Vísir - 28.10.1954, Blaðsíða 8
r - 1
VÍSIR er ódýrasta blaðið og þó það fjöl-
breyttasta. — Hringið I síma 1660 og
gerist áskrifendur.
Þeir, sem gerast kaupendur VÍSIS eftir
10, bvers mánaðar, fá blaðið ókeypis til
mánaðamóta. — Sími 1660.
Fimmtudaginn 28. október 1954
Sleppt éftir 5 ára fangavist.
iPólverjar láta amerískan kommúnista lausan.
Útvarpið í Varsjá skýrði frá
|»ví nýlega, að sleppt hefði
verið úr haldi bandarískum
ananni að nafni Field (Herman
IField), er handtekinn var fyrir
5 árum, vegna ákæru manns í
jpólsku leyniþjónustunni.
Jafnframt var tilkynnt, að
sakargiftir á hendur manr.in-
xim hefðu reynst rangar. —
í>að er kunnugt, að maður þessi
lór til Póllands 1949 til að leita
toróður síns, Noels Field rit-
jhöfundar, en kona Noels fór
•einnig austur fyrir tjald að
leita hans. Var þeirra allrá
saknað, en pólsku stjórnarvö'd-
in skelltu skolleyrunum við
•öllum umkvörtunum og mót-
xnælum og þóttust ekkert vit.a,
en þegar Josef Zwiatlo, fyri-
•verandi hátt settur maður í
pólsku leyniþjónustunni (sbr.
xnynd í seinasta föstudagsblaði
Pekingstjórnin opnar
sendisveit í London.
Einkaskeyti frá AP.
London í gær.
Fyrsti sendifulltrúi hins komm
únistiska Kína kom hingað í gær
til þess að opna sendisveitar-
skrifstofu Pekingstjórnarinnar i
ILondon.
Bretar hafa háft sendifulitrúa
i Peking síðan árið 1950, en kín-
verskir kommúnistar hafa ekki
ihaft diplomatiskan fulltrúa í
London fyrr en nú. Sá heitir Hu-
an Hsiang, sem verður fyrsti
sendifulltrúi Pekingstjórnarinn-
ar á Bretlandi, og verður hann
chargé d’affaires (sendifulltrúi),
en fulltrúi Breta í Peking, Hump-
hrey Trévelyan, hefur sömu nafn
toót þar.
Muan Hsiang kom til London
loftleiðis frá Stokkhólmi.
Vísis á forsíðu), skýrði frá því,
eftir að hann hafði flúið til
V.Þ.,hvar fólk þetta væri niður
komið, gerðist það að Herman
Field var iáiinn laus. Banda-
rísk stjórnarvöld kröfðust þess,
enn af nýju, að bræðurnir og
kona Noels væru framseld, er
upplýsingar Zwiatío \orú fyrir
hendi. — Field-bræður voru
kommúnistar.
Eisenhower hefur skipað
blökkumann hershöfðingja í
flugher Bandaríkjanna. Er
hann fyrsti blökkumaðurinn,
sem fengið hefur hershöfð-
ingjatign í flughernum, en
faðir þessa sama manns var
fyrsti blakki hershöfðinginn í
landhernum.
Járnbrautarslys
vii Vínarborg.
Einkaskeyti frá AP.
Vínarborg í gær.
í gærmorgun varð járnbrautar-
slys skammt frá borginni og fór-
ust tveir menn, en fjöldi særðist.
Farþegalest, sém var á leið til
Vínar, hljóp af sporinu við Stock-
erau, norðvestur af Vinarborg.
Tveir menn biðu þegar bana, en
31 særðust, þar af fimm lifshættu
lega. Tilkynnt hefur verið að
einn járnbrautarvagn hafi ger-
eyðilagzt, en þrír vagnar ultu af
sporinu. Verið ef að rannsaka or-
sakir slyssins.
Bridgekeppni
Breiðfirðinga,
Bridgedeild Breiðfirðingafé-
lagsins hefur efnt til tvímenn-
ingskeppni í bridge, sem nú
stendur yfir og hafa verið spil
aðar tvær umferðir af fimm.
Spilað er í 2 riðlum A- og B-
riðli og keppa 174 „pör“ í hverj-
um riðli. — í A-riðli eru stig
efstu „paranna“ sem hér segir:
Ragnar — Magnús 181%, Guð-
rún — Óskar 171%, Thorberg —
Bjarni 171%, Baldvin — Lilja
168, Þórarinn — Þorsteinn 167,
Andrés — Halldór 167, Magnús
— Þórarinn 165%, Olgeir — Bene
dikt 164%, Magnús — Bergsveinn
164, Daniel — Kristín 163% stig.
Næsta umferð verður spiluð n.
k. mánudagskvöld kl. 8 í Breið-
firðingabúð.
Flugvél laskast á
Reykjavíkurflugvelli.
í fyrradag laskaðist lítil flug-
vél frá flugskólanum „Þyt“ á
Reykjavíkurflugvelli.
