Vísir


Vísir - 01.04.1955, Qupperneq 4

Vísir - 01.04.1955, Qupperneq 4
• vvVv ' '• -'f. '* • ; .. n'- - v' „i. .. .; ;. Oscar Clausen kaupmaíhir Þegar þjóðin minnist nú 100 ára afmælis frjálsrar verzlunar, hefur Vísir leitað fróðleiks hjá Oscar Clausen kaupmanni, en forfeður hans hófu fyrst verzlunar^ekstur hér á landi árið 1801. Var það Iangamma Oscars, Valgerður Pétursdóttir, sem var ekkja eftir danskan kaupmann, Hedemann. Hann fórst á útsiglingu árið 1800, en þá tók Valgerður við verzlun hans, og var því fyrsta kona, sem stjómaði verzlun hér á landi. Valgerður var skörungur, og Espólín segir um hana, að hún hafi verið vægur kaup- maður en þó græðst fé. Valgerður giftist árið 1805 Holger P. Clausen, sem þá tók við stjórn verzlunarinnar. Eru því á þessu ári liðin 150 ár síð-; an „Holger gamli“, sem svo er kallaður, kom hingað til lands og tók við stjórn verzlana konu sinnar, sem þá voru á Ísaíirði og í Ólafsvík. Holger var þekkt- ur kaupmaður í Danmörku og meðlimur borgarráðsins í Kaupmannahöfn, þegar hann hóf verzlun á íslandi. Hann dó snögglega árið 1825. Einkasonur þeirra Holgers og Valgerðar, var Hans Arreboe Clausen, etatsráð. Hann rak verzlanir sínar frá 1825 til 1890. Kona hans var Ása Sandholt, en móðir hennar Guðrún Árna- dóttir, Reynistaðarmágs. Clau- sens-verzlanir á Vesturlandi voru langsamlega stærsta verzl- unarfyrirtæki á íslandi á öld- inni sem leið. Árið, sem verzl- unin var gefin alfrjáls, 1855, voru Clausensverzlanir á sjö stöðum á Vesturlandi, og það ár hafði Clausen 31 skip í för- um milli íslands og útlanda, og þá höfðu þeir Clausensfeðgar sent fisk á eigin skipum til Suðurlanda í rúma hálfa öld. Sonur. þeirra, Hans Arrebo- es og Ásu, var Holger Clausen, kaupmaður og alþingismaður, faðir Clausensbræðra, sem all- ir þekkja. Kona hans var Guð- rún Þorkelsdóttir frá Staðástað. Holger Clausen dó í Reykjavík 1901. Rak þá ekkja hans verzl- un hér í bænum, þangað til Clausensbræður, synir hennar, sem nú eru allir á lífi hér í bæ, byrja verzlanir sínar 30. apríl 1915. Holger Clausen, son- ur Herlufs, sem rekur nú verzl- un á Laugavegi 19, er því fimmti ættliður, sem rekur verzlun óslitið hér á landi. —æ—- Ég sópa búðargólfið. Ég byrjaði verzlunarferil mir.n á þeim tíma árs, sem mestu annirnar stóðu yfir, — í hásumarkauptíðinni, — í júlí- mánuði. Það var blindös í búð- inni og fjöidi fólks að verzla frá því kl, 8 að morgni til kl. 10 að kvöidi, og svona var þetta oft- ast í kauptíðinni. Þegar svo búið var að loka búðinni, urðum við piltarnir að taka til og laga í pöllunum, taka veínaðarstrang- ana niður á búðarborðið og' strjúka úr og síétta það, sem . hafði farið aflaga, og raða þeim síðan upp í pallana aftu.r svo að vel færi á. Loks var það síðasta verk dagsins, að sópa búðargólf- io og féll það í mitt skaut, sem yngsta verzlunarþjónsins, en þessu verki var venja við allar verzlanir að demba á nýgræð- inga stéttaiúnnar. Mér er enn minnisstætt þegar ég sópaði búðargólfið þetta fyrsta kvöld, og hefi ég líklega lært meira í það skipti, en ég þá gjörði mér grein fyrir. Ég hafði reyndar aldrei sópað gólf fyrr á ævi minni; á heimili foreldra minna höfðu stúlkurnar alltaf gjört það. — Fyrst var mér sagt að sækja vatn á flösku og dreifa því svo mátulega úr stúti hennar, að það smá ýrði um allt gólfið svo jafnt, að hvergi: kæmu pollar, og.til þess að þetta ; tækist vel, varð að hafa fingúr; svo mátulega . í stútnum, að, vatnið aðeins seitlaði niður, en þetta lærði ég brátt og varð að lokum listasópari. Auðvitað var þessu vatni