Vísir - 07.02.1956, Blaðsíða 1

Vísir - 07.02.1956, Blaðsíða 1
■ - y 46, árg. ÞríSjudagiim 7. febniar 1956. 31. tbí, :ag Vatn rann inn í kjallara hér í bæ á sunnudag. Drukklnn maður skerst á rúiubrotum. Ef allur ís á Vatnajökll bráinar, hækkar yfírborð sjávar um 9 mm. Um síðustu helgi var fátt markverðra tíðinda hjá lög- reglunni neiha helzt það að á sunnudaginn var hún nokkur- um sinxium beðin affstoðar vegna vatnsflóða í kjöllurum hér í bænuin.' Gerði allmikið vatnsveður hér uro stund í fyrradag nokk- uru fyrir hádegi og vegna þess að talsverður snjór var fyrir, myndaðist krapaelgur^ og seytl- aði á nokkurum stöðum inn í kjallara. Lögreglan brá við og veitti aðstoð þar sem um hana var beðið. Tollsvíkið áfengi. A sunnudaginn komu nokk- urir unglingar inn í Hressing- arskálann í Áusturstræti og höfðu meðferðis áfengi sem þeir tóku að neyta þar inni. En þar sem slíkt er með öllu ó- leyfilegt var lögreglunni gert aðvart. Kom hún á staðinn og hirti bæði piltana og áfengið. Við athugun kom í ljós að á- fengið var tollsvikið. Málið er í rannsókn. Umferðarmál.- Nokkuð var kært yfir því til lögreglunnar, einkum eftir að snjóa tók á laugarlaginn, að drengir héngu aftan í bifreið- um á götum bæjarins. Þá var aðfaranótt laugar- dagsins ölvaður maður tekinn við akstur og á sunnudags- kvöldið eða aðfaranótt mánu- dagsins var lögreglunni til- kynnt um ölvaðan bifreiðar- stjóra og handalögmál, sem hann ætti í, suður á Digranes- vegi. Lýst eftir dreng. í útvarpinu síðdegis á sunnu- daginn var lýst eftir dreng, sjö ára gömlum, sem farið hafði heimanað frá sér kl. 10 árdegis, en var ókomin fram nokkuru eftir hádegi og var tekið að undrast um hann. En rétt eftir að lýst var eftir drengnum í útvarpinu var lögreglunni til- kynnt að hann hefði dvalið all- an daginn í ákveðnu húsi hér í bænum en væri þá nýlagður af stað heirn til sín. Skarst á rúðubrotum. Á föstudagskvöldið braut drukkinn maður rúðu í Adlon- bar í Aðalstræti. Maðurinn skarst á hendi við það að brjóta rúðuna og flutti lögreglan hann í sylsavarðstofuna til aðgerðar. ★ Saknað er bandarískrar flugvélar með 7 manna á- höfn, sem var í könnunar- flugi yfir suðurskautsland- Tösku af þessu tagi kalla framleiðendur „KokkteiItösku“, en hún er eins og tveir blómapottar, sem lagðir hafa verið saman. Er þetta brezk framleiðsla, taskan er búin til úr rúskinní. ^W^VWWWVWA^UWWWAVWWWUVWWVVWVV!W\AWWV Glerhálka á götum, margir árekstrar í morgun. Alls hafa 176 árekstrar erðlð í Reykjavík frá áramétunr. — En ef ailir jöklar jarðar bráðn- uðu myndi yfirborð sjávar hækka um 54 metra. Ef aUur ís Vatnajökuls bráðn- aði skyndilega myndi yfirborð sjávar hækka um 9 mm. Að þessari niðurstöðu kfemet franski prófessorinn og vís- indamaðurinn Albert Bauer í Strassborg, sem er einn af vara- forsetum Alþjóðasamb. jökla- fræðinga. Hann hefir síðustu árin umiið að því að reikna út meðalþykkt og rúmmál Græn- landsjökla út frá þykktarmæl- ingum þeim, sem framkvæmd- mu. í morgun vár glerhálka á öil- um götum í bænum og í greniad við hann, er orsakaði bifreiða- árekstra og önnur umferða- óhöpp. Nokkuru fyrir hádegið í dag höfðu þegar orðið nokkurir á- rekstrar hér í bænum, sumir þeii’ra allharðir og orsökuðu meiri eða minni skemmdir á favartækjunum. Á Reykjanesbraut varð á- rekstur fyrir sunnan kirkju- garðiixn í Fossvogi í morgun, en áður hafði bíll farið þar út af sökum hálku. Snérist sá foíll hálfan hring og fór ut af oíúgu megin af veginum. Lenti hann á hvolfi ofan í skurð en farþeg- ana mun ekki hafa sakað. Hins vegar var töluvert vatn í skurð- inUm og mennirnir sem í bíln- um voru blotnuðu talsvert. Samkvæmt upplýsingum frá umfei’ðai’máladeild rannsókn- arlögreglunnar í morgun hefur verið mjög mikið um árekstra hér í bænum að undanförnu. Þannig urðu t. d. hvorki meira né minxxa en fimmtán árekstr- ar fimmtudaginn 2. febrúar og níu