Vísir - 06.06.1958, Side 1

Vísir - 06.06.1958, Side 1
12 siður 12 siður VI 48. árg. Föstudaginn 6. júní 1958 121. tbl. Tólf mílna iccErrsrgoi fram. Emkaskéýti til Vísis — Kliöfn í gær og nótt. Norski fiskimálaráðherrann Niels Lysöe segir, að franihalds- J)róun mála í sömu átt sem nú liljóti að leiða til norskrar kröfu mn 12 mtlna landhelgi. Fregnir frá Haag herma, að þeir, sem liafa náin tengsl við Alþjóðadómstólinn, líti svo á, að ákvörðun íslands um út- víkkim landhelginnar sé ekki brot á alþjóðalögum, einkan-i leg-a þar sem ekki var unnt á Genfarráðstefnunni að ná ein- ingii lun landhelgismörk, en ákvörðun þeirra liefur oft leitt til erfiðleika. H. C. Hansen forsætisráðherra Danmerkur hefur staðfest, að danska stjórnin hafi þreifað fyr- ir sér um það innan vébanda Nato, að haldin verði ráðsteína um landhelgismál Islands, Fær- eyja og Grænlands. Brezka blaðið News Chronicle segir í gær, að tillagan um að beita falbyssubátum á því Herr- ans ári 1958 sé hlægilegri en svo, ,að um hana sé hægt að ræða til lausnar á deilunni. Daily Mail óskar einnig vinsamlegrar lausn- ar. Daily Telegraph óskar eftir, að landhelgismál Islands og Fær- eyja verði leyst innan vébanda Norður-Atlantzhafsvarnarbanda- lagsins. Talsmaður belgiska utanríkis- ráðuneytisins staðfesti að Belgiu stjórn hafi sent ísl. stjórninni mótmæli út af útvíkkun land- ' helginnar. Samkvæmt áreiðanlegum heim [ ildum í London mun hin óform- lega tillaga H. C. Hansens um ráðstefnú um landhelgismálin (sbr. hér að ofan) hafa fengið góðar undirtektir brezku stjórn- arinnar. Sjiikrafíugvél á leið til landsins. Frá fréttaritara Vísis —- Akureyri i morgun. Akureyringar hafa keypt nýja sjúkraflugvél vestur í Kansas í Bandaríkjunum og er flugvélin nú á leiðinni til íslands. Tryggvi Helgason flugmaður á Akureyri, fór vestur um haf til þess að taka á móti vélinni og flaug hann henni til New York, en það er um 2 þús. km. vegar- lengd. Frá New York verður vél- in flutt með skipi til Islands og er væntanleg hingað í júlíbyrjun. Flugvél þessi er af sömu gerð og sjúkraflugvél Björns Pálsson- ar og Slysavarnafélagsnis. Myndin er tekin í Alsírborg af falllilífahersliöfð ngjanum fræga, Massu, þar sem hann kannar flokk serkneskra sjóliða. ]V«i*§k síldai*sik.ip kom- in á iniðisi liéi* vi5 laiid. MÞuu emu tk sveeðinu írú lÍunsi uö Skttiju. Ihi(lirliúniii»ui' íslenzkx*a skipa f>rr en í fvrra. Vinna hafin við jarðgöng- in undir Mont Blanc. Þais ver5a vsg5 14. okt Í960, á 100 ára afenæls ©fnlrsgar IfaBiu. Vinna er nú hafin við jarð- október 1960, ef engin sérstök göngin miklu, sem stjórnir óhöpp koma fyrir, langvarandi Frakklands, Ítalíu og Sviss á- verkföll tefja ekki framkvæmd- kváðu á síðasta ári að láta gera undir Montblanc. Sprengingar beggja vegna ir, og þar fram eftir götunum. Ætlunin er, að vígsla jarð- gangnanna fari fram um leið og Italir minnast þess, að 100 ár byrjuðu í síðustu viku, og gert er ráð fyrir, að fyrstu bifreið- arnar geti farið um göngin 14. sameinaðist eftir sundrung. eru liðin frá þvi að land þeirra margra alda mikii fséfi i S.- ICísia., Miltil flóð hafa verið að undan- förnu í Kiangsi-héraði á S.