Vísir - 02.04.1957, Qupperneq 4
4
VÍSIR
Þriðjudaginn 2. apríl 1597
D A G B L A Ð
Ritstjóri: Hersteinn Pálsson.
Auglýsingastjóri: Kristján Jónsson.
Skrifstofur: Ingólfsstræti 3.
'Afgreiðsla: Ingólfsstræti 3. Sími 1660 (fimm línur)
Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F.
Lausasala kr. 1,50.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Hý sckn kcmmiÍEHSta.
Höfuðpaurar kommúnista,
mennirnir, sem sitja í Kreml;
hafa verið önnum kafnir við
bréfaskriftir að undanförnu.
Ekki hafa þáð þó verið ein-
tómar vinarkveðjur og
heillaóskir til nágrannanna,
sem þeir hafa lagt í póstinn,
heldur hefir verið um hótanir
að ræða, þótt sumir muni
sennilega aðeins vilja kalla
það vinsamlegar ábendingar
um það, hvernig viðtakend-
um sé hyggilegast að hegða
sér og haga málum sínum,
til þess að falla ekki í ónáð
hjá ráðamönnum stórveldis-
ins.
Það er Búlganin forsætisráð-
herra Sovétríkjanna. sem
látinn er standa í þessum
bréfaskriftum. Hann skrif-
aði — eins og menn vita —
bréf til norsku stjórnarinn-
ar fyrir fáeinum dögum, og
fer þar ekki dult með það,
að Rússum lízt ekki á það,
að Norðmenn skuli leyfa sér
að víggirða land sitt til að
auka öryggi sitt. Sagði Búlg-
anín í bréfi sínu, að Rússar
teldu, að í Noregi væri
komið upp herstöðvum til
árása á Sovétríkin, og' síðan
kom rúsínan,hótunin umþað,
að þetta gæti leitt til þess, að
harðar árásir yrðu gerðar á
Noreg, ef stríð yrði.
Hér er bersýnilega verið að
reyna að hræða norsku
stjórnina frá þeirri stefnu,
sem hún hefir fylgt í utan-
ríkis- og landvarnamálum
sínum. Engum kemur til
hugar, að Norðmenn muni
gera árás á nokkra þjóð að
fyrra bragði. en þeir vilja að
sjálfsögðu geta varið hend-
ur sínar eftir mætti, ef á þá
verður ráðizt. Þeim lærðist
það 1940, að erfitt er að trúa
loforðum einræðisríkja_ þótt
þau boði frið og hlutleysi, og
álíta sennilega ekki komm-
únistastjórnina í Rússlandi
hóti betri en nazistastjórn-
ina, er réðst á Noreg vorið
1940.
Engumkemur sennilega til hug-
ar_ að Rússar mundu síður
gera árás á Noreg, ef til
styrjaldar kæmi, þótt Norð
menn hættu við að koma upp
víggirðingum og herstöðv-
um. Varnarleysi Noregs yrði
áreiðanlega til þess, að því
yrði hættara við árásum en
ella og árásirnar yrðu áreið-
anlega heiftarlegri, þar sem
ekki væri um neinar varnir
að ræða. Það er ekki vin-
fengi við Norðmenn, sem ér
á bak við bréfaskriftirnar,
og ekki frekar við Dani, er
hafa fengið samskonar bréf
frá Búlganín. Hér er um að
ræða. að kommúnistar ætla
að reyna að beita hinum
venjulegu ógnunar- og hót-
unaraðferðum sínum til að
koma ár sinni fyrir borð.
Það er mjög ósennilegt, að
bréfin frá Búlganín til Norð-
manna og Dana beri þann
árangur, sem þeim er ætlað.
