
ar þessa ferð, en þar af unnu 34
að staðaldri við aflann í tviskipt-
um vöktum og var það mikil
Árnasyni. En skipstjóri á Agli
rauða hefur hann verið síðastlið-
in tvö ár. Gunnar’ er yfirlætis-
laus maður og vill sem minnst
halda sínum hlut á lofti, en það
er eimnitt einkenni okkar dug-
legustu fiskimanna.
vinna að gera að þessum mikla
afla, enda dró enginn af sér.
Eftir fjóra daga. frá því að veið-
in hófst, var byrjað að umsalta
fiskinn og voru fjórir af háset-
um við það starf að staðaldri upp
frá þvi. Liggja þurfti um kyrrt í
fimm sólarhringa við söltunina,
því ætíð þurfti að rýma fyrir
meiri afla. Var hver fiskur um
borð í skipinu að lokum umsalt-
aður og^ aflinn því „fullstaðinn",
er heim var komið.
Slík fiskmergð, sem þarna var
á ferðinni, mun vei'a með ein-
dæmum og telur skipstjórinn að
hér hafi verið um að ræða mikla
fiskigöngu frá liafdýpinu, senni-
lega alla leið frá Labrador, er
síðan hafi dreift sér um þennan
fiskigrunn. En í slíkum fiski-
göngum er vandinn mestur að
fylgja göngunni eftir, eins og
fiskimönnum er næsta kunnúgt.
„Ruddaveöur" stundum.
Veðrið á Fyllubanka í þetta
sinn var oftast sæmilegt, en nokk-
ur „ruddi“ er á leið. Greinilega
mátti sjá, að hinir erlendu skip-
st.jórar og fiskimenn voru ekki
vanir slíkri fiskmergð og gekk
þeim því mjög misjafnlega að ná
al'la urn borð.
Auk Egils rauða voru þarna
staddir um tíma þeir Ólafur Jó-
liannesson frá Patreksfirði, Goða-
nes og loks þorsteinn Ingólfsson
frá Bæjai’útgerð Reykjavíkur. í
þessari ferð bjargáði Egill rauði
slíipshöfninni af færeyska skip-
inu Hjördís, sem kviknað hafði
í. Auk þess kviknaði í norska
togaranum Nordhav 5., sem var
20 mínútna siglingu frá Agli
rauða, er liann sendi út neyðar-
skeyti. Egill fór þegar á vett-
vang, en svo vel tókst til, að ráð-
ið var niðurlögum eldsins litlu
síðai'.
Togari með
80 manna áhöfn.
Víst, er um að hinir crlendu
togai'ar öfluðu ágætlega þarna á
þeirra mælikvarða og ekki vant-
aði þá mannskapinn lil að taka
á móti aflanum. Var til dæmis
portúgalski togarinn St. August
með 80 manna áhöfn, en segja
má skrumlaust, að íslenzku tog-
urunum tókst mun betur að iiag-
nýta sér þetta tækifæri, enda
kannske vanari slíkum aflahrot-
um.
★
Skipstjórinn á Agli rauða er
Gunnar þórarinsson, ungur
dugnaðargarpur. Hann er a;tt-
aður frá Ruðsstöðmn í Ai'iiar-
firði. Sjósókn byrjaði hann um
fermingu hjá Jens Hermanns-
syni miklum aflamamii. Gunnar
hefur verið á togurum frá árinu
1930, er liann byrjaði með hinuni
landskunna aflakóngi, Viltijálmi
Bamaverndarnefnd —
Framh. af 1. síðu.
Er nefndinni mikið kappsmál,
að’ stofnsett verði vistheimili J
fyrir afvegaleiddar stúlkur og
niundi nefndin tel ja æskilegt, að j
slíku heimili yrði valinn staður
í einhverjum þeirra liéraðsskóla
eða kvennaskóla landsins, sem
iitt eru sóttir og því mætti leggja
niður.
Nefndinni er kunnugt um nokk
urn hóp unglingsstúlkna, sem
nauðsynlega þyrfti að komast
á slíkt uppeldisheimili.
Ættleiðingum fer sífellt fjölg-
andi og má um það deila, liversu
heppileg sú þróun er í okkar litia
þjóðfélagi.
Fullyrða má liins vegar að nú
er orðið mjög óeðlilegt samband
á milli ættleiðinga og greiðslu |
fjölskyldubóta. Þannig fær t. d.
kona, sem er tvígift og á fyrri
mann sinn á lífi, ekki greiddar
fjölskyldubætur með börnum af
fyrra hjónabandi, nema seinni
maður liennar ættleiði börnin.
Virðist svo sem vonin um fjár-
hagslégan ávinning liafi í sumum
tilfellum verið aðalástæðan til
beiðna um ættleiðingu.
Nefndin hefur haft eftirlit
með heimilum og bárnaheimilum
sem tekið liafa börn i fóstur og
er það mikið starf.
Formaður Barnaverndarnefnd-
ar er Guðmundur Vignir Jósefs-
son, en fulltrúi eða framkvæmd-
arstjóri hennar Þorkell Kristj-
ánsson.
Krístján GuÖlaugsson,
hæstaréttarlögmaður.
Skrifstofutíml 10—12 og
1—5. Austurstræti 1,
Síml 3400.
toruUen,
HNOAHGOTU 2S SÍMt3743
MARGT A SAMA STAÐ
t'ir . r StMl •»*»*
Hjálparmótorhjól
TIL SÖLU
Næstu daga verða seld nokkur reiðhjól með hjálparvél,
er skemmdust í eldi þann 29. ágúst. Hjóiin hafa öll verið
sett í ökufært stand.
Verðið er mjög lágt eða allt frá kr. 1500.00.
Varahlutir einnig fyrirliggjandi.
VAGINillMIM
Fischersundi 3.
GOLFTEPPI
Axminster og Wilton teppi, dreglar og mottur.
Ný sending af hinum eftirspurðu skozku teppum.
jvfpnmiNN
Byggingarsamvinnufélag starfsmanna
Reykjavíkurbæjar
Fjögurra herbergja íbiíð
í Austurbænum er til sölu. Félagsmenn hafa forkaupsrétt
eftir félagsröð til 27. september næstkomandi.
Upplýsingar gefur formaður félagsins Gísli Teitsson.
Skrifstofuhúsnæði
Öskum eftir að taka á leigu 3—4 herbergi
fyrir skrifstofu í Reykjavík.
MslenzkÍM' . 1 iinívee/iính«#’ s.f.
Keflavíkurflugvelli.
MÞaghtaöið Vésir
vantar börn til að bera út blaðið í eftirtalin hverfi.
AÐALSTRÆTI
Talið strax við afgreiðsluna.
Setuliðsskemmur
til niiurrifs
Ákveðið hefur verið að selja til niðurrifs og brottflutn-
ings 3 samstæðar setuliðsskemmur (stærð 12%X30 m.)
við Langholtsveg. Ennfremur 2 skemmur af sömu gerð á
Grímstaðaholti bg 1 við Neskirkju.
Tilboð verða opnuð að viðstöddum bjóðendum þ. 27.
þ.m. kl. 14 í skrifstofu minni, Ingólfsstræti 5. Nánari upp-
lýsingar eru gefnar í skrifstofunni.
Bæjarverkfræðingurinn í Reykjavík.