Vísir - 02.12.1954, Blaðsíða 7

Vísir - 02.12.1954, Blaðsíða 7
Fimmtudaginn 2. desember 1954. vísm 3? TARZANJ 6LAPLY ACCEPTEP THE (PECLARATION TH£N,AMIP J0Y0U5 BHOUTBJHE FOURSOME SET EP6E OF HOLT'S PROPERTY E-MAN SPOKE WAR/V1LY."/ THEKI IMEAN, Copr. 1151. Edg«r r.lf cBurroughs. Inc —Tm.ftee. 0.8. P»t.OS. Dlstr. by Unlted Feature Byndlcate, ine. ■ Suffolk, sem enginn treysti, hafði orðið að horfa upp á upp- reist sína hjaðna niður eins og vatnsbólu. Það var sagt til hans og hann var tekinn fastur í veiðivarðarkofa, en þangað hafði hann leitað hælis aðfram kominn af kulda og sulti, eftir að hann hafði falið sig í tvo daga. En Wyatt hafði alla Kentbúai með sér. Uppreistarmennirnir höfðu verið sigraðir á WiJatham-| heiði, en hinar sigursælu hersveitir drottningarínnar höfðu eftir sigurinn gengið til liðs við uppreistarmenn, Hertoginn af Norfolk hafði haldið áfram til Rochester og fylkt stórskotaliði sínu, en þá tóku liðsmenn hans að hrópa: „Við erum alíir Englend- ingar.“ Norfolk var á hröðum flótta og Wyatt var á leið til Lundúna með lið sitt .... John vildi ekki biða lengur og lagði af st.að með hinn litla her sinn. Það var hríð og frost og þeir komust ekki nema átta mílur á dag. Þeir urðu að teyma hestana. Um nóttina höfðust þeir við í þorpi einu og sátu þar umhverfis eld, þar til dagaði. Um nóttina notuðu um fimmtíu manns tækifærið og sneru heim í náttmyrkrinu. John skipaði þá Francis og Anthony að vera aft- ast í fylkingunni og skjóta alla, þá, sem ætluðu að snúa: við. Á öðrum degi stytti upp og hlánaði. Þá urðu vegirnir eitt aur- flóð. Það varð uppreisn í hersveitinni, en John og foringjar hans bældu hana niður. Francis vildi láta hengja þ.rjá verstu uppreisnarseggina, en John lét sér nægja að binda þá við tré og strýkja þá. Að lokum hvessti og þann sjöunda febrúar komust þeir loks til Reading svo uppgefnir, að þeir þurftu að hvíla bæði sig og hestana. Þar bárust þeim þær fréttir, að Wyatt hefði Southwark á sínu valdi og héldi því með litlum liðsafla, en enginn þorði að ráðast á hann, því að menn treystu ekki hersveitunum. („Það getum við ekki heldur,“ hvíslaði Francis að Anthony). Howard lávarður hafði látið draga upp vindubrúna og komið þannig í veg fyrir að hægt væri að komast yfir Lundúnabrú. Þá mundi sendiboði drottningarinnar loks eftir erindi sínu og sýndi þeim skipun Ráðsins, sem var þess efnis, að allir þjóðhollir þegnar ættu að koma til liðs við drottninguna. Þeir höfðu ekki hugmynd um, að meðan þeir voru að tala við sendiboðann, var Wyatt að gera örvæntingartilraun sína. Hann gat ekki komist yfir Lund- únarbrú og var í sífelldri hættu fyrir skotárásum frá virkis- görðum Kastalans. Hann hafði því farið upp með ánni til Kings- ton, hrakið á burt liðið, sem átti að gæta vegarins þar og var á leið til Lundúna, en fylgismenn hans þar hreyfðu hvorki hönd né fót til að hjálpa honum. John settist á ráðstefnu með Francis og Anthony og ákvað að fara til Windsor svo hratt sem hann gæti. Þar eð þeir voru svo nálægt Lundúnum, fréttu þeir um aðgerðir Wyatts strax' um morguninn. Þá notuðu hinir óánægðu tækifærið og stálust burt og þá var ekki eftir nema um helmingur af þeim, sem höfðu farið af stað með honum. Þegar þeir áttu um eina mílu ófarna til Windsor, heyrðu þeir klukkurnar hringja glaðlega, en þar eð þeir vissu ekki fyrir hverjum þær hringdu, fóru