Vísir - 06.04.1957, Side 1

Vísir - 06.04.1957, Side 1
82. tbl. 47. srg. Laugardagi.'in 6. apríl 1957 í hinum arabísku nágramiaríkjum Israels, eig i síður en í ísrael sjálfu, eru kvennahersveiur. , sem eru þjálfaðar til hverskonar hjálparstarf a í hernum, og líka í vopnaburði. enda gttur , þeirra þurft með á sjálfum vígstöðvumun, e£ til styrjaldar kemur. — Hér er sýrlensk kvenna- sveit, vopnuð vélbyssuni. FÍRR hefur nú starfað í aldarfjórðung. I ¥æ§ innfiúenza seinusfu vikur. IitaanWnssmói Þann 1. marz sl. varð Frjáls- íþróttaráð Reykjavíkur 25 ára. f tilefni þess verður haldið inn- anhússmót í frjálsum íþróttum á morgun, sunnudag. Fer það fram að Hálogalandi og hefst kl. 2 e. h. Keppnisgreinar verða hinar venjulega innanhúsgreinar, en það eru: Þrístökk, langstökk, hástökk án atrennu, kúluvarp, stangarstökk og hástökk með atrennu. Flestir okkar beztu inanna í þessum greinum munu taka þátt í mótinu þar á meðal: Vilhjálmur Einarsson, Guðm. Hermannsson, Skúli Tlioraren- sen, Björn Þorláksson og Sig- urður Lárusson. Innan vébanda F.f.R.R. eru; öll þau íþróttafélög í Reykja-i vík, sem hafa frjálsar íþróttir! á stefnuskrá sinni_ en óhætt er að fullyrða, að aldrei hefir á- huginn verið eins mikill né æf- ingai' stundaðar af meira kappi en einmitt nú og munu frjáls- íþróttamenn vafalaust koma vel ÍDÚnir undir stórátök sumars- ins, en þar er margt framund- an. Þeir virðast taka hlutverk sín alvarlegar og af meiri sam- vizkusemi en knattspyrnu- mennirnir, en þai' hafa margir hverjir enga hreyfingu sýnt til þessa. Fyrstu dagana í júní fer fram hinn svokallaði íþróttadagur, en bar er takmarkið að fá sem flesta til að taka þátt í ein- hverri grein frjálsíþrótta. Þetta er keppni milli bæjarfélaga og sér F.Í.R.R. um keppnina hér í Reykajvík og vilja þeir hvetja alla, sem vettlingi geta valdið, til að mæta á einhverjum íþróttavallanna og ná 1 stig fyrir Reykjavík, en til að ná í stig þarf engin stórafrek. Nán- ar verður vikið að íþróttadeg- inum síðar. : á morgim. Núverar.di stjórn F.Í.R.R. eí þannig skipuð: Formaður Bjarni Linnet. varaform, Aðal- steinn Kritsinsson, ritari Anna Friðriksdóttir, gjaldkeri Mar- grét Hallgrímsdóttir og bréf- ritari Pétur Rögnvaldsson; Loftieiólr æfa flugfflsan sma. Loftleiðir er um þessar mimd ir að æfa flugmenn sína, en slikar æfingar éru fyrirskipað- ar tvívegis á ári hjá öllum at- vinnuflugmönnum sem starfa lijá íslenzku flugfélögunuin, Námskeið þessi fara að nokkru fram erlendis, en síðan hér heima, og er námið 1 senn bók- legt og verklegt. í gær bauð Loftleiðir frétta- mönnum í eitt slíkt æfingaflug í nágrenni Reykjavíkur, er ver- !ið var að æfa einn flugmann félagsins. Varð hann að leysa ;ýmsar þrautir af hendi, fljúga og lenda blindandi, fljúga með aðeins tvo (af fjórum) hreyfl- anna í gangi og sýna kunnáttu Isína og viðbragðsflýti við ýms- ar erfiðar og vandasamar að- stæður, sem hugsanlegt er að komi fyrir í flugi. Magnús Guðmundsson flugstjóri var : eftirlitsmaðurinn í ferðinni. Aðalæfingarnar í gær voru yf- ir Þingvallavatni og Suðumesj- um, auk þess sem æfðar voru lendingar á Keflavíkurflugvelli. Æfingaflug þetta stóð í 2 klst. i t hóp flugmanna Loftleiða 'bætast 4 nýir flugmenn fyrir i sumarið og eru tveir þeirra með flugstjóraréttindi, en hinir með : réttindi aðstoðarflugmanna. ff eilsuíai* amsars goít í vehir. Heilsufar i bæmmi hefur verið gott í vetur og lítið um farsóttir, heizt nokkuð uni hlaupabólu, þar til seinustu vikur, að inn- flúenza, sem talin er væg, er alliwikið útbreidd. Blaðið hefur spurzt fyrir um inflúenzuna í skrifstofu borg- arlæknis, og fengið þær upplýs- ingar, að skrásett hafi verið um 40 innfiúenzu tilfelli vikuna 24. til 30. f. m., en aðeins 4 til 5 vikuna þar á undan. Nú er það vitanlegt, að ekki nándar naerri öll tilfelli komast á skrá læknanna, en talan fyrir ofannefnda viku gefur samt bendingu um, að hún sé að breiðast út. Henni fylgir allhár hiti 4-5 daga, höfuðverkur og beinverkir. Hér gildir að sjálf- sögðu gamla góða reglan, að gæta varúðar, til