Vísir - 30.09.1954, Page 1

Vísir - 30.09.1954, Page 1
ti ÍTg. Fimmtuclaginn 30. september 1954 222. tMU Sumstaðar allgóð síldveiði í nótt. Annarstaðar iitil sem engin. var mjög misjöfn í Síidveiði nótt. Hjá Akranesbátum var mjög lít- il veiði og léleg síld það litla sem veiddist. Grindvíkingar höfðu sömu sögu að segja. Á miðum þeirra gerði austanstrekking i gærkveldi, svo bátsverjar drógu netin miklu fyrr en venjulega, eða um 12 leytið í nótt. Var afli þeirra yfirleitt 15 —20 tunnur á bát. Hafa Grind- vikingar haft við orð að hætta veiðum ef afli glæðist ekki á næstunni. Keflavikur- og Sandgerðisbát- ar réru dýpra og þeir höfðu yf- irleitt aðra sögu að segja. Margr ir bátar fengu allgóða veiði í nótt, allt upp i 100 tunnur á bát, eða jafnvel þar yfir. En yfirleitt voru þeir með 30—100 tunnur og megnið með 60—70 tunnur á bát. í herferð Akurensinga og Hafn firðinga gegn háhyrningnum í gær, urðu þeir fyrrnefndu varla varir við hann, en Hafnfirðingar sáu hins vegar hvalatorfur og eltu þær til hafs. Lét margur há- hyrningurinn lífið i þeirri viður- eign, en suma bátana þraut skot- færi áður en lauk. í nótt mun lítið hafa borið á því að háhyrningur eyðilegði net. Þó var einn Sandgerðisbátur kom inn að landi í morgun með helm- ing neta sinna eyðilögð. Einn Keflavíkurbátanna kom að landi í nótt og hafði sá ekki þorað að leggja net sin sökum hvalatorfu, sem kom að bátnum í sama mund og báturinn ætlaði að fara i leggja. En skipstjórinn hætti við allt saman þegar hann sá þenna ófögnuð nálgast og sneri beint til lands. IHesta hneykslismál síðari ára á döfinni í Frakklandi. Lýsandi sakka gef st vek Norskuir hugvitsmaður hefur fundið upp lýsandi sökku, sem gefizt hefur vel. Sakkan er í rauninni lítið ljósker, þar sem notazt er við sams konar rafhlöðu og notað er í lítið vasaljós. Sakkan er vatnsþétt, og þolir 40 kg. þrýst- ing á fersentimeter. Lömb tekin á gjöf. Frá fréttaritara Vísis. Akureyri í gær. I Höfðahverfi við utanverðan Eyjafjörð hefur snjóað svo mikið nú í illviðrakaflanum, að til hreinustu vandræða horfir. Fresta varð fjallgöngum og hestum varð ekki komið við sök-1 um skotnir tarfar og geidar um fannkyngi. Taka varð lömb ^ kýr. , Hreindýraveiðum á Aust- urlandi lokið í biii. Ekkí vorn skoíin þau 600 drr, sem áformað var að skjóta nii. Hreindýraveiðum á Austur- landi er nú lokið í bili, að því er Friðrik Stefánsson, bóndi á Hóli í Fljótsdal, umsjónar • maður hreindýrastofnsins, tjáði Vísi x gær. Ekki kvaðst Friðrik geta gefið nákvæmar upplýsingar um, hve mörg dýr hefðu verið skotin, þar eð skýrslur hafa ekki borizt úr öllum hreppum, sem hlut eiga að máli. Eins og menn muna, var ákveðið að leyfa að skjóta 600 hreindýr, enda væri það hæfilegt, eins og stofninn er nú, en hann er talsvert á annað þúsund dýr. Veiðarnar byrjuðu síðar en til stóð, eða um það bil viku síðar en áætlað var. Voru eink- úr heimalöndum á gjöf. Kartöflur liggja svo til enn í görðum. I. Verið getur, að veiðar verði á ný í desember, enda