Vísir - 29.03.1957, Síða 12
*elr, sem gerast kaupendur YÍSIS eftir
1C. hvers mánaðar fá blaðið ókeypis til
mánaðamóta. — Sími 1660.
VISIR
VÍSIS er éáýrasta blaðið og þó það f jöl-
breyttasta. — Hringið í síma 1660 eg
^erist áskrifendar.
Föstudaginn 29. marz 1957
Skipalest á leið um Suezskurð -
hin fyrsta frá því á sl. hausti.
Santtt óvisstt ttttt tleiítt-
tttttlitt ftttv eysivtt.
r Skipalest er nú á Ieið um
Suezskurð, í fyrsta sinn síðan
er Nasser sökkti skipunum í
skurðinum, en þau reyndust
44 talsins. í skipalestinni eru
11 skip.
í fregnum um þetta frá Kairo
segir, að skip allt að 20.000
smálestir geti nú farið um
skurðinn.
Styrjaldarástand.
Dr. Fawsi utanríkisráðherra
Egyptalands aíhenti í gær
sendiherrum nokkurra ríkja
orðsendingu, til þess að gera
grein fyrir afstöðu egypzku
stjórnarinnar, og kemur þar
fram, að hún hefur ekki breytt
þeirri afstöðu sinni, að styrj-
aldarástand ríki enn milli
Israels og Egyptalands, og því
augljóst að hún telur sig hafa
rétt til að stöðva israelsk skip
og hindra siglingar þeirra um
skurðinn. Seinasta hindrunin,
skipið Edgar Bonner, hefur nú
verið fjarlægt úr skurðinum.
Kostnaður.
Eitt hinna óútkljáðu deilu-
mála, er hvernig deila skuli
kostnaðinum við að ryðja
skurðinn, og hafa sérfræðing-
ar Sameinuðu þjóðanna m. a.
það til meðferðar. Hafa komið
fram ýmsar tillögur um hversu
skuli leysa þennan vanda og
StúdentaráS fer úr Al-
þjóðasambandi.
Síúdentaráð hefir nú ákveð-
ið, að segja sig úr Alþjóðásam-
foandi stúdenta.
Gerðist það á fundi þess, sem
Iialdinn var þann 27. þ. m. Al-
þjóðasamband stúdenta hefir
aðsetur í Prag.
Úrsögnin var samþykkt mót-
atkvæðalaust. og greinargerð,
eem henni fylgdi, en fjórir full-
trúar sátu hjá við atkvæða-
greiðsluna.
Hafði Stúdentaráð Háskóla
fslands gerzt aðili að Aljóða-
sambandinu árið 1955, en orsök
úráagnairnnar er ágreiningur
um Ungveralandsmálin.
Mso'gir koma
til greina*
Frá fréttaritara Vísis. —
Oslo í fyrradlag.
Fyrir nokkru kom það fyrir,
að 15 ára telpa í Þelamörk
eígnaðist barn.
Þegar hún var spurð um föð-
ur barnsins, tilgreindi hún sam-
tals 12 menn, er hún sagði, að
kæmu til greina við ákvörðun
faðernis. Getur farið svo, að
mennirnir verði allir kallaðir
fyrir rétt.
því spáð, að erfitt verði að ná
samkomulagi. M. a. hefur kom-
ið til greina að ná inn kostnað-
inum með hækkuðum skipa-
tolli, að þátttökuríkin í ruðn-
ingsstarfinu gefi eftir kostnað-
inn, að ríkin sem réðust á
Egyptaland, greiði hann.
Óvissa.
Eins og getið var í fregnum
í gær hafa Egyptar boðað, að
venjulegar siglingar um skurð-
inn geti hafist 10. apríl. Banda-
ríkjamenn hafa nú fetað í fót-
spor Breta og varað við sigl-
ingum um skurðinn vegna
þess, að siglingar um hann séu
ekki öruggar enn. Bretar höfðu
rætt um tundurdufl á siglinga-
leiðum í sinni tilkynningu. —
Bandaríkjastjórn kveðst ekki
banna bandarískum skipum að
sigla um skurðinn, en minnir á,
að eftir sé að semja um fram-
tíðarrekstur og stjórn skurðs-
ins.
Gagnslausar
tillögur.
Golda Meier, utanríkisráð-
herra ísraels, ræddi í gær við
fréttamenn frá nokkrum þjóð-
um og sagði, að ísraelsmenn
hefðu furðað sig á og hneykslast
á því, að Hammarskjöld skyldi
fallast á, að Egyptar kæmu aft-
ur til Gaza. Ennfremur sagði
hann gagnslaust að bera fram
tillögur um, að staðsetja flokka
úr gæzluliði Sameinuðu þjóð-
anna beggja vegna landamær-
anna. ísrael myndi alls ekki
fallast á gæzlulið innan landa-
mæra sinna.
