Vísir - 19.07.1955, Blaðsíða 7

Vísir - 19.07.1955, Blaðsíða 7
Þriðjudaginn 19. júlí 1955 ▼2SIK P$F-'S' % sannleikurinn gerði málið rniklu ílóknara. En honum jþótti vænt um, að peningar voru ekki meginorsök glæpsins. pessi hugsun hafði kvalið ha'r.n, jafnvel í hinum innilegustu faðmlögum við Séverine. —• Elska þig minna? Hvers végna? Mig varðar ekkert um for- tíð þína. Ilún kemur mér ekki við .... Jjú ert kona Rouhauds, rett eins og þú hefðir getað verið kona einhvers annars. pað var andartaks þögn. þau þrýstu sér hvort tipp. að öðru. — Svo að þú varzt ástmév gamla mannsins. það er skemmtilegt að tarna! Hún setti stút á munninn og sagði milli kossanna: — Ég hef aldrei elskað annan en þig. Aldrei, aldrei, aldrei. Hinir, .... Ó .... þú hefur ekki hugmynd um það. Með þeim hafði ég ekki hugmynd um, hvað ástin var .... Og þú hefur gerí mig svo hamingjúsama! Hún veitti honum ástaratlöt, bauð honum líkama sinn og strauk I.íkama hans. Hann vildi ekki gefa sig henni á vald alveg strax og til þess að leyna því, að hann var eins óstríðufullur og hún, vai'ð hann að háldá henni kyrri í faðminum. — Bíddu andartak, sagði hann. — Hvað um gamla manninn? Hún titraði.ööll og sagði: — Já, við myrttim hann. Hann neyddi mig til að skrifa dómaranum og segja honum, að hann skyldi takast ferð á hendnr með lestinni okkar, en ekki láta neinn sjó sig fyri’ en í Rúðuborg. Ég skalf af ótta alla leiðina og hugsáðí með hryllingí til þess hræðilega verks, sem ég átti að inna af höndum. Kona, sern sat. andspænis okkur, í svörtum búningi og opnaði aldrei munninn, skaut. mér skelk i bringu. Eg vai' svo hræddj að ég þoi’ði ekki að iíta framan i iiana, en ég gerði mér í hugarlund, að 3nm gæti lesið luigsanir okkar og vissi upp á hór, hvað við ætluðum að gera .... Alla leiðina til Rúðuborgar sagði ég elcki ot'ð og hreyfði mig eklci. Ég lokaði augunum. og lézt sofa. Ég varð þess vör að niaðurinn minn sat við hlið mína, hreyfing- arlaus, og ég skelidist af því, ég vissi, hvað hann hafði i lluga, án þess ég vissi, hvernig hann ætlaði að framkvæma 'það .... Hvert hljóð, sem barst inn til mín uían frá skaut mér skelk i bringu. Jacques grúf andlit sitt í dökkt, ilmandi hár Séverine, og með stuttu millibili kyssti hann hana löngum kossi. — En hvernig fóruð þið að því að drepa hann, fyrst við voruð ekki í sama vagni? spurði hann. — Já, sjóðu til! Maðurinn minn fann ráð til þess, enda þótt. það væri tóm tilviljun, að þetta heppnaðist .... í Rúðu'b.org var hin venjulega tiu mínútna viðdvöl. Við fórum út úr lestinni og haun neyddi mtg til að ganga með sér að einkavagni dómarans. pegar hann sá dómarann úti við gluggann, þóttist hann verða alveg undrandi. pað var mikill mannfjöldi á stöðvarpallinum og margir þustu til annars flokks vagnanna. pað áttu að verða ein- hver hátíðahöld í Le Havre daginn eftir. þegar byrjað var að loka dyrum vagnanna, bauð dómarinn okkur að vera í sínum vagni. >Ég vildi reyna a'ð komast út úr þess.u og sagði að töskurnar okkar væru í hinum jagninuni. En hann sagði, að enginn mundi stela þeim, og að við gætum íarið aftur til vagns okkar í Barentin, en þar ætlaði hann að yfirgefa lestina. Snöggvast leit svo-út, sem maðurinn minn ætlaði eftir töskunum, en.þá þeytti lestarstjórinn lúðurinh og hann ýtti mér inn í klefann til dómarans. því næst kom hann inn sjálfur og lokaði dyrunúíh á eftir sér og gluggan- uny einnig. Ég skil það ekki enn þó, livemig á því stóð, að eng- inn skyldi taka éftir okkur. Ég geri ráð fyrir að ástæðan liafi verið sú, að allir voru að flýta sér, og jafnveí starfsrnénn stöðvar- innar voru önnum kafnir. En hvað sem um það ér, voru, eins og þú veizt, engin vitni að þvi, að v.ið skiptum urn vágn. Og þannig rann lestin út af stöðinni. Hún þagði stundarkorn, en liélt svo ófram. — Ég mun aldrei gleyma fyrstu mmútunum í klefa dómarans. þegar lestin fór af stað, fannst mér jörðin skrjðna undir fótuín mér! Ég