Vísir - 12.01.1957, Blaðsíða 6
VÍSIB
Laugardaginn 12. janúar 1957.
var vegna heilsu Grace og sagði
að hann efaðist um að hún þyidi
slíkt ferðalag, þótt hún endilega
vildi fara.
En einmitt nú eftir að haftn
hafði fallist á beiðni hennar að
fara með hana til útlanda var
eins og henni hefði snúist hug-
ur, því hún varð þögul, kvíða-
fúll og sorgmædd. Hún talaði
oft um að hún gæti ekki lagt á
hann þá eríiðleika og leiðindi
að dragast með sjúkling eins og
hana til útlanda og ympraði
stöðugt á því, hve mikil byrði
hún væri honum. Sjálfsmeð-
aukun hennar fyllti hann ennþá
meira hatri til hennar.
Honum leist ekki á að myrða
hana í vöku. Hann sló allri ráða
gerðinni á frest þar til hann
gæti ráðið henni bana í svefni.
Þegar hún hafði tekið inn svefn-
pillurnar, sem hún næstum
alltaf gerði, leit hún út eins og
hálf dauð Hann reyndi að friða
sjálfan sig með því að í raun-'
inni væri þetta ekki alveg morð. I
Það væri í rauninni að eins að
flýta fyrir cg ljúka hálfnuðu
verki.
Hún gaf næstum ekki frá sér
hljóð þegar hann kæfði hana
með svæfli í svefni.
Þrátt fyrir svalandi kvöld-
blæinn, sem aðeins hreyfði
gluggatjöldin í svefnherbergi
Grace, var kæfandi heitt þar
inni, að honum fannst.
Svitinn draup af enni hans.
Hann fór að glugganum sem
hann hafði opnað og lét sval-
ann kæla brennandi kinnar sin-
ar.
Eftir nokkra stund tók hann
líkama Grace og bar hana út á
tröppurnar og inn í bílskúrinn.
Hann lagði hana í aftursætið á
bílnum og tók skóflu og lét hana
einnig í bílinn
Það var dimmt og drungalegt
þégar hann ók af stað eftir ó-
jöfnum veginum til gryfjunn-
áþ og hann hafði skilið eftir
logandi á útidyraluktinni og í
herbergi Grace.
Hann fór með líkið niður á
botn gryfjunnar þar sem hall-
inn var minnstur og samt reynd
isl honum þetta erfitt verk.
Hann hraðaði sér við verkið og
huldi líkið með þunnu lagi af
mold á botni gryfjunnar. Á
morgun já, á morgun myndu
vörubílarnir demba tonnum af
mold ofan á hana, og þá . . .. I
Þegar hann kom aftur upp í
bilinn leit hann á klukkuna í
mælaborðinu og sá, að það;
myndu ekki líða meira en 40
ipínútur frá því hann fór af stað
að heiman og þangað til að
hann kom aftur.
Það myndi ekki verða tími til
að sofa, því nú þurfti hann að
fara að ganga frá breytingu á
vfegabréfinu og það varð að
gera vandlega. Svo þurfti hann
að setja farangurinn í báðar
töskurnar og hann varð að gæta
þess að í annarri töskunni varð
að vera klæðnaður og annað
sem Grace myndi hafa tekið
íneð sér til allangrar dvalar er-
lendis.
Hann var búinn að segja öll-
um kunningjUnum að þau ætl-
uðu að leggja snemma af stað
svo við það var ekkert að athuga
og því ætlaði hann að fara áður
en dagaði og fólk kom á fætur.
Það fyrsta sem hann myndi þá
gera var að fara til Peggy og
-síðan myndu þau fara um borð
i skipið.
Þegar hann ók bílnum upp
að húsinu fannst honum hann
verða var við einhvern á tröpp-
unum og í ljósinu frá útidyra-
luktinni sá hann að þetta var
hún frú Webb gamla. Þáð var
ailt of áliðið kvölds til þess að
hún væri að koma í heimsókn.
Nú var um að gera að vera nógu
rólegur og sannfæra gömlu kon-
una um að Grace svæfi og mætti
alls ekki vekja hana því bau
ætluðu að leggja snemma af
stað.
Áður en hann gat fárið út úr-
bílnum kom frú Webb hlaup-
andi og kallaði: „Það var goct,
það var sánnarlega gott, hér er
hann“, hrópaði hún til einhvers,
sem hann gat ékki komið auga á.
Blake sat bara og starði, eins
og augu hans hefðu festst á
lögrégluþjóninum, sem gekk að
bílnum.
„Eg var einmitt í þann veg-
inn að reyna að fara inn í húsið,
herra. Frú Webb og eg, við er-
um alveg nýkomin.
— Eg vissi hreint ékki hvað
eg átti til bragðs að taka, sagði
gamla konan aumlega. Eg
hringdi og hringdi, en þér vor-
uð úti og eg vissi ekki, hvenær
þér mynduð koma heim. Svo
hringdi eg á lögregluna.
