Vísir - 29.10.1954, Síða 3
Pöstudaginn 29. október 1954
•£- - • - * —■ — - ■ -
VIS3R
+ FllAMFARIR OG TÆKNI
Verður unnt að hagnýta sjávarorkuna ?
Bretar búa työ rannsóknaskip nýjum
fullkomnum tækjum til að mæla
styrk og hæð sjávaröldunnar.
Hljó&geisSi" notaiur
við hvalveiðar.
Bretar hafa komið fyrir á
tveimur rannsóknarskipum sín
um nýjum, fullkomnum tækj-
um til að mæla styrk og hæð
sjávaröldunnar, í þeirri von, að
það geti leitt til þess, að unnt
verði að beizla hina gífurlegu
orku sjávarins.
Hin nýju tæki eru kölluð
„öldumælar skipa“. Haffræðing
ar brezka flotans og haffræði-
ráðs ríkisins hafa fundið upp
þessi tæki og þau verið teiknuð
og smíðuð í samvinnu við þá.
Hefur tvenns konar tækjum, er
smíðuð hafa verið til reynslu
(prototype models) verið kom-
ið fyrir, öðrum öldumælinum
á þilfari rannsóknaskipsins
Discovery II., sem nú er í höfn
í London, í hinum á veðurskip-
inu Weather Explorer.
Haffræðingar í Bandaríkjun-
um háfa samið um smíði á sams
konar tækjum í Bretlandi, m.
a. hefur framkvæmdastjóri Haf
fræðistofnunarinnar í Woods
Hole, Mass, pantað slík tæki.
sjávaraldnanna, sem skella a
skipinu, en þrýstingurinn er
mældur á tæki, sem er eins
konar blástursbelgur, er þenst
út eða dregst saman í hlutfalli
við styrkleika þrýstingsins, en
samtímis mælir annað tæki,
sem komið er fyrir um miðbik
skipsins orkuna, sem lyftir skip
inu, og er þetta eins konar
fjaðra-vog, en þessi tæki og hin
eru tengd rafleiðslum. Með
þessum tækjum og tilfæringum
segjast haffræðingarnir geta,
mælt nákvæmlega ‘hæð sjávar-
öldurnar, en það hafi ekki ver
ið hægt áður.
Gífurleg orka í
hverri öldu.
Sannanir hafa fengizt fyrir
því, að 15 metra háar öldur
hafa skollið á skipum. Enn frem
ur hafa fengizt sannanir fyrir
því, að tiltölulega lítil undir-
alda á grunnsævi við strendur
Bretlands kann að eiga upptök
sín við Falklandseyjar, er
Tækin eru notuð til að mæla stormar geisuðu þar, en þær eru
ölduþrýstinginn á þann hluta
skipsins, sem er í sjó, og hreyf-
inguna á skipinu, er aldan lyft-
ir því og er það hnígur niður
:í öldudalinn. Er hér um tvenns-
konár orku að ræða, er mæld er
og gerður samanburður á.
Til þess að geta mælt þrýst-
inginn hafa haffræðingarnir
'látið bora göt á byrðinginn
beggja vegna á Discovery II.,
undir sjó, en fyrir ofan vélar-
rúmsgólfið.
Sérhvert gat er umlukt eins
konar hylki eða kassa, sem sjór
inn rennur í, og eykst þrýsting
urinn í því í hlutfalli við styrk
í 10.000 km. fjarlægð.
Þegar Discovery II. lyftist
3—4 m. á öldu og hnígur er
talið að sjávarorka sem svarar
til 20.000 ha. fari til ónýtis.
Haffræðingarnir vona, að ein
hvern tíma takist að hagnýta
hina miklu orku sjávarins. En
þangað til munu öldumælarn-
ir reynast gagnlegir að ýmsu^. ooull) pvl ao
leyti, og ýmislegt koma í ljós)fyrir japönum
upp
megi
Fullyrt er, að þýzkir hug-
vitsmenn hafi fundið
„dauðageisla“, sem nota
við hvalveiðar.
