Vísir - 29.03.1955, Blaðsíða 1

Vísir - 29.03.1955, Blaðsíða 1
 45. árg. i»riðjudaginn 29. marz 1955 73. tbl(- Rýrari afli í gær, nema hjá Keffavíkurbátum. 34 báfar fengu 485 festér. Afli var yfirleitt rýrari í gær, en fyrir helgina, nema hjá Kefla- víkurbátum, sem öfluðu mjög vel. Keflavík. í gær var uppgripaafli hjá Keflavíkurbátum. 34 línubátar fengu samtaís 485 lestir, eða að meðaltali 14% lest á bát. Hæsti báturinn var með 20% Iest. Auk þessa var svo afli netjabáta og handfærabáta. í dag eru nær all- ir bátar á sjó. Sandgerði. Afli Sandgerðisbáta var sæmi- legur i gær, en þó heldur minni en daginn áður. Voru bátarnir méð frá 8—10 lestir. í dag eru allir bátar á sjó og bliðu veður. Grindavík. f gær vóru 18 bátar á sjó og öfluðu þfcir 142,5 Icstir. Aflahæst- ur var „Arnfirðingur" með 12,5 lestir. í dag er ágætis veður og allir bátar á sjó. Akranes. Afli Akranesbáta var rýrari i gær, en fyrir helgina, enda eru mánudagarnir venjulega lélegustu afladagarnir, vegna þess að þá eru bátárnir með gamla loðnu eft- ir helgina. Aflinn má þó heita mjög sæmilegur, því að bátarnir voru með frá 5—14 lestir. Hæstur var Vélbáturinn „Böðvar“. Togar- inn Akurey er að landa á Akra- nesi í dag og er með um 200 lest- ir, aðallega karfa. Vestmannaeyjar. í gær voru allir bátar á sjó i gær, stórir og smáir, og öfluðu allir vel sem liöfðu veiðarfæri sín í lagi. Margir hafa ekki enn náð netum sínum cftir óveðrið, en talið er að þau muni flest finn- ast, en búast má við íniklum skemmdum á þeim. Hæsti bátur- inn i gær var með Um 3000 fiska, og er það mjög góður afli. Einn bátur, „Balílur“, skipstjóri Har- aldur Hannessbn hfcfiir fengið 10.000 fiska i fjórum róðrum. Fiskurinn virðist nú vera að fær- ast út á djúpið, og gefur það Vest- . . .» . «* mannaeymgum goðar vonir iim jafnari afla en hingað til. Einar Lúðvígsson rafvirki látinn. Einar Lúðvígsson, rafvirki, sem slasaðist við radarstöðvarbygg- inguna við Hornafjörð, lézt á sunnudagskvöld í sjúkrahúsi í Kaupmannahöfn. Svo sem kunnugt er var hann fluttur með sérstakri flugvél til' Kaupmannahafnar, en þar gekk hann undir höfuðuppskurð. Einar Lúðvigsson var 21 árs að aldri og lætur eftir sig konu. Bevanmátið rætt í dag. Bevan ræddi enn við Attlee í gærkveldi. í dag mætir Bevan á fuhdi nefndar þeirrar, sem skipuð var til þess að ræða framtíðarhegðan lians. — Ræða Bevans i Sheffield er talin boða, að Bevan vilji frið- samlega lausn og framhaldsað- stöðu til að efla áhrif sín í flokkn um. Víitæk olíuleit í Frakklamft. Franilciðvlaiiii vex nin heiming á þessH París (AP). — Um þessar mundir er mikill áhugi inn- lendra og erlendra manna fyrir olíuleit hér í landi. Alls hefur ríkisstjórnin til aíhugunar eða hefur leyft ellefu fyrirtækjum að fram- kvæma leit að olíu á ýmsum stöðum, og hefur þetta orðið til þess, að hlutabréf olíufélaga eru nú skráð hærra verði á kauphöllinni hér en dæmi eru til áður. Það, sem veldur þessum áhuga er sú staðreynd, að hiðfranska dótturfélagEsso- félagsins ameríska hefur fundið olíu í jörðu fyrir sunnan Bordeaux, vestur undir Atlantshafi. Rannsóknir á