Vísir - 24.04.1956, Blaðsíða 8

Vísir - 24.04.1956, Blaðsíða 8
I Þeir, sem gerasí kaupendur VÍSIS eftir 19. hvers mánaðar fá blaðið ókeypis til mánaðamóta. — Sími 1660, VÍSIK er ódýrasta blaðið og þó það fjöl- breytasta. — Hringið í síma 1660 eg gerist áskrifendur, Þriðjudaginn 24. apríl 1956 Krúsév sýnir klærnar. Óvænlegri horfur um árangur af viðræðunum. Horfur á samkomulagi milli Breta og Rússa um Iausn vanda- málanna eru nú taldar hafa versnað. Krúsév flutti ræðu í gær, í Birmingham, og í veizlu, sem þingmenn verkamannaflokks- ins héídu honum og Bulganin í gærkvöldi. — í veizlunni kom til snarprar orðasennu og var mikill - hiti í mönnum, en í Birminghamræðunni er Krúsév talinn hafa sýnt klærnar, og er annar tónn í brezku blöðunum í morgun, sem telja nú horfur um árangur af viðræðunum milli brezkra og rússneskra leiðtoga miklu minni en undan- gengna daga. Sýndi nú klærnar. Krúsév sagði m. a. í ræðu sinni í Birmingham, að Rússar hefðu orðið fyrstir til þess að varpa vetnissprengju úr flug- vél, og' þeir hefðu eignast eld- flaugar, sem hægt væri að láta koma niður hvar í heiminum sem væri. Daily Telegraph, íhadlsblað, gerir þessi orð hans og fleiri að umtalsefni og telur, að hann hafi eitt sinn eða tvisvar „sýnt klærnar" þótt að- eins væri andartak. — Varar það við slíkum aðferðum, — þær hafi ekki áhrif í Bretlandi. Blaðið segir, að það vanti ekki fögur orð um aukin viðskipti og fleira, en það sé ekki nóg að bjóða upp á viðskipti, þegar það skorti, að gert sé það sem gera þurfi, til þess að viðskipti geti farið fram með eðlilegum, frjálsum hætti. Þarna hafi ailt- af verið um erfiðleika að ræð'a, sem ekki hafi fengizt úrbót á, þótt margrætt hafi verið. kvæmilega að bera á góma kröfuna um, að jafnaðarmenn, sem í fangabúðum eru í Ráð- stjórnarríkjunum og leppríkj- unum, fengju frelsi sitt, enda bar Gaitskell fram tilmæli um það í ræðu sinni, að Krúsév beitti áhrifum sínum til þess, áð þeim yrði sleppt úr haldi, fyrst í Ráðstjórnarríkjunum og þar næst, að fordæminu yrði fylgt í leppríkjunum. Krúsév neitaði að verða við þessum tilmælum. Flutti hann langa ræðu og neitaði á þeim grundvelli, að engir jafnaðar- menn væru til í Ráðstjórnar- ríkjunum, en ráðstjórnin léti sig ekki varða hvað gerðist í slíkum málum í öðrum löndum. Gaitskell hafði Iistann íilbúinn. En Gaitskell hafði tilbúinn nafnalista og bauð hann fram. Krúsév njeitaði þá að taka við honum, en honum verð- ur sendur listinn í dag í Claridges Hotel, þar sem þeir gista hann og Búlganin. Aneurian Bevan tók þátt í viðræðunum og var talsverður hiti í mönnum. Varði líka við Hitler. samnmgana í hinni löngu ræðu sinni varði Krúsév stefnu ráðstjórn- arinnar eftir styrjöldina. Hann sagði, og að Rússar hefðu á sín- um tíma gert sáttmálann við Hitler, vegna þess að Bretar og Fi^kkar hefðu reynt að etja honum gegn Rússum. Heims harmleikur. Blaðið Daily Mirror segir í morgun, út af hinum versnandi horfum um samkomulag milli Breta og Rússa, að það væri heims harmleikur ef árangur næðist ekki. Blaðið segir, að of margir Bretar taki þá afstöðu, að engu sé líkara en að þeir Búlganin og Krusév séu skop- leikarar á ferðalagi. Blaðið vítir skrípalæti skólafólks í Ox- ford við komu hinna rússnesku leiðtoga þangað. Timhs um horfurnar. Times telur í morgun, ao þess sjáist naumast merki, að nokk- uð hafi miðáð í áttina fil sam- komulags um hin miklu vanda- mál, öryggi, Þýzkaland, af- vopnun og kjarnorkumál, en verið geti að e'itthvað þokist í áttina til aukinna menningar- legra samskipta. Landsfundinum lauk með samkomum á þrem stöðum. SjáSfstæðismenn sigurvissiir við kosningarnar. Rússar saka Bandaríkjameimi um talsímahlustanir. Seýja |>a Iiafa grafið 300 m. igöng undir A.