Vísir - 02.05.1958, Side 1
12 sðor
12 síður
68. árg.
Föstudaginn 2. niaí 1958
94. tbl.
Mate stérslisiiist ;
árekstri a fyrrlaiétt,
HBauf höfuðkúpubs'of, lærb?®!
og fieiri meiðsBi.
Alvarlegt umferðarslys varð á
Suðuiiandsbraut i fyrrinótt, er
strætisvagn og lítil fólksbifreið
rákust á, en bifreiðarstjórimi í
litla bibiuni höfuðkúpubrotnaði
og lærbrotnaði og hlaut fleiri
meiðsli.
Árekstur þessi varð kl. 1.50 eft
ir miðnætti í fyrrinótt á Suður-
landsbraut gegnt Múla.
Samkvæmt framburði vagn-
stjóra strætisvagnsins var
liann á leið vestur götuna. Segist
hánn þá allt í einu hafa tekið
eftir þvi, að á móti honum kom
lítil fólksbifreið, R-5168 og hafi
hún verið á öfugri vegbrún.
Strætisvagnstjórinn kveðst þá
hafa dregið mjög úr hraða vragns
ins. og hafa verið nær stanzað-
aður, þegar litli bíllinn skall á
mikilli ferð á honum. i
Bifreiðarstjórinn í R-5168, And
rés Guðjónsson,Eikjuvogi 26, var
einn í bílnum og slasaðist mikið.
Hann höfuðkúpubrotnaði og lær-
brotnaði og ennfremur var tallð
að brjóstkassinn hafi brákast.
Hann missti meðvitund og er
líðan hans talin eftir vonúm.
Billinn, sem har.n ók skemmhst
mjög mlkið og var jafin'el talinn
ónýtur með öllu.
Afvfnjiu!ausir verla
siyrktir Sengur.
Fulltrúadeildin í Washing-
ton hefur afgreitt til öldunga-
deildarinnar frv. Eisenliovvers
forseta um atvinnuleysismálin.
Þar er m. a. gert ráð fyrir,
að menn geti notið atvinnu-
leysisstyrkja lengur en nú.
Leiðtogar demokrata lýstu sig
andvíga frumvarpinu, en það
var samt samþykkt, þótt dem-
ókratar hafi meirihluta í deild-
inni. Bæði demokratar og repu-
blikanar greiddu því atkvæði.
Þjóðviljinn segir í gær:
in ver
Lúðvík fékk að sjá hnefann án
pöntunar Vísis og - glúpnaði.
Allnr vÍHdur er mi ur kommam-
i.stiiin í lasGdliefigisinálinie.
Mörgum kommúnisíuiii rennur nú til riíia vesal-
mennska Lúðvíks Jósepssonar og Þjóðviljans, að því
er iandheigismálið snertir, jiví að þessi ráðherra heíur
orðið sér til óvenjulegrar minnkunar, eins og raunar
oft áður.
Dauft yfír 1. maí,
ekkerf um að vera.
Frá fréttaritara Vísis.
Akranesi í morgun.
1. maí var óvenju daufur hér.
Engin kröfuganga og ekkert um
að vera í tilefni dagsins.
Á miðvikudagskvöld komu
16 bátar með 140 tn en í gær
var ekkert róið í tilefni dags-
ins. Bjarni Ólafsson skipaði hér
upp 250 lestum, -mest þorski.
Slrætssvagna-
deiBa óSeyst.
Sættir hafa ekki enn tekizt í
strætisvagnadeilunni í London.
McCloud verkalýðsmálaráð-
herra flytur neðri málstofunni
greinargerð í dag.
McCloud sagði, að tilboð
samkvæmt gerðardómi um 8 sh.
og 6 penca kauphækkun stæði
áfram, en báðir aðilar f deil-
unni hafa hafnað þessu boði.
Hirti 12 þús. kr. undan
kodda félaga síns.
Kefur jáfað sfuldlnn og skilað þýfinu.
Síðastliðinn þriðjudag- var stol- mannaeyjum, þar sem þeir höfðu
ið rúmlegu 12 þúsund krómun úr verið á vertíð i vetur. Annar pilt-
hótellierbergd hér í bæniun, en anna var norðan úr landi og
þjófurinn er-fundinn og hefur leigði hann sér hótelberbergi hér
greitt féð.
Höfðu tveir piltar komið til
bæjarins s.l. þriðjudag frá Vest-
| í bænum. Að þvi búnu fóru þeir
félagar út og hittu þá þriðja
piltinn, sem Norðlendingurinn
þekkti, buðu honum inn í her-
bergið og náðu 1 vín, sem þeir
drukku fram eftir degi.
Herbergisleigjandinn hafði á
sér allmikla peningafúlgu, rösk-
lega 12 þúsund krónur, og stakk
hann þeim undir koddann í rúm-
Frá og með 1. maí verður inu sínu, um daginn.
lokunartíma sölubúða breytt Er kvölda tók fóru þeir félag-
þannig að búðum verður lokað ar allir út og ætluðu á dansieik.
kl. 7 á föstudögum og kl. 12 að en urðu viðskila. Segir ekki af
hádegi á laugardögum. | því frekar fyrr en um kvöldið
Kemur þessi breyting til eða nóttina er liefbergisleigjand-
fyrst í kvöld og verður sölubúð inn kemur heim, að hann tekur
um ekki lokað fyrr en kl. 7 e. að hyggja að fjármunum sínum
h. og á morgun kl. 12 á hádegi. Framh. á 11. síðu.
