Vísir - 14.10.1955, Blaðsíða 12
VÍSIB er ódýrasta blaSið eg þó þaS fjol-
breyttaita. — HringiS f lima 1660 eg
gerist óskrifendor.
Föstudaginn 14. okíóber 1855
Þeár. sem gerast kaupendur VISIS eftír
10. hvén mánaðar, tá blaðið ókeypli ti)
mánaðamóta. — Sími 1660,
Þríhymingamælingunum
verður lokið að sumri.
MsíenAinyav eignatii þú ttéá-réemi
jts'áhagt'ausasffeesesaki «/ Isisitiittti.
Eins og áður hefir verið getið
hér í blaðinu fóru fram hér á
landi s.l. vor og sumar umfangs-
miklar landmæíingar ('þríhyrn-
ingamælingar) og var hér um
að ræða samstarf milli íslend-
inga, Dana og Bandaríkja-
mánna.
Þrátt fyrir óhagstætt veður-
far tókst að Ijúka um 70% af
verkinu og verður því haldið
áfram næsta sumar. Banda-
ríkjamenn hafa unnið að því
að gera nákvæmar mælingar á
öllum vegalengdum milli NorS-
ur-Ameríku og Evrópu. Hið
tæknilega starf hafði með hönd-
tun Landmælingastofnunina
danska, en hún hefir mikla
reynslu í landmælingum hér á
landi. Hingað komu starfsmenn
stofnunarinnar frá Færeyjum,
en þeir höfðu unnið þar að
mælingum, og hófu mælingarn-
ar hér á s.l. vori. Var yfirmaður
þessa liðs Chatelou ofursti, en
stjórn verklegra framkvæmda
hafði með höndum Lund verk-
fræðingur. Alls var hér um að
ræða 11 tæknilega sérmenntaða
menn og 15 aðstoðarmenn.
Ágúst Böðvarsson mælinga-
maður starfaði með hinum
danska flokki, og oftast 8—14
fastráðnir íslenzkir aðstoðar-
menn, þeirra meðal bændur,
cg var aðstoð þeirra mikils
virði. Ágúst hafði milligöngu
um alla aðstoð.
Þrjár helikopterfiugvélur
lagði landmælingadeild
Bandaríkjahers og varnarliðið
til, og varnarliðið 8 bifreiðar.
Veðurfars vegna urðu minni
not af helikopterfluvélunum
en vonir stóðu til, en mikil að
bifreiðunum.
er að gera eftir þeim nákvæm-
ari uppdrætti en fyrir hendi
eru, og er m. a. tekið fram, að
það sé til mikils hagræðis, í
sambandi við ljósmyndanir úr
lofti, m. a. vegna fyrirhugaðrr
raforkuframkvæmda, og vegna
staðarákvarðana fyrir land-
helgisgæzluna. Þegar þessari
mælingastarfsemi er lokif
eignast fslendingar þríhyrn-
ingamál af landinu sambærilegt
við beztu þríhyrninganet ann-
ara landa.
Þess ber að geta, að land-
mælingastofnun danska ríkis-
ins vinnur verk sitt endur-
gjaldslaust, en það mun kosta
danska ríkið mikið fé. Enn-
fremur er þess að geta, að vegna
þessara mælinga frestuðu þeir
umfangsmiklum mælingum á
Grænlandi.
Arafa soIcSán reynir
að mata krókinn.
Fregnir frá París herma, a8
Sidi Mohammed ben Moulay
Arafa soldán í Marokkó, ætli
sér heldur en ekki að mata
krókinn á því að verða við kröf-
um Frakka um að fara frá.
Hann er sagður krefjast ár-
legra fjárhæðar, sem nemur 700
þúsund dollurum og skuli
þær tekjur skattfrjálsar. Þá
vill hann fá höll til umráða við
Miðjarðarhaf. Loks vill hann
fá uppbótarþóknun, sem nemur
150 þús. dollara, íyrir að hverfa
kyrrlátlega úr landi. — Það
fylgir fregninni, að Frakkar
mögli, en neyðist ef til vill til
þess að verða við kröfunum.