- Kóreu. _ Kan-fljótið, sem rennur um héraðið, hefur farið yfir bakka sina, og hefur 250.000 manns verið skipað að vinna við að gera flóðgarða. Mikið tjón hefur þeg- ar orðið á hrísgrjónaekrum í j héraðinu. Mont Blanc-göngin verða 11.7 km. á lengd og Italíumegin byrja þau í 1380 metra hæð yfir sjáv- armáli, en munninn í Frakklandi er 106 metrum lægri. Menn gera ráð fyrir, að byggingarkostnað- ur verði sem svarar 500 millj. ísl. kr. (með nýja genginu). Áætlað er, að um göngin fari árlega 230.000 fólksbílar, 45,000 bifhjól, 20,000 almenningsbílar og 15,000 vöruflutningabílar, en þetta svar ar til þess, að um þau fari 1,3 milljón ferðamanna og 300,000 lestir af allskonar varningi. Norðmennirnir láta ekki standa á sér í ár fremur en í fyrra þeg- ar þeir fylltu skip sín af sild á íslandsmiðum áður eu islenzki síldarflotinn lagði lir höfn. 1 fréttaskeyti frá_ Isafirði í morgun segir: Fyrstu norsku (sildveiðiskipin eru komin á mið- ! in. Þau halda sig enn nærri ís- röndina um 40 sjómílur frá landf, á svæðinu frá Horni til Skaga. Að þvi er fréttaritari Visis i Osló segir, munu alls á annað hundrað norsk skip veiða bræðslusíld við Island í sumar og verður hún flutt með flutn- ingaskipum til Noregs, svo að síldarskipin þurfi ekki að tefj- ast frá veiðinni Ekki er endan- lega vitað hve skipin verða mörg því miklir erfiðleikar hafa verið að fá áhöfn á öll þau skip sem ákveðið vai' að senda á íslands- mið. Flest skipin munu vera i þann veginn að leggja af stað, því flestir ætluðu sér að vera i komnir á miðin fyrir 10. júní. | Nær öll íslenzku síldarskipin misstu af fyrstu aflahrotunni í j fyrra og nöguðu menn sig í handabökin fyrir að vera ekki komnir nógu snemma norður. I vor hefur undirbúningur fyrir sildviðina verið fyrr en venju- lega og munu flest skipin vera tilbúin að leggja af stað með litl- um fyrirvara. I fyrra hófst síldarleitarflugið ekki fyrr en skip voru álmennt komin til veiða og mátti heyra óánægju raddir sjómanna um það að hær hefði verið að láta flugvélarnar byrja fyrr og hefðu menn þá getað náð fyrstu síldar-t hrotunni, ékki síður en Norð- menn. Það má gera ráð fyrir að flest íslenzku skipin verði farin af stað áður en síldarleitarflugið hefst. Að því er Vísir fékk upp- lýst í morgun verða tvær hinar sömu flugvélar við sildarleit og í fyrra. Fer önnur norður 10. júni og hin síðari 15. júni. Verða báðar staðsettar á Akureyri. Síldarverðið hefur ekki verið ákveðið enn, en heyrzt hefur að það muni verða 15 til 20 krónum hærra en í fyrra. Fardagar komnir, en hvergi sauftgróður. Nu eru fardagar, en ekki kominn sauðgróður, og er það óvanalegt, að svo seint grói. Það er að vísu að koma litur á tún og fyrir nokkru farið að votta fj-rir grænum nálum í haga og birkikj arr, einkum til fjalla, er farið að laufgast, en yfirleitt er lítill sem enginn gróður kominn. Vorið héfur verið mönnum erfitt að ýmsu leyti, þótt veður hafi verið góð. Fénaðarhöld eru g'óð, sauðburður gengið ágæt- leg'a, en víða, einkum norðan- lands, hafa menn orðið að vaka nótt með degi yfir fénu. Víðast hafa menn nyrðra orðið að láta ærnar bera inni. Það, sem nú vantar er, a'ð til úrkomu bregði. Það vantar ekki hlýindi til að jörð taki að grænka og gróa, heldur vætu. Sovétríkin viður- kenna 12 mílur. Ambassador Sovétríkjanna hefur komið á fund utanríkis- ráðhcrra og tekið fram, að á Genfarráðstefunni liafi sendi- nefnd Sovétríkjanna borið fram tillögu um að hverju ríki sé heimilt að ákveða víðáttu landhelgi sinnar í allt að 12 mílna fjarlægð frá ströndi’.m, enda sá bessi tillaga í samræmi við þau sjónarmið sem Sovét- ríkin hafi fylgt í þessum efnum. Reykjavík, 5. júní 1958. Utanríkisráðuneytið, B.v. Fyíkir kom í morgua. B.v. Fylkir, hinn nýji togari útgerðarfélagsins Fylkis h.f. kora til Reykjavíkur kl. 11 i morgun frá Bretlandi þar sem hann var smíðaður. Skipið er að útliti og stærð svipað nýsköpunartogurunum og er með diesel aflvél. Skipstjóri á Fylki er Auðunn Auðunsson, fyrsti vélstjóri er Viggó Gíslason og stýrimaður er Helgi Ársælsson, en allir voru á Fylki hinum eldri, sem fórst af völdum tundurdufls fyrir um það bil tveimur árum úti fyrir Vestfjöi’ðum,

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.