Vísir - 04.02.1955, Side 7
Föstudaginn 4. febrúar 1955
vtsm
7
Tvær nýjar sundlaugar í Reykjavík.
Á íslandi eru nú trl 8B sund-
laugar og sundhallir.
Síftnslu Sí-í6 as*in hefur veriíV vai-iiV
8 millj. kr. lil sundlauga
framkræmda.
Gera má ráð fyrir að mrnið
wrði að tveimur nýjum sund-
laugabyggingum í Reykjavík á
tiiessu ári, en hað er annars-
vegar Simdlaug Vesturbæjar
«g hinsvegar hin nýja og mikla
Sundlaug íbróttasvæðisins í
Laugardalnum, og er þegar;
byrjað að graia fyrir henni. |
Að því er íþróttafulltrúi
TÍkisins Þorsteinn Einarsson,
hefur tjáð Vísi, er aðstaða til
framkvœmda sundskyldu í
skólum óvíða jafn erfið og hér
í Reykjavík. Þessir erfiðleikar
skapast annarsvegar af hinum
mikla mannf jölda og hinsvegar
mikla nemendaf jölda, sem fer (
yaxandi með hverju árinu sem
Jíður, á sama tíma og enginn ^
J.ýr sundstaður hefur verið f
byggður í Reykjavík frá því ^
1937, er Sundhöllin tók til
starfa. Aðrir sundstaðir hér í
bænum eru gömlu Sundlaug-
arnar, sem eru í svipuðu eða
sama ásigkomulagi og þær voru
fyrir nær hálfri öld og loks er
svo sundlaug til við Austur-
bæjarbamaskólann.
JLfíil aukning.
Ef borið er saman daglegt
meðaltal Sundhallargesta árið
1937 og árið 1952 kemur í ljós
eð sú tala hefur lítið sem ekk-
ert breytzt enda þótt ibúunum
í Reykjavík hafi fjölgað um 22
þúsund, eða rösklega þriðjung.
Árið 1937 sóttu 466 baðgestir
Sundhöllina á degi hverjum,
en árið 192 nam meðaltal bað-
gesta í henni 470.
Þessi slæmu skilyrði til
sundkennslu fyrir skólana og
daglega sundiðkana fyrir borg-
arana hafa verið viðurkennd af
forráðamönnum bæjarfélagsins
og nú hafa íbúarnir sjélfir
hafizt handa og byrjað
fjársöfnun til byggingar
Sundlaugar í Vesturbænum.
Hqfur sú Sundlaug nú þegar
verið staðsett við Hofsvalla-
götu og er Bárður ísleifsson í
þann vegiim að ljúka við frum-
teikningar af henni. Sérstök
nefnd vinnur að undirbúningi
þessa máls og er Birgir Kjaran
hagfræðingur formaður henn-
ar.
ILaugardalur.
Skömmu fyrir síðustu áramót
var hafizt handa um að grafa
fyrir hinum nýju Sundlaugum
íþróttasvæðisins í Laugadaln-
um. Jafnframt er byrjað að
leggja leiðslur frá laugunum og
er hugmyndin að almennings-
laugin verði steypt í ár. Laug-
arnar eru staðsettar beint norð-
ur af leikvanginum út við
Sundlaugaveginn og eru
nokkru austar og sunnar en
gömlu laugarnar. Þetta verður
mikið mannvirki og leysir af
hólmi gömlu laugarnar, sem
hafa verið meira eða minna í
notkun til baða og sunds í
fiinm aldarfjórðunga eða frá
því 1624.
íþróttafulltrúinn tjáði Vísi
ennfremur að af 13 kaupstöð-
um landsins vanti nú orðið
hvergi sundlaug nema í Húsa-
vík og á Sauðárkróki, en á
báðum þessum stöðum eru
sundlaugabyggingar nú hafnar
svo að innan skamms verða
allir kaupstaðir á landinu bún-
ir að fá sundlaugar.
Sundlaugarnar á Sauðár-
króki og Húsavík hafa báðar
verið teiknaðar sem yfirbyggð-
ar laugar, þ. e. sundhallir og
báðar njóta þær jarðhita til
hitunar. Sundlaugin á Húsavík
er það á langt á veg komin að
búið er að steypa sjálfa þróna
ásamt stéttunum í kringum
hana og ennfremur er laugar-
húsið, þ. e. búningsherbergi,
baðherbergi, salerni, anddyri o.
fí. nú fokhelt. Á Sauðárkróki
hafa undirstöðurnar verið
lagðar.
