Vísir - 02.04.1957, Síða 1

Vísir - 02.04.1957, Síða 1
*<• arg. Þriðjudaginn 2. apríl 1957 78. tbl. ÖrcEeyða á fflóarauara: Meins 40 Eestir af 15 bátum á Akranesi í gær. Tveir fengu aðeins í soðið. — Afla- tregða hjá Suðurnesjabátum. Lengi getur vont versnað og! svo er með aflabrögðin á Akra- 1 nesi. í gær komu 15 bátar með samtals 40 tonn. Einn bátur var með 240 kg., en annar kom ekki með afla sinn á vigt. Það var aðeins nóg í soðið fyrir sjó- mennina. . Nú eru menn orðnir von- daufir um að úr ætli að rætast með línuvertíðina og eru þrír bátar að taka net. Þrátt fyrir þessa aflatregðu er heildarmagnið orðið 5008 smál. frá vertíðarbyrjun í 970 sjóferðum. A sama tíma í fyrra var heildaraflinn 5706 smál. í 827 sjóferðum. Meðalafli í róðri var þá mun meiri eins og sést á þessum samanburði. Fer hér á eftir afli bátanna: Sigurvon 321, Höfrungur 317, Guðmundur Þorlákur 310, Skipaskagi 304, Reynir 310, Bjarni Jóhannesson 301, Sig- rún 260_ Keilir 245, Heimaskagi 245, Farsæll, 235, Fram 229, Ólafur Magnússon 225, Böðvar 219, Sveinn Guðmundsson 218, Ver 216, Sæfaxi 203. Átta bótar hafa 172 smál. og minna. Bjarni Ólafsson kom með 200 Á síðasta fundi Bæjarráðs var samþykkt að veita Pálma Gunnarssyni og Svavari Björnssyni löggildingu til þess að starfa við lágspennu- veitur í Reykjavík. smál. p r karfa sem hann fekk á sólarhring. Sandgerði. Fréttaritari Vísis í Sandger&i símaði í morgun að afli bátanna færi stöðugt minnkandi. Und- anfarna daga hefir aflamagnið verið frá tveimur upp í 4 ámál. í róðri. Ef þessu heldur áfram má búast við, að aðkomubátar hætti og haldi hcim. Hafa menn rætt um það, ao hætta ef ekki bregður til batnaðar, en flestir munu þó halda áfram til páska. Loðna veiðist í Akureyrarpolli. Frá fréttaritara Vísis. Akureyri, í gær. Undanfarna daga hefir verið mikil loðnuganga lun Eyja- fjörð og alla leið inn á Akur- eyrarpoll. Akureyringar hafa lagt tölu- verða stund á loðnuveiði frá því er loðnugangan ófst. Á sunnudaginn öfluðu bátar um 130 tunnur af loðnu og fóru 100 tunnur af því í frystihús Kea á Akureyri. Veiðum þessum verður hald- ið áfram, ef markaöur helzt fyrir loðnuna. Hæsti bátur með 35 1. Bezti afladagurinn í Vest- mannaeyjum í gær. Fiskigengd á Selvogsbanka en ördeyða í Faxaflóa. Þingið kjósi útflutnísigs- nefnd sjávarafurða. Þriðju umræðu í efri deild um frumvarp stjórnarinnar inn söln og útflutning' sjávarafurða var frestað í gær, eftii' að Sigurður Bjarnason hafði mælt fyrir breytingartillögnni, sem lxann flytur ásamt Jólianni Þ. Jósefs- syni. Eru bi'eytingartillögui'nar á sömu leið og tillögur sjálfstæðis- manna í neðri deild um daginn og miða að því að sameinað alþingi kjósi útflutningsnefnd sjávarafurða í stað þess að x'áð- herra skipi hana. Ennfremur leggja þeir til að vald ríkis- stjórnarinnar í héild til afskipta af málum þessum verði vikkað, í stað þess að leggja það óskoi'- að í hendur sjávarútvegsmála- í'áðherra eins. Málið er