Tveir menn, kennari og nem-
andi, voru að hefja sig til flugs
af flugvellinum í vél Þyts, TF-
KAB, og var nemandinn við
stýrið.
Rétt eftir að þeir voru komn-
ir á loft fataðist nemandanum
stjórnin og varð flugvélin að
lenda í skyndi, en í lending-
unni . laskaðist hún nokkuð.
Hvorugan manninn sakaði.
• Sigurður Jóhsson skrifstofu-
stjóri hefur málið til rannsókn-
ar og meðferðar af hálfu Loft-
ferðaeftirlitsins.
Yfír 17.000 lesta skip lagiist
a5 bryggju í Hafnarfírði.
Stærsta skip, sem lagst hefir að bryggju
hér á landi.
Ógnarástand í
Salerno-héraði.
Einkaskeyti frá AP. —
Rómaborg í morgun.
Scelba forsætisráðherra flaug
í dag til Salerno í herflugvél
til þess að kynna sér ástandið
á flóðasvæðinu af eigin reynd.
Manntjón af völdum flóðanna
er hátt á þriðja hundrað en
þúsundir eru heimilislausir.
Fréttaritarar síma frá Sal-
erno, að ömurlegt sé nú um að
litast í þessum fallega bæ, en
þarna er kunnur baðstaður og
náttúrufegurð rómuð. Á öllum
götum er 30—40 sentimetra
þykkt aurlag, hús eru víða
skekkt á grunni, hvarvetna
getur að líta slitnar leiðslur og
brotna símastaura og þar fram
eftir götunum. Sjúkrahús eru
yfirfull og bráðabirgða sjúkra-
hús, því að margir slösuðust,
og margt af þessu fólki á nú
hvergi höfði sínu að halla. -
Mörg þúsund hermanna unnu
kappsamlega í alla nótt að því
að leita í rústum, því að margra
er enn saknað. Hermennirnir
fundu mörg lík í rústunum.
Margt einkennilegt gerðist, er
náttúruhamfararnir gengu yfir.
Lítið barn drukknaði og rak
líkið að dyrum náskylds ætt
ingja. í Molina de Vetri hrundi
hús yfir nýgift hjón. Líkin
fundust í morgun. Á bana-
stundinni höfðu hin ungu hjón
vafið hvort annað örmum.
Hafnarverkföllin í Englandi:
Síðasti frestur verkamanna
til aS snúa aftur.
Stjérnin hyggst grépa tið simna
ráða, verði engin breyting
I dag.
arverkamanna í London úr sam-
bandinu i gær, og er það mjög fá-
títt að gripið sé tií svo róttækra
Einkaskeyti frá AP.
London í morgun.
Að áliti brezkra blaða í morg-
un mun fást úr því skorið í dag,
hvort hafnarverkamenn fáist til
að hverfa aftur til vinnu, en geri
þeir það ekki er sýnilegt, að þeir
ætla sér að hlíta forystu öfga-
manna þar til yfir lýkur.
Muni úr þessu verða skorið á
fundi fulltrúa beggja aðila, sem
lialdinn verður i dag.
Bráðabirgðaskýrslan, sem birt
var i gær, er talin sánna ótvirætt,
að .hafnarverkamenn hafi tekið
överjánlega afstöðu, eins og það
er orðað í Daily Hérald, mál-
gagni verkamanna, þeir liafi gert
ólöglegt verkfall og teflt lieild-
arsamtökum verkalýðsins i
hættu. Blöðin segja, m. a. Times,
að verkamenn verði að gera sér
ljóst, að .það, verði ekki þolað, að
þeir komi efnahágslifi þjóðar-
iitnar i rúst. Ummæli blaðanna
yfirleitt eru öll í þessum dúr.
Miðstjórn brezka vérklýðsfé-
lagasambandsins vék félagi liafn
Fyrir skömmu var lokið við
-að dýpka Hafnarfjarðarhöfn,
við nýju hafskipabryggjuna, og
var það viku verk. Er verkinu
var nýlokið lagðist að
frryggjunni stærsta skip,
sem lagst hefur að bryggju
á íslandi, olíuflutningaskip-
ið Gunnar Knudsen, 17,430
smál. dw.
Annað olíuskip, nokkru
minna, lagðist að bryggju í
Hafnarfirði í vor, olíuflutn-
ingaskipið Nyhammer. Stærsta
• olíuflutningaskip, sem hingað
hefur komið, er Marieholm, um
19.000 smálestir, en það los-
aði í Hvalfirði, og lagðist ekki
að bryggju.
Svo vildi til’ er Gunnar
Knudsen var í Hafnarfirði 24.
og 25. þ.m., að þar voru þá
einnig tvö önnur í flokki
stærstu skipa, er þangað koma
en það voru íslenzku skipin
Tröllafoss og Hvassafell. —
Fannst mönnum tilkomumikið
að sjá þessi þrjú stóru skip,
samtímis í höfninni.