Tæknin við veiðarnar hefir
aukizt mjög síðustu ár; notast
veiðiskipin nú bæði við. rat-
sjá og miðunartæki, sem notuð
voru til að leita að kafbátum.
Rafmagnsskutlar eru einnig
notaðir, til að lama hvalinn
samstundis.
Nýjasta tækið framleiðir
,,hljóðgeisla“, sem beint er að
hvölunum, en þeir reyna þá að
að forða sér með því að synda ,
beint frá hljóðinu, sem til þeirra
berst gegnum sjóinn. Er þá
hægt að veita þeim eftirför og
skjóta þá með lítilli fyrirhöfn.
En þó er sá hængur á þessu,
að hvalirnir reyna oft að forðast
hávaðann með því að kafa, og
eru hvalveiðimennirnir þá ekki
betur settir en áður.
36 millj. punda varii til ai
stækka Vauxhallsmiðjurnar.
*
A að tvöfalda útflutningsgetu þeirra.
Keyptu 200 skip
á hafsbotni.
Ástralskt fyrirtæki hefir
keypt 200 japönsk skip af ýms-
um stærðum, og eru sum ,,í
jhöfn“ við Nýju Guineu og þar
í grennd.
Gallinn er bara sá, að skip
þessi eru jafnframt öll á mai’-
arbotni, því að þeim var sökkt
Fréttabréf frá AP. —
London 22. sept.
Harlow H. Curtice, stjórnar-
formaður General Motors, hef-
ur tilkynnt, að 36 milljónum
punda muni verða varið til að
stækka Vauxhall-bílasmiðjurn-
ar í Englandi.
Curtice, sem er á eftirlitsferð
um verksmiðjur þær, sem GM
á í öðrum löndum, sagði að til-
gangurinn væri að tvöfalda getu
Vauxhall til að flytja út fólks-
og vörubifreiðir á naéstu fimm
árum.
„Stækkunin er sönnun þess,“
sagði Curtice við blaðamenn, að
General Motors hefur mikla trú
á brezka bílaiðnaðinum yfir-
leitt og Vauxhall sérstaklega.
Síðan stríðinu lauk hefir iðnað-
urinn sótt mjög á í útflutningi
Og við sjáum fram á vaxandi
eftirspurn á heimsmarkaðinum
fyrir bíla af hentugum gerð-
um.“
Hinir nýju verksmiðjusalir
Vauxhall verða búnir öllum full
komnustu vélum, sem völ er á.
„Vauxhall flytur um þessar
mundir 57 % framleiðslu sinnar
úr landi, en ársframleiðslan er
130.000 bílar af öllum gerðum,
þar á meðal Bedford-vörubíl-
xim,“ sagði Curtice. „Með að-
stoð sölukerfis GM um heim
allan, mun útflutningurinn
verða tvöfaldaður.“
við notkun þeirra, sem mikil-
vægt er og varðar skip, hafnir
og hafnargarða, brimbrjóta og
annað, og vísindamönnum við
rannsóknir á orku sjávar og
vinda.
Farþ^paskip
af nýrri gerð.
Snemma á næsta ári mun 6-
venjulegt fadþegaskip verða
tekið í notkun á siglingaleiðinni
milli Englands, S.-Afríku, Ástr-
ulíu og Nýja Sjálands.
Heitir skip þetta „Southern
Cross“ og er eign Shaw Savill-
félagsins enska, sem hefir mörg
skip í förum. Það er 20.000
smál. að stærð, en lengd þess
er 600 fet. Það getur flutt alls
1200 farþega og verða þeir all-
ir á einu farrými, og sama far-
gjald fyrir alla að heita má.
Það er nýjung við skip þetta,
að vél þess er höfð aftast í því,
og nýtist rúm þess þá betur,
þegar farþegarýmið er ekki
hlutað í sundur vegna fyrir-
ferðarinnar á vélarúminu.