------------•-----
★ Umræðuruii um Alsír lauk í
Ciildi þessara mælinga gær í fulltrúadeild franska
er mjög mikið, þar sem unnt þingsins.
Samvinnunefnd um kaup-
gjaldsmálin tekin til starfa.
Skipnð §amkv. till., er samþykkt
var á Alþingi á s.l. vori.
Samkvæmt þingsályktun, um
skipun samvinnunefndar at-
vinnurekenda og verkalýðs-
samtaka til þess að finna
grundvöll í kaupgjaldsmálum,
sem samþykkt var á Alþingi
20. apríl 1955, hefur Alþýðu-
samband fslands og Vinnu-
veitendasamband íslands nú
fyrir skömmu skipað hvort um
sig tvo fulltrúa í nefndina.
í nefndinni eiga þessir menn
sæti:
Ðr. Gylfi ‘ Þ. Gíslason, pró-
fessor og Karl Guðjónsson, al-
Jbingismaður, fulltrúar Alþýðu-
sambands íslands, og Björgvin
Sigurðsson, framkvæmdar-
«on og Þorvarður Jón Júlíus-
son, hagfræðingur, fulltrúar
Vinnuveitendasambands ís-
lands.
Samkvæmt þingsályktuninni
er það hlutverk nefndarinnar
að afla árlega hverra þeirra
upplýsinga, sem nefndin telur
sig þurfa, um afkomu atvinnu-
vega landsins ög hag almenn-
ings, til þess að leita megi rök-
studds álits nefndarinnar þeg-
ar ágreiningur verður um
kaup og kjör, eða ætla má, að
til slíks ágreinings komi.
Nefnd þessi hefur nú hafið
störf sín.
(Frétt frá
félagsmálaráðuneytinu).
■ii-<■*. j
Hér sést Eisenhower forseíi skoða búning úr bjáli. Er búningur-
inn ætlaður til að verada þaira, sem hairn notar, tyrir hættu-
iegum geisíaverkxmnm.
WWWWWWWAVASWVbVAWWWWVW/^VWWW
Forsætisráðherra oa utanríkisráð-
herra bohð til Þýzkalands.
Þegar ríkiskanzlari Sambands
lýðveldisins Þýzkalands. dr.
Konrad Adenauer, kom til ís-
lands haustið 1954, bauð hann
forsætisráðherra, Ólafi Thors,
og utanríkisráðherra, dr. Kristni
Guðmundssyni, ásamt frúm
þeirra í opinbera heimsókn til
Sambandslýðveldisins Þýzka-
lands, með því föruneyti, sem
þeir ákvæðu.
Hin opinbera heimsóltn hefur
nú verið ákveðin dagana 3. og
4. nóvember n.k.
í för með ráðherrahjónunum
verða Birgir Thorlacius, skrif-
Grosz kardináli
náðaður.
Útvarpið í Búdapest skýrði
frá því í morgun, að Grosz
kardínáli, yfi’rmaður rómversk-
kaþólsku kirkjunnar, hafi ver-
ið náðaður.
Hann á að fá hús til íbúðar,
sem er eign kirkjunnar. •—
Grosz var handtekinn 1950 og
dæmdur í 15 ára fangelsi. Til-
kynntu ungversk stjórnarvöld,
að hann hefði verið sekur fund-
inn um að vinna að endurreisn
konungdæmis í landinu. —
Grosz kardínáli er 68 ára að
aldri.
stofustjóri í .forsætisráðuneyt-
inu, Magnús V. Magnússon,
skrifstofustjóri í utanríkisráðu-
neytinu, Kristján Albertson,
sendiráðunautur, og Bjami
Guðmundsson, blaðafulltrúi.
Einnig mun sendiherra ís-
lands í Sambandslýðveldinu
Þýzkalandi, dr. Helgi P. Briem,
taka þátt í hinni opinberu
heimsókn.
(Frá forsætisráðuneytinu).
Mænuveikin i
Hafnarfirði.
I Hafnarfirði hefur mænu-
veiki orðið vart. Hafa 2—3 tek-
ið veikina en ekki hefur verið
um lamanir að ræða.
