Vísir - 04.01.1955, Blaðsíða 7

Vísir - 04.01.1955, Blaðsíða 7
"V-«V—V—V-V-*^................ iÞri'ðjudaginn 4. janúar 1955 VÍSIB Copr..psi.ei?í*rRtseBntrebr»*i Jnc.—T«s.Rf*,TJ.9 'Disir. by UnHed Feature 'Sýndicáte, Incí 'f ' hlœh % Herra Blackett nam staðar í frásögninni til þess aS svara honum: — Ekki á þessum tímum stjórnmáladeilna og trúar- déilna. En svo að við höldum áfram, þá hafa engir vitað um þétta nema við fjórir, þér, herra Killigrew, herra Lane og eg. Þá eru aðeins þjónarnir eftir. En Ambrose .... ? — Hefði ekki getað vitað um ráðagerðina, öávarður rninn. því að þér senduð hann til spænska sendiherrans. meðan við héldum ráðstefnu um málið. Og þó að hann færði vinum okkar hestana, hefir hann ekki getað vitað, hvert .þeix ættu að fara. Og þá er aðeins eftir .... Jarlinn kreisti ábreiðuna í lófa sér .... Þá er aðeins herra William eftir, Iávarður minn. Hann stóð fyrr framan dyrnar. þegar við vorum að tala saman og ef hann hefir lagt eyrað við, heíir hann getað heyrt allt, sem við sögðum. Heimskur var eg og grunlaus, að mér skyldi ekki detta þetta í hug fyrr. Munið þér eftir því. lávarður miim, þegar herra Lane opnaði hurð ina til að biðja um gimsteinaskrínið. Þá stóð herra William við hurðina með upplyftan handlegg, eins og hann ætlaði að fara að berja að dyrum. Það var ryk á hnjánum á honum, lá- varður minn. Það sýndi, að hann hafði kropið á kné til að geta Merað. — Hann skal fá fyrir fei'ðina. — Ekki fyrri en hann er búinn að segja okkur, hver hús bóndi hans er. Hann hefir ekki gert þetta íyrir sjálfan sig. Jarlinn lá á bakinu og horfði upp í loftið. Blackett fannst hann einkennilega áhugalaus um þetta mál. Því næst sagði hann mjúkri rödd, sem gat illa dulið þá hræðilegu ógnun, sem fólgin var í prðunum. — Hann átti Roger stöðu sína að þakka. Það var hann, sem vaXdi William. Við vitum nú hvers vegna ráðizt var á Francis; í Kent, þegar hann fór með skilaboð mín. Og við vitum líka. hvaðan þau hafa komið, rógbréfin til -Ráðsins, sem hafa valdið okkur öllum óþægindum. — Hann hefði ekki haft gáfur til að skrifa þvílík bréf, lá- varður minn. — Þar er eg á sama máli. herra Blackett. En eins og þér segið, eigum við voldugan óvin, sem stendur á bak við þetta, og hann mun segja okkur, hver sá óvinur er. — En ef hann vill nú ekki tala? — Hann mun tala. sagði John hóglátlega. ,5 XIX kafli. Viku seinna sat lávarðurinn af Bristol heima í Rose, en Ambrose og Ðickon voru hjá honum. — Þér kunnið að róa, Dickon, og ráðið bæði við bát og ferju, ér ekki svo? Gætuð þér róið á ánni. jafnvel þótt veðrið væri óhagstætt? — Lávarður minn! Eg er alinn upp sem sjómaður og hafði siglt til Skotlands og til Baljtiskú landanna áður..en eg iór i þjón- ustu .yðar. —: ••Ambrosé! Þér hgfið oft farið um Bristolflóa, ef sögurnar, sexn þú sagðir mér í Kastalanum, eru sannar. •—■ Þær eru sannar, lávarður mirrn. Ef hægt verður að útvega bát, getum við Ðickon róið honum hvert sem vera skal. — Ágætt. Farið þið nú og kaupið slíkan bát, með tveimur ár- um, sem tekur fjóra. Hafið bátinn tilbúinn við næsta lendingar- stað og látið það ekki bregðast. Sendið svo herra Blackett til mín. Það var hráslagalegt veður og leit út fyrir hríð og John var feginn að vera undir þaki. Hann hafði komið kvöldið áður í áföngum frá Canterbury. Það hafði verið óskemmtilegt ferðalag, að við allar krossgötur stóðu gálgar og þar héngu skorpin lík í hlekkjum af hraustum Kentbúum, sem höfðu verið í liði Og ekki var sbetra, þegar til Lundúna kom, þ.ví að þar áttatíu gálgar og lík sangandi í hverjum. Borgararnir gátu því ekki komizt hjá því að finna smjörþefinn af hefnd drottningarinnar. Það var búið að grafa frú Jane. Lávarður- inn af Suffolk hafði verið dæmdur, Courtenay var kominn aftur kastalann og Elizabet var verið að flytja í strangari gæzlu til Lundúna. .Wyatt var gevmdur í svartholi og bar sig illa. John var laus, einungis vegna þess, að hann þótti of lítll fisk- ur í „sjó fyrir hin stórmöskvuðu net. Herra Blackett koni inn og var dálítið æstur. — Eg var að leita að yðui’, lávarður minn, þegar Ambrosé bar mér þau orð, að þér væruð að leita að mér. Ilér er þréf, sem er nýkomið frá •Reading. Þaðær með rithönd herra Killigrews. — Francis! Og frá Reading! Hvepnig stendur á því, að hann er þar, Fáið mér ,það. — Hinir hlykkjóttu, nærri því ólæsilegu stafir, voru sannar- lega skrift Francis. John opnaði það og las meðan Blackett beið óþolinmóður. Því næst hló hann og sagði: — Þarna er Francis lifandi lýst. Hann skrifar: „Lávarður minn! Við látum fyrir berast hér í Reading vegna ofurlítils óhapps, sem kom fyrir hann Anthony okkar. Hestinum leidd- ist að hafa hann á baki og henti honum af sér. Hann kom niður á stein og meiddist ofurlítið og nú .er hann að leita sér lækn- ingá í örmum Margarethe, sinnar ástkæru eiginkonu, en eg, sem á enga eiginkonu, bvíli mig eftir erfiða vetarferð. Eg bíð hér eftir skipunum yðar um að koma aft-ur til Lundúna, þar sem vínið er sterkara og meyjarnar mýkri.