Vísir - 11.10.1954, Side 4

Vísir - 11.10.1954, Side 4
4 VÍSIR Mánudaginn 11. október 1954 Sig. Einarsson. Ferðaþættir. vor Míshtiö til $»ý%hssl6snds meö Æj&ftieiðssm. mýít á söng Fostbræðra í Hamborg. Síra Sigurður Einarsson í Holti undir EyjafjöIIum ferðaðist í sumar um ýmis lönd á meginlandi Evrópu. Margt bar fyrir augu og eyru í því ferðalagi, og mun hann segja frá því í pistlum, er hann sendir Vísi. Hann er nú staddur í Danmörku. Ennþá er eg svo ungur, að eg get orðið gripinn ferðahug, eftirvæntingu, óró sem er blandin tilhlökkun, þegar eg er að leggja af stað í ferðalag. Eg man reyndar ekki nákvæmlega hvernig þetta var, þegar maður var yngri. Eg man það aðeins, að maður komst alltof sjaldan, oftast alltof stutt, og að heimar ókunnrar fegurðar duldust allt af á bak við þau fjöll og landa- mæri, sem pyngjan neitaði al- gerlega að taka með á ferða- áætlunina. Það er gott að vera ssvona ungur ennþá, hugsa eg með mér, því að í fyrramálið á eg von á að Loftleiðir h.f. hringi <og kalli okkur suður á flugvöll. Og ekki brást það. Skrifstof- an hringir. Elskuleg stúlka til- Jkynnir allt í lagi. Vera kominn suður á völl kl. 10. Þetta var fyrsta september. Og rúmum klukkutíma. síðar erum við lcomin á loft. Seltjamamesið og Reykjavík smeygja sér aftur -jndan hægra væng, eins og þau væru komin í einhvern tröll- aukinn feluleik við sjálf sig. Og svipstund síðar bregður Keilir á leik og fer í sömu átt. Áður en varir er ísland horfið og við svífum ofar sólglituðum skýj- íim. Framundan er Sólaflug- völlur í Noregi. Og eg fer að hugsa um höfðingjann Erling Skjálgsson, sem öllum kom til nokkurs þroska, sem voru hon- aml hönd bundnir. Gaman að fá tækifæri til þess að stíga fót- um á lendur þær, sem hann yrkti svo farsællega og réð svo vel. Munurinn nú eðal937. Dagurinn líður eins og f draumi. Hressing í Kastrup í Kaupmannahöfn. í Hamborg að kveldi. Engin ferðaþreyta. Eg minnist sjóferða frá gamalli tíð, janúarferðar á gamla Gullfossi 1937. Ofsavéður og legið í hlé við Orkneyjar í heilan sólar- hring. Og þrátt fyrir allt svo mikil sjóveiki og vesöld, að engir voru á fótum til að eta hádegisverðinn og drekka þessa indælu snapsa, nema við pró- fessor Jón Hjaltalín. Óhemju- legur munur er að ferðast svona í lofti, tímasparnaður og jafnvel peninga, þægindi og notaleg kennd þess, sem Hann- es Hafstein lýsti svo vel með orðunum: Að komast sem fvrst og komast sem lengst, er kap.p þess. sem langt á að fara'. Oe mér fannst gaman að hugsa til þess með hve miklum röskleik og myndarskao íslenzkir flug- menn o« framtaksmenn eru að þoka okkur til rúms í flugsam- göngum. Þjónusta og öll aðbúð hjá Loftleiðum var hin ákjós- fenlegasta, glatt á hjalla- og þægilegt á leiðinni. Með þessari flugvéi voru taflkappar okkar að fara áleiðis til Hollands og óskuðum við þeim allra heilla. Síðar lásum við í Hollandi um glæsilega frammistöðu þeirra, án þess að okkur gæfist tóm til að heilsa upp á þá, þó að við værum samtímis í Amsterdam. En þessi ferð með Loftleiðum h.f. sannfærði mig um, að há- loftin verða okkar heimangata í framtíðinni, og eru þegar orð- in það. í Hamborg. Eg kom til Hamborgar og nokkurra annarra þýzkra borga 1950. Þá blöstu hinar skelfi- legu menjar styrjaldarinnar hvarvetna við augum. Og ekki einungis í húsarústum og eyði- lögðum mannvirkjum. Mér fannst þær blasa ennþá átak- anlegar við mér í fasi fólks og háttum, klæðaburði þess og mataræði. Og þó framar öllu í því, að þegar eg bar saman við fyrri tíma, fannst mér brostinn einhver tónn glaðværðar og öryggis í fólkinu, sem áður hafði einkennt það. Þessa gætti þá, og einkum þó fyrrum, í ennþá ríkara mæli í Suður- Þýzkalandi. Fólkið þar var létt- ara í fasi, hjartanlegra og glað- værara. en norðurbúarnir. 1950 hvíldu skuggar voðalegr- ar reynslu ennþá yfir fólkinu, þrátt fyrir alúð í framkomu, lipurð og fyrirgreiðslusemi. Nú er þetta gerbreytt. Yfirbragðið á lífi borgarinnar er slíkt, sem þar hefði aldrei nein styrjöld verið, tónninn í íólkinu slíkur, sem enginn sé sér þess með- vitandi, að þjóð hans átti svo hrapallegan þátt í að leiða yfir heiminn óútmálanlega ógn og þjáningu. Efalaust er gleymsk- an ein af líknarmeðölum til- verunnar til þess að gera byrði lífsins bæra. En er ekki þessi gleymska hættuleg? Það er ekki eg einn, sem spyr. Svo hafa menn spurt unnvörpum í sam- bandi við ráðagerðirnar um endurvopnun Þýzkalands, sem einmitt er verið að ganga frá þessa dagana. Og því er ekki að leyna að mörgum býr uggur í