Vísir


Vísir - 02.02.1955, Qupperneq 4

Vísir - 02.02.1955, Qupperneq 4
A VÍSIB Miðvikudaginn 2, febrúar 1S55 DaSi Hjörvar við hljóSnema Sameinuðu þjóðanna í París (1952), •© ■ m • •• F. 5. NCIV. 192Q — D. 26. NDV. 1954. Ungum kynntist eg Daða Hjörvar; hafði hann þá nýlokið gagnfræðaprófi. Á mennta- skólaárum hans, en einkum þó síðustu vetuma fyrir stúdents- prófið, fylgdist eg mjög vel með högum hans, æskubrekum hans, baráttu og námi. Eink- um er mér þó minnisstæður síðasti áfanginn fyrir stúdents- prófið. Þá komst eg næst Daða, er hann gerði upp við sjálfan sig, hvað hann skyldi nema og leggja fyrir sig er hann hefði lokið prófinu. Kynntist eg þá nýrri hlið á honum: alvöru- gefnum, ungum manni, sem af einstakri hlutlægni og hlífðar- leysi, rýndi í hug sjálfs sín, prófaði eiginleika sína, styrka og veika, og vóg og mat hæfi- leikana. Upp af þessari sjálfs- athugun dró hann þá ályktun, er hann studdi sterkum rökum, að bezt mundi sér nýtast að hæfileikum sínum og mest gagn fá unnið þjóö sinni, með því að mennta sig sem bezt í starfi frétta- og útvarpsmanns. Af kynnum mínum af Daða hygg eg, að hann hafi hér valið réttilega, enda var mér ljóst, að til þessa starfa, sem hann hafði kjörið sér, var hann bú- inn mörgum og góðum kostum: Ágætar gáfur fjölþættar og frjó ar. Augun jafnan opin fyrir því, sem markvert var. Málfar hans var létt og óþvingað; stíll hans lipur. -----Daði Hjörvar var mað- ur fríður sýnum. Andlitsfaliið reglulegt; yfirbragðið fínlegt, húðin fölleit. Hárið dökkt, en augun stór, mild og spyrjandi. Allt viðmót hans var aðlaðandi, ljúft, kurteislegt og hispurs- laust. Ófeiminn var hann við hvem, sem í hlut átti, og bjó hann yfir töfrum, sem fágætir eru með jafnöldrum hans, en gerðu honum kleift að komast uhdurfljótt í talfæri við hvem sem var. Hann var trygglynd- ur, vinfastur og drengur hinn bezti. Foreldrar Daða eru Helgi Hjörvar rithöfxmdur og kona hans, frú Rósa Daðadóttir. Átti hanh því ekki langt að sækja til góðra gáfna. , — Að loknu stúdentsprófinu, árið 1948, sótti Daði um inn- göngu í skóla þann fyrir út- varpsmenn, sem starfar á veg- um B.B.C.-brezka útvarpsfé- lagsins. Til þessa naut hann at- beina ísl. útvaxpsráðsins og þáv. útvarpsstjóra. , Hjá B.B.C. aflaði Daði sér skjótt vinsælda og trausts. Kennai-ar hans og ráðamenn útvarpsskólans vildu í hví- vetna greiða götu hans og gera honum kleift, að læra sem mest og bezt á sem skemmstum tíma. Sögðu þeir honum sem var, að enda þótt stöð B.B.C. í Lon- don væri um flesta hluti vel búin, væri hitt þó staðreynd, að alls hins nýjasta og full- komnasta í frétta- og útvarps- tækni, væri helzt að leita í út- varpsstöðvum brezka hersins á meginlandinu; við herinn væri ekkert skorið við nögl. Hlutuð- ust þeir nú til um, að Daða vax veitt sérstakt leyfi til að fara til útvarpsstöðva hersins í Þj'zkalandi og kynna sér þar allt, er honum mætti verða að mestu gagni. Daði þekktist þetta góða boð og vann síðan um nokkurt skeið með brezk- um og þýzkum útvarpsmönn- um í Þýzkalandi, Þau kynni, sem hann þar fékk af nýtízku útvarpsstarfse'mi, eigi sizt fréttaöflun og -tækni, voru honum mjög lærdómsrík. — Þegar hér var komið bauðst hinum unga útvarps- manni nýtt og glæsilegt tæki- færi. Deildarstjóri fréttastofn- unar Sameinuðu þjóðanna á Norðurlöndum, gaf Daða nú kost á því, að halda áfram námi og útvarpsstarfi hjá frétta- stofnun S.