Vísir - 30.04.1955, Blaðsíða 8

Vísir - 30.04.1955, Blaðsíða 8
VtSDEC er ódýrasta blaðið og þó J»aS fjöl- breytíasta. — Hringið f sima 1660 ®g gcrist áskrifendur. frsir, sem gerast kaupendur VfSIS eftir 10. hvers mánaðar, fá blaðið ókeypis tU mánaðamóta. — Sími 1660. Laugardaginn‘30. apríl 1955 Ift var þérf reú Leikstjórinn, Gunnar R. Hansen sýnir Ieikuruniun Iíkan er hann hefur gert af sviðinu. Á myndinni talið frá vinstri: Gísli, Helga, Knútur, Gunnar, Einar og Jón. Nýr kikfiokkur byrjar sýninpr i næstu viku. Sýrur „Lyksl ab leyndarmáli44 urtdÍB* stjóm Gunnars R. Hansen í Austurbæjarbsu. Nýr Ieikilokkur undir stjórn Gunnars R. Hanssen byrjax á næstunni sýníngar á enskum sakamáiaieík í Austurbæjarbíói, en siðar verða sýningar á ýms- um stöðum hér á Suðurlandi. Leiki’it þetta nefnist á frum- málinu „Dial „M“ for Murder“, og er eftir Fredi’ick Knott, en á íslenzku nefnist það ,J.ykill að leyndarmáli". Sverrir Thorodd- sen hefur þýtt leiki-itið. Lcikur- inn er í þrém þáttunx, en sex sýningum, og eru leikendur að- eins fimm: Helga Valtýsdóttir, Gísli Halidói’sson, Knútur Magn- ússon, Einar p. Einai’sson og Jón Sigurbjömsson, en leikstjóri er Gunnar R. Ilansen, eins og áður getui'. Leikrit þetta gerist í London og er samið fyrir tveim t.il þrem árum. Hefur það þegar unnið miklar vinsældir,' enda er það afburðavel samið. þó leikiritið megi flokka undir sakamála- bókmenntir, er það ekki rudda- legt. Skálkurinn í leiknum er eiginmaður, sem leitar allra rúða til þess að kála konu sinni, en rnistekst fyrrætlunin. Leikritið var fyrst sýnt, í sjónvaiioi á Bret- land, og einnig hefur það nýlega verið kvikmyndað. Loks hefur það verið Ieikið víðsvegar um lieim, og er um þessar mundir, m. a. sýnt í New York, Ixindon, Paris og Róm, og nýlega var það leikið í Stokkhólmi, með Gunnel Borgströrn (Sölku-Völku) í kvcnhlutverkinu. ÞaH var ekki varnarEiðsbíBI. Að gefnu tilefni vill ráðu- neytið upplýsa, að varnarliðs- bifreið sú, sem sum af dagblöð- um bæjarins telja að notuð hafi verið við losun á benzíni úr Skeljungi, til Keflavíkur, á meðan á verkfallinu stóð, var ekki á vegum varnarliðsins, heldur Sameinaðra verktaka. Er því óréttmætt að saka ' varnarliðið um, að það hafi með þessu blandað sér inn í íslenzk deilumál. (Frá utan- ríkisráðuneytinu). Hinn nýi leikflokkur, sem í sumar mun staria undir st.jóm Gunnars R. Hansen, ætlaði sér upphaflega að sýna leikritið ein- ungis utan Reykjavíkur, en síð- an varð að ráði, að það yrði fært upp í Austurbæjarbió, og er þetta í fyrsta sinn, sem Ieikrit er sýnt þar. Sýningar verða kl. 9 á völdin, og standa yfir í tæpa þrja tíma. Frumsýning verður næstkomandi laugardag 7. maí. Gunnar Hansen hefur gert upp- drátt að leiktjöldum og sviði, en leikai-amir sjálfir smíða allan sviðsútbúnað. íélagsprenf- smiðjan h.f. 65 ára. Félagsprentsmiðjan er 65 éra á morgun 1. maí. Hún var stofnuð npp úr prentsmiðju, sem Sigmund- ur Guðmundsson keypti hingað til lands 1885. — 1. mai 1890 urðu eigendaskipti að henni og hlaut hún þá nafnið Félagsprentsmiðjan. Núverandi formaður prent- smiðjustjórnar er Kristján Guðlaugsson hæstaréttar- málaflutningsmaður. Eig- endur eru Bjarni Konráðs- son, Kristján Guðlaugsson, Björn Br. Björnsson, Erling- ur Brynjúlfsson og Hannes Þórarinsson. Á imdangengnum tveimur árum hafa verið gerðar miklar endurbætur á prentsmiðjunni, m. a. hefur vélakostur hennar verið aukinn og bættur. — Innan skamms fær prentsmiðjan nýjar vélar til anilin-prent- unar (fjögurra lita prent- unar). Prentsmiðjustjóri Félags- prentsmiðjunnar er Hafliði Helgason og hefur hann gcgnt bví starfi í yfir 20 ár. — Starfslið prentsmiðj- unnar er yfir 40 manns. Afmælis þessa merka iðn- fyrirtækis verðar nánar get- ið síðar. Snör handíök mé.