Vísir - 06.04.1957, Blaðsíða 1

Vísir - 06.04.1957, Blaðsíða 1
47. «rg. Laugardagi.nn 6. apríl 1957 82. tbí. Samiö um smiði togara í stað fylkis. tiinn nýi togari á að vera iil- búinit fyrir áramót. í hinum arabísku nágrannaríkjum Israels, eigi síður en í ísrael sjálfu, eru kvenhanersveitir, sem eru þjálfaðar til hverskonar hjálparstarf a í hermim. og líka í vopnaburði, enda getur þeirra þurft með á sjálfum vígstöðvunum, ef til styrjaldar kemur. — Hér er sýrlensk kvenna- sveit, vopnuð yélbyssuhi. FIRR hefur nú starfað i Væg innfkaenza í aldarfjórðung* seinustu lianannússmót' a morgnn. Þann 1. marz sl. varð Frjáls- Iþróttaráð Reykjavíkur 25 ára. í tilefni þess verífur haldið inn- anhússmót í frjálsum íþróttum á morgun, sunnudag. Fer það iram að Hálogalandi og hefst kl. 2 e. h. Keppnisgreinar verða hinar venjulega innanhúsgreinar, en það eru: Þrístökk, langstökk, hástökk án atrennu, kúluvarp, stangarstökk og hástökk með atrennu. Flestir okkar beztu manna í þessum greinum munu taka þátt í mótinu þar á meðal: Vilhjálmur Einarsson, Guðm. Hermannsson, Skúli Thoraren- sen, Björn Þorláksson og Sig- urður LárUsson. Innan vébanda F.Í.R.R. eru öll þau íþróttafélög í Reykja- vík, sem hafa f rjálsar íþróttir á stefnuskrá sinni^ en óhætt er að fullyrða, að aldrei hefir á- huginn verið eins mikill né æf- ingar stundaðar af meira kappi en einmitt nú og munu frjáls- íþróttamenn vafalaust koma vel foúnir undir stórátök sumars- ins, en þar er margt framund- an. Þeir virðast taka hlutverk sín alvarlegar og af meiri sam- vizkusemi en knattspyrnu- mennirnir, en þar hafa margir hverjir enga hreyfingu sýnt til þessa. Fyrstu dagana í júní fer fram hinn svokallaði íþróttadagur, en þar er takmarkið að fá sem flesta til að taka þátt í ein- hverri grein frjálsíþrótta. Þetta er keppni milli bæjarfélaga og sér F.Í.R.R. um keppnina hér í Reykajvík og vilja þeir hvetja alla, sem vettlingi geta valdið, til að mæta á einhverjum íþróttavallanna og ná í stig fyrir Reykjavík, en til áð ná í stig þarf éngin stórafrek, Nán- ar verður vikið að íþróttadeg- inum síðar. Núverandi stjórn F.Í.R.R. erj þannig skipuð: Formaður Bjarni Linnet, varaform. Aðal- steinn Kritsinsson, ritari Anna Friðriksdóttir, gjaldkeri Mar- grét Hállgrímsdóttir og br.éí- ritari Pétur Rögnvaldsson; Loftblðir æfa fhigmenn sína. Lof tleiðir er uin þessar mumd ir að æfa flugniemi sína, em slikar æfingar éru fyrirskioað- ar tvívegis á ári hjá ölluni ai- vinnuflugmönnum sem starfa hjá íslenzku flugfélögunum. Námskeið þessi fara að nokkru fram erlendis, en síðan hér heima, og er námið í senn foók- legt og verklegt. í gær bauð Loftleiðir frétta- mönnum í eitt slíkt æfingaflug í nágrenni Reykjavíkur, er ver- ið var að æfa einn flugmann félagsins. Varð hann að leysa ýmsar þrautir af hendi, fljúga og lenda blindandi, fljúga með aðeins tvo (af fjórum) hreyfl- anna í gangi og sýna kunnáttu sína og viðbragðsflýti við ýms- ar erfiðar og vandasamar að- stæður, sem hugsanlegt er að komi fyrir í flugi. Magnús Guðmundsson flugstjóri var eftirlitsmaðurinn í ferðinni. Aðalæfingarnar í gær voru yf- ir Þingvallavatni og Suðurnesj- um, auk þess sem æfðar voru lendingar á Keflavíkurflugvelli. i Æfingaflug þetta stóð í 2 klst. | í hóp flugmanna Loftleiða; bætast 4 nýir flugmenn fyrir | sumarið og eru tveir þeirra með í flugstjóraréttindi, en hinir með J réttindi aðstoðarflugmanna. ff eilsuíar annars gott í vcíur. Heilsufar i bænum hefur verið gptt í vetur og lítið um farsóttir, helzt nokkuð um hlaupabólu, þar til seinustu vikur, að inn- ílúenza, sem talin er væg, er aUmildð útbreidd. Blaðið hefur spurzt fyrir um inflúenzuna í skrifstofu borg- arlæknis, og fengið þær upplýs- ingar, að skrásett hafi verið um 40 innfiúenzu tilfelli vikuna 24. til 30. f. m., en aðeins 4 tií 5 vikuná þar á undan. Nú er það vitanlegt, að ekki nándar nærri öll tilfelli komast á skrá læknanna, en talan fyrir ofannefnda viku gefur samt bendingu um, að hún sé að breiðast út. Henni fylgir allhár hiti 4-5 daga, höfuðverkur