á dagski'á þingsins i dag. Fimm ieknir fyrír ölvun vió akstur. j Um síðustu helgi tók lög- reglan í Reykjavík fimm bíl- stjóra, sem voru við akstur undir áhrifum áfcngis. Þá tók lögreglan í gær ölv- aðann mann á reiðhjóli í Póst- hússtræti, í gær var lögreglan kvödd inn að Elliðaárvogi vegna barna sem höfðu farið út á voginn á fleka. En börnin voru kominn að landi heil á húfi þegar lög- reglan kom á vettvang. Um miðjan dag í gær datt gömul kona í Lækjargötu og meiddi sig. Hún var flutt í Slysavai'ðstofuna til athugun- ar, en ekki er biaðinu kunnugt um ineiðsli hennír. Hitamál á þingi! Jarðhiti undir 100 m. sé almenningseign. Frv. um jarðhita lagt fyrir Alþingi í gær. Nýtt frumvarp imi jarðhita var lagt fram á alþingi í gær. Er það samtals 66 greinar, sem skipt er niður í 9 kafla. Frumvarpið er samið af nefnd, sem skipuð var í tið fyrrverandi ríkisstjómar, til þess að undir- búa löggjöf um jarðhita og jarð- hitarannsóknii'. 1 henni áttu sæti þeir Jakob Gíslason, raforku- málastjóri, formaður, Ólafur Jóhannesson, prófessor, og Gunnar Böðvai'sson, yfirvei'k- fræðingur, en síðar kom Baldur Líndal, efnaverkfræðingur einnig til starfa í nefndinni. Frumvarpið er að stofni til byggt á þeim lagaákvæðum, sem nú eru í gildi um jai'ðhita, og er ætlað að koma í þeiri-a stað, ef að lögum verður. Samkvæmt fi’v. er gi-eint á milli umi’áða- og hagnýtingarréttar á jarðhita eítir því, hversu djúpt jarðhit- inn er sóttur. Ef jai’ðhitinn er ofar í jörðu en 100 metra undir yíirborði, er hitinn háður ein- staklings eignarrétti, — en jarð- hiti, sem dýpra verður að sækja, er aftur á móti almannaeign í umráðum í'íkissins. Við undh'búning frumvarþs- ins safnaði nefndin meðal annars að sér magvíslegum gögnum um jarðhitamálefni p. þ. h. frá Nýja-Sjálandi, Ítalíu og Mexicó. 90% myndu svíkja Kadar. Samkvæmt áreiðanlegiun fregnum frá Vínarborg er end- urskipulagning íxinnar alræmdu AVO-leynilögreglu í Ungverja- landi á döfinni. M. a. er gert ráði fyrir 40.000 manna foringjaliðd. í lögregl- una eru aðeins teknir þeir, sem ,.hægt er að treysta stjórnmála- lega“, en þrátt fyrir það er það ætlan þeirra. sem gei-zt eru kunnugir, að ef til nýrrar frelis byltingar kæmi, myndu 90% ganga í lið með fólkinu gegn Kadar og stjórn hans. 155 bjóða blóð á ísafirði. Frá fréttaritara Vísis. ísafirði á föstudag. Nýlega var |hafizt lxanda um að skrá menn í blóðgjafasveit hér í kaupstaðmim. Hefir þetta borið góðan ár- angur því að skrásettir hafa verið 155 manns, 118 karlar og 37 konur. Sveitin mun starfa .við sjúkrahúsið undir stjórn sjúkrahúslæknis. Frá fréttaritai'a Vísis — Vestmannaeyjum í morgun. I gær var bezti afladagiu’inn á vertíðinni og voru margir bát- ar með mjög góðan afla og m.a, nokkrir sem fengu 34 til 35 lesth- í róðri Vinnslustöðin tók á nxóti 400 lestum af 23 netabátiun og 11 handfærabátum. • Um mánaðarmótin voru þessir b’tar hæstir: Gullborg 587 lestir, Stigandi 499, Björg SU 454, Snæ- fugl SU 451, Kristbjörg 450, Bergur 388, Gullfaxi 384 Bjöi’g 383 og Sideon 363. Tölur um heildarafla í Vest- mannaeyjum frá áramótum til 1 apríl birtast í blaðinu á moi’g- un. Grindavík. 