IVIakarios fer
til Aþenu.
Tilkynningin um Makarios
erkibískup, sem birt var í Lon-
don í gær, vakit mikinn fögn-
uð á Kýpur. Hann er nú frjáls
ferða sinna, en má þó ekki koma
til Kýpur þegar.
Mun hann leggja af stað frá
Seychelleseyjum með fyrstu
skipsferðum ásamt klerkum
þeim, sem eru í haldi með hon-
um, og halda til Aþenu til við-
ræðna við grísku stjórnina.
Á Kýpur söfnuðust menn
saman og létu fögnuð sinn í ljós,
kirkjuklukkum var hringt og
þakkarmessur sungnar, en eng-
inn skeytti um útgöngubann, og
létu Bretar það afskiptalaust.
Happdrætti Barð-
strendmgafélagsins.
Þann 15. þ. m. var dregið í
hcimilistækjahappdrætti Barð-
strendingafélagsins og komu
upp eftirfarandi vinningsnúm-
er:
Rektor Hafnarháskóla
væntanlegur hmgai.
Rektor Kaupmannahafnar-,
háskólans, hinn heimsfrægi,
danski læknir, prófesscr Erik
Warburg, kemur hingað til
lands í næstu viku í boði
Dansk-íslenzka félagsins.
Mun hann koma hingað á
föstudaginn í næstu viku og
flytja fyrirlestra í Læknafélagi
Reykavíkur 8. apríl.
Danskíslenzka félagið starfar
nú af miklum krafti og er tala
meðlima hér í Reykjavík um
300, en auk þess eru nokkrir
meðlimir úti á landi.
Hefir félagið m. a. efnt til
sýninga á fræðslukvikmynd-
um frá Danmörku og haft for-
göngu um, að danski sendi-
kennarinn hér við Háskólann,
Erik Sönderholm, læsi upp á
dönsku í framhaldsskólum hér.
Þá veitir félagið einnig árlega
verðlaun þeim nemendum,
sem skara fram úr í dönsku á
stúdentsprófi.
Stórn félagsins skipa nú:
Formaður Friðrik Einarsson,
læknir; ritari Sófónías Pálsson,
skipulagsstóri; gjaldkeri Har-
aldur Ágústsson, húsgagna-
smíðameistari, og meðstjórn-
endur, Ludvig Storr aðalræðis-
maður, Guðni Ólafsson, apó-
tekari, Brandur Jónsson, skóla-
stóri, og Guðmundur Þorláks-
son cand. mag.
Miklar skemmdir af eldi
á Sólvangi við Sléttuveg.
IVIaður finnst örenffiuj á götu
e KópavogL
Síðdegis í gær kviknaði í þeir lögreglunni í Reykjavík
húsinu Sólvangi við Sléttuveg strax aðvart, er brá við þegar
og hlutust af verulegar skemmd í stað og flutti manninn í slysa-
ir. — I varðstofuna. Var maðurinn þá
Það var rétt fyrir kl. 7 í gær- ! örendur. Hann hét Jóhannes
kvöldi, sem slökkvilioYð var Þorleifsson til heimilis að Tungu
kvatt á vettvang, og þegar það við Fífuhvamm, 56 ára að
kom á staðinn var bæði tals-
verður eldur og mikill reykur
á rishæð hússins, en þarna er
um lítið timburhús, einlyft með
risi að ræða.
í risinu var geymd ýmis kon-
ar dót og er talið að kviknað
hafi í því út frá raflögn.
Til þess að komast að eldin-
um varð slökkviliðið að rjúfa
aldri. Um banamein hans
blaðinu ekki kunnugt.
er
Harður árekstur.
í nótt varð harður árekstur
tveggja bifreiða á mótum Njarð
argötu og Sóleyjargötu. Við á-
reksturinn kastaðist önnur bif-
reiðin á ljósastaur og reif hann
upp.
Slysa á mönnum og skemmda
Brezkir ferðaskrifstofu-
menn í boði Loftleiða.
Sex eigendur ferðaskrifstofa
í Bretlandi og Skotlandi koma
til Reykjavíkur í fyrramálið
með Loftleiðaflugvél frá New
York og munu þeir dvelja hér
til sunnudagsmorguns í boði
Loftleiða.
Sexmenningarnir unnu far-
miða sína í happdrætti, sem
Loftleiðir efndu til í tilefni af
opnun skrifstofu Loftleiða í
London. Nöfn hinna sex gesta
voru dregin úr öskju með nöfn-
um 1400 ferðaskrifstofa á Bret-
landseyjum. Vinningarnir voru
sem sagt ferð til Bandaríkjanna
með viðkomu á íslandi. Enn
fremur var boðið blaðamanni
frá ferðamálatímaritinu Travel
Trade Gazette.
