Vísir - 03.01.1957, Side 1
47. árg.
Fimmtudaginn 3. janúar 1957
1. tbl.
Eisenhower skýrir á morgun
till. sínar um nálæg Austurlönd.
Te'ur s'g hafa gslda? ástæSu? tsl a5 æskja
heímtldar tíl a5 senda lið þangað.
Tiilötfunum illn teitið ru.
Einsenhower Bandaríkjafor-
,seti ávarpar á morgun báðar
deildir þjóðþingsins og gerir
grein fyrir breyttri afstöðu
sinni gagiivart nálægum Aust-
' urlöndum.
í þessym tillögum er gert
ráð fyrir efnahagslegri aðstoð
við þessi lönd, þ. e. ýms Araba-
ríki og Israel, úr sérstökum
sjó&i, sem forsetinn hefur
heimild til þess að veita fé úr,
og í öðru lagi, að senda herlið
til hvaða lands sem er á þessu
heimssvæði, er þess óskar
vegna yfirvofandi árásar frá
kommúnistum. — Opinberlega
hefur ekki verið sagt nákvæm-
lega frá efni þessara tillagna,
en það var látið síast út um
þær fyrir nokkru, en því næst
ræddi Dulles við Hammar-
skjöld og forsetinn við þing-
leiðtoga beggja flokka, re-
publikana og demokrata.
Fregnir í fyrradag hermdu,
að demokratar, sem hafa þing-
meirihluta í báðum deildum,
væru uggandi um tillögur for-
setans, einkanlega um heim-
ildina til að senda herlið til
þessa heimshluta, en á hinn
bóginn talið, að þeir líti svo á,
eins og almennt mun, að forset-
inn telii sig hafa gildar ástæð-
ur til að æskja slíkrar heim-
ildar, — hann telji með öðrum
orðum horfurnar mjög ískyggi-
legar, en vænti þess, að ef
þjóðir sem hafa kynnu oíbeldi
í huga vissu, að Bandaríkjun-
um yrði að mæta, ef þær héldu
slíku til streitu, myndu þær
ekki hætta á ol'beldisinnrás.
Afstaða Israel
og Arabaríkja.
í Israel hefur tillögunum
verið tekið með gagnrýni og
í Arabaríkjunum, að Irak
undanteknu, hamast menn
gegn þeim, enda eru leiðtogar
víðast hvar, i Egyptalandi,
Sýrlandi og jafnvel víðar svo
mjög undir áhrifavaldi Rússa,
að þeir fordæma tillögurnar
vegna þess, að tillögurnar miða
að því að ónýta áform þeirra,
en aðrir sem sjá hættuna af
þeim og vita hversu mikil þörf-
in er fyrir efnahagsaðstoð
Bandaríkjanna, mega sín lítiis.
Sýrlendingar og Egyptar eru
ákafastir í að fordæma tillög-
urnar og þykjast leiðtogar þar
mæla fyrir munn allra Araba-
þjóða. — Leiðtogar þessara
tveggja þjóða brugga nú ráð
um sýrlenzkt-egypzkt sam-
bandsríki, og er athyglisvert,
að í Sýrlandi hafa leiðtogar
nýlýst yfir, að þeir muni aldrei
viðurkenna yfii’ráð Gyðinga í
Palestinu. Kemur hér enn fram
hvert markið er: Að uppræta
Israel og stofna til arabisks
í'íkjasambands undir verndar-
væng Ráðstjórnarríkjanna.
Afstað'a Breta.
Tillögur Eisenhowers eru
mjög mikið ræddar í brezkum
blöðum, sem leggja áherzlu á,
að Bandaríkjamenn muni nú
Mjélkárvirkjun og Reiðhjatia-
virkjun lokið á þessu ári.
Unnið fram á vetur að virkjunum á
á Vestfjörðum.
farnir að sjá, er þeirra er að
fást við viðfangsefnin þar
eystra, og þeir orðnir arftakar
Bréta á vandamálunum, að
tnálin verði ekki leyst nema
með bví að kippa hart. i taum-
inn. Dáily Mail segir, að
er Eisenhower fari út á þá
braut, sem íillögur hans bera
vitni feii það í sér að minnsta
kosti nokkra viðurkenningu
á því, sem Eden sagði, að
sá tími myndi koma, er menn
áttuðu sig á, að ákvarðanirnar
um aðgerðir i Egyptalandi
hefðu verið nauðsynlegar og
réttlætanlegar. í hvaða átt sem
litið væri þar eystra mætti
greina skuggann af Rússum.
