Vísir - 20.12.1955, Blaðsíða 11
Þriðjudaginn 20. desember 1955
VÍSIR
n
rmn
1971
■ OtM. Mfcí. lnSgtt RirrStst
.x>lí,tr. by L-tiileu
Mistókst Turo tilræðið í þetta sirrn,
en á meðán hélt bardaginn áfram.
i Tai'zair felldi nokkra menn, en
tþeri sér .siðan vjð og sá Turo.
Turo hafði miðað.spjóti sínu.og; nú "... Tarzan \rar ekki seinn á sér, heldur
sendi hann þ&S af miklu afli. ...... . \ brá-.spjótisínii, og geigaði sending
. . . ^. Tm'os. \
Hw4u afituf
tii mtt!
jUtarAafa
E FTI R
JENNIFER
AM E 5
John Trevell var hnellinn maður, í meðallagi hár, andlitið
var rjótt og hárið stálgrátt.
„Hvaða málefni eru það, John?“ spurði Eloise og bætti við
brosandi: „Þú munt þó ekki hafa misst aleigu þína? Kannske
ég verði aS fara að vinna fyrir mér, sem afgreiðslustúlka eða
eitthvað þess háttar?“
„Það er ekki viðkomand i peningum,“ svaraði hann með
þjósti. „Það er annað miklu mikilsverðara,“ bætti hann við og
hóstaði.
Hún brosti enn, en það var ekki eðlilegt bros.
„Ég hélt ekki að neitt væri til alvarlegra en fátæktin, John.“
„Vansæmd er miklu alvarlegri en fátækt,“ sagði hann
hvasst.
Hún fölnaði. Nú varð hún fegin því, að hún hafði borið roða
í kinnarnar.
„Hvað ertu að tala um, góði John?“ spurði hún.
„Um sjálfa þig og ævintýri ykkar Dirks Lokhai'ts,“ sagði hann
og stakk höndunum í vasana, um leið og hann sneri sér frá
henni og fór að horfa út um gluggann. Það var gott að hann
gerði það, því að Eloise náfölnaði. Roðablettirnir í kinnunum
urðu óeðlilegir.
„Dirk Lockhart,“ stamaði hún. „Hvað áttu eiginlega við?
Hvers vegna ætti ég . ... ég get varla sagt að ég þekki hann.“
Hann sneri sér snöggt að henni.
„En þú játar að minnsta kosti að þú þekkir hann.“
„Já ég þekki hann,“ sagði hún. Röddin varð harðari, er hún
bætti við: „Hver einasta manneskja í samkvæmislífi borgar-
innar þekkir Dirk Lockhart. Hann. . . . hann er mjög....“
„Lítt þekktur," tók maður hennar fram í. „Ég hef orðið að
hafa mikið fyrir að afla mér upplýsinga um hann. Ég veit allt
um þennan skilnað Caruthershjónanna, sem hann var bendlaður
við. Og það getur vel verið að hann sé þekktur maður í sam-
kvæmislífinu. Samkvæmisfólkið g'etur gert það sem því þóknast
fyrir mér, en konan mín, fær ekki leyfi til að þekkja hann.“
Nú varð stutt þögn. Hún vætti varirnar, sem voru þurrar og
litlausar.
„Vitanlega, John,“ sagði hún. „Ég skal ekki láta sjá að ég
þekki hann — ef það er svo, að þér fellur það ekki."
„Það er nokkuð seint að lofa því núna, Eloise,“ svaraði hanr
með þjósti. „Ég frétti fyrir tilviljun, að þú hefur verið með hon-
um hvað eftir annað, — ein heima hjá honum fangt fram á
nótt.“
„Það.... Það er ekki satt,“ sagði hún.
Hann leit upp og starði á hana. „Er það ekki?“ spurði hann
hvasst. Þykkar varirnar titimðu ískyggilega. „Það er alveg til-
gangslaust að reyna að neita staðreyndum, Eloise. Ég hef látið
líta eftir þér.“
Hún hrökk ósjálfrátt til baka. Röddin var vesældarleg og sker-
andi þegar hún stundi upp: „Þú hefur látið njósna um mig?“
Svo bætti hún við með vaxandi reiði: „Hvernig dirfist þú að
gera þetta, John? Ég á erfitt með að gera mér ljóst, að þú getir
sokkið svo djúpt að láta njósna um konuna þína!“
Það var iíkast og ofsi hennar færi eins og svipvindur um
stofuna. Sem snöggvast yirtist svo, að hann léti undan síga.