þess að engir fylgikvillar komi til sögunnar. MfkiH flskafíi í Grindavík. Frá fréttaritara Vísis Grindavík í gær. Ágætis afli hefur verið hér að undanförnu. í gær komu 23 bátar nieð 358 lestir. Mestan afla hafði Hafrenning- lir 44 lestir. Tveir aðrir bátar voru einnig með mjög mikinn .fla, Arnfirðingur með 32 og Faxaborg með 34 lestir af slægð- um fiski. Arnfirðingur heíur fengið ■ mestan afla frá áramótum og i er hann nú með 522 lestir og j er því með aflahæztu bátum yfir flotann. Allir bátar eru á sjó í dag, enda gott veður. j Samið um smíði togara í stað fylkis. Hinn nýi logari á að vera f31- búinn fyrir ára-mót. Eius og almenningi er kumiugt fórst togarinn Fyikir á tundurdufli út af Vestfjörð- um hinn 14. nóv. s.I. Var hann eini togari félags- ins Fvlkis h.f. Þar sem Vísir hafði frétt fyrir nokkru, að félagið kynni hvað liði að fá | togara í stað Fylkis, sneri blað- [ið sér til frkvstj. félagsins Sæ- "undar Auðunssonar skipstj. '■& hefir nú fengið hjá hon- um eftirfarandi upplýsingar: Fylkir h.f. hefur gert samning um kaup á togara, sem smíða á í Beverley á Englandi. Eftir samningi á skipið að afhend- ast fyrir áramót. Það verður samkvæmt ensku máli 176 og hálft fet á lengd, 32 og 3 þml. á breidd og 16 fet og 6 þml. á dýpt. Sicipið verður búið dieselvél- um. Fiskilest er áætluð 17,000 kúbikfet að stærð. Gísli Jónsson hefur annazt samninga fyrir hönd félagsins. Erlingm- Þorkelsson skipaverk- fræðingur hjá skipaeftirliti G. J. hefur með höndum eftirlit með smíði skipsins. Vísir vill láta i ljós þá ósk, um leið og hann segir lesendum sínum þessar fréttir, að þær vonir rætist, að togaraflotan- um bætist skip í stað Fylkis þegar um áramót næstu. Má segja, að hér hafi vel ræzt úr eftir atvikum. Má öllum ljóst vera hve mikilvægt það er fyrir þjóðarbúskapinn að togaraflot- inn dragist ekki saman, heldur endurnýist og eflist. Rafmagn orsakar eldsvoða í íbúðarskúr. Tílrann til billi|«fiiaðar Eftir hádegið í fyrradag kviknaði í íbúðarskúr á Sólvöll- um á Seltjarnarnesi, og urðu miklar skémmdir. Hafði kviknað út frá raf- leiðslum undir þakinu, en þar hafði verið einangrað með spónum og náði eldurinn strax mikilli útbreiðslu. Slökkviliðinu tókst fljótlega að kæfa eldinn, en þakið var þá ónýtt orðið, svo og loftið í stofunum. Auk þess urðu veru- legar skemmdir aðrar af völd- um vatns og reyks. í húsi einu við Hverfisgötu munaði líka minnstu að kvikn- Elíefu ára drengur hlauf opið beinbrot. ISílsijóriiiii ok bnrt. Á áttunda tímanum í gær- kveldi varð Umferðarslys á Hverfisgötu, móts við veitinga- stofuna Þröstur og ók bifreiðar- stjóriim burt. Varð ellefu ára gamall dreng- ur þar fyrir dökkri, fjögurra manna fólksbifreið og hlaut op- ið brot á hægra fæti. Heitir hann Atli Már Kristjánsson, Heiðagerði 2. Eins og áður er sagt ók bíl- stjórinn burtu og óskar rann- sóknarlögreglan eftir því, að hann gefi sig fram og einnig þeir, sem geta gefið upplýsing- ar um slysið. aði í, en komið var í veg fyrír það á síðustu stundu. Haffi straujárn verið skilið eftir í sambandi. en herbergið að því búnu yfirgefið. Þegar reykur byrjaði að myndast kölluðú nágrannai'nir á lögreglumenn, sem fóru inn í herbergið og tóku járnið úr sambandi. Var þá byrjað að sviðna út frá þvi. Þjóínaður. í fyrradag' handtók lögreglan mann sem staðinn hafði verið að því að gera tilraunir til bíl- þjófnaða. Af einum bílnum hafði hann m. a. stolið hurðar- húni. En maðurinn var hand- tekinn áður en honum yrði frekar ágengt. Hann var und- ir áhrifum áfengis. í fyrrakvöld tilkynnti bíl- stjóri, sem hafði verið á ferð um Skólavörðustíginn, að með- an hann skrapp inn í hús þar við götuna, hafði tösku veriö stolið úr bíl hans. Nokkru seinna handsamaði lögreglan tvo unglingspilta, sem játuðu á sig stuldinn og skiluðu þeir töskunni. Haraldur Gubmundsson ambassador í Osló. Forseti íslands skipaði í dag Harald Guðmundsson, forstjóra Tryggingarstofnunar ríkisins, til þess að vera ambassador ís- lands í Osló.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.