Vísir - 03.01.1958, Blaðsíða 9

Vísir - 03.01.1958, Blaðsíða 9
Happdrætii háskólans hóf starfsemi sína 1934 og byrjar því 25. starísánð 1958. Hefur Happdrætti háskólans affaö sér mikilfa vinsælda og aukið starfsemi sína ár frá ári. Háskóíinn hefur einkarétt á að reka pemngahappdrætti og greiðir því alla vinninga í peningum. öll önnur happdrætti greiða vinninga sína í vörum. HAPPÐRÆTTI HÁSKÓLÁNS GREIÐIR 70% AF VELTUFÉNU 1 VINNINGA. Önnur happdrætti greiða miklu minna (t. d. S. 1. B. S. 50% Og D. A. S. 51,3%). Af þessu sést, að Happdrætti háskólans er langhezta happdrætti landsins. Á þessu ári, 1958 ver ða gefnir út 45,000 hlutamiðar, að upphæð kr. 21,600,000,00 og verða 70% greiddar í vinninga eða samtals « 15 mill|öfiir 12® þiisund krénur. Vinnmgamir skiptast þannig : 2 vinningar á 500,000,00 kr. 11 vinmngar á 100,000,00 kr. 12 vinningar á 50,00Ö;00 kr. 71 vinningur á 10,000,00 kr. 139 vinnmgar á 5,000,00 kr. 11,015 vinningar á 1,000,00 kr. 1,000,000,00 kr. 1,100,000,00 kr. 600,000,00 kr. 710,000,00 kr. 695,000,00 kr. 11,015,000,00 kr. Samtals kr. 15,120,000,00 kr. Verð miðanna er óbreytt: 1/1 miði á mánuði kr. 40,00 1/2 miíS á mánuði kr. 20,00 ' 1/4 miði á mánuði kr. 10,00 Fjórði hver miði hlýtur vinning*. Happdrætti háskólans vav stofnað til þess að kuma upp húsum yfir starfsemi háskólans. 1935 var hús Atvinnudeildar vígt. 1940 háskólabyggmgin. 1947 Iþróttahús háskólans, og á næstu árum á eftir var öll lóðin, sem var ekki annað en urð og óræktarmóar, lagfærð, vegir gerðir og malbikaðir, 1400 trjá- plöntur gróðursettar o. s. frv. Fyrirhugaðar eru eftirfarandi byggingar: Nátturugripasafn ríkisins (áætl. verð 10 millj. kr.). Bygging fyrir starfsemi læknadeildar (eðlisfræði, efnafræði o. fl.), áætlað verð 8—10 millj. króna. Háskólalóðin með byggingum sínum er nú með fegurstu lóðum bæjarins. Islendingum hefur því verið ljúft að styðja starfsemi happdrættisins, enda er eftir miklu að slægjast, því að á síðustu 24 árum hefur verið greitt í vinninga UM 68 MILUÓNIR KRÓNA. Á næsta ári, 1958, nemur upphæð vinninga samtals 15 milijónum 120 þúsund krónum, miðað við að állir miðar seljist, en á síðúStu árum hefur salán verið milli 90 og 95% af útgefnum miðum. Tryggið yður þvi miða í tæka tíð og snúið yður til næsta umboðsmanns.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.