íti sjé. víða liér f bænum í gær, er fjör færðist í allt athafnarlíf að Ioknu sex vikna verkfalli. M. a. var hafist handa um viðgerð á götunum. ,,Oft var þörf en nú er nauð- syn“ á vel við að segja nú. í öllum götum borgarinnar og vegum í nágrenninu eru holur, sem fylla. þarf, sumar stórar og með hvössum brúnum, þar sem asfaltlag er, og getur af þeim stafað mikil hætta, auk þess sem þær fara illa með bifreiðarnar, en engin leið' að sneiða hjá þeim öllum, svo þéttar eru þær sumstaðar. Er það því mikið ánægjuefni, þeim sem bifreiðum aka og eru farþegar í bifreiðum, að kapp- samlega hefur verið hafist handa þegar um að bæta úr þessu ástandi. Verður nú vaíalaust haldið áfram þessum lagfæringum og lögð megin- áherzla á þær, unz tekið verður til við stærri framkvæmdir. Myndarleg bok um sögu Kvennadeildar SVFÍ. Kvennadeild Slysavamafé- Iags íslands £ Reykjavík minn- ist 25 ára afmælis síns með hófi í Sj álfstæðLshúsinu f kvöld. Kvennadeildin hefir unnið frábært starf að miklu mann- úðarmáli, og hafa sýnt í því fá- dæma dugnað og ósérplægni, enda alþjóð kunnugt. Út er komin myndarleg bók, er segir sögu Kvennadeildar S.V.F.Í. £ Reykjavík á þessum aldarfjórðungi. Fylgir henni f jöldi mynda frá sögu og starfi deildarinnar, en öll er frásögnin hin fróðlegasta, en Eygló Gísla- dóttir skrifaði hana. Margt fleira er í ritinu, m. a. um frú Guðrúnu Jónasson, formann deildarinnar frá upphafi, eftir Guðbjart Ólafsson, forseta S.V.F. í. Þá er minnzt ýmissa brautr>rSjenda deildarinnar, Ingu L. Lárusdóttur, Steinunn- ar H. Bjamason, Guðrúnar Brynjólfsdóttur, Jónínu Jónat- ansdóttur og Guðrúnar Lárus- dóttur. Loks er ágrip af sögu kvennadeilda S.V.F.Í. utan Reykjavíkur. Rit þetta er ágæt- lega úr garði gert og prýtt fjöl- mörgum myndum. Atvinnuleysi í fjölda iðn- greina í Bretlandi — veffði Jámbrautaverkfalli ekki afstýrt. Sir Walter Moncton verka- máíaráðhetra gerði neðrí mál- síofu þingsins grein fyrir því í gær, sem gert hefði verið til að afstýra verkfalli jámbrautar- manna. Stjórnin hefði gert það, sem í hennar valdi stæði, til þess, og hefði nú gripið til nauðsynlegra varúðarráðstafana, er verkfallið hefst. ■ Framkvæmdastjóm verka- lýðsfélagasambandsins ræddi i gær við ráðherrann og síðar \nð leiðtoga þeirra, sem að verk- fallinu standa, en af þeirra hálfu var sagt eftir viðræðum- ar, að áformunum um verkfall yrði haldið til streitu. Leiðtogar þeirra jámbrautar- starfsmanna, sem ekki eru í verkfalli, sögðu, að ekkert' gott myndi af þessu verkfalli leiða. Við umræðurnar í neðri mál- stofunni kom fram mikill beyg- ur um atvinnuleysi í mörguin iðngreinum, m. a. kolanámum, ef verkfallið stæði lengi; ekki yrði unnt að starfrækja orku- ver, en af því leiddi aftur, að fjölda margar verksmiðjur myndu stöðvast. 