Báðar þessar þjóðir þekkja
einræðisríki af biturri
reynslu, og þær vita, að það
getur verið hættulegt að
treysta þeim of vel. Það er
þess vegna, sem þær hafa
komið upp hjá sér nokkrum
vörnum og vilja halda þeim
við eftir mætti. Þær geta
treyst því, sem þær gera
sjálfar, en ekki hinu, sem
ófyrirleitnir harðstjórar úti í
heimi segja þeim, að gera
beri. Þess vegna mun þessi
nýja „friðarsókn“ kommú-
ista fara út um þúfur.
Ekkert bréf hingað.
Almenningur ræðir það nú,
hvort íslenzka ríkisstjórnin
muni ekki eiga von á bréfi
frá Búlganín forsætisráð-
herra eins og ríkisstjórnir
Norðmanna og Dana. Mönn-
um hefir skilizt það á komm-
únistum, að hér væri einmitt
verið að koma upp her-
stöðvum, sem nota mætti til
árása á Sovétríkin, svo að
ekki virðist vanþörf á því að
kenna íslendingum manna-
siði í þessum efnum. Og
kommúnistar hér hafa raun-
ar einnig'tilkynnt alþjóð, að
svo kunni að fara að það
detti austræn sprengja á ís-
Mikil skógræðslustörf
■ Eyjafirði.
Áætlað að grdðursetja 50 þús. plöntur
á þessu ári.
land, úr því að hér hefir ver-
ið komið upp varnarstöðvum.
Það mun hafa verið Molotov,
sem lét svo um mælt fyrir
réttu ári, þegar Alþirigi hafði
gert kommúnistasamþykkt-
ina um brottför varnarliðs-
ins, að hann hefði vitað, að
þetta mundi verða — rúss-
neskir kommúnistar ættu
góða og ötula vini á íslandi.
Ef til vill telur Búlganín ó-
þarft að skrifa íslendingum,
af því að „vinirnir“ muni (
koma að meira gagni en bréf ,
frá honum. Það verður fróð-
legt að sjá, hvort nokkur.
pistill berst í hvíta húsið við
Lækjartorg 1
Frá fréttaritara Vísis.
Akureyri, í gær.
Aðalfundur skógræktarfé-
Iags Eyjafjarðar var jlialdinn á
Akureyri sl. laugardag. Fund-
inn sátu 28 fulltrúar frá 8 fé-
lagsdeildum í héraðinu.
Framkvæmdastjóri félagsins,
Ármann Dalmannsson, gaf
skýrslu um störf þess á sl. ári.
Gi'óðursettar höfðu verið rúm-
lega 55 þúsund plöntur, aðal-
lega birki- og barrplöntur.
Starfrækt var uppeldisstöð svo
Virðufeg útför Jdns
MorÖfjörÖs feikara.
Frá fréttaritara Vísis.
Akureyri, í gær.
Útför Jóns Norðfjörðs leik-
ara og bæjargjaldkera fór fram
sl. laugardag að viðstöddu fjöl-
menni.
í kirkju fluttu ræður þeir
síra Sigurður Stefánsson pró-
fastur á Möðruvöllum og sira
Pétur Sigurgeirsson á Akur-
eyri, en kirkjukórinn söng
undir stjórn Jakobs Tryggva-
sonar og Jóhann Konráðsson
söng einsöng.
Á laugardagsmorguninn minnt
ist skólameistari Menntaskól-
ans á Akureyri, Þórarinn
Björnsson, Jóns Norðfjörðs með
stuttri minningarræðu á sal.
Þá má loks geta þess, að sam-
leikarar Jóns úr Leikfélagi
Akureyrar minntust hans sl.
föstudag í samkomuhúsi Akur-
eyrar. Við það tækifæri söng
Björg Baldvinsdóttir Maríu-
bæn úr „Gullna hliðinu“, eftir
Davíð skáld, en Guðmundur
Gunnarsson, form. Leikfélags-
ins, minntist Jóns með ræðu.