Laugar í
kauptúnum.
í kauptúnum mc.ð 300 íbúa
og fleiri, en þau munu vera 31
talsins á öHu landínu, eru sund
laugar til í 12 þeirra, en verið
að byggja sundlaugar í 5 til
viðbótar, þ. e. á Þingeyri, Sel-
fossi, Hrísey, Borgarnesi og
Eskifii’ði.
Aðeins eina sýslu
vantar sundlaug.
Af 24 sýslum á íslandi er
aðeins smidlaugar vant í einni,
en það er Gullbringusýsla. En
íbúarnir þar njóta sundstaða í
nærliggjandi kaupstöðum, fyrst
og fremst í Hafnarfirði og
Keflavík en einnig að meira
eða minna leyti í Reykjavík.
í Norður-Þingeyjarsýslu eru
tveir ófullnægjandi sundstaðir,
annarsvegar þró sem alls ekki
er ætluð sem sundstaður, en
hefur gufu til hitunar, hinsvegi
ar uppistaða í á með tilheyr-
andi sundskýli og er vatnið
í ámrí 15 stiga lieitt jafnt
sumar sem vetur,
í Vestur-Skaftafellssýslu 'er
til lítil sundlaug yið heita upp-
sprettu í Skaptártungunum,
en vegna lágs hitasti^s hefur
þessi laug verið minna notuð
en skyldi.
Með tilliti til þess sem frá
hefur verið skýrt hér að fram-
an má segja að íbúar allra
sýslna landsins hafi orðið að-
stöðu til þess að senda böm
sín til sundnáms, án þess að
um miklar vegalengdir sé að
ræða. En þrátt fyrir það þarf
að sjálfsögðu að þétta lauga-
kerfi lairdsbúa frá því sem
nú er og miða nýjar fram-
kvæmdir fyrst og fremst rvið
staðháttu, svo sem landslag,
samgöngur og þéttbýli og
korna fyrst upp laugum í þeim
1 sýslum, sem hafa þess mesta
þörf.
I
Endurbætur á
sundstöðum.
Verið er um þessar mundir
að lagfærá ýmsa sundstaði á
landinu, gera þá og umhverfi
þeirra vistlegra, auka hollustu-
hætti við þá og þar fram eftir
götunum. Má þar til nefna
Reyki á Re^'kjabraut í Húna-
vatnssýslu, Efri-Hrepp í Borg-
arfirði og þá síðast en ekki
sízt Akureyrarsundlaug, en það
er langstærsta aðgerð á þessu
sviði eins og sakir standa. Þar
er verið að byggja láugarhús
og er þeirri framkvæmd svo
langt á veg komið að fyllstu
vonir eru til þess að Akur-
eyringum megi auðnast að
njóta þessara endurbóta nú á
þessu ári, enda leggja þeir
kapp á að ljúka þeim. í laugar-
húsi því, sem veiið er að byggja
verður m. a. lítil inni sundlaug,
enda hafa Akureyringar þess
fuHa þörf, því hitinn í aðal-
lauginni bregzt jafnan þegar
kólnar í veðri og er þá með
með öllu ónógur.
Fjárframlög.
Sveita- og bæjasjóðir við-
komandi staða standa undir
'sundlaugabyggingunum en oft
hlaupa ýms áhugafélög undir
baggga með fjársöfn.unum og
loks styrkir íþróttasjóður
þessar framkvæmdir að all-
verulegu leyti.
Eins og kunnugt er veitir
Alþingi íþróttasjóðnum, fé til
framkvæmdanna, en undanfar-
in 6 ár hefur sú fjárveiting
verið nokkuð af skornum
skammti, ekki sízt með tilliti
til hinna miklu sundlauga-
franikvæmda í landinu á þess-
uni sama tíma. Fyrir bragðið
stendur íþróttasjóður í allveru-
légri skuld við framkvæmda-
aðila. A síðustu fjárlögum var
fjárveiting til íþróttasjóðs
hækkuð nokkuð, en þó ekki
svo að hún mæti þörfunum að
fullu.
Láta mun nærri að þær
sundlaugar sem verið hafa í
smíðum undanfarin 8 ár,
kosti um 8 milljónir króna.