og beinverkir. Hér gildir að sjálf- sögðu gamla góða reglan, að gæta varúðar, til þess að engir fylgikvillar komi til sögunnar. Mfkiii fiskafb' í Grindavík. Frá fréttaritara Vísis Grindavik í gær. Ágætis afli hefur verið hér að undanföriiu. f gær komu 23 bátar með 358 lestir. Mestan afla hafði Hafrenning- nr, 4i lestir. Tveir aðrir bátar ,. j einnig með mjög mikinn afla, Arnfirðingur með 32 og Faxaborg með 34 lestir af slægð- um fiski. Arnfirðingur heíur fengið mestan afla frá áramótum og er hann nú með 522 lestir og er því með aflahæztu bátum yfir flotann. Allir bátar eru á sjó í dag, enda gott veður. Eins og almenningi er kunnugt fórst togarínn Fylkir á tundurdufli út af Vestfjörð- um blnn 14. nóv. s.I. Var hann eini togari félags- ins Fylkis h.f. Þar sem Vísir hafði frétt fyrir nokkrú, að félagið kynni hyað liði að fá togara í stað Fylkis, sneri blað- ið sér til frkvstj. félagsins Sæ- ^undar Auðunssonar skipstj. 'á hefir nú fengið hjá hon- um eftirfarandi upplýsingar: Fylkir h.f. hefur gert samning um ka-i;p á togara, sem smíða á í Beverléy á Englandi. Eftir samningi á skipið að afhend- ast fyrir áramót. Það verður samkvæmt ensku máli 176 og hálft fet á lengd, 32 og 3 þml. á breidd og 16 fet og 6 þml. á dýpt. Skipið verður búið dieselvél- um, Fiskilest er áætluð 17,000 kúbikfet að stærð. Gísli Jónsson hefur annast samninga fyrir hönd félagsins. Erlingur Þorkelsson skipaverk- fræðingur hjá skipaeftirliti G. J. hefur með höndum eftirlit með smíði skipsins. Vísir vill láta í ljós þá ósk, tun leið og hann segir lesendum sínum þessar fréttir, að þær vonir rætist, «að togaraflotan- um bætist skip í stað Fylkis : þegar um áramót næstu. Má segja, að hér hafi vel ræzt úr eftir atvikum. Má öllum ljóft ' vera hve mikilvægt það er fyrir þjóðarbúskapinn að togaraflot- ihn dragist ekki saman, heldur endurnýist og eflist. Rafmagn orsakar eldsvoða í íbúðarskúr. Tíffauit íil bílþiófnaðar Eftir hádegið í fyrradag kviknaði í íbúðarskúr á Sólvöll- um á Seltjarnarnesi, og urðu miklar skémmdir. Hafði kviknað út frá raf- leiðslum undir þakinu, en þar hafði verið einangrað með spónum og náði eldurinn strax mikilli útbreiðslu. Slökkviliðinu tókst fljótlega að kæfa eldinn, en þakið var þá ónýtt orðið, svo og loftið í stofunum. Auk þess urðu veru- legar skemmdir aðrar af völd- um vatns og reyks. í húsi einu við Hverfisgötu munaði líka minnstu að kvikn- Ellefu ára drengur hlaut opið beinbrot. Kílstjórinn ok hut'i. Á áttunda tímanum í gær- kveldi varð úmferðarslys á Hverfisgötu, móts við veitinga- stofuna Þröstur og ók bifreiðar- stjórinn burt. Varð ellefu ára gamall dreng- ur þar fyrir dökkri, fjögurra manna fólksbifreið og hlaut op- ið brot á hægra fæti. Heitir hann Atli Már Kristjánsson, Heiðagerði 2. Eins og áður er sagt ók bíl- stjórinn burtu og óskar rann- I sóknarlögreglan eftir því, að jhann gefi sig fram og einnig iþeir, sem geta gefið upplýsing- j ar um slysið. aði í, en komið var í veg 'fyrir- það á síðustu stundu. Hafi i straujárn verið skilið eftir í sambahdi, en herbergið að því búnu yfirgefið. Þegar reykui' byrjaði að myndast kölluðu nágrannai'nir á lögreglumenn, sem fóru inn í herbergið og tóku járnið úr sambandi. Var þá byrjað að sviðna út frá þvi., Þjófnaður. í fyrradag handtók lögreglan mann sem staðinn hafði verið að því að gera tilraunir til bíl- þjófnaða. Af einum bílnum hafði hann m. a. stolið hurðar- húni. En maðurinn var hand- tekinn áður en honum yrði frekar ágengt. Hann var und- ir áhrifum áfengis. f fyrrakvöld tilkynnti bíl- stjóri, sem hafði verið á ferð um Skólavörðustíginn, að með- an hann skrapp inn í hús þar við götuna, hafði tösku verið stolið úr bíl hans. Nokkru seinna handsamaði lögreglan tvo unglingspilta, sem játuðu á sig stuldinn og skiluðu þeir töskunni. HaraMur Guimundssofi ambassador í Ösfó. Forseti íslands skipaði í dag Harald Guðmundsson, forstjóra Tryggingarstofnunar ríkisins, til þess að vera ambassador ís- lands í Osló. . ,

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.