Þ. í New York sem fréttamanni ísl. útvarpsins. — Fór Daði nú vestur um haf. Ault hins fasta starfsliðs 1 fréttastofnun S.Þ. vinna þar að staðaldrf fjölmargir frétta- menn frá útvarpsstöðvum margra landa í öllum álfum heims. Sú meginregla gildir um þá, að þeir starfa þar aðeins í eitt ár í senn. Er þá skipt um menn, og aðrir frá sömu út- varpsstöð eða -stöðvum taka við af þeim, sem þá hverfa heim. Enda þótt Daði teldist til þessa hóps fréttamanna, var starfstímabil hans þrívegis framlengt og vann hann þann- ig við fréttastofnunina óslitið í fjögur ár (1949—53). — Þetta starf, sem Daði Hjörvar nú hafði tekist á hend- ur, krafðist mikillar árvekni og mikillar kunnáttu og leikni, bæði í enskri tungu og íslénzkri, og leysti hann það af höndum með ágætum, eins of gleggst má marka af því, að honum var falið það árum saman, eins og áður getur. En auk hins daglega fréttaflutnings samdi Daði fjölda erinda og blaða- greina um helztu málefni, sem á hverjum tíma voru efst á baugi með S.Þ. Svo skýr og glöggur var mál- flutningur Daða, að fæsta hér heima, sem ekki þekktu hann persónulega, eða vissu um ald- ur hans, mun hafa rennt grun í, að bak við þetta starf stóð komungur maður, aðeins rösk- lega tvítugur. Maður, sem á- gætir hæfileikar og hliðholl ör- lög höfðu veitt það fágæta tækifæri, að fá árum saman, — á næmasta skeiði lífs síns, — að lifa og hrærast á og við mið- svæði sögunnar; og fá þar að hlýða daglega á, og standa aug- liti til auglitis við, marga af stórbrotnum umboðs- og for- yztumönnum þjóðanna; marga þá menn, sem svo mjög hafa mótað mannkynssöguna á þess- um örlagaríku árum. — — Sumarið 1953- hvarf Daði aftur heim. Fyrsta árið vann hann einkum að þýðing- um. Sömuleiðis nokkuð að blaðamennsku. Á síðara kennslumisseri í fyrra innrit- aðist hann í lagadeild Háskóla íslands og hugðist stunda lög- fræðinám, samhliða væntan- legu starfi við útvarpið, en við því tók hann nokkru fyrir and- lát sitt. — Á sl. vori lauk hann cand. phil.-prófi við háskól- ann með I. ágætiseinkunn. — — En enginn veit sína ævina fyrr en öll er. Og nú hef- ur Daði kvatt hinzta sinni, aðeins 26 ára að aldri. Væntan- lega sáttur við alla, líka við þá, sem slegnir blindu eða af hugs unarieysi og ónærgætni áfelld- ust hann oftlega er hann í fréttaflutningi leitaðist við að- inna skyldu sína af höndum og skýra frá staðreyndum sögunn- ar á hlutlægan hátt. En þeir, sem árum saman unnu með honum í höfuð- stöðvum S.Þ. og bezt þekktu hann í síarfi, sakna hans sár- lega, eins og m. a. kemur fram í samúðarskeyti frá forseta i félagi fréttamanna hjá S.