Vísir - 06.04.1957, Side 5

Vísir - 06.04.1957, Side 5
Laugardaginn 6. apríl 1957 Tísm ----------- -------------------^ !Laa.gar~ ^kcyurihH tcqar, eftír Gu&björn GuÖbjörnsson. -- ■ . ,.Er hann endalaus, þessi fjandans skógur,“ hreyti eg út úr mér,“ við Karl vin minn. Eg drattast á eftir honum gegnum þröngan skógarstíg, greinar lemja mig öðru hvoru í andlitið. og auk þess ber eg fimmtíu pund á bakinu. Enda skapið fyrir neðan aliar hellur. Karl blær. „Ef þú ert þreyttur, skul- um við hvíla okkur, annars hélt eg að íslendingar væru óþreyt- andi,“ segir hann. Hann veit sem sé hvernig á að koma mér áfram. „Við höldum áfram, ís- jlendingar þreytast ekki fyrr en Svíar,“ svara eg, og við þrömm- um áfram. Hitinn er óþolandi og eg er þyrstur. Enginn vind- blær er í þessu trjáhafi, þu'3 bggur við að eg hati alla skóg- rækt þessa stundiná,- Við erum á leið upp í skóg- ana við Marxfjallið. komum með járnbrautarlest til Umeo, smáborgar, á stærð við Reykja- vík, nyrzt í Sviþjóð. Umeo er falleg borg og Umeoá rennur gegnum hana til sjávar og skil- ar 8—10 milljónum trjábola til hafs árlega. Auk þess sér þetta mikla vatnsfall stórum hluta Norður-Sviþjóðar fyrir raf- orku. Frá Umeo fórum við með íangferðabíl upp til staðar er Moskosel heitir, þaðan lögðum við svo í skóginn, og nú höfum við gengið í fimm klukkustund- ir í 22 gráðu hita. með þó nokkra byrði. Eg veit, að Karli reynist þetta létt, en fyrir mig, viðvaninginn í skógarmennsku er þetta erfitt, en einhversstað- ar hlýtur kofinn að vera, svo til einhvers er að þrauka. Við eigum að dvelja þarna í skóginum í einn og hálfan til tvo mánuði. vio að merkja tré, sem á að höggva um veturinn, eða með öðrum orðum, fella dauðadóm yfir þessum trölls- iegu trjám. Karl er sérfræð- ingur, en eg aðstoðarmaður, við erum starfsmenn hjá sænsku skógarfyrirtæki, sem veltir einum milljarð króna árlega. Við Karl höfum fylgzt að síðan um vorið. eða í fjóra mánuði. Nú er ágúst, og hver á hefur skilað sínum síðasta trjábol, svo við erum ekki lengur fleyt- arar. Þá tekur skógarhöggið við. merkingarnar eru aðeins stund milli stríða, léttasta verkið tilheyrandi skógarvinnu. Loksins! Kofinn blasir við okkur i dálitlu rjóðri, hératrítill situr á dyrahellunni og veltir .vöngum. Hann skilur ekki þessa tvífættu náunga og hefur ekki 3ært til fullnustu þau sannindi, að dýr skógarins eiga að forða sér. þegar maðurinn sýnir sig. Kofinn er lágreistur, með einni gluggaboru. Þegar inn kemur, slær fyrir þef, sem ein- kennir yfirgefnar vistarverur. Opið eldstæði er þarna og fjórir svefnbálkar. Við komum okkur fyrir kveikjum eld og strax verður vistlegra, og nú skal steikt flesk og kaffi hitað. Við vörpum hlutkesti um, hvor okkar eigi að sjá um matseld- ina fyrstu vikuna, þetta er milliríkj akeppni og ísland vann í þetta sinn. Eg ljóma af stolti, en fulltrúi Svíþjóðar tekur ör- lögum sínum með kaldri ró og segir: „Það kemur önnur vika á eftir þessari," svo sigurbros mitt deyr eins fljótlega og það fæddist, og eg fer að dunda við að safna eldiviði, meðan Karl útbýr máltíðina, og skógurinn umlykur mig töfrum sínum. Dagarnir líða, við höfum langan vinnudag, frá sex að rnorgni til sex að kveldi. Veðrið er ágætt