Vísir - 26.01.1957, Blaðsíða 1
47. árg.
Laugardaginn 26. janúar 1S57.
21. tbl,
Sími slitinn, samgöngur
stirðar við Snæfeílsness.
í Borgirfirði hafa samgöngur vsri5
sæmiiegar.
Frá fréttaritara Vísis. —
Borgarnesi í gær.
Jafnfallinn snjór má lieita um
allt Borgarfjarðarhéraðið og er
hann á að gizka fet á dýpt.
Samgöngur hafa verið nofck-
uð stirðar en þó ekki meir en
svo að'öll mjólk bæði úr Mýra-
og Borgarfjarðarsýslu, sem
flutt hefur verið til Mjólkur-
samlagsins í Borgarnesi hefur
náðst án verulegra tafa. Hafa
Reynir þorskveiðar
í hringnót.
Á Akureyri hefir verið gerð
tilratm til fiskveiða á firðinum
og er j>að Kristján Jónsson
kaupmaður, sem stendur fyrir
því.
Hefir hann fengið lánaða
fiski-hringnót hjá Fiskifélagi
íslands til reynslu .og var byrj-
að um síðustu helgi.
Hafa veiðzt um 13 tonn á
Hörgárgrunni og er það vænsti
þorskur spikfeitur. En gæftir
hafa verið slæmar. í gær var
róið; en fiskurinn kom svo seint
upp að farið var að hvessa og
var suðaustan rok á Akureyri
síðdegis í gær,
Er mikið um smásíld í firðin-
um um þessar mundir og er
þorskurinn að elta hana og hag-
ar sér eftir henni.
Tilraunum þessum verður
haldið áfram þegar veður still-
ast.
vegheflar frá Vegagerðinni
verið í gangi á vegum úti og að-
stoðað bílana eftir föngum.
Færðin vestur á Snæfellsnes
hefir aftur á móti verið mun
verri og mjólkurbíll sem átti
að koma þaðan að vestan á
miðvikudaginn, komst hingað
ekki fyrr en kl. 2 í nótt. Þá
voru í samfloti við hann 5 aðr-
ir bílar, þ. á. m. tveir áætlunar-
bílar, sem komu vestan úr Ól-
afsvík. Lögðu þeir af stað þaðan
klukkan hálf tíu í gærmorgun
og komu í Borgarnes um tvö-
leytið í-nótt. ,
Á miðvikudaginn hlóð mikl-
um snjó niður í logni og þá
safnaðist svo mikill snjór á
símalínur, að um 20 símastaur-
ar brotnuðu á leiðinni vestur
Mýrar og vestur á Snæfellsnes.
í dag átti að senda viðgerðar-
menn úr Reykjavík með Akra-
borginni hingað upp eftir og
kemst síminn væntanlega bráð-
lega í lag.
Géður þorskafli
víð NA-land.
Tvreir bátar stunda nú róðra
frá Húsavík og hafa aflað á-
gætlega.
Eru það Hagbarður 60 tonna
bátur og Hrönn_ sem er aðeins
15 tonn. Er þetta tilraun með
róðra frá heimahöfn á vetrar-
vertíðinni og hefir gefizt v’el það
sem af er.
70 færeyskar stiílkur
koma með Gullfossi.
Þær hafa verið ráðnar til starfa
í frystihúsum.
Með næstu ferð Gullfoss koma
70 færeyskar stúlkur sem ráðn-
ar hafa verið til starfa í frysti-
hsum á Islandi.
Gunnar Hafsteinsson, sem
fór á vegum Landssambands ís-
lenzkra útvegsmanna til Fær-
eyja í byrjun þessa mánaðar, er
nýkominn heim. Ásamt ráðn-
ingu sjómanna var honum falið
að ráða stúlkur í frystihúsin, ef
þess gæfist kostur.