Þ.: „... . Fregnin um hið, óvænta fráfall Daða Hjörvar, sem hing- að barst í þessu, hefur snortið djúpt hina mörgu vini hans í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóð- anna......Við munum geyma: í tryggu minni okkar kæra,, unga stárfsbróður og þau ár, sem hann dvaldist með okkur.“ Daði Hjörvar var kvæntur Sjöfn Haraldsdóttur og áttu: þau tvo unga sonu, Ara og Helga, blíða, ljúfa glókolla, sem. bernskan nú hlífir við þeirri sorg, að skynja og skilja hve góðum dreng og föður þeir eiga á bak að sjá. Votta eg Sjöfn, sonunum ungu, foreldrum, systkinum, öðrum ættíngjum og vinum. Daða innilegustu hluttekningu og samúð rriína. Lúðy. Guðm. Tónleikar í Kristskirkju. Félag organleikara efndi til fyrstu kirkjutónleika sinna á árinu á sunnudagskvöld í Kristsknkju, og stjómaði org- anleikari kirkjunnar, dr. Urbancic. Lék hann fyrst svítu í fis moll eftir Handei, efnismikið og glæsilegt verk, síðan chaconnu í h-moll efth- próf. Karl Höller, sem hér var staddur í sumar eð leið sem fulltrúi Austurríkis á stofn- þingi alþjóðatónskáldasam- bandsins. Er chaconna þessi mikið verk og vel samið um svipmikið stef, en virðist við fyrstu heyrn nokkuð langdi-eg- ið. Haraldur Hannesson, tenór- söngvari í kór Kristskirkju, söng tvær latneskar bænir, Agnus Dei (Lamb guðs), sein skráð var 1473 fyrir Munka- þverárklaustur af Jóni Þorláks- syni, forláta nótnaskrifara, og varðveitt í handritsbröti í Árnasafni, og Maríubæn (Ave Maria), sem Loftur Guðmunds- son Ijósmiyndari samdi 1947 og sungið var í fyrsta sinn í Kristskirkju, þegar síra Hákon, sonur Lofts heitins, var vígður þar til prests. Er það hið á- heyrilegasta lag og naut sín vel í meðferð Haralds, En meiri. athygli mun þó hið forna ís- lenzka lag.hafa vakið í smekk- legri meðferð söngvara og org- elleikarans, sem einnig hefur búið það til flutnings. Væri' vel, ef fleiri kirkjutónlistar- menn tækju slík lög til með- ferðgr, en mikill fjöldi þeirra er enn varðveittur, þó að þau heyrist sjaldan sungin. Kemur manni þá fyrst í hug, að Krists- kirkja væri hinn ákjósanlegasti vettvangur fyrir flutning Þor- lákstíða, en söngstjórinn- manna vísastur til að skapa þvi verki smekklegan ramma. Að lokum léku þeir Ingvar Jónasson og dr. Urbancic són- ötu fyrir fiðlu og orgel efth- Biber (1681), undurf agur t verk, sem hljómaði unaðslega í meðferð þehra. B. G. á stúlkuna. „Eru þetta upplýs- ingamar, sem þér nefnduð svo? Við þekkjum öll mannorð Wetherills og þér viljið að við rengjum framburð hans, með svona lélegan grundvöll undir fæti?“ Hún svaraði: „Eg veit að eg hefir á réttu að standa. í morg- tm, þegar hann var að fara í réttinn, sagði eg við hann: „Eg hefi alltaf haft virðingu fyrir yður og eg hefi reynt að sann- færa sjálfa mig um að eg hefði " ranet fvrir mér. En það þvðir ekki. Þér luguð þessu á pilt- inn.“ Hann strunsaði fram hjá mér og eg saeði honum að eg færi. f fvrstu ar eg bara reið. Svo fór eg að hugsa um hvað væri skylda mín. Loks kom ee hingað — og svona stóð á því . að eg var of sein. „En ef þið ætlið að halda því fram, að mér komi þétta ekni við — þá er því til að svara að tnér hefir verið kennt að öllum komi réttlætismál við!