brjósti. „Það langar engan að sjá aftur framan í þýzk vopn, sem einu sinni hefur staðið frammi fyrir þeim,“ sagði gáf- aður Hollendingur við mig fyrir nokkru. Þar er allt fáanlegt. Hamborg er aftur orðin við- skiptadrottning við Saxelfi, eins og hún hefur löngum ver- ið, voldug, fésterk og umsýslu- söm. Allan sólarhringinn beljar þrotlaus umferðin um breiðar götur hennar og torg, og í höfn hetrnar koma skipin brunandi af öllum heimsins höfum „fær- andi varniriginn heim“. Þú get- ur keypt þar og hvarvetna i Þýzkalandi, allt sem auga girnist, ef þú hefur fé. Þýzkur varningur, framleiddur í háný- tízkum verksmiðjum og gnægð af rándýrum framandvarningi, keppast þar hvor við annari að glæsileik. Það mun láta nærri að Þjóðverjar séu sú ein þjóð í Norðurálfu, sem hefur við hvað minnsta viðskiptaerfið- leika að stríða. Eg mun víkja að því athyglisverða atriði í öðrum pistli síðar. Það liggur í hlutarins eðli, að það þarf nokkuð til að vekja lofsamlegustu ummæli um frammistöðu kórsins í heild og söngstjórann Jón Þórarinsson tónskáld. Mér finnst rétt að geta þessa því að þenna dag yoru íslenzkir gestir vissulega Islandi og íslenzkri menningu til sóma í Þýzkaladi. Og eg var þakklátur fyx-ir að fá tækifæri til þess að vera þar viðstaddur. Farið veriður til Hollands. En nú er ekki tími tii þess að standa lengí í skáldlegúin hug- leiðingum né láta sig dreyma með óm fagurra söngva í evr- i um. Á morgun kl. 10-eigum við að taka við bíl, sem na .stu vik- | urnar á að verða okkar annað | heimili á þjóðvegum Evrópu og í fossandi umferð stórra borga. Það er í mér hvort- tveggja ferðahrollur og kvíði og öðrum þræði tilhlökkun. athygli í borg eins og Hamborg Þetta verður skemmtilegt æv- intýri og ef til vill hættulegtr En nú verður ekki aftur snúið. Ferðatryggingin er í lagi, — og samvizkan nokkumveginn með eina milljón og sjö hundr- uð og fimmtíu þúsund ibúa. En okkur til mikillar gleði var engan veginn Iaust við að svo færi, þegar karlakórinn Fóst- bræður kom þangað og söng í byrjun september. Það var um kvöld í hinum yndisfagra garði Blumen und Planten. Þúsundir manna söfnuðust saman framan við sviðið, þar sem hinn glæsilegi íslenzki söngmannahópur stóð. Veðrið var kyrrt og milt. Á meðan söngurinn fór fram var áhorf- endahópurinn alltaf að aukast og var gizkað á að þeir hefðu vexáð tugir þúsunda, um það er söngnum lauk. Við stóðum í þyrpingunni nálega miðri, og var auðfundið, hvernig hrifning áheyrenda fór vaxandi með hverju lagi. Og sérstök ástæða er til að geta þess með hvílíkum ágætum einsöngvarinn Krist- inn Hallsson leysti sín erfiðu hlutvei'k af hendi, enda var honum óspart og innilega fagað að loknum söng hans. Daginn eftir fluttu blöðin hin sæmileg, eftir þvx sem gerist hjá breyzkum manni. Ferðinni er fyrst um sinn heitið gegnum boi'gir Norður-Þýzkalands til Hollands. Um leið og eg leggst til svefns eftir þetta yndislega söngvakvöld undir blaktandi krónum hárra meiða, kveð eg í huganum alla vini á íslandi, ef -----— já, ef einhver vega- rummungurinn yrði búinn að aka mann í klessu um þetta leyti annað kvöld. Verið þið blessuð og sæl. Siguriður Einarsson í Holti. Útsala - Útsala Ægísbúð kallar! Verzlunin er að flytja. Allt á að seljast. Gerið kaupin strax. Ægisbúð Vesturgötu 27, Finnsku, brúnu vlc#-- sterku og góðu komin aftur í öllum stærðum. Kvenbomsur úr nylon og gúmmi, svartar og gráar. Nýkomnar Sh órersbm IÞéiatrs i\ ntírésson ar Laugaveg 17, Framnesveg 2. Símar 7345 og 3692. rýmingarsala Stærsta rýmingarsala haustsins stendur yfir hjá okkur, sökum brott- flutnings hússins nr. 10 B við Lækjargötu, en þar höfum við stórar vörugeymslur. Við seljum meðal annars: ÁÐUR Nylon-rayon gaberdine ..... kr. 87.85 Andlitspúður ................ — 5.75 Varalit ...................... 23.50 Dömukjólar ............ .... — 285.00 Dömukápur ................. — 987.50 Dömukápur ........... —■ 685.00 Dömukápur .......... —- 575.00 NÚ kr. 54.50 — 2.00 — 12.50 — 100.00 — 600.00 — 300.00 — 200.00 A.fsláttur af öilssm vörstns Ennfremur eru á útsölunni allskonar barnaskór, dömuskór, karl- mannaskór, inniskór, módelskór og útlend sýnishorn. Leggið leið yðar á Hverfisgötu 74, þar fáið þið mikið fyrir pen- ingana þrátt fyrir væntanlega KRÖNULÆKKUN. Höftiss eru aö fcama aftur; Það kostar ekkert að skoða vörumar hjá okkur. Við sendum nýjar vörur í búðimar á hverjum degi. Kamiö - Sfcaöiö - Kaupiö! Vörumarkaðurinn si. Hverfisgötu 74.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.