^WWtfVSAVWWiiffAWVVVWyWtfWVViiVWtfVV^
,,Fyrirgefðu mér, Eloise," muldraði hann ,,en.. . . “ Hann
tók málhvíld en þegar hann byrjaði aftur hafði hann sótt í
sig veðrið. Röddin vár hás og frek. „En,“ endurtók hann, „þú
hefur verið óhæfilegá mikið hér í London upp á síðkastið, alein.
Fyrst í stað grunaði mig ekki neitt, ég skal játa það, en þegar
á leið fór ég að vérða forviða á þessu. Skilurðu hvað það er,
fyrir rnann á mínum aldri, að sitja einn úti í sveit og vita
konuna sína vera að .skemmta sér með öðrum karlmönnum?
Fyrst í stað hafði ég kki ástæðu til að halda annað en þú værir
mér trú. En svo fór grunur minn að ágerast og ég vissi að
þetta mundi halda áfram þangað til ég hefði fengið öruggar
ástæður til þess, að hann gerði það ekki. Þess vegna lét ég
hafa gát á þér. Og þess vegna veit ,ég um ævintýri ykkar
Lockharts.“
Eloise var runnin reiðin. En í staðinn hafði ótti gripið hana,
verulegur ótti. Hún hafði misst Dirk. Hún sá að hún hafði
mist hann fyrir fullt og allt. Hún vildi ekki missa eiginmanninn
Fyrst í stað hafði ég ekki ástæðu til að halda annað en þú værir 1
inmanni, og þá ekki sízt auðæfi hans, þessa stundina. John
Trevell var ekki þannig maðui’, að hægt væri að gera honum
sjónhyerfingar, og hann var ekki heldur þannig, að honum
væri auðvelt að fyrirgefa. Það gat haft alvarlegar afleiðingar
fyrir hana, ef hen'ni tækist ekki að sannfæra hann um, að ekki
hefði verið neitt milli hennar og Dirks Lockharts.
Áður en hún hafði hugsað til fullnustu, hvað bezt væri að
gera, sagði hún:
„Ég get ekki neitað því, að ég hef hitt herra Lockhart tals-
vert oft upp á síðkastið, og þú segir mér ekki beinlínis neina
nýja frétt, þegar þú segir að hann sé alræmdur. Það er einmitt
ástæðan til að ég hef hitt hann.“
Nú varð þögn. Hann horfði spyrjandi á hana.
„Þú játar að hafa hitt hann, þó að þú vitir, hvaða orð fer af
honum. Ég á bágt með að skilja þetta.“
Hún yppti öxlum. Henni fannst fótfestan vera orðin tryggari.
Ur því að hún var byrjuð á að setja saman sögu til að afsaka
sig', varð hún að halda áfram.
„Það er eðlilegt,“ sagði hún. „En ég þykist alveg viss um, að
þér dettur ekki í hug, að ég hafi hitt hann sjálfrar mín vegna,
John.“
Nú varð hann enn meir forviða. Það var auðvelt að heyra
tortryggnina í rödd hans þegar hann sagði:
„Hvaða vafningar eru nú þetta, Eloise? Ætlar pú að telja
mér trú um þú hafir hitt þenna Lockhart vegna annarar mann-
eskju?“
Fallegar
WÍUt
og akkar þekktu og óclýru
bpoóóar, Iwaniar ocj jólaákeifu.r
'JafiUma Ufátfi édfHOfi
Gerir yið krýning-
arstólinn.
Frá fréttaritara Vísis. —
Stokkhólmi í des.
Krýningarstólliim frægi í
Westminsíer Abby barf endur-
nýjunar við.
Sænskur maður, Bo Wilden-
stam, hefur orðið fyrir valinu
til þess að framkvæma þetta.
vandaverk, en aðferðir Svía x
þessum efnum hafa vakið mikla
athygii. Wildenstam hefur
farið til Englands og skoðað
stólinn. Kveðst hann geta gert
við stólinn þannig, að hann
endist í a. m. k. 40 ár. Hann.
mun jafnframt endurnýja
stóla og aðra trésmíði í kirkjum.
Gríska stjórnin kveðst ekki
taka þótt í fyrirhuguðum
fundi Balkanbandalagsins
(Griklriands, Jugoslaviu og
Tyrklands), nema Tyrkir
bæti fyrir alla andúð, sem
Grikkjum bafi verið sýnd af
þeim að undanfömu.
Frá Kaupmannahöfn hafa
borizt fregnir um, að þar
liafi geislavirkt re.gn fallið
seinustu daga.
ÍJtlvnd
til jólanna.
VerSkr. 1390,00.
C Sitmmks