Vísir - 05.02.1958, Side 3
Miðvikudaginn 5. febrúar 1958
VÍSIR
3
vissi ekki, í hve
genpr afiur.
Skömmu áður en lieims-
styrjöldinni fj*rri Iauk, rakst
bandarískur flugmaður í Frakk
landi, Lee Ðuncan að nafni, á
flækingsíhund af Schafer-kyni
og tók hann að. sér.
Hundurinn var svo vitur, að
dæmi þess þekktust ekki, og
fór Duncan með hann til Banda
ríkjanna, en síðan vestur til
Hollywood, til að bjóða þjón-
ustu hans. Hundur þessi var
kallaður Rin-Tin-Tin, og munu
margir fullorðnir íslendingar
muna greinilega eftir honum,
því að hann varð vinsæll mjög
hér sem annars staðar.
Myndir með Rin-Tin-Tin
voru meira að segja svo vin-
sælar, að hundurinn bjarg-
aði fjárhag Warncrfélagsins,
sem rambaði þá á barmi
gjaldjjrots. Og eigandi
hundsins græddi cinnig
milljónir dollara.
Rin-Tin-Tin er nú dauður
fyrir löngu, en afkomandi hans
í fjórð'a lið er um þessar mundir
í Hollywood og leikur í kvik-
mynd, sem er um ævi 'langa-
langafa hans og heitir „Ævi-
ferill Rin-Tin-Tins“. Duncan
er leikinn af hinum vinsæla
leikara James Stewart.
Hún oskilin enn
Leikkonan Claudctte Col-
bert var einu sinni spurð að
því, hvers vegna hún væri svo
ungleg útlits.
„Svarið er mjög einfalt,"
svaraði hún. „Eg geri allt sem
menn leggja ekki í vana sinn í
Hollywood: Eg drekk ekki, eg
borða það, sem mig langar í,
og þvæ mér með sápu — og
eg er enn gift fyrsta mannin-
um mínum.“
©© ára all aldri.
Þann 24. des. s.l. lézt hin
fræga, vinsæla kvikmyndaleik-
kona Norma Talmadge, sem
frægust varð fyrir Ieik sinn í
hinum þöglu kvikmyndum á
árunurn 1911 til 1930.
Hún lézt í svefni að heimiii
sínu í Las Vegas 60 ára að aldvi.
Hún lifði þar kyrrlátu lífi.
Hafði hún liðið af liðagigt und-
anfarin ár og varð að vera í
hjólastól af þeirn sökum.
Undanfarin ár varð hún að
halda alveg kyrru fyrir vegna
sjúkdómsins, en áður hafði hún
ýmist dvalið í Las Vegas, Pahn
Springs í Kaliforníu eða Tuc-
son í Arisona. Síðan 1946, er
hún giftist í þriðja sinn dr.
Carvel James, hefur hún þó
lengst af verið i Las Vegas.
Byrjaði 14 ára.
Þegar Norman hætti að
leika árið 1930 vissi hún ekki
einu sinni sjálf í hve mörgum
myndum hún hafði leikið. Þeg-
ar hún var 14 ára varð hún
varaleikkona og fékk 2.50 doll-
ara í daglaun, en síðasta árið.
sem hún lék, er talið að hún
hafi haft 5 milljónir dollara i
tekjur.
Foreldrar Normu áttu í
miklum erfiðleikum. Faðir
hennar var auglýsingasölu-
maður. Tekjurnar voru rýrar
og Norma varð '-snemma að
fara að vinna til þess að létta
undir með foreldrum sínum.
Það var ekki fyrr en 1915 að
hún komst upp í 250 dollara
laun á viku.
Stofnaði fyrirtæki.
1917 giftist hún Joseph M.
Schenck kvikmyndaframleið-
anda. Hann var henni mikil
stoð í baráttunni í heimi kvik-
myndanna. Lék hún nú í hverri
myndinni á fætur annari og á-
vann sér frægð og vinsældir.
