Vísir - 13.11.1954, Blaðsíða 7

Vísir - 13.11.1954, Blaðsíða 7
Laugardaginn 13. nóvember 1954 vism A kvoldvökunni. BEZTA HÚ5HJÁÍPIN Hér er síðasta sagan af Karli litla Bretaprinsi: Eitt sinn þegar hann átti að sitja fyrir, vaf hann svo á- hugasamur fyrif ljósmynda- listinni, að hann skipti um stöðu við ljósmyndarann. „Svona, nú getur þú tekið mynd af mér,“ sagði hirðljós- myndarinn. Þegar prinsinn sá að mynd ljósmyndarans stóð á höfði á 1 j ósmyndaplötunni, gekk hann grafalvarlegur á sinn stað, og stóð á höfði fyrir framan Ijós— myndavélina. „Svona, nú kem eg til með að snúa rétt á myndinni,“ sagði prinsinn. ||^Ur»jasíl| JEHE WHEELWRIGHTT eruð til kvaddur. Þér sækizt ekki eftir völdum. Þér óskið ekki eftir neinu sjálfum yður til handa. Þér eruð gæddur dyggðum hinna fornu Rómverja. John tók ofan. — Eg þakka hrósyrðin í minn garð, sagði hann. — Það er önnur maneskja, sem er í álíka aðstöðu og þér — Elizabeth prinsessa. — Ef þér álítið, að hún sé í hættu, held eg, að þér hafið drottninguna fyrir rangri sök. — Það er ekki drottningin, sem veldur því, heldur miklu fremur Renard, spænski sendiherrann. Prinsessan skiptir sér ekki af stjórnmálum, en það verndar hana ekki fyrir þeim, sem vilja hana feiga. — Eg geng ekki í neinn flokk, sagði John og hristi höfuðið. — Eg er ekki að óska eftir því, sagði Cecil. — Eg vil aðeins að þér minnist þess, að öryggi hennar táknar öryggi yðar. — Það ætti að vera auðvelt að lofa því, sagði John. Cecil þakkaði honum og sat síðan þögull á hestbaki um stund. — Yður virðist liggja eitthvað meira á hjarta, sagði John að lokum. — Verið viss um, að eg veit, að öryggi mitt er undir henni komið. En hver tekur eftir lítilli hríslu, þegar tvö stór tré skyggja á, prinsessan og Courtenay, sem ætla sér að koma í veg fyrir áform Renards í sambandi við framtíð Englands. — Þér eigið fjandmann, sem svífst einskis til að reyna að koma yður á kné. Hver hann er, veit eg ekki. — Courtenay? — Sennilega og ekki sízt vegna þess, sem þér hafið sagt mér, að hann hafi ráðizt á yður. En hvernig sem því er varið, þá kom það í ljós, þegar Otterbridge lávarður lagði hinn tilvonandi ráðahag yðar og ungfrú Önnu Hunsdon fyrir Ráðið í gær. Þá stóð Shrewsbury lávarður á fætur en hann er í flokki Courtenays, og kvaðst hafa undir höndum bréf frá óþekktum manni, þar sem drottin- hollusta yðar væri dregin í efa. — Hvað eruð þér að segja? — Ráðið veit, að það ríkir mikil óánægja í Kent. í bréfunum stendur, að þér hafið sent bróður yðar til Kent, til þess að róa undir þar. — Það er ekki satt. Hann för í eigin erindum, og eg er í mikl- um efa um, að hann rói undir óánægjuhni þar. — Samt verðið þér að afneita honum. — Hann er ekki lengur í mínu fylgdarliði. Það, sem hann aðhefst nu, er á hans eigin ábyrgð. — Þetta sagði eg líka, en öllum er kunnugt, að yður þykir mjög vænt um hann. — Þér virðist vera mjög kunnugur einkamáhim mínum, Sir 'William. Otterbridge lávarður er mjög kunnugur þeim líka. — Ó, sagði Cecil. — Þér gleymið herra Blackett. En hann hefur ekki gert yður neinn mlska. Hann sór og sárt við lagði, að þér væruð ekki flæktur í málið. Hann sagði. að bróðir yðar væri óstýrilátur og baldinn, og að þér réðuð ekki við hann. Þetta sagði eg í Ráðinu og margir trúðu því. Samt er mikið njósnað um yður, lávarður minn. — Hafið þér nokkra hugmynd um, hver njósnarinn er? Hn&NSAR OG fAGAn AUT „Hvernig viljið þér hafa vas- ana á nýju fötunum?" spurði' skraddarinn Skotann. „Eg vil hafa þá svo þrönga að erfitt sé að fara í þá.“ Hallgrímur Lúðvígsson lögg. skjalaþýðandi og dóm- túlkur í ensku og þýzku. — Hafnarstræti 19 kl. 10—12, sími 7266 og kl. 2—4 i síma 80164. HRINGUNUM S FRÁ Gljóir vel A Driúcjt ÆE Hreínleöt þœqilegl - HAFNARSTR « verður haldinn að Hafnarhvoli mánudaginn 29. nóvember og hefst fundurinn kl. 10 árdegis. MAaffshrú ; 1. Formaður stjórnarinnar setur fundinn. 2. Kosningar fundarstjóra, ritara og kjörbréfanefndar. 3. Skýrsla félagsstjómarinnar fyrir órið 1953. 4. Reikningar sambandsins. 5. Skipakaup. 6. Önnur mál. 7. Kosning stjómar Og endurskoðenda. Óskað er eftir, að fundarmenn verði undir það búnir að taka afstöðu til kaupa á flutningaskipi. Umnar&svn SKÓVEHILON - AUSTUKSTRÆTt IJ MARGT A SAMA STAÐ Sijórn Sölusambands íslenzkra fiskframleiðenda. Eins og eldibrandur geistust menu l.aiary y h raffiekrunar og stefndu að hú,,um búgarösins. Hvar sem þeir komu eyðilögðu þeir allt sem fyrir þeim varð, verk- færi, komforða, brutu niður hús 0. fl. En þeir fengu ekki lengi tóm til slíkra skqmmdarstarfsemi. Jose hafði farið og gert verka- mönnunum aðvart og nú hófst grimmilegur bardagi. Mennirnir börðust eins c : villidý: og mitt á meðal þeirra barðist hiixsi hrausti Tarzan. f f I

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.