Vísir - 14.08.1957, Blaðsíða 5
Miðvikudaginn 14. ágúst 1957
VÍSIB
5
SAME JAKKfl.
ruti>€j kviktattjtttl
I ^ tlftP M'tt UtfBtiS.
Löngum hefur frú Guðrún
Brunborg vei'kt fundvís á góð-
ar myndir til að sýna til styrkt-
ar góðu málefni. Virðist þar
hafa farið eftir hinu gullvæga
spakmæli Svía: ,,Einungis það
bezta er nóg'u gott“.
Myndina Sárne Jakki ber hik-
laust að teljá með beztu mynd-
um sem hér hafa sézt. Ber margt
til. Höfundurinn Per Höst er
■einn mesti náttúruskoðari og
snillingur á sviði hins mynd-
ræna, hefur hvorutveggja, list-
rænt auga, og innsýni um
leyndardóm hins sanna og
mannlega. Myndir hans og bæk-
ur bera þess vott; hann leitar
hinria sjaldgæfu æfintýra við
hin yztu höf. Þarf bæði mann-
dóm og hugkvæmni til að gjöra
siik fyrirbæri að veruleika, að-
gengileg fyrir eldri sem yngri.
Myndin og bókin Frumskógur
og' ishaf sönnuðu að þetta var
hægt, og Same Jakki er jafnvel
enn meira snilldarverk.
Á norðurslóðum býr fámenn
þjóð sem lætur sig engu varða
hið æðisgengna kapphlaup við
tímann. Glaðlynt fólk. hjálp-
samt og æðrulaust, sem temur
sér nægjusemi. Lísvenjur Lappa
—- eða Sama — eru lærdómsrík-
ar fyrir nútímann. Þær sýna
hverju við höfum fórnað fyr-
ir fánýtt glingur og yfirborðs-
menningu.
Eingöngu þrautseigum
mönnum og hjartahreinum er
fært að vinna traust Lappa-
fólksins norður í Tröllabotnum.
Með því að búa í tjöldum þess,
matast með því og taka þátt í
sorgum og gleði um langar
verarnætur og bjarta vordaga.
' Myndin sýnir lífsbaráttu og
leiki þessara náttúrubarna á
öllum árstíðum. Vetur, sumar,
vor og haust er lífið á þessum
slóðum spennandi, margslungið
töfrum öræfanna. Tengsli milli
| manns og dýrs verða ekki að-
skilin, hér er enginn leikara-
skapur eða þörf fyrir skýring-
ar, allt er eðllegt og sjálfsag.t
j í filmnua er ofið svipmyndum
af dýralífi og jurtagróðri, en
það er bæði mikið og fagurt á
( þessum slóðum. Sérstaklega er
fuglalíf og fiskmergð óþrjót-
andi. svo og hreindýrin, er með
( hinni ágætu Lappafjölskyldu
er þungamiðja myndarinnar.
Áhorfandinn fylgist með hjörð
j og hirðum á fjöllum og í byggð.
Gamla ,,hreinkóngnum“ sem
vakir yfir að dýrin hrapi ekki
fyrir björg eða í jökulsprungur,
einnig með ástum unga fólksins
óg leikjum barnanna. Eastman-
litirnir fara vel við hina blæ-
brigðaríku náttúru norðursins,
og myndin er svo vandlega
unnin að á betra verður ekki
kosið.
Vil eg hiklaust ráðleggja öll-
um, bæði ungum og gömlum, að
sjá þessa mynd. Hún er einstætt
listaverk.
Sú var tíð að Finnmörk eða
Lappland var uppspretta sagna
og æfintýra í huga landsmanna.
Heimkynni trölla og galdra-
manna. Austurbotn og Bjarrna- j
land eru nöfn sem hljómuðu í
eyrum er æfintýraþráin söng í
brjóstum vorum.
Same Jakki gefur þessum
hugtökum aftur lit og líf!
Guðmundur Einarsson,
írá Miðdal.
( rvaliA 4 : Dviiamó 3.
w
í þetta sinn var samstiiit
lið á vellinum.
Úrvalslið Suðvesturlands
iigraði rússneska liðið Dynamo'
í gærkveldi í mjög spennandi
leik með fjórum mörkum gegn
þrem.
Fyrri hálfleikur.
Það voru ekki liðnar nema
nokkrar sekúndur af leik, þegar
Rússarnir settu sitt fyrsta mark.
Þeir hófu leik og boltinn gekk
frá þremur eða fjórum mönnum
án þess að nokkur íslendingur j
kæmi við hann og lenti í netinu
— 1:0. |
Réynir Kai'lsson bjargaði á
11. mín hættulegum bolta og
skömmu á eftir barst boltinn
fram og til Þói'ðar Þórðarsonar,
sem gaf til Ríkharðs og hann
til baka og skoraði Þórður gott
inark úr slæmri stöðu 1:1.