Blóðið hvarf gersamlega úr
andliti Blakes og meðan hann
reyndi að róa hug sinn, sagði
hann:
— En hvað heíir komið fyr-
ir? Hafa þjófar brotizt inn?
— Nei, sagði lögregluþjónninn.
Glugginn á svefnherbergi frú-
arinnar snýr út að garði gömlu
konunnar, og hann hefir opnazt.
Ja-á, svaraði Blake, og svita-
droparnir byrjuðu að r^nna nið-!
ur bak hans eins og ísmolar
væru.
-— Eg .álít, herra minn, sagði
lögregluþjónninn, að þessi bréf-
miði hafi fokið af náttborði frú-
arinnar út um glugann og yfir
í garð nágrannakonunnar. Hann
lá á tröppunum. Hún fann hann
ekki fyrr en hún fór út með
huhdinn sinn fyrir um það bil
hálftíma síðan og sá hann þá í
birtunni frá útiljósiftu frá hús-
inu yðar.
— Eg áléit það skyldu mína,
að koma í veg fyrir sorgarat-
burð, ef það var mögulegt,
snökti frú Webbs. Þessar lín-
ur, sem hún hefir skrifað, eru
til yðar, herra Blake.
Lögregluþjónninn rétti Blake
pappírsörk og við birtuna frá
ljósinu las hann:
„Elsku Jimniy. Eg finn að eg
get ekki haldið áfram að vera
þér byrði. Eg hefi tekið inn
stóran skammt af svefntöflum.
Það er sú leið, sem eg hefi val-
ið, til að komast út úr þessu.
Þakka þér fyrir það umburðar-
lyndi, sem þú hefir sýnt mér
öll þessi ár. Vertu sæll, ástin
mín. Þín elskandi — Grace.
— Bara formsatriði, herra, en
eg verð að sjá konu yðar, þótt
eg, því miður, viti að það sé
of seint.
Það var lögregluþjónninn,
sem sagði þetta en Blake fannst
þessi rödd koma langt úr
fjarska. Hann barði krepptri
hendi í enni sér.
— Já, snökti hann, of seint,
of seint.
Ungversk mótmæli.
Ungverska stjórnin hefur
falið fulltrúa sínum hjá Sam-
einuðu þjóðunum að bera fram
munnleg mótmæli.
Eru þau fram komin af því
tileíni, að allsherjarþingið
samþykkti ályktun um fimm
manna Ungverjalandsnefrid.
Telur ungverska stjórnin þetta
íhlutun um innanlandsmál, sem
ekki sé fordæmi fyrir.
1!4 tonns
vörubíll '
óskast keyptur, má vera
yfirbyggður, aðeins góður
bíll kemur til greina. Uppl.
í síma 3774.
Sárhvem
ó eftir heita baðinu
æftuð þér að nota
NIVEA.það viðheld-
ur húð yðar mjúkri
og frískri. Gjöfult er
> NIVEA.
LAUGAVEC 10 - SIMl 33«»
• f
Oryggismerkin
sjálílýsandi fást í
Söluturninufii v. Arnarhól
SKIÐAFOLK! Farið verð-
ur í skíðaskálana um helg-
ina eins og hér segir: Láug-
ardag kl. 2 og kl. 6 e. h.
Sunnudag kl. 9 árd. — Afgr.
er hjá B.S.R. , Lækjargötu.
Sími 1720. Skiðafélögin.(000
Skólavörur
og bækur fyrir kennara,
foreldra og nemendur. —
Höfum tekið við skóla-
vöruverzlun þeirri, sem
Bókaútgáfa Menningar-
sjóðs hefur starfrækt und-
anfarin ár. — Þar eru m. a.
til sölu flestar bækur Rík-
isútgáfuhámsbóka. — Opið
á sama tíma og aðrar verzl-
anir, nema lokað klukkan
12—1,30 mánudaga til
föstudaga.
Ríkisútgáfa námsbóka
Skólavörubúð,
Hafnarstr- 8. PósthóJf ,1274.
K. F. (J. M.
Á morgun.
Kl.lOrf. h. Sunnudagaskóli.
- 10.30 f. h. Kársnesdeild.
— 1.30 e. h. Drengir.
— 8.30 e. h. Samkoma. Ást-
ráður ' Sigursteindórsson,
skólastjóri, talar. Allir vel-
komnir. (000
BIFREIÐAKENNSLA. Nýr
bíll. Simi 81038. (191
TAPAST hefir peninga-
budda á Bergsstaðastræti frá
nr. 40—44. Skilist á Bergs-
staðastræti 44. Fundarlaun.
FORSTOFUHERBERGI til
leigu við Laugarnesveg. Að-
eins reglusamur kárlni ;<ðu:r
kemur til greina. — Uppl.