þeir enn varlegar en áður. Þá kom hraðboði til þeirra og tilkynnti þeim, að Wyatt hefði verið tek- inn fastur og uppreisnin bæld niður. Varðmennirnir í Windsorkastala voru of varkárir til þess að hleypa nokkrum inn í kastalann, jafnvel þótt þeir lýstu því yfir, að þeir væru liðsmenn drottningarinnar, því að þar hafði oft verið skipt um yfirráð á síðustu tímum. Þeir létu því fyrir berast : borginni, þar sem menn hans drukku sig konunglega fulla af gleði yfir því að þurfa ekki að taka þátt i orustu og John skemmti sér með fori.ngjum sínum í veitingahúsi. En John var ekki káturýHann gat ekki tekið þátt í gleði manna sinna meðan hann vissi ekki um örlög Rogers. Sólin var löngu komin upp, þegar þeir lögðu af stað, órakaðir, úrvinda og timbraðir. Samt voru þeir hreyknir yfir vetrar- herferð sinni, og töluðu með fyrirlitningu um þá, sem höfðu snúið við og gleymdu því, að þeir hefðu gert það sama, ef þeir hefðu fengið tækifæri til þess. Á Hounslowheiði mættu þeir Ambrose, sem var að koma frá Lundúnum. Þeir fóru með hann til jarlsins. Þegar hann hafði hresst sig á brennivíni, hóf hann frásögn sína: — Herra Thomas Wyatt er í Kastalanum og menn hans eru annað hvort í fangelsi eða flúnir. Það var í gærmorgun um níuleytið, sem hann kom cftir Kingtsbridge-vegi með ekki meira en fjögur hundruð rnenn, illa til reika. Lávarðurinn af Pembrolce hafði tíu þúsndir manna til að stöðva hann, en fæstir þeirra höfðu minnstu löngun til að berjast, og þeir, sem börð- ust, voru afar linir í sókninni. Ilermenn drottningarinnar höfðu stórskotalið, en herra Wyatt og lið hans sundraði því og komst alla leið til Charing Cross, en þar var hluti af lífverði drottn- ingarinnar undir fórystu Sir John Gage og riddaralið undir for- 5rstu Courtenays. Þegar sá fjandi sá liðið koma, hlejrpti hann Undan til Whitehall og hrópaði, að allt væri tapað og lið hans á hæla honum, og skildi Sir John einan eftir i hættunni. Síðan veit eg ekki vel, hvað skeði, en herra Blackett sagði mér, að WVWWWJVWVVVl Frotté efni í í herra og dömusloppa, kínversk barnanáttföt, handbróderuð. Verzleinín FRAM Klapparstíg 37, sími 2937. BEZT AÐ AUGLYSAI VlSI Nýlcomið Crep — Nyfonsokkar mjög góð tegund. //. Toft Skólavörðustíg 8. Sími 1035. tií.asiötiíststtíststsíicúSititMiíiíiútiíSíííiöíswísooísííotiCíiöíittwooöíiSíosiíss VALA hefur vistesklpti Rauða telpu- og unglinga- bókin í ár er komin út. Hún heitir VALA hefur vistaskipti og er eftir F. Murphy. Freysteinn Gunnarsson hefur íslenzkað söguna.' VALA er úrvalstelpubók eins og Políyanna og Dísa í Suðurhöfum lt)ól?jellóát(^ájan . RAU0A TELPUBÓKIN 1954 OWOSSÍSÖSSSSSSÖSSSSSSOSSSSÍSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSOSSSSSSSSSSSSÍ f. SunciifhÁí i .. . THE LEAVE: OF FRIENP5HIR OFF FOR THE FAZENDA. ....... COYLY • ISHOULD LEAVE, ' BLUSHER "NO/I-* V/LLYOU-" Yfirlýsing manna Lazars um vin- skáp gíaddf Tarzánmjög’mikið. Fjórmenningarnir lögðu af stað til Fezanda eftir að hafa sætzt við menn Lazars og skógurinn ómaði af kveðju- ópum þeirra. Þegar þau komu að landareign Holts sagði Tarzan vingjarnlega. „Nú ætla ég' að yfirgefa ykkur, vinir mín- ir, því nú er mín ekki'í'ehgur þÖrf hér. „Ég hugsa að ég verði einnig að fara“ sagði Lucía döpur. „Nei“. Holt roðnaði um léið og hann hélt áfram „Ég meina, viltu.... “

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.