Má geta þess, að Jón heitinn
var í þann veginn að ljúka við
æfingar á Gullna hliðinu, er
hann tók sótt þá, sem leiddi
hann til bana.
ft Vja biö:
Kát og kærulaus
Ævisögubrot gamallar Broad-
way-stjörnu, sett saman af mikl-
um vanefnum, þannig að efnis-
þráður myndarinnar verður
harla lítill.
David Wayne á þarna lítið
hlutverk, en honum hefur oft
tekizt betur. Oscar Levant á
heldur betri leik, auk þess sem
hann er mjög fingrafimur píanó-
leikari.
Mitzi Gaynor heldur myndinni
uppi með nokkrum ágætum
dansatriðum, og svo er nú
kroppurinn á henni sannarlega
þess virði, að utan um hann
hafi verið gerð heil kvikmynd.
Auk þriggja ofangreindra,
ieikur ungur maðui' með liðað
hár í mynd þessari. Hann hlýtur
að vera náfrændi leikstjórans
eða bara eigandi kvikmynda-
versins.
Ágæt mynd að sjá klukkan
fimm fyrir skrifstoíumenn, sem
ekki nenna strax heim til sín.
Spói,
sem gert hefir verið á undan-
förnum árum og þar var sáð
ýmsum trjáíræstegundum í
samals 477 fermetra lands.
Á árinu voru seldar 48 þús.
plöntur úr stöðinni, mest birki
og skógarfura. Unnin voru 175
175 dagsverk í sjálfboðavinnu
á vegum félagsins á árinu.
Niðurstöðutölur fjárhags-
áætlunarinnar fyrir yfirstand-
andi ár eru 164 þús. kr. Áætlað
er að gróðursetja 50 þús. trjá-
plöntur á þessu ári. í félaginu
eru nú hátt á 6. hundrað fé-
lagsmenn.
Á fundinum voru ýms mál
rædd, auk þess sem kosin var
stjórn og kjörnir fulltrúar á
næsta þing Skógræktarfélags
íslands. Stjórn félagsins skipa:
Guðm. Karl Pétursson form.
og meðstjórnendur Ármann
Dalmannsson_ Björn Þórðarson,
síra Benjamín Kristjánsson,
Helgi Eiríksson á Þórustöðum,
síra Sigurður Stefánsson á
Möðruvöllum og Þorsteinn
Davíðsson.
Að fundi loknum bauð skóg-
ræktarfélagið fundarmönnum
til kaffidrykkju og loks voru
sýndar skuggamyndir.
Nýjar tiilögur um vanda
mál Austurlanda.
Casey, utauríkisráðherra
Ástralíu hefur Iagt fram til-
lögur til lausnar vandamálum
nálægra Austurlanda.
Tillögurnar eru í megin-
atriðum:
1. Egyptaland og Israel
skuldbindi sig tii að hlíta í
hvívetna ákvæðum vopnahlés-
samninganna.
2. Afvopnað verði svæði
beggja vegna iandamæranna
og verði það falið gæzlu Sam-
einðu þjóðanna.
3. Vandamál arabískra
flóttamanna verði leyst með
samkomulagi um að koma þeim
fyrir til frambúðar.
4. Siglingar um Akaba og
Suezskurð verði írjálsar.
5. Heildaráætlun verði gerð
um umbætur alira hinna ná-
lægu Austurlanda.
Heklukvikmynd
endursýnd.
Heklukvikmynd þeirra Árna
Stefánssonar og Steinþórs Sig-
urðssonar verður sýnd að nýju
á fimmtudaginn 4. þ. m. í
Sjálfstæðishúsinu.
Þegar Ferðafélag íslands
sýndi kvikmyndina í s.l. mán-
uði komust miklu færri að en
vildu og varð fjöldi manns frá
að hverfa. Hafa félaginu síðan
borizt látlausar áskoranir um
að sýna Heklumyndina að nýju
og hefur nú verið látið að ósk
þessa fólks og myndir sýnd n.
k. íimmtudagskvöld. Dr. Sig-
urður Þórarinsson mun sem
áður skýra myndina, en að því
loknu vei’ður stigmn dans.