allar hafnar 1 vitað, að ekki hafa verið skotin A ■ 2 kindur finnast með mæðiveiki- einkennum. Veríö að rannsaka fé þar vestra. í Dölum hafa fundizt tvær kindur, sem líkur benda til, að hafi mæðiveiki. Um þessar múndir er verið að rannsaka fé þar vestur frá vegna gnms, sem lék á, að þar væru mæðiveikar kindur. Guð- mundur Gíslason læknir og fleiri annast þessar athuganir. Kindumar, sem fundust með mæðiveikieinkennum eru fjög- urra vetra, önnur fannst á Hól- um í Hvammssveit, hin á Skerð- ingsstöðum í sömu sveit. Báðar eru kindumar frá Valþúfu á Fellsströnd, og voru keyptar þaðan fyrir tveim árum. Það er athyglivert, að kind- urnar, sem mæðiveikieinkermin hafa, eru fjögurra vetra, en sjö ár eru síðan fjárskiptin urðu á þessum slóðum. Líklega verður öllum kind- unum á Valþúfu fargað, enda skylt áð hafa allan vara á. Það er annars áf síðustu fjár- flutningum að segja, að því er Sæmundur Friðriksson, fram- kvæmdastjóri sauðfjárveiki- varnanna, tjáði Vísi, að fluttar hafa verið á 7. þúsund kindur sjóleiðis frá Vestfjörðum til Reykjavíkur, en þaðan á bíl- um, flestar í Rangárvallasýslu. þau 600 dýr, sem áformað var að skjóta að þessu sinni. Nokkuð af kjötinu hefir ver- ið flutt til frystihúss Kaupfé- lágs Héraðsbúa, og þaðan til Reykjavíkur, en auk þess hafa bændur haft það til matar. Veður var ágætt á Fljótsdal í gær, sól og stillt veður, en í fyrradag gránaði niður í byggð. Fljótsdalsheiði er enn vel fær, sagði Friðrik bóndi, og fjail- vegir víðast greiðfærir ennþá. Lögregfustjóri Parísar sakar yfirmann leyní- þjómistu lanósins um að vera kommunisti. Segir iiatfii hans hafa fundist á skrám kommúnistatflokksins 1952. Einkaskeyti frá AP. París í gærkveldi. —. Frönsku blöðin ræða ekki annað meira en ásakanir þær, sem Jean Dides, lögreglustjóri í París, sem vikið var frá em- bætti, hefur borið á Roger Wybot, yfirmann leyniþjónustu Frakklands, en hann er sakaður um að vera meðlimur komm- únistaflokksins og tól í hendi hans. Fréttamenn segja, að þetta sé mesta hneykslismál, sem upp hafi komið i landinu eftir síðari heimsstyrjöldina og eigi eftir að koma miklu róti á hugi manna i Frakklandi. Jean Dides sakar Wybot um að vera i kommúnistaflokknum, eins og fyrr segir, og að nafn hans hafi fundizt á meðlimaskrá flokks ins, er lögreglan gerði húsrann- sókn i aðalbækistöðvum komm- únista i Paris í maí 1952 vegna óeirða i sambandi við komu Rid- ways hershöfðingja til borgar- innar. Wybot segir þetta tilhæfulausa ásökun, enda muni Charles Brune þáverandi innanríkisráðherra einnig bera opinberlega á móti sakargiftinni. Fréttamenn segja, að all-langur aðdragandi sé að þessu máli, og að hér sé jafnframt um að ræða Tilraun með gerfihjarta heppnaðist ágætlega. Reynt í íjTsta skipti í Evropu. Einkaskeyti til Vísis. - Srokkhólmi í gær. Sænski prófessorinn Clarence Crafoord, sem er sérfræðingur í hjMta- og lungnasjúkdómum og frægur skurðlæknir, hefur má lokið tilraunum sínum á vél, sem á að nota í sambandi við hjarla- og