“ Trevard greip fram í. „Og það sem öllum kemur við, kemur henni við. En ef hún sklydi nú loksins vera búin að tala út .... „Nei, það er eg ekki,“ sagði hún hvasslega og leit á hann um leið. „Þér eruð ekki lög- fræðingur hr. Wetherill, venju lega. Hvers vegna var hann að leigja yður, aðeins í þessu máli? — Eg hefi lokið máli mínu, herra dómari.“ John leit á hana augnablik. Þetta var kjarkmikil stúlka. Og einlægni hennar var mikil, —- þó að ekki annað hefði ver- ið nægði það til að kasta skugga á málið. Og hún virtist vekja nýjan vilja hjá sakbom- ingnum. Pilturinn. rétti úr sér og kinkaði kolli seinlega, eins og hann væri í djúpum þönkum. „Nú er þá kominn friður hér,“ , sagði Ttrevalld. , „Kferra dómari, sízt af öllu munum við fara þess á leit að pilturinn verið settur í fangelsi. Hann hefir þegar veri 4 daga í varð- háldi og hefir haft tíma til að átta sig á mistökum sínum, meðan hann beið eftir yfir- heyrslu. En við förum þess á leit að hann verði settur í betrunarheimili — það ætti að vera næg trygging fyrir hegð- an hans í fi-amtíðinni.“ Paul Reed mælti rólega: ,yEg er ekki sekur.“ Hann sneri sér að John. „Mig langar til að fá að tala við yður og lögreglu- manninn, sem tók mig fastan.“ Trevard sagði háðslega: „Svo að hann geti fundið upp ein- hverja lygasögu til að segja ykkur.“ John svaraði: „Stuart lög- regluþjónn og eg munum: at- huga vel, allt sem hann þarf að segja við okkur.“ „Eg skýt máli mínu til yðar hr. dómari. Héraðslögmaðurinn lætur blekkjast!“ John svaraði: „Héraðslög- maðurinn mun sjálfur vera dómbær á það. Með leyfi rétt- arins vil eg láta fresta inálinu í eina viku.“ Lance dómari var sýnilega tregur, en John sagði þrá- kelknislega: „Það er alltaf hægt að dæma hann, herra dómari.“ Lögfræðingurinn sagði nöldr- andi: „Þetta er bara tímatöf. Eg heimta tryggingu fyrir því að hann komi aftu; 500 dali.“ Kate Conlin kom nú aftur til sögunnar. „Eg á nægilegt fé í bankanum. Eg býð fram trygginguna. John sagði við Reed: „Komið í skrifstofuna mína kl. 2“. Og við Stúart sagði hann: „Þér verðið lika að konra þangað.“ Hinn hái lögreglumaður kinkaði kolli. „Stúlkan sú ama þreytti sannarlega málinu • á síðustu stundu", . Paul Reed sat í skrifstofu Johns og hóf máls seinlega: „Að sjálfsögðu reynli eg ekkil að hafa peninga út úr hr. Wet- heril. En áður en við ræðum: það, ætla eg að segja ykkur dálítið frá sjálfum mér“. Hann hafði alizt upp hjá ömmu sinni og afa. Móðir hans hafði dáið þegar hann fæddst, en faðir hans féll í innrásinni í Nor- mandí. „Þá var eg þrettán ára. Eg mami vel föður minn, hann: var hæglátur maður. Hann, kom til Granger Falis þegar hann var 25 ára. Og eitthvað var það í æsku hans sem hann vildi ieyna. Eg segi ykkur frá föður mínum af vissum orsök- um“. Hann mælti ennfremur „Svo var háttað um fjárhag okkar, að eg gerði ráð fyrir að þurfa að vimia fyrir námi mínu. Þá kom nokkuð furðu- legt fyrir. Deildarforseti við N. U.~ hringdi- til okkar í -síma Frh. ■

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.