Samkvæmt viðtali við hér-
aðslækninn í morgun var, þeg-
ar á reyndi, ekki um lömun að
ræða í fyrsta mænuveikitilfell-
inu, eins og blaðinu hafði verið
tjáð. Sjúklingar þeir, sem veik-
ina hafa tekið eru eingöngu
unglingar.
Konurnar {tyrpt-
nst a$.
Mikill mannfjöldi safnaðist
saman í gærkveldi á Nevubökk
um til þess að virða fyrir sér
brezku herskipin, sem voru 511:
ljósum lýst og til þess að fagna
sjóliðunum, sem landgöngu-
leyfi fengu.
Var þeim hvarvetna ákaflega
vel tekið, og segja fréttaritarar,
að hvarvetna þar sem þeir
námu staðar, hafi þyrpzt að
þeim hópar kvenna, svo að
senda varð aukna flotarögreglu
frá herskipunum til að bægja
aðdáendahópunum frá, en það
dugði ekki til, og þuxfti einn-
ig til aðstoð rússneskrar flota-
lögreglu.
—*—. *
AKr jafnir „fyr-
ir tögumnn".
Miiller, fyrrverandi varafrt-
maður vesturþýzka kommúm-
istaflokksins, var meðai fanga,.
sem komu heim í gær frá Kað-
stjórnarríkjunum.
Múller hvarf 1950 og lék sá
grunur á, að honum hefði ver-
ið rænt og kippt austur fyrir
tjald. — Múller sagði við heim
komuna, að Rússar hefðu dæmt
hann í 25 ára þrælkunarvinnu
fyrir landráð og samstarf við
erlenda erindreka.
....• ———
Shell lætur srníða
9 olíuskip.
Shellfélagið ætlar að láta
smíða 9 olíuskip og hefur verið
samið um smíði 8 þteirra f
Vestur-Þýzkalandí, en feins mJ-
unda í Bretlandi.
Hagstæðari samningar, bæði
varðandi greiðslu og afhend-
ingu munu hafa fengist í V.-Þ.,
en tekið er fram, að hér hafi
éinnig komið til greina, að
brezkar skipasmíðastöðvar hafs
nægt verkefni til ársins 1960.
★ Bardagar hafa brotist út &
Malakkasaga í fyrsta sinn á
tveimur mánuðum.
Bretar synja utn lán vegna
Klakksvíkursmálsins.
Eisemh&wer forseti
65 ára í dag.
Eisenhower Bandarí'kjaforseti
er 65 ára í dag.
Hann er nú óðum að hressast
og mun ræða við fjármálaráð-
herra fyrir helgi og landvarna-
ráðherra og yfirmann herfor-
ingjaráðsins þegar eftir helg-
ina. Snernma í morgun hafði
borizt mikill fjöldi heillaóska-
skeyta til Eisenhowers í sjúkra-
húsið í Denvef, þar sem hann
liggur rúmfastur.
Einkaskeyti til Vísis.
Kaupm.höfn í morgun.
Kristjáni Djurhuus, lögmanni
í Færeyjum, hefur borizt skeyti
frá Bretlandi þess eftiiis, að
frestað hafi verið að taka af-
stöðu til lánsbeiðni Færeyinga.
Hér er um 20 millj. króna lán
að ræða, sem Færeyingar munu
hafa vænzt að geta fengið í
Bretlandi til endurnýjunar
fiskiskipastól sínum, en nú
hafa Bretar dregið að sér hönd-
ina í bili vegna ótryggs útlits í
Færeyjum.
Páchard Jacobsen, forseti
bæjarstjórnarinnar í Klakks-
vík, sem er talinn gætinn mað-
ur, hefur látið svo um mælt, að
hann hafi orðið fyrir vonbrigð-
um vegna framkomu lögregl-
unnar. Þá heldur Jacobsen því
fram, að forsætisráðherra Dan-
merkur og Kampraann ráðherra
hafi ekki staðið við samkomu-
lag það, sem gert var í maL
Loks segir Jacobsen: „Vér hefð
um átt að sýna Kampmann
meiri festu.“ Jacobsen gerir ráð
muni kosta jafnaðarmenn og
Fólkaflokkinn mikið fylgi í
næstu kosningum.