Um 1920 setti hún á fót sína
eigin kvikmyndaframleiðslu
og brátt græddist henni mikið
fé.
Árið 1930 var hún orðin
mjög rík og búin að tryggja
sér góða framtíð og fjölskyldu
sinni. Þar á meðal hafði hún
hjálpað systrum sínum tveim
og varð önnur þeirra, Con-
stance einnig fræg kvikmynda-
stjarna eins og kunnugt er.
Ákvað hún nú að draga sig í
hlé og hætta að leika. Má segja,
að þá hafi hún verið á hátindi
frægðar sinnar.
Gift — skilin.
Árið 1934 skildi hún við
mann sinn, Joseph Schenck.
Sama árið lézt rnóðir hennar.
Hún giftist aftur mánuði eftir
að hún skildi við Schenck,
George Jessel útvarpsskop-
leikara nokkrum. Það hjóna-
band stóð í fimm ár og skildu
þau hjónin árið 1939.
■v ■ ■
Víða í suðlægum löndum er hiti í lofti og vatni svo mikill, að
ástæðulaust er að hita sér baðvatn, eins og hér þarf að gera.
Þess vegna gctur þessi litla snót á Ceylon fengið bað í ánni,
sem rennur fram hjá þorpinu hennar, án þess að að lienni slái.
Dauð hjón eru
bezt.
Kvikmyndafélögin í Holly-
wood hafa sitt eigið eftirlit
með kvikmyndum til að gæta
velsæmis.
Er eftirlitið svo strangt, að
ekki má taka mynd af karli og j
konu í rúmi saman, nema þau
sé hjón — eða bæði andvana.
sagt er, að andvana hjón hafi
beztan „sjans“ til að komast á
léreftið.
Aformuð kvtkmyud um kínverskt
eíni vekur sremju á Formósu.
í myndinni leikur Ingrid Bergman
trúboða.
„Gírta44 setur sig á
hest.
Síeinttar ns,
tíw°a skaöahœtaw\
esa
Fyrir nokkru vakti það stór-
kostlegt hneyksli í Róm, þegar
óperusöngkonan Maria Meneg-
bini Callas neitaði að syngja í
óperu nokkurri, þegar fyrsti
þáttur var á enda.
Þóttist hún hafa misst rödd-
ina, en sumir töldu, að hún
hefði reiðst af því, að hún taldi
að sér bæri meira lófaklapp en
hún fékk. Varð af þessu mikill
úlfaþytur, enda var forseti
IfalíU meðal gesta í óperunni,
og þótti mönnum söngkonan
vera kenjótt um of.
Nú er nýtt hneykslismál
komið upp á Ítalíu og ef það í
sambandi við Ginu Lollo-
brigida, sem allir kannast við.
Hún hefir nefnilega stefnt iðju-
höldinum og kvikmyndafram-
leiðandanum Angelo Rizzoli i
Milano og krafizt 200 milljóna
líi’a skaðabóta, en það mun
vera um það bil 5 millj. ísl.
króna. Rizzoli er hinsvegar
hvergi hræddur, því að hann
heimtar 40 milljónir lira af
Ginu, sem hún hafi fengið i
„forskot“ vegna kvikmyndar,1
sem nú verður hætt við. Mynd- .
in átti að heita „Keisaraleg
Venus“, og átti að fjalla um'
ástalíf Pálínu Bonaparte Borg- J
hese, er var talin vergjarnasta
kona Evrópu, meðan hún var
„upp á sitt bezta“.
Ætlunin var, að myndin
yrði tekin fyrir breiðtjald
og í litum, m. a. til að reyna
að minna almenning um
heim allan á ítalskan kvik-1
myndaiðnað, sem lialdinn
hefir verið af uppdráttar-
sýki upp á síðkastið.