Bandai'íkjamenn hefðu verið
seinir til að átta sig, en það
gengi undan þeim við verk, er
þeir væru komnir af stað, og
ættu þeir r.ú að hafa hraðan á.
Scotsman í Edinborg telur,
að méð tillögum þessum sé
Eisenhower að halda opinni
smugu til aðgerða, ef Samein-
uðu þjóðirnar reyndist þess
ekki megnugar að sinna hlut-
verki síhu þar evstra.
oðanes fórst við
Færeyjar í nótt.
Tuttugu og þrem mönnum bjargað
við erfiðar aðstæður.
Togarinn Goðanes frá Neskaupstað fórst við Fœr-
eyjar í nótt. 23 mönnum af skipinu var bjargað um
ooro í færeysk skip og var björgun mannanna fokiíf
ki. 6 30 í morgun. Skipið strandaði á fiúðum eða
biindskerjum út af Skáiafirði, sem er á austurströnd
Sandeyiar. Var togarinn að sækja 14 færeyska sjómenn,
sem ráðnir voru á skipið í vetur. 24 manna áhöfn var
á skipinu og er eins þeirra saknað. i
Gert er ráð fyrir að Mjólkár-
virkjuninni í Arnarfirði verði
lokið seint á þessti ári. Frá þeirri
2500 kilowatta stöð sem nú er
verið að reisa þar eiga Vest-
firðir að fá rafmagn.
Virkjun Mjólkár er einn þátt-
urinn í rafvægingu Vestfjarða.
Samtímis er unnið að Reiðhjalla
virkjun í Bolungarvík, en frá
henni er gert í'áð fyrir að íá
400 kilowött en íyrst um sinn
verður þeirri raforku veitt til
Bolungarvikur, sem er í tiltölu-
legá örum vexti og þarfnast
mikillar- raforku í sambandi við
íiskíðnað og til notkunar í
heimahúsum.
Á síðasta sumri var unnið að
báðum þessum virkjunum. Aðal-
vei’ktaki við Mjólkui'árvirkjun-
ina er E. Pilh og Son, en það er
verkfræðifirma Langvads, er sá
um Sogsvirkjunina. Við Mjólká
var á síðastliðnu sumri sprengt.
fyrir stífiu og unnið að bygg-
ingu stöðvarhúss. Svipuðum
áfanga hefir verið náð við bygg-
ingu stöðvarinnar í Bolungai’vík
! en þar eru verktakar Ragnar
Bárðai’son og Þói’ður Kristjáns-
! son.
| Þá var einnig sl. sumar unnið
I að virkjun Grímsár á Fljóts-
' dalshéraði. Sú stöð á að fram-
i leiða 2500 kilowött eða svipað
og Mjólkárstöðin.
Vélar þessai'a stöðva verða
frá Tékkoslovakíu.
Stórhættu-
legt ástand,
segir Dulles
Ðulles hefuv nú gert leið-
togum beggja þingdeilda
full grein fyrir tillögum
försetans, sem miða að efna-
hagslegri og hernaðarlegri
aðstoð', ef með þarf, til
verndar sjálfstæði þeirra.
Að loknum fundi, senx
Dulles sat með utanríkis-
nefnd öldungadeildarinnar,
var sagt, að hann hefði kom-
ist har svo að orði, að stór-
hættulegt ástand ríkti í ná-
lægum Austurlöndum.
Björn Pálsson flutti 109
sjúklinga s.l. ár.
Björn Pálsson flugmaður
flutti 109 sjúklinga, sem sóttir
voru á 47 staði víðsvegar á
landinu.
Áður hafði hann flutt 392
sjúklinga svo alls hafa nú ver-
ið fluttir 501 sjúklingur síðan
Björn Pálsso'i hóf sjúkraflugið.
í ár var flogið 208 klst. í
sjúkraflugi eða samtals 46 þús.
kílómetrar og hefur þetta
sjúkraflug reynzt ómetanlegt
fyrir dreifbýlið.