skvett á gólfin til þess að rykið þyrlaðist ekki upp. — Svo tók ég sópinn og þóttist hafa unnið verk mitt vel, en þá kom húsbóndinn og spurði hvort ég hefði sópað góKið, — og svo gáði hann að því hvernig þetta var af hendi leyst. Hann gáði í hornin og fann þar hrúg- ur af óhreinindum, sem ég hafði skilið eftir. Þá sagði hann mér að koma með sópinn og sýna sér handbragð mitt, og kom þá í ljós, að ég hafði ekki haft þau réttu handtök á sópnum. Ég átti að snúa honum öðruvísi til þess að geta náð ruslinu úr hornun- um, og að lokum varð ég að sækja stóran nagla og hreinsa hornin með aðstoð hans. — Þetta kvöld lærði ég að sópa gólf og hefi kunnað það síðan, og getað kennt öðrum. Btíðin og áhöldin. Sölubúðin var nýbyggð og innréttuð eftir þeim nýtízku kröfum, sem þá voru gjörðar til slíkra húsakynna. Hún var snotur, rúmgóð, há til lofts og björt. — Búðarborðið var lágt og ólíkt því, sem var í gömlu einokunarbúðunum og á því voru engar grindur til varnar því, að viðskiptamennirnir færu inn yfir það, en slíkar grindur sá ég síðast fyrir nokkrum ár- um í gömlu krambúðinni í Ól- afsvík, en á Bíidudal frétti ég til þeirra fyrir 30 árum; nú j munu þær hvergi vera til nema hjá einu „moderne" kaupfélagi. En annað var í búðinni hjá okk- j ur, sem var leifar frá horfnum ; tínium. Það var púltið, sem var með háum grindum upp af, en | þær voru auðvitað ætlaðar bok- 1 haldaranum til varnar fyrir á- leitnum viðskiptamönnum, óf | voru að vísu ekki alveg ónauð- j synlegar á meðan vínföngin ! voru föl í hverri búð eins og hver annar varningur. Verzlunaráhöldin voru, að eðlilegu, vigtir og kvarðar. Yigt- irnar voru tvær og stóðu á borð- inu beint framundan dyrunum þegar inn var komið. Önnur vigtin var stærri og á henni var galvaniseruð .járnskál með stút, ! en í henni var kaííiö o. fl. vijgt- Oscar Clausen við ritstörf. að laust og svo hellt í ílátin, sem menn oftast höfðu með sér, strigapoka, en stundum elti- skinnsskjóður. Hin var lítil borðvigt með gljáfægðum mess- ingpalli, sem við urðum alltaf að fægja svo vel, að hægt væri að spegla sig í honum. Smæstu lóðin voru líka úr messing og voru alltaf gljáfægð, en stærri lóðin, sem voru úr járni, voru silfurbronsuð. — Undir vigtun- um voru alltaf hrein pappa- spjöld. - Öll lóðin táknuðu pund og kvint; þá var ekki farið að notá kíló og grömm. — Kvarð- arnir voru álnir og þumlung- ar.— Öll álnavara var mæld á var einkennilegur roskihn mað- ur, sem Torfi hét Tórrtasson, piparsveinn, dálítið errinn ' í skapi og var okkur búðarpiltun- um uppsigað við Torfa gamla, þó að hann væri raunar bezti karl. Við stríddum honum með ýmsum smáglettum, — settum púður í tóbakið hans, smurðum stólinn hans grænsápu áður en hann hlammaði sér niður á hann o. s. frv. Þetta voru að vísu strákapör, sem enginn vildi neitt illt með, en við þóttumst eiga okkur í að hefna, þvi að Torfi gamli var sínuddandi við okkur, í tíma og ótíma; fann að flestu, var alltaf að predika þessa kvarða, en svo var líka : yfir okkur og vildi halda okkur rullan eða munntóbakið selt í þumlungum og rnælt á kvarða, en frá því verður sagt síðar. undir þeim aga, sem við ekki þoldum. Umbúðirnar. Umbúðirnar utan um vörurn- ar, sem við seldum í þá daga, voru eiginlega takmarkaðar. Pappirspokar voru lítið notað- ir, én þó alltaf hafðir með og sparaðir. Á þá var prentað nafn verzlunarinnar og var það gert i Kaupmannahöfn og var hræ- ódýrf. Allar smærri afgreiðslur voru látnar í kramarhús, sem okkur var kennt að snúa saman úr hæfile^a stóruni grápappírs- blöðum, og vai'ð