lungnasjukdóma. Tilraunir þessar hafa gefizt mjög vel. í byrjun júlímánað- ar s.l. var skorin upp kona, sem hafði æxli í vinstra framhólfi hjaríans, og heppnaðist að- gerðin ágætlega. Þetta er í fyrsta skipti, sem sú aðgerð er framkvæmd í Evrópu, að gera uppskurð á blóðtæmdu hjarta og láta sjúklinginn nota gerfi- hjarta meðan aðgerðin fer fram. Gerfihjartað, sem notað var, var upphaflega útbúið fyrir huiida. Næsta skref verður að útbúa gerfihjarta fyrir mann- eskjur. Þessi gerfivél er gerð í því augnamiði, að hún geti tekið að sér starfsemi hjartans og lungnanna meðan verið er að gera við þessi líffæri. Og eins og áður er sagt, gekk fyrsta til- raunin vel. , Vænsti dilkurinn vó 26,5 kg. Frá fréttaritara Vísis. Akureyri í gær. Hjá Kaupfélagi Eyfirðinga á Akureyri er daglega slátrað 850 fjár, en alls er áætlað, að slátrað verði þar 16000 fjár í haust. Á Dalvík verður slátrað 4350] fjár og á Grenivik 2030 fjár. Þyngsti dilkur sem enn hefur komið til slátrunar á Akureyri vó 26% kg. Hann var frá Ásgrími átök milli ýmissa and-kommún- istiskra hópa, er starfi hver f sinu lagi, svo og lögreglunnar. Rekja má upptök deilunnar að nokkru leyti til útnefningar Mitt* erands úr flokknum UDSR, sem er lítill stjórnmálaflokkur, í em- bætti innanríkisráðherra á sín- um tima, en það embætti hafði um árabil verið í höndum radi- kal-sósíalista. í júní s.l. var Dides látinn hættai starfi sínu, sem einkum var i þvf fólgið að hafa gát á starfsemí kommúnista, en hann var mjög ófús til þess, þar sem hann taldi sig hafa hóp af njósnurum inn- an flokksins. Hins vegar taldi lögreglan sig eiga óhægara um starfsemi sina vegna athafnasemi Dides. Annar maður, sem mjög kem- ur við sögu í þessu máli er blaða- maðurinn André Baranes frá Tunis, sem skrifaði í málgögn kommúnista. Hann kom til lög- reglunnar fyrir um tveim árum, kvaðst vera kommúnisti, eix „þjóðlegur“, og væri mjög and- vigur þvi, að Moskvustjórnin. réði stefnu flokksins. Hann vildi því gefa upplýsingar um forustu- menn flokksins, en gegn greiðslu, og vann hann síðan fyrir Dides í tvö ár. 1 greinargerð, sem Dides lét blöðunum í té, segir hann m. a., að áhugi Wybots, yfirmanns leyniþjónustunnar, fyrir þvi a<f fjarlægja þá menn, sem öflugast berjast gegn kommúnistum, sé í hæsta máta furðulegar. Sé það því skylda sín að leiða athygll að þessum mönnum, sem vinni að þvi að koma varnarleyndar- málum landsins í hendur um- boðsmanna Rússa. Halldórssýni bónda að Hálsi Öxnadal. Grikkir reisa orkuver. Aþenu (AP). — Grikkir eru byrjaðir á miklu mannvirki hjá Karditse í Mið-Grikklandi. . Er þar um raforkuver að ræða, eli i sambandi við það verður á- veitukerfi. Verður stífla stöðvar- innar 50 m. liá, hin hæsta í heimi, og kostnaður við mannvirkið um 200 millj. kr. Auglýsendur Athugið! Vísir er 12 síður á mánudögum, miðviku- dögum og föstudögum. Auglýslngar í þau blöð, aðrar en smáauglýs- mgar, þurfa helzt að berast blaðinu kvöldið áður. —

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.