var svo ringluð, að ég gat ekki um annað hugsað en ferða- töskurnar og. hyernig ætti að ná í þær. Hlutu þær ekki að koma upp um okkur? Mér fannst þctta allt heimskulegt og ógerlegt, eins og draumui’ í snöru um morð, sem einungis brióluðum manni gæti dottið í hug að fremja. Við mundum áreiðaniega verða tek- in föst og sett í íangelsi strax næsta dag. Ég reyndi að liugga mig á því, að ekki yrði neitt út neinu, maðurinn minn mundi sjá að ekki væri hægt að framkvæma þe'tta, En af því, livemig liann talaði viö dómarann, var mér ljóst, að hann var ákveöinn. Ilann vai’ fyllilega eins og hann átti að sér að vera, talaði glaðlega og virtist áhyggjulaus, en ég gat lesið ákvörðun hans úr augnaráði lians, þegar hann leit til mín stöku sinnum. í einnar eða tveggja mílna fjarlægð frá. þeim stað, þar sem við vorúfti, á stað, sem hann hafði sjólfur valið, mundi hann rísa á fætúr til að myrða. þetta las ég greinilega úr augum hans, meðan hann var að tala við dómarann. Og innan skamms muntli dómarinn ekki verða ó lífi lengur. Ég sagði ekkert, en rcyndi að dylja skjálfta minn og 'brosa, þegar þeir !itu til mín .... )>ú ert ef til vill undrandi á því, að ég skyidi ekki reyna að koma í veg fyrir þetta. En ég var svo utan við mig, að ég gat. hvorki hrópað út um gluggann né gef- ið neyðamierki. Hins vegar fannst mér líka, að maðurinn minn vœri í áinum rétti'. Fyrst ég er farin að segja þ.ér frá öllu sarnan, get ég líka viðurkennt, að í hjarta mínu var ég á hans bandi. LEYFI Hefi til íeigu tvær veiðiár í Hvalvaínsfirði og Þorgeirs- firði skammt austan Eyjafjarðar. — Nýlagður végur þangað. Mikil silungsveiði (sióbleikja allt upp I 10 pund). Náttúrufegurð í fjörðunum frábær. — Veiðihus við árnar. Nú er alltaf sól og sumar á Norðurlandi. Veiðimenn notið því tækífærið og talið við mig sem fyrst, eða Guðjón O. Guðjónsson, Hallveigarstíg 8 A, Reykjavík, sem getur allar nánari upplýsingar. j\mi MjjsiM'ttœs&sa /i Si nrvnjri Á kvðldvökunni. Eva Gabor sat eitt sinn til borðs í kvöldboði nokkru, með ungum manni, sem lagði sig allan fram um að þóknast henni. Hann taldi látlaust upp hina mörgu kosti sína: Hvað hann dansaði vel, spilaði fót- bolta af mikilli léikni, væri slyngur að spila bridge, að hann væri óhræddur að mæta hvaða tennsmeistara sem væri í tenn- iskeppni, um hetjudáðir sínar I sambandi við villidýraveiðar og svo framvegis. Þegar þángað var komið sneri Eva sér að honuny brenn» andi af áhuga og sagði: — Segið mér, hafið þér aldrei látið taka af yður hópmynd? Meðlimur hinnar virðulegu MacPherson-ættar í Áberdeen kom inn í apótek og gerði þar smá innkaup fyrir heimili sitt. A leið til dyranna hevrði hann apótekarann kalla á sig og sá, að honum var mikið niðri fyrir. — Guð hjálpi mér, hr. MacPherson, eg hefi óvart lát- ið yður hafa stryknin í stað aspiríns. — Já, það getur verið mjög varhugavert, svaraði kaupand- inn. — Já, er þáð ekki — stryknin er nefnilega 6 pensum dýrara. í kvöldveizlu nokkurri ræddu Sir Winston Churchill, André Maurois og margir fleiri þekkt- ir menn, um eðlismun manna og dýra, og voru menn ekki á eitt sáttir. Þá sagði André Maurois allt í einu: — Eg get nefnt ykkur eitt mikilvægt dæmi um óskyld- leika manna og dýra. Af öllum. lifandi verum á jörðunni er maðurinn eina veran, sem get- ur roðnað. A bar nokkrum í New York, þar sem mikið ei’ keypt af cock- tail, whisky og öðrum vínteg- undum, hefir hinn snjalli veit- ingamaður fest upp auglýsingu til hagræðis fyrir viðskiptavin- ina, og á hana er letrað eftirfar- andi: Gestirnir eru vinsamleg- ast béðnir að fá sér sæti, þegar þeir sjá að barinn tekur að hreyfast. £ & Sumtífki — T4HZAM 1869 Ward þaut að vopnunum og þreif bogann í skyndi. í flti setti hann örina á strenginn og spennti upp bogann. En hann varð cf seinn ti! þess að skjóta. -Sr *:* i ■} ' frln&v***t - • Því Tarzan henti sér á hann miklu afli.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.