“ Blackett skellihló.Hann hefir ekki kært sig um að halda kyrru fyrir. í Gillingham, eftir að björgunin mistókst og það var ekki heldur ástæða til þess, að hann gerði það. Hann hefir sennilega farið yfir ána og kringum London, þangað til hann var kominn á veginn, sem ]á til ákvörðunarstaðarins. Herra Lane hefír vafalaust særzt, en ekki af því að falla á stein, eins og hann segir, heldur af sverðsoddi og hann hefir farið heim, til að láta ' sárið gróa. Hann getur ekki verið mikið særður, annars hefði hann ekki getað haldið ferðinni áfram. Við skulum ná í herra Frarícis og segja honum að koma, lávarður minn, við þurfum á fvndni hans að halda. John efaðist um það., — Það er leitað að honum um Kent fyrir morð. — Nei, nei, lávarður minn. Það er leitað að tveimur kaup- mönnum, sem reyndu að brjótast inn í fangelsi, til að leysa þróður yðar úi’ Iialdi. Þeir vita ekki, hvað þeir heita né heldur um kunningja þeirra eða þá, sem sendu þá. Herra Roger naut mikils trúnaðar herra Wyatts og allir vita, að það eru fleiri en þér og jafnvel menn í Ráðinu, sem mundu gjarnan vilja koma honum undan og til útlanda. Herra Francis kemur til London frá Reading, án þess mikið beri á, og þeir taka ekke-rt eftir því, fyrst þeir eru að leita að honum í Kent. Þeir munu ekki ferðast hingað dulbúnh’ sem kaupmenn, heldur í sínum borgaralega búningi. Það er engin hætta á ferðinni. — Þér hafið gleymt húsbónda herra Willianis. — Hann mún áuðvitað fá vitneskju um það, en náðun drottn- ingarinnar bróður yðar til handa mun slæva í honum vígtenn- urnar. Þáð er aðeins venjulegur glæpur, en ekki föðurlandssvik, að gera tilraun til að brjóta upp fangelsi, jafnvel þó.tt maður sé Á kvöldvbkuitni. Bókaútgefandi einn bauð- einu sinni ungum höfundi að borða hjá sér. morgunverð. Þeim voru fyrst bornir bollar með heitu kjúklingasoði og höfundurinn undraðist mjög aðfarir forleggjarans er hann helti soðinu á undirskál, braut brauðsneið í bita og lagð þá á skálina, tók síðan að hlása mik- ið á soðið. Höfundurinn vildi: vera kurteis og fór eins að, en beið svo til að sjá hvað hús- bóndinn gerði næst. Þegar hann hafði blásið nægilega á soðið settist hann á hækjur sínar og kallaði á hund sinn til að eta af skálinni. Hann var nýlega kvæntur og. vinur hans óskaði honum heilla. „Segðu mér, er það ekki satt að konan þín sé komin af góðri ætt og göfugri?“ „Ekki veit eg hvað eg á að segja um það,“ sagði sá ný- kvænti, „en hún hefir hana- vissulega alltaf á takteinum“. Ekki er nú lengur þörf fyrir hið fræga klaustur við St. Bemhards-skarðið í Ölpunum. Fyrir nokkru ákvað stjórn Vatilcansins að leggja niður klaustrið og selja byggingarn- ar, því að nú eru bifreiðar notaðar á öllum ieiðum og auk þess eru björgunarsveitir alltaf til taks. Hinir fi’ægu hundar, sem björguðu svo mörgum mannslífum áður eru nú ekki eins nauðsynlegir. Bæði munk- arnir og hundarnir hafa nú flutt sig um set, og farið þang- að sem þörfin er meiri, sumir til Tibet og aðrir tl fjallahér— aða í Suður-Ameríku. • Litla stúlkan starði hug- fangin á glæðufríar á aminum, sem voru að deyja út. ,,Mamma,“ sagði hún, „hvert fer eldurinn þegar hann deyr?“ ,Spurðu ekki um það, elskan mín. Mér er það eins hulið eirís og það, hvert hann pabbi þimi fer þegar hann fer1 út.“ '■ • Þulurinn segir: „Skoðanir ræðumanns voi*u hans eigin skoðanir, en ekki útvarpsins hér — né heldur nokkurs manns, sem er með fullu viti. (Saturday Evening Post)„ £ € Suncufké 17iS HeiIIuð hafði hvíta stúlkan fylgst með öllu því, sem fram fór úr felu- stað sínum, þar til hún heyrði þr'usk í mánaskininu sá hún allt í einu Stúlkan hrökk aftur á bak um glitta í græn viliidýrsaugu. Pardus- leið ög hún greip andann á lofti. . ^ .. . . En við það missti hún jafnvægið og féll ofan úr trénu og lenti mitt. á meðal hinna trvlltu apa. t ý-

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.