Þriðja mark leiksins gerðu
Rússarnir með skalla eftir góða
sendingu utan íi'á kanti. Það
var eins og Helgi mai'kvörður
áttaði sig ekki á þessu, og bolt-
inn hafnaði í marki — 2:1.
Strax á eftir hófu íslendmg-
arnir gott upphlaup. Ríkhai'ður
skaut jarðarbolta í bláhornið og
2:2, ■ _ . . .
Síðari hálfleikur.
Á fjórðu rninútu síðari hálf-
leiks varði Helgi góðan bolta,
er hafði verið skallaður að
marki, sparkaði síðan vel út og
Þói'ður Þórðarson fékk boltann,
hann komst inn fyrir bakvei'ð-
ina og skoraði, 3:2.
Það var ekki fyrr en á þrit-
ugustu mínútu að Rússunx tókst
að jafna og var skorað með
óvenju glæylegu skoti 3 : 3.
Á 40. mfriútu léku Sveinn
Teitsson og ■ Þórður Jónsson
boltanum upp vinstri kant og
sendi Þórður. nafria sínum
Þói'ðai'syni boltann, og skoraði
hann þriðja mark sitt í leikn-
um; 4 : 3.
Leiknum lauk án þess að
fleiri mörk væi'u gerð.
í fyrsta sinn í langan tíma
tók maður nú eftii' að þarna var
lið á vellirium, en ekki bara
ellefu menn, sem aðeins hugsa
um að láta taka eftir sér. essg.
• í Baiuiarik.iitnnni hefur rhú-
lunfjölgað um 20 miUjónb'
frá 1930, og' var ibúatalan á-
ætluð f<l,2 púllj. hinp 1. júli
S.Í. ' . > .
Til sölu
Verkstæðisbygging með eða án trásmíðavéla. —
Húsið má nota fyrir hvers konar íðnað. Gólfflötur
rúmir 300 mJ. Húsið er á hornlóð og vel staðsett.
Tilboð sendist afgreiðslu biaðsins fyrir hádegi á
laugardaginn 17. þ. m. merkt „Verkstæðisbygg-
mg — 243“.
Utískemmtun
Kcpavogi.
i
Næstkomandi sunnudag iíria
öll félagssanitök í Kópavogs-
kaupstað til útisamkomu lijá
Barnaskólanum þar til ágóða
fyrir byggingu félagsheimilis.
Að skemmtuninni standa eft -
irtalin félög: Leikfélag Kópa-
vogs, Slysavaxmafélag Kópa-
vogs, Framfarafélag Kópavogs,
skátfélagiö Kópur, Ungmenna-
félagið Breiðablik og Kvenfé-
lag' Kópavogs.
i Til skemmtunar verða tveir
leikþættir, uppiestur og söngur_
Þá vérður reipdráttur milíi
austurbæinga og vesturbæinga
og skátar skemmta börnúrii.
Skemmtunin hefst kl. 2,30 síðd.
en urn kvöldið kl. 9 hefst dans
í barnaskólahúsinu. Hljómsveit
Jose Arriba leikur fyrir dans-
inum.
| Kópavogsbúar eru einhuga
um að koma upp félagsheim-
ilinu, sem allra fyrst, enda hafa
félagssamtök í kaupstaðnum
ekki aðgang að samkomuhúsi en
barnaskólanum, sen. stundum
hefur verið lánaður til sam-
komuhalds.
I Félagsheimilið verður byggt
í áföngum og hefur þegar veiið
steyptur grunnur fyrir þann
hluta hússins sem ráðgert er að
verði fullgerður næsta haust.
Þá hafa ofannefnd félög einnig
efnt til happdrættis fyrir fé-
lagsheimilisbygginguna.
Frá Finnlandi
tírttssviðttr — Irtthttn
Einkaiunboðsmenn fyrir Oy. Kankas AB, HELSINGF0RS
tírtjsitiH
Einkaumboðsmenn fvrir IITTALLA Glasbruk
Agare: A. AHLSTRÖM OSAKEVHIÖ IITTALLA
^JJnótidn JjJii
lian ^Ji^eiróóon
LAUGAVEG 13 —SlMAR: 14879—17172 — REYKJAVÍK
Útvegum frá Fínnlandi
flestar tegundir af pappír, pappa og pappírsvörum:
Margfalda pappírspoka
Toiletpappír
Umslög
Stílabækur
Reikmhefti
Teikmblokkir
Pappi til ails konar umbúða
Sollofanpokar o. m. fl.
Blaðapappír
Bóka- og skrifpappír
Umbúðapappír
Kraftpappír
Smjörpappír
Sellofanpokar o. m. fl.
S. Árnason & Co
Reykjavík . Hafnarstræti 5 . Sími 2-2214