olíu þessari hafa auk þess ýtt undir frek- an. ari leit, því að þær hafa leitt í ljós, að hún er verðmætari en nokkur olía, sem fengizt hefur úr jörð í Evrópu vestanverðri. Það er einnig Ijóst, að þarna er um talsvert olíumagn að ræða, enda þótt ekki verði sagt ná- kvæmlega um það. En menn gera sér a. m. k. vonir um, að olíuframleiðsla Frakka heima fyrir verði eigi minni en millj. lesta á þessu ári, en hún nam 700,000 lestum á árinu sem leið. Leyfi til olíuleitar eru all- ströng í Frakklandi, því að þau eru bundin við fimm ár, en þá tekur ríkið af félögunum helm- ing leitarsvæðisins, og síðan aftur að fimm árum liðnum. Er þetta gert til þess að leitin verði sem nákvæmust. Leiðtogar Vesturveldanna vinna að fjórveldafundi. Fjandsamleg einangrun ver5ur a5 hverfav Tólf ára drengur, Hónore Durand frá Rogues í Suður- Frakklandi, vann nýlega fyrstu verðlaun ■' ljósmyndakeppni fyrir franska unglinga. Þegar hann kam til Parísar til að taka við verðláuhunum, heim- sótti hann Coty forseta og var tekin mynd af þeim saman i forsetahöllinni. Þvættingurinn um Loftleiðir. „Alþý8ubláðið“ hcfur und- anfarið ekki átt í önnur hús að venda en þau að lepja upp eftir „Þjóðviljanum" alls kon- ar þvætting og rangfærsíur, enda bersýnilegt, að þar virð- ast Hannibalarnir ráða mestu. Ritstjóri blaðsins getur i hvorugan fótinn stigið, en sýn- ist helzt ætla að grípa til þess ráðs að standa á öðrum, en skfpta svo um fót, þegar hann þreytist. í morgun kyrjar blaðið söng „Þjóðviljans“ um, að sam- göngumálaráðherra (Ingólfur Jónsson) hafi kúgað Loftleiðir, þrátt fyrir það, að félagið hef- ur sent frá sér ítarlega grein- argerð um málið, og þvert of- an i skilmerkilega grein, sem Sigurður Magnússon, fulltrúi Loftleiða, ritar inni í blaðinu í dag. Hvern telur „Alþýðublaðið" sig vefa að blekkja? Heldur blaðið, að hann sjái ekki í gegn um vesaldóm þess, þann vesal- dóm, sem lýsir sér í því, að ritstjórn þess getur ekki með nokkru móti haft sjálfstæða skoðun, eða þorað að h'afa það, sem satt er, heldur lepur upp gífuryrði kommúnistablaðs- ins? Þeir, sem gerzt vita um þetta Loftleiðamál, rita grein inni í Alþýðublaðinu í dag^ en á for- síðu sama blaðs er svo allt annar söngur, bergmál komm- únista. Það er þokkaleg blaða- menska, eða hitt þá heldur. Af hálfu Vesturveldanna verð- ur nú lagt kapp á, að haldinn verði fjórveldaráðstefna til þess að fjalla um heimsvandamálin og þá fýrst og fremst Evrópumálin. Eden utahrikisráSIífcrra Breta skýrði frá þvi i neðri málstofunni í gær, að brezka stjórnin ræddi undirbúning að slikum fundi við bandamenn sina, Bandarikja- menn óg Frakka. Ef til vill yrði farin sú leið, að embættismenn eða sendiherrar ræddust við fyrst, til þess að greiða fyrir slikri ráðstefnu, þar næst kæmu utanríkisráðherrarnir saman, og að lokum hclztu stjórnmálaleið- togar fjórveldanna, ef vænlegt þætti um árangur af slikum fundi. í AVashington hefur einnig verið tekið frath af oþinberri hálfu, að þessi mál séu til umræðu og und- irbúnings. I Bretlandi og Frakklandi er fylgt eindregið sömu stefnu og áður um það, að halda beri fjór- veldafund, að fullgildingu París- arsanininganna lokinni, en nú stcfnir hraðbyri i þá átt, að full- gildingu þeirra verði lokið fyrir páska hvarvetna, og að flestar þjóðir i NA-varnarbandalaginu verði þá búnir að staðfesta aðild V.