og skógurinn skartar sínu fegursta. Við höfum ekki haft samneyti við fólk í átta daga, en í moi-gun sagði Karl, að sig undraði ekki þó að við fengjum heimsókn í dag, hann hafði dreymt eitthvað og Karl trúir skilyrðislaust á drauma. Við erum á leið heim í kof- ann og eg stríði Karli á draum- speki hans, hann tekur því vel og segir að ekki sé dagurinn liðinn enn, og um leið og sýn opnast til kofans liggur við að eg falli í ómegin, það sitja tvær stúlkur á dyrahellunni okkar. Eg lít ásakandi á Karl og segi: ,,Þú vissir að þær mundu koma í dag.“ Karl hristir höfuðið og svarar: „Ekki fyrr en í nótt“. Stúlkurnar standa upp, þegar þær sjá til ferða okkar. Eg yirði þær fyrir mér . Þær eru dökk- brúnar af sól og sumri, og ijós- hærðar. Við Karl heilsum. Þær taka undir og önnur segir: „Eg heiti Gréta og er dóttir póst- meistarans í næsta þorpi. Vin- stúlka mín heitir Britta. Við erum með póst til ykkar.“ Gréta fer hjá sér, þegar hún héfur lokið þessum ræðustúf. „Verið þið velkomnar, og gjörið svo vel að ganga í bæinn,“ Kari opnar hurðina um leið og hann segir þetta. Við förum nú öli inn og stúlkurnar setjast á bekk við borðkrílið okkar. Svo lítur Karl á mig. ,Nú hitar ísland, kaffi handa okk • ur.“ Það er gott að þau sjá ekki framan í mig, á meða.i Karl er að segja þetta. Eg er að hengja ketilinn á kró’cinn yfir eldinum. Þær horfa á mig með undrun í augum. „Er hann frá íslandi?“ segir Britta. „Er ísland rétt hjá Grænlandi?“ bætir Gréta við. Svo horfa þær á mig, eins og eitthvert íurðu- verk, og svo segir Britta: „Ekki hélt eg að íslendingur væri svona“. „Hvernig hélzt þú að þeir væru?“ spurði eg gramur. Britta fór hjá sér, horfði á Grétu og svarar svo: „Eg hélt að þeir væru öðruvísi.“ „Kannski Eskimóar?“ spyr eg, og reiðd mín hverfur. Ekki geta þessar stúlkur að því gert þótt sænsk- um skólayfirvöldum þyki ekki taka því aS fórna íslandi og ís- lenúinguni mörgum blaðsiðum í kennslubókum sínum. Eg skipti því um umræðuefni og spyr þær um þorpið þeirra. Brátt er kaffi á borðum og stelpurnar eru kátar og hvetja okkur til að koma á dansleik sem á að halda í þorpinu næsta laugardag. „Þar verður fjör- ugt,“ segja þær og augu þeirra glampa. Við fylgjum slúlkunum á- leiðis. Kvöldið er heitt og á- fengur skógarilmurinn veldur því að við förum hægt yfir, margt er skrafað og bundið' fastmælum að hittast á dans- leiknum næsta laugardag. Við kveðum vinkonur olckar, þegar spölkorn er til þorpsins, en þá segir Gréta allt í einu: „Þið skuluð læsa kofanum vkk- ar vandlega, þegar þið eruð að heiman. Það hafa sést Tatarar hér á sveimi og hænsni hafa horfið í nágrenninu.“ Eg sé. að Karl harðnar á brún, svo segir hann: „Eg sendi þeim blý- kveðju, ef þeir gerast nær- göngulir.