maður fljótt ótrúlega leikinn í þessu. — Á búðarborðshornum lágu um- búðapappírsarkir af stærðum hver ofan á annarri 'indið og var sú minnsta hvít, en hin- ! ar gráar.; Hvíti pappírinn var ætlaður utan um brjóstsykur fyrir 5 aura, en slíkar afgreiðsl- ur voru oft óteljandi á degi hverjum, til barnanna í þorp- inu. — Fimmeyringurinn var líka nokltur peningur í þá daga. — Það kom þá stu.ndum fyrir, að hvíti pappírinn entist ekki nema fram yfir miðjan dag og hætti okkur strákunum þá við, að rífa snifsi eða horn af stærri örkum og búa til smákramar- hús úr því, en þetía var okkur stranglega bannað. -— Það var þá oft svo mikið að gjöra eða þá að við nentum ekki upp á búðarloftið eft-ir pappí.rnum. Bókhaldari við verzlunina Einu 'sinni var það um kvöld rétt fyrir lokun, að ég var að ! flýta mér og reif homsnuddu af stórri örk og bjó til kramar- hús utan um gráfíkjur fyrir 5 aura. Ég hafði ekki tekið eftir því, að Torfi gamli stóð við púlt- ið og hafði vakandi auga á því, hvernig ég hagaði mér, og var víst ekkert á. móti skapi að ná höggstað á mcr. Barnið, sem var að kaupa fíkjurnár, var rétt komið út urn búðardyrnar, þeg- ar Torfi kom í hendingskasti, eins og dreki, og yfirféll mig með bullairdi skömmum út af kramarhúsinu. Þá sagði gamli maðurinn í bræði sinni: „Hefi þrem ég ekki oft sagt þér það, lcvik- þitt, að þú átt ekki að brúka grápappír utan um grá- fíkjur fyrir 5 aura?“ Ég varð hræddur og stóðst ekki áhlaup- ið, viðurkenndi sekt mína og lofaði bót og betrun. — Síðan. hefi ég alltaf verið spar á um« búðir. Það mátti segja, að við þessa verzlun vendist maður á ýtrustu nýtni og sparsemi á öllum svið- um. Þar fór hvorki forgörðu.m saumnagli, snærisspotti né pappírssnudda. Allt var notað og nýtt. Nöglunum var haldið til haga í ákveðna skúffu og réttir upp og notaðir síðar. Snærin voru vafin saman í smá- hankir og notuð síðar, og gefin viðskiptamönum í fyrirbönd fyrir pokana sína. Hvert papp- írsblað, sem kom i umbúðum um varning frá útlöndum, var sléttað úr fellingum og bro.t- um, undið upp í vöndla, og svo bundið utan um og geymt þang- að til það var notað síðar, og' kom þetta sér oft vel og bætti úr þörfum. margra. — Eins var þetta um umbúðakassa. Þeir voru allir bornir upp á hæsta- loftið og geymdir þar þangað til þörfin kallaði. Eitt af því, sem okkur var kennt, var að slá upp kassa með þeirri lægni og varúð, að fjalirnar í lokinu klofnuðu ekki og að saumurinn bognaði sem minnst. — Á þetta hvorutveggja var lögð mikil á- herzla og fengum við þungar ákúrur, ef út var var brugðið. — Við áttum að ganga þannig frá kassanum, að lokinu væri. tyllt á hann heilu og óskemmdu, áður en hann var afgreiddur í geymsluna. — %. Ymislegt dundur. Þegar ekkert var annað að gjöra í búðinni, vorum við pilt- arnir látnir vigta ýmsar efna- gerðarvörur í smáskammta, t. d. pipar og annað krydd í 25 aura bréf og gerpúlver í 2 _pund af hveiti. Þessa smápoka eða „kapsel“ urðum við að brjóta, líkt og notað er í lyfjabúðum. utan um meðalaskammta. — Það var engin sérstök ánægja yfir okkur, þegar við urðum að vera að þessu, því áð piparinn vildi setjast í nasiníar á okkur og valda hnerrum og öðrum ó- þægindum. Verst var okkur þó við að vigta Indigólitinn. Það var dökkblár litur frá Austur- löndum, sem kom í litlum tré- kössum og var venjulega hlaup- inn í hellu. Við urðum þvi að stinga þetta upp og mylja nið- ur og láta svo 1 lóð eða 15 grömm í hvert bréf. Þessi litur Framh. á 9. siðu. í verzlun um miðja síðustu öld.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.