Eftirfarandi bréf hefur „Ung
húsmóðir“ sent Bergmáli:
„Vísir“ birtir í dag grein, sem
nefnist „Hreinsun mjólkuriláta",.
eftir Kára Guðmundsson, en
hún hefur að geyma ágætar
og bráðnauðsynlegar bendingai',
um hreinsun og meðferð mjólk-
uríláta.
Hreinlætinu stórum
áfátt.
Allir í sveitum ættu að hafa
reglur þessar í huga að staðaidri
og raunar konur almennt, þótt
höfundu.rinn hafi vafalaust mið-
að við það, aðallega, að mjólkur-
ílát væru meðhöndluð á réttan
hátt, á heimilum, þar sem frarn-
leidd er mjólk. Við ieátur þess-
arar þörfu smágreinar kom mér
i hug, að það er of sjaldan á
það minnst í blöðum, að hrein-
lætinu í þessu efni hér á landi er
víða stórum áfátt, og hefur þó
mikið verið gert til að auka
hreinlæti. Ég vil leifa mér að
minna á eftirfarandi, sem ég
fullyrði að sé sannleikanum
samkvæmt:
Mjólkin.
Eftirlit, llt með meðferð
mjólkur og mjólkuriláta á
sveitabæjum er algerlega ófull-
nægjandi, en það er fyrsta skil-
yrðið, að neytendur fái góða
mjólk, að hreinlega sé mjólkað
og við hreinleg skilyrði. Ég hefi
oft komið á sveitabæi, þar sem
mjólk er send daglega í mjólkur-
bú, þar sem hvorki eru fyrir
hendi þau skilyrði, sem í regl-
unum er rætt um, né gætt þeirr-
ar einföldu og sjálfsögðu reglu,
að menn þvoi sér vandlega um
hendur, áður sezt er undir kúna.
Ennfremur hefi ég oft séð, að
látið er duga að þurrka af júgri
með þurrum klút, að ekki eru
notaðar fullkomnar síur (með
filti), heldur er notast við síu
úr gaslérefti eða slíku efni, sem
svo er skolað úr, og hefi ég
séð slíkar „síur“ blaktandi við
hlið mjóikuríláta á grind, og
voru dulurnar mórauðar frekara
en hvitar.
Flutningarnir.
Enn á sér það stað, að ófull-
nægjandi eftirlit er með því, að
i notkun séu eingöngu hæfir
brúsar til flutninganna, en til
búanna er mjólkin auðvitað flutt
í brúsum. Oft getur að líta dæld-
aða og ryðgaða brúsa á mjólkur-
bílum. Þess er ekki gætt aö
húða brúsana nógu oft og ekki
munu þeir nægilega vel hreins-
aðir. Meðferð á brúsunum er
líka oft fyrir neðan aiiar hellur.
Séð hefi ég mjólkui'brúsum hent
af mjólkurbil á- jörðina — í allar
áttir. Þar hafa þeir svo vafa-
laust legið, þar til komið var að
vegi með næstu mjólkursend-
ingu frá heimilunum.
Afleiðiiigarnar
af þessu og mörgu öðru, sem
„Bergmál“ mun ekki hafa rúm
íyrir, eru m. a. þær, að þrátt
fyrir það, að öll mjólk, sem
kemur frá mjólkurbúunum á
markaö og búin er að fara
þar gegnum hreinsunar- og ger-
sneiðingarvélar, er oft langt frá
þvi svo hrein, sem menn eiga
kröfu til. Efist menn um það
geta menn oft sannfærst um það
með því að athuga botnmjólk-
ina, hafi menn keypt mjólk í
brúsa. Meðferð brúsamjólkur í
mjólkurbúðunum er heldur ekki
sem skyldi, og hefur oft verið
kvartað yfir því. Komið hefi ég
með brúsa til þess að kaupa
mjólk, er svo stóð á, að búið