-Þ. að Nato. Dulles á fundi utanríkisnefndar. Dulles situr í dag fund utan- ríkisnefndar, sem fjallar um þá tvo samninga, sem gerðir voru í París, og lagðir hafa verið fyrir deildina til staðfestingar, eða sáttmálinn um sjálfstæði V.- Þýzkalands og samninginn um aðild V.-Þ. að NA-varnarbanda- laginu. — George formaður nefnd arinnar sagði í gær, að vel gæti svo farið, að atkvæðagrciðslu unj þessa samninga yrði lokið áðuK en þingmenn færu hcim i páslca*- leyfi. j Adenauer — I j nýjar hugsjónir. Adenauer kanzlari V.-Þ. sagðii í gær ,að vel gæti svo farið, at&- rússneskir leiðtogar tækju af- stöðu sína til vaiidamálanna til endurskoðunar. Leiðtogar allra þjóða yrðu nú að tilcinka sép- hugsjónir liins nýja tima. sagði hann, og öll fjandsamlcg einangr* un verður að hverfa. , Leitað að týndum dreng í gær. Um kl. 8 í gærmorgun var tih*- kynnt innbrot í Ofnasmiðjunai e® þar hafði engu verið stolið. Uxu klukkan 3 í gær var lýst eftir 4 ára dreng, sem hafði horf- ið að heiman frá sér. Varð tals« verð Ieit að honum, en um sj<$- leytið kom hann i leitirnar. Um kl. 12% í nótt var'tilkynnt til lögreglunnar, að verið væri að brjófast inn i Hafnarbíó. Lög- rcglan fór á staðinn og handtók; þar tvo rnenn. Höfðu þeir stoliö einhverju af sælgæti. Meðal fjölskyldutekjur 5 Bandaríkjumun hafa aukizfe um 30 af hundraði síðaik 1947. — 40 af hverjum 10(þ> fjölskylduni í iandinu hafai tekjur, sem nema yfir 5000Í áollurum. — 55 af hunáraðQ • hafa tekjur, sem nema yfi@ 4000 dollurum á árl. i Varanleg lausn húsnæSismál- ama rædd á Var&arfundi. Joixaiui Hdfsteitt alfiin. Éíytiu* framsttguræðuna. • Ný kjarnorkuVopn gegn flugvéltun eru prófuð í Bandaríkjunum unx þessar mundir. Húsnæðismálin verða til um- ræðu á Varðarfundi, sem haldinn verður x kvöld, en frununælandi verður Jóhann Hafstein alþm. Allir vita, að eitt mesta vandamálið, sem við er að stríða, bæði hjá ríki og bæ, eru húsnæðisskorturinn. — Miklir erfiðleikar eru á vegi þeirra, sem hyggjast koma sér upp þaki yfir höfuðið, en mál þessi komast væntanlega á góðan rekspöl með frumvarpi því, sem ríkisstjórnin lxefur lagt fyrir Alþingi það, er nú situr. Um þetta mun Jóhann Hafstein m.a. fjalla í ræðu sinni í kvöld, en hann sat í milliþinganefnd þeirri, sem undirbjó tillögur ríkisstjórnar»ó- innar, og er því þessum hnút-* um kunnugur. Lausn húsnæðisvandamálsinsÞ var eitt af undirstöðuatriðum)- í samningunum um stjórnar- myndun, en nú er í ráði a‘ð-’: koma á fót veðlánakerfi í sambandi við húsabyggingar,., en þar með verði skapaður grundvöllur til frambúðar I.. þessum málum. Þá mun Jóhanm. Hafstein ræða nokkuð um mál . þessi í sambandi við fram- kvæmdir Reykjavíkurbæjar*., og er ekki að efa, að fjölmennt verður á Varðarfundinum í kvöld. Fundurinn verður í Sjálf-.. stæðishúsinu, og hefst kl. 8,30*

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.