En þegar til kom, treysti |
framleiðandinn sér ekki til að
verja eins miklu fé til myndar-
innar, og hugsae hafði verið.
svo að hann hvarf að „svart-1
hvítri“ mynd, venjulegri breidd
og þess háttar. En Ginu fannst
sér misboðið með þessu, því
að hún taldi, að hún væri svo
rnikil Stjarna, að „aðeins það
bezta væri nóg'u gott“, og seg-
ist ekki vilja leika í „smá-
mynd“.
Stendur hnífurinn í kúnni,
og hafa málaferli verið hafin á
báða bóga. Meðal annars hef-
ur bandariski leikarinn Lex
Barker, sem átti að leika síð-
asta elskhuga Pálínu, stefnt
Ginu fyrir að gera kvikmynda-
tökuna að engu, því að Barkef
tapar við þetta stórfé.
Á eynni Formósu er Siafin
öflug barátta gegn kvikmynd-
inni „The Inn of Six Happi-
ness“, sem 20th Fox félagið á-
formar að framleiða, en aðal-
ldutverk á Ingrid Bergman að
leika.
Þingleiðtogar eru í farar-
broddi, mótmæla og krefjasl
þess af utanríkisráðuneyti For-
mósustjórnarinnar, að það leggi
bnn á kvikmyndina.
Hvað er það þá, sem hefir-
vakið reiðiöldu þjóðarleiðtog-
anna á Formósu, að þeir telja
hana óhæfa til sýningar þar á
eynni. Kvikmyndin byggist á
skáldsgu eftir Alan Burgess
og heitir saga hans „Tho Sma)
Wonian“ (Litla konan). Þa-
er lýst reynslu ensks kventrú-
boða í Kína um 1930, og er gef-
ið í skyn í bókinni, að þá haí
það enn tíðkast, að reyra fætur
telpna, svo að þær yrðu sem
smáfættastar, og það eru eink-
um kaflar, sem eiga að svna
atrið þessu varðandi, er hafa
vakið gremju manna á For-
mósu. Hið rétta er, að slík með-
ferð sem þessi á telpum var
bönnuð með lögum í Kína árið
1911, cn það tekur oft tíma að
uppræta alda gamlar venjur,
og hin gamla venja hélzt með
leynd allmikið lengur.
Ingrid Bergman á að leika
kventrúboðann og er eitt. atriði
myndarinnar, að hún tekur
viðjar af fótum þriggja ára
barns. — Blöð þjóðernissinna
taka þátt í baráttunni, og er
ekki ólíklegt, að hætt verði við
áformin um töku myndarinn-
ar, sem átti að hefjast í sl.
mánuði, nema kvikmyndafélag
ið breyti áætluninni um gerð
myndarinnar, þannig að hún
verði talin hæf til sýningar á
Formósu.
Önnur umferi á
Skákþinginu.
Önnur umfcrð í Skákþingi
Reykjavíkur var tefld í gær-
kveldi.
Helztu úrslit urðu bau. að
Jón Þorsteinsson vann Guð-
mund Ágústsson, Ingi R. Jó-
hansson vann Sigurð Gunnars-
son, Eggert Gilfer vann Har-
ald Sveinbjörnsson, Benóný
Benediktsson vann Eið Gunn-
arsson og Kári Sólmundsson
vann Gylfa Magnússon. Jafn-
tefli gerðu Haukur Sveinsson
og' Hermann Jónsson, Óli Valdi
marsson og Guðlaugur Guð-
mundsson.
i Þriðja umferð verour tefld n.
k. fimmtudagskvöld kl. 19.45.
Brezki heimspekingurinn
og stærðfræðinguiinn Bert-
raiul Russcll 'hefir hloti'ð
svonefnd Kalinga verðlaun,
sem veitt eru þeim, scm
gera vísindalegar rannsókn
ir aðgengilegri almenningi.
Verðlaunin nema 1000 stpd.