Það var um kl. 9 í gærkvöldi
að skipið kenndi grunns á
blindskerjunum og sendi það
þá út neyðarskeyti. Talsvei'ður
sjór var og vindur af suðaustri
en frostlaust veður.
Jslendingur um borð
í Ilróki.
Strax og neyðarskeytin höfóu
verið send út, dreif að fjölda
skipa af ýmsum gerðum, en
björgunaraðstaða mun hafa
verið slæm, því að ekki tókst
að komast nærri skipinu. Tog-
arinn Austfirðingur, sem þar
var nærstaddur, hafði stöðugt
loftskeytasamband við Goða-
nes og sömuleiðis færeyska
skútan eða báturinn Hrókur,
en um borð í honum var ís-
lenzkur maður, Gunnar Axels-
son að nafni, sern talaði í loft-
skeytastöð Hróks.
Björgunartæki
úr þýzkum togurum.
Færeysku skipin, sem fyrst
komu á vetcvang, höfðu engin
björgunartæki meðferðis, en
björgunartæki voru fengin að
láni í tveimur þýzkum togur-
um, sem lágu í Skálafirði. —
Björgunartækin voru tveir
björgunarstólar og línubyssa.
Kl. 2 var byrjað að skjóta
raket.tum með línu yfir í Goða-
nes, en illa gekk og náðist ekki
til skipsins með þeim rakett-
um, sem komið var með, og
sækja þurfti fleiri rakettur í
land, en það mun hafa verið
stutt leið.
Sex stunda hið.
Um kl. fjögur virðist hafa j
verið búið að hafa samband!
vúð skipið þvi kl. rúmlega
fjögur var búið að bjarga
þremur mönnum yfir í fær-
eysku skipin. Eftir það virðist
björgunin hafa gengið vel, því
kl. 5,50 er búið að bjarga 15
mönnum.
Skipið mun þá hafa tekið að
liðast mjög á skerinu og bráð
hætta á að það sykki þá og
þegar, því Goðanes biður þá um
að björguninni sé hraðað, sem
hægt er, og biður um að hafa
trillur tilbúnar. Eftir það er
þrem mönnum bjargað á lín-
unni en kl. 6,30 brotnar skipiS
og sekkur og var fimm mönn-
um bjargað úr sjónum.
Voru mennirnir teknir um
borð í Vesterhavet blida og
síðan fluttir um borð í Hrók og
Thorshavn. Svo lítur út sem
hin stærri skip hafi ekki getað
komist mjög nærri Goðanesinu;
á strandstaðnum og Vestur-
havet blida, sem mun vera lítill
bátur hafi kömist næst því.
Goðanes var eign Bæjarút-
gerðar Neskaupstaðar. Skipið
var byggt 1948. Skipstjórinn
var Pétur Sigurðsson frá
Norðfirði. Goðanes var annar-
af tngurum Bæjarútgerðar
Neskaupstaðar. Hinn var Egill
raúði, sem strandaði undir
Gi'ænuhlíð í fyi'ravetur.
Síðustu fregnir frá Færeyj-
um herma, að skipbrotsmenn-
irnir af Goðanesinu hafi komiff
til Þórshafnar kl. 10 i morgun.
Með þeirri fregn var einnig'
staðfest, að það hafi verið skip-
stjórinn, Pétur Hafsteinn Sig-
urðsson, sem drukknaði. Páiuir
var 24 ára gamall.
Hæsta afla-
sala í 4 ár.
Tveir togarar liafa selt ís-
fiskafla erlendis. Báðir seldu í
morgun og eru þetta fyrstu ís-
fisksölur ársins.
Svalbakur seldi í Cuxhaven,
V.-Þ., 237. lestir fyrir 111,000
mörk, en Marz í Gríms-
by, 4078 kit ( um 260 smál.)
fyrir 15.276 stpd. Er það hæsta
sala íslenzks togara i Bretlandi
síðan í janúar 1952, er Elliði
seldi fyrir 16.019 stpd.
Dæmi eru til þess, að enn.
hærra verð hafi fengist fyrir
togarafarm af isfiski. Þannig
seldi Neptúnus í jan 1951 fyrir
16.478 stpd. ' ^