1 morgun þegar Vísir átti tal við fréttai’itai'a sinn i Grinda- vik var ekki lokið að fullu \’ið að vigta af bátunum en talið að afli þeii-ra — 20 talsins myndi vei'a nálægt 180 lestum. Voru margir þein’a með 10 til 13 lestir á bát en komust niður í tæpar 2 lestir sem minnst veiddu. 1 dag er sjóveður gott og allir bátar á sjó. Heildai'afli Grindavíkurbáta, það sem af er vertíðinni, er 6109 lestir í samtals 810 róðrum, en það gerir að meðaltali 7,5 lestir í róðri. Á sama tíma í fyrra var róði'a- fjöldinn ekki nema 642 talsins, en heildaraflinn aftur á móti 6022 lestir. Það svarar til þess að hver bátur hafi fengið 9.4 lestii' í í'óðx’i að meðaltali, eða j nær tveimur lestum meira í hverjum róðri heldur en á ver- tíðinni í vetur. Aflahæstur Grindavíkurbáta á vertíðinni í vetur er Hrafn Sveinbjai'narsson, sem aflað hefur 473.6 lestir fi’am til þessa. Lítill drengur lendir fyrir bíL Telpan emi rænn- laus. í gær varð slys á Njálsgötn. nióts við Iiiis nr. 4. Fimm ára gamall drengur Gunnar Friðrik Guðmundsson, Njálsgötu 14, hljóp þar fyrir bil og féll á götuna. Var hann fluttur á slysavarð- stofuna og kom í ljós að hann hafði fengið skui’ð á höfuðið og heilahristing. Var skurðurinn saumaður saman. Meiðsli di’engsins munu ekki talin alvarleg. Litla telpan, sem slasaðist á Suðurlandsbrautinni s.l. laugar- dag, liggúr enn rænulaus á Landsspítalanum. Er orðið nokkuð rnikið af þvi, að börn lendi í umferðaslysum og ættu foi’eldi’ar að gæta betur barna sinna nú, þeqar veður batnar og börn fara að verða rneira úti. Þjóðviljinn hjálpar við „skoðanamyndun". Birtir bréff BuKganins tiB INÍorð- nianna. Menn minnast þess, að þegar kvislingurinn Kadar var nýsetztir á ráðherrastól austur í Ungverjalandi, og var varla búinn að birta stefnuskrá sína, kom sú stefnuskrá á prenti í Þjóðviljanum. Fann mönnum einkennilegt, hversu skjótar fregnir blaðið hafði af stefnuskrá stjórnar Kadars, en Þjóðviljinn upplýsti, að það væri svo sem ekki af þvi, að hann væri hlynntur Kadar, að hann birti stefnuskrá hans. Öðru nær! Hann vildi aðeins veita mönnum aðstoð við „sjálfstæða skoðanamyndun“. Menn trúðu því víst mátulega! Og nú er Þjóðviljinn aftur að aðstoða lesendur sína við „sjálfstæða skoðanamyndun“. því að engum kemur til hugar, að einhver önnur ástæða sé fyrir því, að hann ver f dag meira en hálfri síðu til að birta upphaf bréfsins frá Bulganin til Einars Gerhardsens, forsætisráðherra Noregs. Menn hafi það hugfast — eins og þegar Þjóðviljinn birti stefnuskrá Kadars — að ekki ber að skilja þetta svo, að Þjóðviljinn sé sammála Bulganin. Og Þjóðviljinn getur verið alveg rólegur: Engum kemur til hugar að bendla hann við þjónkun við húsbændurna í Kreml.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.