árekstrar. íaugardaginn 4. febrúar. Alls hafa 176 :ii'ekstrar orð- ið frá áramótum og til dagsins í gær, er bókfærðir hafa verið hjá lögreglunni í Reykjavík og er það allmiklu hærri tala en á sama tíma í fyrra, því þá nam árekstraíjöldinn 134. Hóbtaborg iengi i leló lít A Austfjörðum eru 'xxienn orönir nokkuð uggandi um v.b. Hólmaborg, sem fór til Bret- lands fyrir viku. Var för skipsins heitið til Peterhead, þar sem ætlunin er ! að skipta um vél í því. Hfeppti það andviðri á leiðinni og mið- aði lítt, enda aðeins liðlega tíu iestir af saltfiski í skipinu, en það er 92 lestir. Komst hraði þess einu sinni niður í 13 mílur á vaktinni. Ekki hefir heyrzt til Hólxriaborgar í þi-já daga, en þó getur alit verið eðlilegt urn ferðir þess, þar sem veður hef- ur veríð vont í hafi og loftnet kann að haía slitnað af völdum veðurs. Rússar grlpnir taugaóstyrk vegna ve&urathugasia- Eoffhelgja. Utanríkis'ráðuneyti Banda- ríkjanna hefur birt tilkynningu út af mótmælum Rússa varð- r.ndi njósna-loftbelgi. Segir þar, að á vegum Banda- ríkjahers í V.-Þ. hafi engir belgir verið látnir svífa í loft upp, nema í veðurathugana- skyni. Alls hafi verið sleppt um 400 slíkum belgjum á undangengn- um tíma cg þeir' svífi svo 'hátt upp í loftið, að fjarstæða sé að halda því fram, að af þeim geti stafað hætta á áætlunarleiðum flugvéla, enda engin dæmi þess, að neitt tjón hafi af þessu hlot- ist. Batidrískir flugmenn, sem fara í eftirliísflugferðir, hafa fengið bendingu um það, að fljúga ekki í grennd við lartdhelgi og strendur Rássa — og hafa byssurnar Waðixar, ef Rússar skyldti gera árás utan laiidlielgi sinnar. ar voru þar af leiðaifgri Pauí Emile Victors. í nýútkomnu hefti af ársrit- inu Jökli er löng grein eftir Albert Bauer, þar sem hann. beitir sömu aðferð við þykktar- mælingar þær, sem gerðar voru á Vatnajökli af fx-ansk-islenzka 'leiðangi-inum árið 1951. í útreikningum sínum kemst Bauer að þeirri niðurstöðu, að meðalhæð Vatnajökuls sé 122(1 metrar, en meðalhæðundirstöðu jökulsins 800 metrar. Meðal- þykkt hans sé því 420 meti'ar og þar eð Bauer reiknast flat- armálið 8390 ferkm., er rúm- mál jökulsins 3520 km3, sem samsvarar 3160 rúmkm. vatns. Ef sá ís bráðnaði allur, myndi yfirbórð sjávarins hækka urn 9 mm. Til samanburðar er þess get- ið, að rúmmál meginjökuls Grænlands er 6 milljónir km;l, og bráðnun hans myndi hækka yfirborð sjávarins um 5.6 metra, en ef ailir jöklar jarðar bráðn- uðu myndi það hækka sjávar- borð um 54 metra og færa mik- ið af yfirborði jarðar í kaf. Skókpíítur drepinn á Kýpur. Skólapiltur í Farmagusta á Kýpxir beið bana í óeirðum þar í xnorgutx. Öllum búðum hefur vetið lokað í samúðarskyni. Fjölmennt herlið er á vei’ði á götunuiTi og gripið til annarra varúðarráðstafana. Götubardagi vr háður í morg un og í gær var skólanemum dreift með kylfum og tái'agasi. 13 skólúm á eynni hefur ver- ið lokað, þar af 9 að fvrirskip- an skólayfirvaldanha. J'iS tsS h«pm,msá: h&Suvst nntiir 1 ny rri tékkneskri fitmxx ára áætlori er gert réð fyrir mikilli framsókrt á iðnaðarsviðinu. Ceteka, iékkneska frétta- stoían, greínir einnig frá því, að einn liður áætlunarinnar sé að þurrka upp „neðanjarðar vatn* *'1 * nálægt Ostfava. Ætlað er að feikna mikil Itolalög séu undir „vatninu“. Tékkneska firnni ára4ætlun- in nýja er um margt líkt sjöttu rússnesku fimm ára áætluninni, sem frá hefur verið sagt nýlega, til dæmis að því er það varðar hver.su mikil áherzla er lögð á áukningu kolaframleiðslunnar. Þó er ekki minnst á notkun kjarnorku í þágu iðnaðar. Ceteka segir, að opnaðar verði nokkrar nýjar námur á Ostravasvæðinu og gamlar námur búnar nýtízku tækjum, Ostrava er í nörðausturhlutæ landsins. Mikilsmetnir v ísindamenn. komu saman á fund nýlega til þess að ráðgast um beztu að- ferðir til þess að þurrausa. „neðanjarðarvatnið". ,

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.