Lokunartíma
sölubúða breytt.
Hér skal það talið, sem gerzt
hefir síðustu daga og máli
skiptir;
LÚÐVÍK ætlaÓi að
stækka landhelgina 1.
maí — hann var kúgað-
ur tii að hætta við það.
LÚÐVÍK ætiaði að
stækka iandhelgina 5.
maí — hann var kúgað-
ur til að hætta við það.
ÞJÓÐVILJINN sagðií
byrjun vikunnar, að
iaiidhelgin yrði stækkuð
STRAX, en í gær segir
ræksnið, að reglugerðin
komi BRÁÐLEGA.
Þetta eru hinar einföldu
staðreyndir málsins, sem allir
þekkja, er hafa lesið blöð^n að
undanförnu. — Kommúnistar
byrjuðu vikuna með óguleg-
um gorgeir og vindi, en síðan
hefur hann verið að leka úr
þeim smám saman eins og úr
lélegum fótknetti, enda er það
hald manna, að einhver hafi
sett í þá stígvélatána heldur
óþyrmilega.
Og siitrur úr skrifum
Vísis og iygar til uppfyll-
ingar geta ekki með
neinu móti bvegið það
af kommúnistum, að
jjeir eru manna aumastir
í þessu máli — eins og
við var að búast.
Það er til dæmis um sann-
leiksást — og vesaldóm —
kommúnista, að í gær segja
þeir í Þjóðviljanum, að Vísir
sé að panta hnefa Breta gegn
kommúnistum. Þeir, sem lesa
Vísi, vita betur en kommún-
istar, sem þurfa — já, þeir
ÞURFA — að ljúga í þessu
máli til að hylja eymd sína.
Vísir sagði nefnilega, að Lúð-
vík hefði verið hóíað brott-
rekstri úr stjórninni, ef hann
léti ekki af stráksskap sínum í
þessu mikilvæga máli þjóðar-
innar. Og svo var honúm mikið
i mun að fá að vera ráðherra
áfram, að hann lét það nægja
að horfa á hnefann — og svo
glúpnaði hann.
Þetta er sannleikurinn
um þann hnefa, sem
sýndur hefur verið, og
bað er enginn hnefi, sem
„pantaður“ hefur verið
af Vísi. Hafi einhver
„pantað“ slíkan hnefa,
j)á er jiað Lúðvík og
kommúnistar með öllu
framferði sínu, og svo
mikið er víst, að vindur-
inn rauk skyndilega úr
görpunum.
Kómmúnistar hafa leikið
fróðlegan leik að undanförnu,
en nú sjá þeir, að hann ætlar
að koma þeim í koll. Þeir gera
sér greiri fyrir því, að upp er
að komast um öll þeirra belli-
brögð og óheilindi, og þess.
vegna er Þjóðviljagreyið látið
tala um landráðaskrif og þess
háttar. Já, það er gamla sagan ;
um þjófinn, sem þarf að leiða
athyglina frá sér, því að á ís-
landi er aðeins einn hópur
manna, sem er- ævinlega reiðu-
búinn til landráða. Kommún-
istar sjá framan á þá menn,
þegar þeir líta í spegil.
Að endingu betta:
Barðir rakkar e?ga að
láta sér skiljast, að {>elm
er bezt að be?Ja, Hví að
ella skríða beir heim með
rifinn belg og ærna
skömm.
Hræsnin
í hámarki
Skattfríðindi eða jafnvel al-
gert skattfrelsi samvinnufé-
Iaganna hefnr verið nokkuð
til umræðu í blöðum að imd-
anförnu vegna framkomins
frumvarps stjórnarinnar, sem
miðar að þessu. í þvi sam-
bandi birti Timinn forustu-
grein á þriðjudag'. og' verður
ekki annað sagt en að hræsni
framsóknarmanna hefur sjaEd
an komið betur fram en í
henni. Á einum stað stendur
nefnilega:
„Það er stefna Framsókn-
armanna, að samvimiufélögin
njóti sem líkastar aðstöðu og
einkareksturinn. Þeir telja,
að sérstök hlunnindi séu sam-
vin n uh reyfingnnni ekki hag-
hagkvæm, þegar tii lengdar
lætur, heldur geti dregið úr
árvekni hennar og framtaki
..Umsögn um þessi orð er
algerlega óþörf.
Stutt hersýning í Moskvu
í gær - engin í Belgrad.
Marglr melddust í ÓGÍrHum í Bsrael.
1. maí var hátíðlegur hald-
inn víða um lönd að venju og
fór víðast friðsamlega fram,
nema í ísrael þar sem um 100
menn voru handteknir, en um
80 meiddust, þar af um 20 lög-
regluþjónar í óeirðum í
Nazaret.
. . í Moskvu voru viðstaddir
hersýningu Krúsév forsætisráð-
herra og Nasser forseti Egypta-
lands, en hersýningin tók að
þessu sinni ekki nema fjórðung
s’tundar og eru ekki dæmi þess
áður, að hersýning á Rauða
torginu tæki svo stuttan tíma.
í Belgrad var dagurinn há-
tíðlegur haldinn í fyrsta sinn
án nokkurrar hersýningar, og
| dagurinn var fyrsti dagur fjög-
urra daga leyfis verkamanna
um allt landið.
í Englandi fara kröfugöngur
fram á sunnudaginn kemur, en
þar í landi er það venja að 1.
maí-hátíðahöld fari fram á
sunnudöguxn.