357 fórust í bílslysum i janúar í Bretlandí. London (AP). — í Bretlandi létu 357 manns lífið í nmferðar- slysrnn í janúarmánnði. Vom þetta 26 færri en í sama mánuði á s. 1. ári, en slys í heild urðu yfir 15 þúsund og hafði þeim fjölgað um nærri búsund. Neerri 4000 maiuis slösuðust al-' varlega. Allt s. 1. ár urðu rúm- lega 238 þús. slys á vegum landsins, og 662 börn biðu bana, en 707 höfðu farizt árið 1953. STEF í máli við vamarliðið Eins og Vísir hefir áður greint frá, hefir Bandarikjaher um nokkurt skeið útvarpað tónlist, sem ekki hefir verið greitt gjald fyrir til Stefs. Hafa ýmsar orðsendingar far- ið milli form. Stefs og stjórn- ar vamarliðsins vegna þess máls, en þeirri málaleitan Stefs ekki verið sinnt, að greiða gjöld fyrir verndaða tónlist. í derember 1953 var Bailey ofursta, flugforingja á Kefla- víkurflugveUi sent skeyti þar sem lagt var bann við því, að nokkurt það tónverk væri flutt, sem Stef hefir umboð fyrir. Nú hefir stjóm Stefs ákveðið að hefja mál og stefna verið út gefin vegna flutnings fjögurra laga. Málið er höfðað til greiðslu bóta fyrir heimildar- lausan tónflutning, aðallega á hendur fjármálaráðherra f. h. ríkissjóð, en til vara á hendur D. R. Hutchinson hershöfðingja, f. h. vamarlrðsins. f miðjum næsta mánuði mun höfðað refsi mál á hendur yfirmanni vam- arliðsins á Keflavfkurflugvelli, samtímis því, að móðurfélag ,.Stefjanna“, Franska Stef, höfðar slíkt mál, en það hefur lýst yfir stuðningi sínum við hið íslenzka félag. — Sigurður Reynir Pétursson hdl, flytur mália fyrix Stef. Bevan tekinn í sátt. birt&r stefmiskrá. Brezki verkalýðsflokkuiiiiu hefir birt stefnuskiá sína í hin- um almennu þingkosninguni, sem fram fara í næsta mánuði. — Þingflokkurimi hefir tekið Bevan í sátt. Kosningastefnuskráin er al- gerlega í samræmi við þá stefnu, sem fiokkurinn hefir fylgt að undanfömu. Á sviði utanríkismála er þetta mikil- vægást í eftirtöldum málum: Kjarnorkuvopnaprófanir skal: barina; ný tilraun skal gerð til að leysa Þýzkalands-vanda- málið með sameiningu að af- stöðnum frjálsum kosningum. Vinna skal að því, að hið komm únistiska Kína fái aðild að Sameinuðu þjóðunum, og að Matsu og Quemoy verði rýmd- ár o. s. frv. En í innanlandsmál- um er lögð á herzla á, að stefn- an varðandi þjóðnýtingu sé óbreytt. engir Hinn spakvitri ritstjóri Alþýðublaðsins segir m. a. svo í þvættingsdálki sínum (ritstjórnargrein) í gær: „Viðhorfin eru gerólik þar sem jafnaðarmenn ráða, eins og bezt hefir sannast á Norð- urlöndum. Alþýðuflokkarnir sigrast á kommúnistum með raunhæfum verkum og far- sælli stefnu.“ Al'þýðuflokkar Danmerk- ur, Noregs og Svíþjóðar hafa enga Hannibala innanborðs, og múlgögn þeirra njóta ekkl forustu á borð við þá, sem hinn íslenzki bræðraflokkur þeirra verður að Ihlíta. Þá er ef til vill þá skýringu að finna. á farsælli stefnu dönsku, norsku og sænsku alþýðuflokkanna, að þeir af- neita öllu samstarfi við hina kommúnistisku fjandmenn Iýðræðis og mannréttinda, og þeir gæla heldur ekki við of- beldið. Þar er heldur enginn Gylfi finnanlegur til þess að bera kápuna á báðum öxlum. Þetta gæti ritstjóri Alþýðu blaðsiris hugleiít sér til dundurs. Ólíkt hafast þeir að bræðraflokkarnir. Jafnaðarmenn í Bretlandí þjóðnýta stáliðnaðinn sem kunnugt er en íhaldsflokk- urinn felldi lögin úr gildl fyrir 2 árum. Síðan hefir stáliðnaður landsins að *k hlutum verið seldur í bend- ur fyrirtækjum og einstak- lingKtn. j

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.