þekjuna, því með öðru móti á farartækjunum er ekki getið.
varð útbreiðsla hans ekki heft.
Tók það talsverðan tíma unz
eldurinn var að fullu kæfður og
hafði hann þá unnið verulegt
tjón á því sem geymt var í ris-
hæðinni, en auk þess urðu all-
miklar skemmdir á íbúðinni á
neðri hæðinni af völdum vatns
og reyks. En eldurinn komst
ekki þangað niður.
Maður finnst örendur.
í gærdag, um hálfsexleytið
e. h., sáu vegfarendur hvar full
orðinn maður lá hreyfingarlaus
á Hlíðarvegi í Kópavogi. Gerðu
Sprenging í
Algeirsbcrg.
Al-
Sprenging var í húsi
geirsborg í gærkvöldi.
Tveir menn biðu bana, en
allmargir meiddust. — Alsírsk-
ir þjóðernissinnar eru taldir
hafa haft bækistöð þarna.
23 stúfkuf við
fEugþernunám.
Vegna fjölgunar á flugferð-
um í sumar þurfa Loftleiðir að
fjölga flugþemum í þjónustu
sinni og hafa 23 stúlkur verið
valdar úr hópi 30 umsækjanda
til þjálfunar.
Stúlkurnar eru nú á fjögurra
vikna námskeiði, sem á að veita
þeim nauðsynlega þekkingu á
hinu fjölþætta starfi flugþern-
unnar. Stúlkurnar eru á aldr-
inum 20—25 ára og eru flestar
Reykvíkingar. Loftleiðir ráð-
gera að ráða 14 til 15 flugþern-
ur til viðbótar þeim, sem nú
starfa hjá flugfélaginu. Flug-
þernur Loftleiða munu verða
32 talsins í sumar.
Ríkisábyrgð vegna flug-
vélakaupa Loftleiða.
Félagið fær tvær LockheedvéSar um
áramótin 1959-60.
Þeir velunnarar Neskirkju,
sem ætla að láta eitthvað af
hendi rakna til kirkjunnar, eru
vinsamlega beðnir að koma því
til hr. verzlunarstjóra Sigurð-
ar Einarssonar í Verzl. Björn
Kristjánsson.
15969, 17441, 15598, 16813,
19472, 8705, 5354, 6518, 5360,
12563.
Vinninganna ber að vitja hjá
Kristjáni Halldórssyni, Laufás-
vegi 36.
Alþingi hefur heimilað ríkis-
stjórninni að ábyrgjast aUt að
53 miUjón króna lán fyrir Loft-
leiðir h/f tU kaupa á tveim
Locklieed ELECTRA L-188 fai'-
þegaflugvélum.
Var þingsályktunartillaga þess
efnis tekin til síðari umræðu á
fundi sameinaðs þings í fyrra-
dag og þá lagt fram álit fjárveit-
inganefndar. Hafði hún fjallað
um tillöguna og m. a. kvatt á
fund sinn Sigtrygg Klemenzson
ráðuneytisstjóra í fjármálaráðu-
neytinu, sem ásamt Benjamín
Eiríkssyni bankastjóra hefur
athugað drög að samningum um
flugvélakaupin.
Stendur málið þannig, að Loft-
leiðir h/f þurfa að undirrita
fullnaðarsamning fyrir næstu
mánaðamót, til þess að geta
fengið flugvélarnar afhentar um
áramótin 1959/1960. Kaupverð
beggja vélanna er 75,6 milljónir
króna, og ríkisábyrgð nauðsyn-
leg fyrir 70% þeirrar upphæðar
eða tæplega 53 milljónir króna,
en það er sá hluti kaupverðsins,
er greiðslufrestur fæst á.
Áætlun um greiðslufyrir-
komulag »virðist fjárveitinga.
nefnd raunhæf, en Loftleiðir Ii/f
telja sig geta greitt 14/15 hluta
af andvirði hinna nýju flugvéla
með eigin gjaldeyristekjum, -—
þ. e. a. s. bæði tekjum af rekstri
félagsins og svo sölu þeirra véla,.
er það á nú.
Fjárhagsnefnd mælti einróma
með samþykkt þingsályktunar-
tillögunnar, og hlaut hún sam-
róma stuðning 33 þingmanna,
sem viðstaddir voru afgreiðslu
málsins.
Lockheed ELECTRA flugvél-
ar geta flutt 88 farþega og er
flughraði vélanna 640 km. á
klukkustund.