Allmiklu erfiðara er að ráða
hingað kvenfólk en karlmenn,
bæði vegna þess að talsverð
vinna virðist vera fyrir þær
heima fyrir og svo fýsir þær
ekki til íslandsfarðar.
Þrátt fyrir þessar 70 stúlkur
ér fyrirsjáanlegur skortur á
vinnuafli í frystihúsum í hinum
ýmsu verstöðvum, ef vertíðin
verður sæmileg. Mun því vera í
ráði að Sölumiðstöð hraðfrysti-
húsanna sendi mann til Fær-
eyja til að reyna að ráða fleiri j
stúlkur til íslands.
Stúlkurnar sem koma með
Gullfossi fara til Vestmanna-
eyja, Keflavikur, Akraness og
til Ólafsfjarðar, en engar af
þessum hóp sem nú kemur
verður í Reykjavík.
Færeysku stúlkurnar íá yfir-
færðar af kaupi sínu 1000 krón-
ur íslenzkar á mánuði en það
svarar til 420 færeyskum krón-
um.
Að líkindum munu verða
hér yfir vertíðina 500 til 600
færeyskir sjómenn en talið var
í vertíðarbyrjun að ráða þyrfti
hingað um 1000 færeyska sjó-
menn ef fullnægja ætti eftir-
spurn eftir sjómönnum.
Nefiiru fiiarmc?
samfiiyfiikf Sþ.
Nehru hefur harmað sam-
allsherjarþingsins * Kaslimir-
málinu, en seyir, að hún geti
engu breytt.
Stjórnlagaþingið í þeim
hluta Kashmir, sem Indyerjar
hernámu, hefur nú leyst sjálft
sig upp, þar sem það telur sig
hafa lokið hlutverki sínu, en
það samþjrkkti fyrir ári stjórn-
arskrá um aðild að Indlandi
sem sambandsríki.
Gæziuí'5 Sþ.
takí scr sIöAu á
vop nalilcslí nnnni.
Hammarskjöld gerði - gær |
allsherjarþinginu grein fyrir
tilraunum sínum til að fá ísra-
el til að hlíta fyrirmælum í á-
lyktun þingsins um brottflutn-
ing liðs síns frá Akabaflóa og
Gazaspildunni.
Lagði Hammarskjöld til, að
gæzlulið frá Sþj. yrði látið taka
sérstöðu á vopnahléslínunni
frá 1949, sem allar hlutaðeig-
andi þjóðir samþykktu með
undirskrift fulltrúa ríkisstjórna
sinna.
Það gctur vel vcrið, að óþarft verði að standa t snjómokstri á
götum bæjarins, þegar þessi mynd kcmur fyrir sjónir lcsenda
Vísis. En vel getur líka verið, að veðurfarið hafi cnn brcytzfc
í nótt, og hann sé farinn að snjóa á ný. En hvað um það —
þessi mynd úr Austurstræti hefur verið táknræn síðustu daga.
(Ljósm. Gunnar Sverrisson).
Vegir á Suðurlandsundir-
lendi ófærir að kalla.
Byrjað var á snjóruðningi
austan f jalls I gær.
Verðmætt innbú varð eldi
að bráð í gær.
Ófyrirleitinn bílstjóri tafði ferð
slökkviliðsins á brunastað.
Stórtjón varð á innbúi Stein-
gríms búnaðarmálastjóra Stein
þórssonar er eldur kom upp
í húsi hans, Ásvallagötu 60,
um hádegisbilið * gær.
Eldurinn kom upp í skrif-
stofuherbergi Steingríms, sem
er í suð-vesturhorni hússins á
neðri hæðinni. — Sjálfur var
Steingrímur að tala í síma í
forstofunni, þegar eldsins varð
vart og vissi hann ekki fyrr
til, en hann var sjálfur um-
luktur eldtungum.