í síma 5580. (186
HERBERGI til leigu að
Lynghaga 24. Sú, sem vill
sitja hjá börnum 2 kvöld í
viku, gengur fyrir. — Uppl.
á morgun kl. 5—-7. (.188
TIL LElGU 2 herbergi og
eldhús í risi fyrir 1—2
stúlkur. Tilboð, merkt: ,-,Ró-
legt — 344,“ seftdist afgr.
Vísis fyrir 15. jan. (187
EITT herbergi, helzt með
eldunarplássi, sérinngangi og
toiletti, óskast á hitaveitu-
svæðinu. Tilboð, sendist Vísi
fyrir þriðjudag, merkt:
„344,“(190
ERLEND stúlka óskar eft-
ir herbergi strax. Hringið í
síma 803Ó4. (194
HERBERGI til leigu í
Snekkjuvogi 23, uppi. (195
HERBERGI óskast fyrir
karlmann sem næst miðbæ.
Tilboð sendist Vísi, merkt:
Reglusemi — 346.“ (196
1 HERBERGI og eldhús
óskast strax. Einhver fyrir-
framgreiðsla eftir samkomu-
lagi. Tilboð merkt: „Tvö —
1957 — 347,“ sendist Vísi
fyrir 15 þ. m. (199
HAFNARFJÖRÐUR. —
Gott herbergi til leigu fyrir
einhleypan, reglusaman karl
eða konu. Uppl. í síma 9135.
KJALLARAHERBERGI
til leigu; hentugt fjTir tvo.
Uppl. í Bogahlíð 4, I. hæð til
vinstri. (202
2 HERBERGI til leigu að,
Rauðalæk 23. (170
LITHb herbergi til leigu í
Skipholti 5. (á03
LEIGA
PÍANÓ óskast til leigu til
vors. — Uppl. í síma 82480.
FATAVIÐGERÐIR, Aðal-
alstræti 16. Önnumst alls-
konar fataviðgerðir og
breytingar, einnig glugga-
tjalda- og rúmfatasaum,
púðauppsetningar o. fl. —
Fljót og góð vinna. Reynið
viðskiptin. — Geymið aug-
lýsinguna. (207
ATHUGIÐ. Tek enska
og íslenzka vélritun í heima-
vinnu. Sími 81372 í hádegi
ogeftir kl. 18.00 Geymið aug-
lýsinguna. (60
STÚLKA óskast í vist á
fámennt heimili. Sérher-
bergi. — Uppl. í síma 80542.
BOMUR ATHUGIÐ. —
Er byrjuð aftur kjólasaum.
Sníð og þræði. Sauma einn-
ig með og án frágangs. —
HannaKristjáns, Camp Knox
C 7. — - (164
HVER getur hjálpað mér
um vinnu hálfan eða allan
daginn. Margt kemur til
greina. Er reglusamur mað-
ur. Tilboð sendist blaðinu
fyrir 15. þ. m., merkt: „345.“
TEK HEIM ýmsan sauma-
skap, breytingar, viðgerðir
o. fl. Uppl. í síma 4251, kl.
2—5 í dag og á morgun. (192
HITINN kemur. — Mið-
stöðvax-ofnar hreinsaðir og
viðgerðir. Sími 3847. (208
INNRÖMMUN, málverka-
sala. Innrömmunarstofan,
Njálsgötu 44. Sími 81762. —
KAUPUM eir og kopar. —
Járnsteypan h.f. Ánanaust-
um. Sími 6570. (000
PLÖTUR á grafreiti fást á
Rauðarárstíg 26. Sími 80217.
KAUPUM flöskur, flestar
tegundir. Sækjum. — Sími
80818. (115
BARNAVAGNAR, barna-
kerrur mikið úrval. Barna-
rúm, rúmdýnur og leik-
grindur. Fáfnir, Bergstaða-
stræti 19. Sími 2631. (181
VIL KAUPA notaðan
skrifstofustól.— Uppl. í síma
5497. —_________________(184
SVEFNSÓFI, nýr, Ijóm-
andi fallegur, til sölu á að-
eins 2400 kr. á Grettisgötu
69. — (197
KLÆÐASKAPUR óskast
til kaups. Uppl. í síma 81296.
TVEGGJA herbergja kjall-
araíbúð, tilbúin undir tré-
verk, til sölu á Egilsgötu 22.
SÍMI 3562. Fornverzlunin,
Grettisgötu. Kaupum hús-
gögn, vel með farin karl-
mannaföt og útvarpstæki;
ennfremur gólfteppi o. iijl
fl. Fornverzlunin, Grettis-
götu 31.___________035
HÚSGAGNASKÁLINN,
Njálgötu 112 kaupir og
selur notuð húsgögn, herra-
fatnað, gólfteppi og fleira.
Simi 81570. (43