“ Þær kveðja svo þessar skóg- ardísir og við snúum heim á leið, glaðir og reifir. Nú var þó eitthvað að hlakka til. Dans- leikurinn i þorpinu. Það dimmdi nú óðum, máninn varpaði töfraskini yfir allt, skógurinn er allt í einu orðinn að voldugum kynjaheimi heimi sem má sin meira, en barna- trú og skynsemi. Eg skildi nú hve auðveldlega kynjasögur verða til í svona umhverfi, þar sem allt andar af seið og galdri. Það er ekki laust við, að eg sé feginn, þegar við komum heim, en aðkoman er á annan hátt en við höfðum búist við. Karl fer inn á undan mér. Hann stað- næmist í dyrunum, og hreytir út úr sér: „Þeir hafa þá verið hér, fjandans Tatararnir." Við höfðum skilið eftir ljós á olíu- luktinni okkar, hún varpar draugslegri birtu um kofann, allt er á víð og dreif, öll okkar búslóð, það hafði auðsjáanlega verið leitað vandlega. Rifflarnir okkar voru þó á sínum stað, í króknum hjá eldstæðinu. Mat- argeymslan hafði verið opnuð og meiri hluti forða okkar var horfinn. „Fjandans þorpararnir, þeir hafa tekið koníaksflösk- una mína.“ Karl er verulega sár, þegar hann segir þetta. Þetta koníak átti að nota við sérstakt tækifæri, og nú var það horfið. Það mundi aldrei varpa töfrahljóma yfir ein- manalega rökkustund í skógi. Við setjumst og ræðum at- burðina. ,,Þetta er augljóst. Tat- ararnir voru hér að verki,“ segir Karl. „Gaman væri að geta sent þeim kúlu í lappirn- ar,“ bætir hann við, og lítur á riffilinn í horninu. Við vorum neyddir til að fara til þorpsins og ná i mat, því vilcuforði var horíinn með hinunv hörunds- dökku farandrefum skóganna. Okkur gengur illa að sofa. Karl er venju fremui’ órór og 5 gengur oft út. Loks leggst um skóginn. Hægur norðan, hann samt fyrir og segir: „Eg er viss um að eg heyrði söng einhversstaðar í skóginum. Það eru Tataradjöflarnir að gæða sér á koníakinu mínu,“ Eg barðist um í svefnrofun- um og hélt mig vera að dreyma. Einhver stendur yfir mér og hristir mig og skekur. Eg ber frá mér, en árásarmaðurinn tekur því fasíara á mér. „Vaknaður! — — Skógurinn logar!------“ öskraði hann. Eg er glaðvakandi samstundis. Karl stendur hjá mér alklædd- ur. „Skógurinn brennur hér fyrri norðan okkur. Þú ferð til þorpsins og færð alla verkfæra karla til hjálpar. Eg fer að eld- inum og athuga aðstæður.“ Karl er fastmæltur þegar hann gefur þessar fyrirskipanir. Eg klæði mig í flýti. Karl tekur rifflana úr króknum, réttir mér annan og segir: „Skjóttu ekki á dýr. nema þú sért neyddur til, en láttu Tat- aradjöflana hafa það í lappirn- ar ef þú mætir þeim, eg er viss um, að þeir hafa kveikt í skóg- inum.“ Karl heldur í norður, en eg í vestur í átt til þorpsins. Eg hleyp við fót, en staðnæmist við og við til að horfa á fölrauðan eldsbjarmann og svart ógnandi ský, sem sveif í norðri og virtist Vera svo nálægt. Mér var hugs- að til Karls, sem lagði einn til orustu við þennan magnþrungna óvin, en eg hugsa líka til þess, ef Tatararnir verða á vegi hans, eg veit að Karl er annáluð skytta og vægðarlaus, þegar hann er í þessum ham. Eg vona vindur er, og öðru hvoru svífa svört reykský yfir höfðum okkar. Ýlfrandi gaupa verðuf á vegi okkar, og krákurnar láta ófriðlega i trjánum. Vinlconur okkar frá kvöldinu. áður urðu mér samferða. Þær tólcu alveg konunglega á móti. mér og gáfu mér að borða, svo útbjuggu þær nestisböggul. handa Karli, og þar var með ein flaska af sterku heima- bruggi. „Hann tapaði koníakinu. sínu. bezt að láta pabba borga, brúsann,“ sagði Gréta sem var svona rausnarleg. „Eru aldrei skógarbrunar á íslandi?