Svo fljótur var eldurinn að
breiðast út, að sonur Stein-
gríms, sem þarna var nærstadd
ur, komst nauðuglega upp stig
ann upp á efri hæðina til þess
að bjarga konu, sem þar var
stödd. Ekki komust þau niður
stigann aftur, heldur urðu að
fara eftir stiga, sem reistur
var frá jörðu upp á svalir á
efri hæðinni.
Eldurinn læsti sig í einni
svipan um tvær stofur á neðri
hæðinni og má heita, að allt,
sem inni í þeim var, hafi eyði-
lagzt — ýmist af eldi, vatni
eða reyk. Steingrímur átti m.
a. verðmætt bókasafn, sem
eyðilagðist að mestu, dýrmæt
málverk, sem hengu á veggj-
um, brunnu til ösku, sumstað-
ar sá aðeins eftir rytjur af um-
gjörðunum. Húsgögn eyðilögð-
ust sem þarna voru inni, svo
og ýmsir kjörgripir og minja-
gripir, sem naumast éða ekki
verða verðbættir.
Aðalskemmdirr.ar urðu eins
og áður getur á innbúi í tveim
stofum, en auk þess urðu og
nokkrar skemmdir á þriðju
stofunni, en tiltöiulega litlar á
forstofunni. Eldurinn komst
ekki upp á efri hæðina, en hit-
inn var svo mikill, að hann
hleypti upp málningu á stiga-
handriðinu allt upp að lofti á
hæðinni. — Eldurinn komst
hvergi' í milliveggi, sem eru
, úr timbri, en timbrið var klætt
i
striga og siðan veggfóðri og eft
ir því læsti eldurinn sig í einni
svipan.
Eldsupptökin munu, að því
er rannsóknarlögreglan hygg-
ur, mega rekja til rafmagns.
Hafði laus rafmagnstaug, sem
var í sambandi við tengil, leg-
ið bak við skrifborð Stein-
gríms í skrifstofunni. Við at-
hugun kom í ljós, að hún var
mjög núin orðin og skamm-
hlaup fannst í henni á einum
stað. — Talið er, að hún hafi
kveikt út frá sér.
Innbúið mun liafa verið vá-
tryggt mjög lágt, eða aðeins á
70 þús. kr.
Frh. á 8. s.
Frá fréttaritara Vísis.
Selfossi í gær.
Samgöngur um allt Suður-
landsundirlendið hafa veriJF
með cindæmum erfiðar und-
anfarna daga og sumir vegir
mega heita ófærir þótt stærstu
og kraftmestu bílar hafi
þrælast eftir þeim á löngum
tíma.
Sem dæmi um samgönguerf-
iðleikana má geta þéss, að
nokkrir mjólkurbílar, sem fóru
frá Selfossi snemma á mið-
vikudagsmorguninn til þess að
sækja mjólk i uppsveitir,
komu ekki til baka aftur f,Trr
en klukkan 3 í nótt og sá síð-
asti ekki fyrr en kl. 7 í morg-
un. Þá má enn fremur geta
þess, að bíll, sem fór frá Sel-
fossi með vörur upp að Laug-
arvatni, var heilan sólarhring
að komast fram og til baka. f
góðu færi mun vera 1—2 klst.
akstur hvora leið. Er víða um.
það bil hnédjúpur snjór á lág-
lendinu austan fjalls.
Vegurinn um Flóann mun
vera hvað beztur af vegum í
Árnessýslu og hann má telja
slarkfæran en þó þungan yfir-
ferðar. Vegir í Rangárvalla-
sýslu eru þungfærir, nema
helzt austur undir Eyjafjöll-
um. Þar er eitthvað snjólétt-
ara.
Ekki hafa vegir hér eystra.
verið mokaðir eða ruddir fyrr
en byrjað var að ryðja Holta-
veginn í dag.
Til Reykjavíkur var sæmi-
lega fært í morgun, en versn-
aði fljótt sökum skafhríðar og
um hádegisleytið gaf Vega-
Frh. á 8. síðu. j