Upp í þann kostnað hefur
íþróttasjóður greitt 1.6 millj.
krónur, en skuldar orðið annað
eins. Eins og að líkum íætúr
hefur þetta lamað verulega
sundlaugaframkvæmdir á ýms-
um stöðum og það svo að
jafnvel hefur ekki verið snert
á verki árum saman, þar sem
annars var byrjað á bygging-
um.
Nær 90
sundstaðir til
á landinu.
Alls eru nú til 88 sundlaugar
og sundhallir á íslandi. Þar af
eru 7 opinberar sundhallir, 10
sundhallir við skóla og 1 sem
er í einkaeign. Opinberar
sundlaugar á landinu eru 46
að tölu, auk þess 4 sundlaugar
við skóla og 2 í einkaeign. Að
flatarmáli nerna sundlaugar
landsins yfir 12 þús. ferm.
^vwjywMíuvvvuvvvwuvr
| VÖru- l
\ happdrætti |
*
s.
I.
B.
S.
í
I
£
í
i
Dregið í 2. flokki
á morgun
um
385 vinninga.
Hæsti vinningur
50 þús. krónur
Miðar, sem ekki hafa .
verið endurnýjaðir í 1.
flokki, eru til sölu í dag. ^
|
Umboft í
í Reykjavík |
I
Gatnamót í Los Angeles.
10 ára áætEun í Banda
Elia myndi ölngþveiti skapast5 en nú
þegar eru þar 60 miíj. bíla í notkun.
Bandaríkjamenn ætta að s
ve,ija til þjóðvegagerðar 101
milljörðum dollará á næstu 10
'árúiíi. Þrátt 'fyrir r.yætt vega-
keríi, sfin flesta>- þióðir geta
öfundað Bandaríkin af, finnst
Bandarík j amonnum sjálfum
mikilla urnbóta þörf. enda er
bifreiðanotkun sívaxandk
Farþegabifreiðaf í noíkun
eru þar, s’amkvæmt seinustu
skýrslum,- 48 millj. 870,000, en
auk þess eru vöfuflutninga-
bifreiðir 9 millj. 792,000.
Þjóðvegir, gerðir samkvæmt
fyllstu nútíma kröfum, eru
nauðsynlegir til rambands milli
framleiðenda ög neytenda um
allt land, þeir greiða fyrir við-
skiptum og efla atvinnulíf í
borgum, bæjum og þorpum og
sveitúm, og þar af leiðandi lífs-
nauísyn til góðrar afkomu
þjóðarheildarinnar og ríkisins.
Þannig líta Banclaríkjamenn á.
Franifáfirnar' séu undir góðu
vegcU'.eríi komnar.
Ríkisstjórnin skipaði sér-
staka nefnd, sem fyrir
skemmstu hefur skilað áliti, og
það er hún sem hefur lagt
fram tíu ára áætlunina, sem að
ofan er að vikið, og’ héfur for-
setinn nú lagt hana fyrir þjcð-
þingið, og samkvæmt þeim er
lagt. til, að sambandsstjórnin
leggi til 30% fjármagnsins, en
alls er ráðgert að Ieggja vegi
samtals 64,000 kilometra að
lengd til bættra samgangna
milli fylkjanna. Hin einstöku
fylki eða ríki og bæjarfélög
ffreiða hinn hluta áætlaðs
kostnaðar.
Sumsstaðar hafa fyíki og
borgir þegar gert risaátök til
að bæta samgöngur. M.a. hafa
verið lagðar hraðakstursbrautir
eegnum boreir eins o.g New
York, og fýíkin Pennsylvania
og New Jersey. í 5—6 öðrum
fylkjum eru slíkar fram-
kvæmdir á döfinni, og víða í
Framh. á 11. síðu.
og Hafnarfirði.
Austurstræti 9.
Halldóra Ólafsdóttir,
Grettisgötu 26.
Verzlunin Roði,
Laugavegi 74.
Carl Hemming Sveins.,
Nesvegi 51.
Vikar Davíðsson,
Eimskipafélagshúsinu.
Verzlunin Pfaff,
Skólavörðustíg 1 A.
Hreyfilsbúðin,
Kalkofnsveg.
Kópavogsbúðin,
Iíópavogi.
Bókabúð Böðvars Sigurðss.,
Hafnarfirði.
I Umboðin
| opin til
' kl. löíkvöld
/WWVWtfVW»VVVVW-V«V.
í
I
I
V
I*
I