-ISerlín. Leikstarfsemi í bióma nyrðra. Gæsadúnn frá Ungverjalandi. Nefnir blaðið sem dæmi við- skiptaaðferðir, sem Bretar geti ekki sætt sig við, að raftækja- verksmiðjur telji sig ekki geta. selt raftæki til Ráðstjórnarríkj- j sýndur í Frá fréttaritara Vísis. Akureyri í morgun. Leikstarfsemi stendur víða mteð miklum blóma fyrir norð- an, eins og alkunna er. I anna upp á þær spýtur, að garði í Síðastl. laugardag var frum- félagsheimilinu Sól- Saurbæjarhreppi ó- kaupa verði kannske í staðinn gæsadún frá Ungverjalandi. Það sé ekki nóg að tala um við- skipti, það verði raunVerulega að greiða fyrir viðskiptum og hrinda af vegi erfiðleikunum, sem hafi hindrað þau. Engir kratar hjá Rússurn. í veizlunni hjá þingmönnum jafnaðarmanna hlaut óhjá- Strákar á stoEnuii hestum. Tveir unglingspiltar í Gríndla vík stálust L gær á bak tveim hrossum. Urðu heldur slæmar afleið- ingar af því, því annað hross- ið var fylfull hryssa og drapst hún af þeysingi piltanna. j prentaður sjónleikur, „Yfir- dómarinn", eftir Tómas Jóns- son frá Hróarsstöðum í Fnjóska dal. Leikendur eru 14 talsins, all- ir þar úr sveitinni, en leiðbein- andi við æfingar var hinn lands kunni leikstjóri Jón Norðfjörð á Akureyri, sem vann mjög kappsamlega að þessu starfi, fór meðal annars'20 sinnum út eftir til þess að æfa með fólk- inu og leiðbeina. Björn yfirdómara leikur Jó- hann Valdimarsson, bóndi á Möðruvöllum, en Þrúði, konu hans, María Guðmundsdóttir. Leiktjöld málaði Þorgeir Páls- son á Akureyri. Það er kven- féiagið Hjálpin í Saurbæjar- hreppi, sem sér um uppsetn- ingu leiksins til ágóða fyrir starfsemi sína. Húsfylli var á frumsýning- Rússar hafa borið íram mót- mæli út af því, að Bandaríkja- menn hafi grafið göng undir Austur-Berlín, komið þar fyr- ir hlustunartækjum, sem voru í tengslum við magnara, og hafi þetta veriS gert til þess að hlusta á viðtöi, ti! þess að komast að rússnesk- um og austurþýzkum ieyndl- armálum. Því er haldið fram, að graf- in hafi verið 300 metra löng göng í ofannefndum iilgangi, og séu tækin, sem þarna hefur verið 9 komið fyrir, torezk og bandarísk. Mótmælin voru send banda- / ríska yfirhershöfðingjanum í Vestur-Berlín, en umsögn hans urn ásakanirnar er ekki enn fyrir hendi. ---K Elisabet 2. þrítug. Elisabet Bretadrottníng átti þrítugsafmæli s.I. laugardag. Dvaldis hún á afmælisdag- inn með börnum sínum í Windsorkastala, en hertoginn, sem fór til Vestur-Þýzkalands fyrir nokkru, flaug á fund drottningar sinnar. unni og leikendum og leiðbein- anda forkunnar vel tekið. Efnt var til mannfagnaðar í þrem samkomuhúsum borgar- innar í gærkv'eldi, er Iands- fundi Sjálfstæðisflokksins lauk. Landsfundur þessi var hinn fjölmennasti, sem um getur í sögu flokksins, eins og áður hefur verið frá greint, og sóttu hann á 9. hundað fulltrúa. Geir Hallgrímsson setti sam- komuna í Sjálfstæðishúsinu, en síðan flutti Gunnar Thoroddsen borgarstjóri ávarp. Mæltist honum skörulega að vanda, en hann ræddi starf og stefnu Sjálfstæðisflokksins og banda- lög þau, sem efnt hefur verið til í sambandi við kosningarn- ar. Gunnar