“ spurði Britta. „Nei, það er svo lítill skógur til heima ennþá,“ svara eg. Svo rignir yfir mig spurningum um land mitt og þjóð. og á hraðri göngu. gegnum þéttan skóginn, lýsi eg fyrir þeim paradís augans, land inu mínu í norðri, Eg er allt í einu orðinn hraðmælskur. Það er eins og fjöllin mín fögru lcomi; allt í einu fyrir augu mín, eg finn ilm úr grasi og jörð, heyri hjal lækjanna á lyngheiðum, marrandi brimið við sanda, og að balci alls þessa rís vinur minn, Vatnajökull. traustur og öruggur, eins og fólkið sem næst honum býr. Allt í einu þrífur Britta í handlegginn á mér: „Sjáið þið!“ hrópar hún og bendir upp í himininn. Við erum stödd í dálitlu rjóðri. Við lítum upp og sjáum að himininn er hrannað- ur skýjum. „Þetta er reykur,“ sagði eg. „Nei, það fer að rigna," sagði Gréta og brosti svo skein, í perluhvítar tennurnar. Þegar við komumst á eld- janfvel að Tatararnir hafi vit áj að forða sér, en hvað geri eg, ef staðinn heyrast fyrstu þrum- eg hitti Tatarana? Á eg, íslend- J urnar og brosin læðast um sót- ingurinn, að fara að skjóta á ug andlitin. Nú hlýtur að koma menn? Nei, eg veit, að eg muni hellirigning. Eldstæðið er tölu- ekki slcjóta á þá. nema ef eg vert einangrað af náttúrunnar ætti líf mitt að verja. Rammri hendi. Smá á er varnarlína í sviða og reykjarlylct slær fyrir eina átt og klettabelti á aðra. vit mér öðru hvoru, eg heyri ^ Menn eru þar í óða önn að ýms hljóð í skóginum og laf-(höggva einstök tré, sem skotið hræddur héri skýzt fyrir fætur hafa rótum i klettaskorum. mínar, en áfram held eg hlaup- j Svo varð að höggva brunagötu andi og' gangandi á víxl. J næstum í kringum svæðið. Eg’ Þegar eg á skammt ófarið til tyrtl' mitt leyti áleit það von- þorpsins, birtast allt í einu tveir Áaust verk. Það brestur og’ menn á skógarstígnum. Þeir gneistar í brennandi skógin- koma á móti mér. Eitt andar um, eldslogar þjóta hvæsandi frá einu tré til annars og á milli. tak gríp eg fastara um riffilinn. Tatararnir eru ofarlega í huga'standa einirunnar í björtu báli. mínum, svo átta eg mig, þettaj En svo kom blessað regnið, eru friðsamir þorpsbúar á leið Þad er blæja logn, og regnið til hálpar. Þeir ætluðu að gera. hellist niður og er fagnað af okkur viðvart, höfðu séð eld- ‘ varnarliðinu. Nú er slcotið á inn fyrir stundu síðan og sögðu að allir verkfærir karlar væru að leggja af stað með axir og runnaklippur. Eg segi þeim frá heimsókn Tataranna í kofa okkar, og einnig að Karl grun- aði þá um. að hafa kveikt í skóginum. Það verður svo að ráði að eg haldi áfram til þorps- ins til að gera ráðstafanir um, að ef Tatararnir sjáist í næstu þorpum verði þeir handsam- aðir. Við erum mörg saman á leið skyndifundi. Karl hefir þarna öll völd. Verður það að ráði, að tveir menn úr þorpinu séu á. verði og aðrir leysi þá af. Póstmeistrinn, faðir Grétu, bauð mér og Karli til þorpsins og Karl þurfti að hafa samband við yfirmann okkar í Umeo, svo' við slógum til. Regnið streymdi látlaust niður og taugaþensla mikilla atburða var liðin hjá. Skógareldurinn var sigraður af sterkara afli en við höfðum yfir að ráða. Sérhver eyðandii JAWA Wótorhjólin tékknesku ■útvegum við í ýmsum stærðum gegn nauðsynlegum leyfum. Sýnishorn í verzluninni yfir helgina. JAWA hjól með hjálp- armótor væntanleg í næsta mánuði. Smyrill, Húsi Sameina&a Stmi 6439

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.