Slys á Nýbýla-
vegi.
Síðdegis í gær, eða um hálf-
átta leytið var lögreglunni til-
kynnt að slys hefði orðið á
Nýbýlavegi.
Við athugun kom í ljós að
þar hafði maður verið á ferð á
ljóslausu reiðhjóli, en kona
sem var á gangi á götunni varð
fyrir hjólinu og féll í götuna.
Hún var flutt á Landspítalann
og töldu læknar hana hafa-
fengið heilahristing og e. t. v.
auk þess hlotið einhver meiðsl.
Banatilræði
við Nasser
gaf kærkomið tækifæri
Einkaskeyti frá AP.
Kairo í morgun.
Yfir 300 menn úr Bræðralagi
Momameðstrúarmanna hafa ver-
ið handteknir eftir banatilræðið
við Nasser.
Fréttamenn segja, að nú hafi
stjórnin fengið kærkomið tæki-
færi til þess að kreppa að
Bandalaginu, og vafasamt sé,
að það rísi aftur upp jafnöflugt
og fyrr. Stjórnin standi vel að
vígi, því að liún hafi ýfirleitt al-
menning með sér, eftir það sem
gei'ðist í Alexandriu. Æstur múg-
ur ruddist inn í aðalbækistöð
Bræðralagsmanna í Kairo i gær
og kveikti i henni og brann hún
til ösku.
Einn þriggja manna, sem hand
teknir voru, þegar eftir banatil-
ræðið, befui' „játað allt“, að þvi
er lögreglan hefur tilkynnt, og
þar með að hann hafi ætlað að
drépa Nasser vegna samkomu-
lagsins við Breta um Suezeiði
Stassen efnahagsstjóri
Bandaríkjanna er kominn
tll Belgrad til viðræðna við
ríkisstjórnina.
aðgerða.
Augljóst er af blöðunura í
morgun, aS stjórnarvöidin nuini
vart bíða lengur en í dag með að
fyrirskipa hermönnúm að vinna
við skip, sem afgreiðslu bíða, en
þau eru nú 347.
Brezk blöð hafa nú boðað,
að þau verði að draga saman
seglin vegna verkfallsins. —
Minka þau um % vegna þess,
að blaðapappír frá öðrum
löndum liggur óhreyfður í lest
um hafskipa.
Verkfallsmenn tóku sér stöðu
víða við höfnina í gær, eftir að
900 verkamenn höfðu tekið til
starfa aftur. Virðist vera komin
hreyfing i þá átt meðal verka-
manna, að hverfa aftur til viníiu,
og vilja kominúnistaforsprakk-
arnir, sem róa að því öllum ár-
um, að verkfallinu verði haldiö
áfram, afstýra því með öllu móti.
Ríkisstjórnin hélt enn einu
fund um deiluna i gærkveldi, en
frestaði ákvörðunum fram yfir
fundinn, sem vinnuveitendur og
fulltrúar verkamanna lialda i
dag.
Hafnarverkamenn í Glas-
gow hafa nú gert samúðar-
verkfall og eru þá hafnarverk-
föll í samtals 9 borgum lands-
ins.
Verkfallið hefur nú staðið á
fjórðu viku. Vegna þess að 900
verkamenn hófu vinnu i gær
tókst að afgreiða eitt skip, og er
það fyrsta skipið, sem affermt
er á lieilli viku. Skip þetta var
með bananafarm.
í Manchester gei-ðu 500 af 2000
hafnarverkamönnum verkfall, og
fengust þeir til þess, er verkfalls-
forsprakkar hvötu til þess meS
þeim forsendum, að „sigur ynn-
ist eftir 2—3 daga“. En 3/4 hafn-
arverkamanna fengust ekki til að
taka þátt i þessu verkfalli
í skýrslu rannsóknarnefndar-
innar er þvi slegið föstu, að verk-
fallsmenn hafi rofið samkomulag,
sem gert var fyrir 6% ári um
hafnarvinnu i London, og einnig
hafi þeir gengið á gerða samn-
inga, er þeir hófu verkfall með-
an samkomulagsumleitanir um
lausn deilunnar fóru fram.
Tító marskálkur er sagðiK-
hafa gefið í skyn við vest-
ræna sendilierra í Belgrad,
að hann kunni að verða
!þess þvetjandi, að Balkan-
bandalagið (Grikkland,
Tyrikland og Júgóslavía)
aðhyllist hinn nýja Briissel-
sáttinála, og gerist þannig
aðilar að nýju varnarsam-
tökunum.
Adenauer kominn
til Washington.
Washington í morgun.
Dr. Konrad Adenauer, kanzl-
ari Vestur-Þýzkalands er hingað
kominn í opinbera heimsókn.
Hann verður gerður að heið-
ursdoktor í lögum við Columbia-
háskólann i New York og flytuc
ræðu við það tækifæri.