Þessu fylgir einnig sá kostur,
að titringur af völdum skrúf-
unnar er miklu minni en ella,
og þykir farþegum það vafa-
laust mikill kostur, ekki sízt
þegar siglt er langar leiöir, eins
og skip þetta gerir. Það verður
til dæmis um þrjár vikur frá
Bretlandi til Ástralíu, og er
hraði þess þó 20 hnútar á klst.
Skipið verður tekið í notkun
snemma á nætsa ári, og mun
aðeins fara fjórar ferðir árlega,
enda verður siglt suður fyrir
Afríku, eins og segir í upphafi
þessarar frásagnar, til Ástr-
alíu.
Cjunnarúön
SKÓVERH.UN . AUSTURSTRÆTI IJ
á stríðsárunum
— sum þeirra voru full af her-
mönnum, svo að kafarar þeir,
sem sendir verða niður að skip-
unum, mega eiga von á ýmsu ó-
. hugnanlegu, er þeir fara undir
1 þiljur.
Ætlunin er að þétta sem flest
skipin, ná þeim upp og selja
siðan.
Ætlar að byggja
vélsmiðjuhús.
Á bæjarráðsfundi þann 22.
okt. var samþykkt að gefa h.f.
Tækni kost á iðnaðarlóð, ca.
2000 ferm., austan Súðarvogar
og norðan Snekkjuvogar.
í því sambandi snéri blaðið
sér til forstjóra fyrirtækisins
Haralds Sigurðssonar, og iimti
hann frétta.
Áætlað er að hefja smíði á
vélsmiðjuhúsi á þessari lóð, ef
næg leyfi verða fyrir hendi en
Tækni h.f. er vélsmiðjan, sem
framleidir miðstöðvarkatla,
olíuofna fyrir lofthitara og út-
býr vatnshitara, auk annarar
vélsmíði. Húsnæði það, sem
vélsmiðjan hefir nú yfir að ráða
á Faxagötu 1, er orðið allt of
lítið.
Tækni h.f. er 14 ára og eru
eigendur þeir Haraldur Sig-
urðsson, sem jafnframt er for-
stjóri, Páll Guðmundsson,
Guðni Guðmundsson og Eggert
Ólafsson.
Kaíser reisir bíiasmíðju
í Brasilíu.
Bifreiðaverksmiðjur eru fáar
í Suður-Ameríku, nánaii til tek-
ið aðeins samsetningarverk-
smiðjur, en breyting kann að
verða á þessu bráðlega.
Brasilía flytur inn um 80.000
bifreiðar á ári, og þar hefir
komið til orða að koma upp
bílaverksmiðju, þar sem það
mundi spara mikinn gjaldeyri.
Hefir verið leitað til iðjuhölds-
ins Kaisers, sem hefir unnið að
bílaframleiðslu í nokkur ár, og
| er hann að athuga stofnun
verksmiðju í samvinnu við
Brasilíu. Þar í landi eru um
570.000 bílar, og fer, fækkandi
í hlutfalli við fólksfjölda sakir
mikils gj aldeyrisskorts.
Plussdreglar
Verð frá kr. 155,00
W&S&í
Fischersundi.
Áklæii
margir, fallegir litir.
dívanteppi
frá kr. 100.00
VERZLi
Það bezta verður ódýrant,
□otið þvi
BOSCH '•
í mótoriim.
Beztu úrin hjá Bartels
Lppkjartorei.
Sími 6419.
sRWV,A^V-VAniWB,^.WuVA^VuV.,
wvw
FERMINQARGJAFIR
Hinir smekklegu, þýzku
Dorð- og gólflampar, eru
íentugustu fermingárgjaf-
irnar.
Skermabúðin
Laugavegi 15.
Sími: 82635.
'WWUWW/VVWWVVWVVVVVVVV’'