Thoroddsen lauk máli sínu með því að spá, að við kosningarnar á Jónsmessu í sumar mundi renna upp sól og sumar 1 íslenzkum stjórn- málum með sigr Sjálfstæðis- flokksins. Barði Friðriksson setti sam- komuna að Hótel Borg, en þar flutti ræðu Jóhann Hafstein alþm. Var Jóhann sigurviss og gunnreifur, er hann lýsti yfir því, að nú færi hver heim til sín til þess að vinna að glæsi- legum sigri Sjálfstæðisflokks- ins. Gunnar Helgason erindreki setti samkomuna í Þjóðleikhús Aðaííundur Serklavarnar. Aðalfundur Berklavarnar var haldinn í gær. Lúther Hróbjartsson var end urkjörinn formaður félagsins, en aðrir í stjórn eru þeir Ari Kárason, Árni Guðmundsson, Baldvin Baldvinsson og Guð- mundur Löve. Þá voru og kjörnir fulltrúar á landsþing SÍBS, sem haldið verður að Reykjalundi dagana 23., 24. og 25. maí n.k. — í Berklavörn eru nú um 600 félagar. kjallaranum, en þar flutti á- varp Magnús Jónsson alþm. frá Mel. Lýsti hann ánægju sinni yfir því, að mestur hluti æsku- lýðs landsins fylkti sér nú um Sjálfstæðisflokkinn, en það myndi verða til þess að tryggja völd þessa stærsta og víðsýn- asta stjórnmálaflokks landsins. Skemmtikrafitar voru hinir sömu á öllum samkomunum, Emilía Jónasdóttir leikari og. söngvararnir Guömundur Jóns- son og Kristinn Hallsson. Að lokum var stiginn dans. Þótti Landsfundur Sjálfstæð- isflokksins hafa tekizt vel og fara fulltrúar heim til sín að honum loknum fullir bjartsýni og djörfungar. Vilja km% læti init í „Nato-dyrnar". Blaðið Newsvveek skýrir frá því að ráðstjórnin hafi í kyrr- þei boðið Norðmönnum aðstoð við að konia upp kjarnorku- stöðvum, og erfitt sé fyrir Norð menn að hafna boðinu. Ef til þess kæmi yrði Noreg- ur fyrsta Nato-landið, sem gerði kjarnorkumálasamning við Rússa, en tilgangur hinna síðarnefnda er, segir vikuritið, að ná fótfestu í „Nato-dyrun- um“. — Vikuritið birtir einnig frétt um að Rússar hafi gert Svíum og Indverjum samskon- ar tilboð, gegn því að fá í stað- inn grafit, alúm og beryllium frá Svíum og þórium fi’á Ind- landi. Leynifélagsskapurinn Kti KIux K!an hefur aftur skot- ið upp höfðinu í suðurríkj- um Banúaríkjanna og hefur sumstaðar haldið fundi án leyndar undir beru lofti. Um 1400 manns sóttu ný- lega slíkan fund nálægt JacksonviIIe, Florida. Karlakár Reykjavíkur fer í söngför til K.hafnar. Karlakór Reykjavíkur efnir ti! hljómleika í Fríkirkjunni dagana 26., 27., 28. og 29. þ. m. kl. 9 e. h. alla dagana. Hljómleikar þessir eru eink- um fyrir styrktarfélaga kórsins. Við hljómleikana aðstoða m. a. dr. Páll ísólfsson, Guðrún Á. Símonar, Guðmundur Jónsson og Fritz Weisshappel. Kirkjutónleikar þessir verða að nakkru leyti svipaðir þeim, sem kórinn á að flytja í Dóm- kirkjunni í Bergen á tónlistar- hátíðinm sem þar á fram að fara í lok næsta mánaðar, en þar á Karlakór Reykjavíkur að koma tvisvar fram. Karlakór Reykjavíkur hefur, sem kunnugt er, búið sig undir það í vetur, að fara söngför til Norðurlanda í næsta mánuði, í boði Bel-Canto-kórsins í Kaup- mannahöfn^ en hann er einn, þekktasti karlákór á Norður- löndum. Á hann 50 ára afmæli á þessu ári og verður þess minnst þar í borg með söng- móti karlakóra frá öllum Norð- urlöndunum dagana 19. til 21. maí. Söngmenn í ferðinni verða alls 41, auk söngstjórans, Sig- urðar Þórðarsonar. Einsöngvar- ar verða þeir Stefán íslandi og Guðmundur Jónsson.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.