Vísir - 26.06.1958, Qupperneq 5
Fimmtudagurinn 26. júní 1958.
VfSIB
5
Fjölskylduhádegisverður í
„Nausti” á sunnudögum
— athyglisvGrð nýjung Hall-
dórs Gröndals, veitingamanns.
á sunnudögum áhyggjulaus.
Þriggja ára börn og yngri,
sem koma í mat með foreldrum
sínum fá hann ókeypis, en fyrir
börn á aldrinum 4—10 ára skal
aðeins greiða V2 verð. Þegar
börnin hafa lokið við að borða,
standa þeim til boða margvísleg
leikföng, og útlærð barnfóstra
mun líta eftir, að allt fari vel
Síðdegis í fyrrad. var blaða-
mönnum boðið í hið vinsæla
veitingahús Naust, til þess að
kynnast nokkrum nýjungum,
er Halldór Gröndal, hinn hug-
kvæmi veitingamaður staðar-
ins, hyggst taka upp.
Sú nýjungin, sem hæst ber,
er svonefndur fjölskylduhá-
degisverður, en hann verður á
sunnudögum og er í því fólg-
inn, að auk ljúffengra rétta,
sem framreiddir verða, verður
gestum veitingahússins séð
fyrir barnagæzlu. Gerir þetta
foreldrum kleift að njóta næð-
is við snæðing sinn, en fram til
þessa hefur barnafólki yfirleitt
verið ómögulegt að víkja sér
frá og snæða úti um helgar,
nema. unnt hafi verið að' koma
börnunum fyrir hjá ættingj-
um eða vinum á meðan, því að
j þeir, sem árætt hafa að fara |
með fjölmennan barnahóp í
hádegisverð á almennan veit-
ingastað, hafa tíðast haft af því
meiri áhyggjur og erfiði en svo,
að slíkt yrði endurtekið. Eftir
þá skemmtilegu nýjung, sem
tekin hefur verið upp í Nausti,
verður ekkert því til fyrir-
stöðu, að foreldrar geti farið
með börn sín til hádegisverðar
fram meðan foreldrarnir ljúka
snæðingi. Að lokum verður svo
hverju barni færð lítil gjöf.
Enginn vafi er á, að þessari ný-
breytni verður fagnað mjög af
fjölskyldufólki.
Þá hefur Naust einnig aflað
sér tækja til framleiðslu á af-
bragðsgóðum ábætisréttum og
eykur það fjölbreytni í þeirri
grein. Loks hafa nýlega verið
tekin í notkun tæki sem halda
matnum heitum á borðum gest-
anna meðan máltíð stendur
yfir.
. 11) vosiun:
Þessi mynd var tekin einn sunnudag fyrir skömmu, þegar
„Naust“ gerði tilraun með barnagæzlu, meðan foreldrar barn-
anna sátu að snæðingi. Þessi tilraun tókst svo vel, að forráða-
menn veitingahússins hafa nú ókveðið, að haft skuli ofan af
fyrir börnum gestanna með Ieikjum og föndri hvern sunnudag
framvegis.
Hreppsnefnd-
arkosningar.
Isafirði 19. júní.
Sunnudaginn 29. júní næstk.
fara fram hreþpsnefndarkosn-
ingar um land allt sem kunn-
ugt er. Þessir listar hafa komið
fram í nágrenni Isafjarðar:
í Eyrarhreppi: Listi Sjálf-
stæðismanna: Ingimar Finn-
björnsson, Sigurjón Halldórs-
son, Oskar Friðbjörnsson, Ein-
ar Steindórsson, Þórður Sig-
urðsson.
Listi kommúnista og Fram-
sóknar: Helgi Björnsson, Hjört-
ur Sturlaugsson, Ólafur Guð-
jónsson, Geirmundur Júlíusson.
1 Súðavíkurhreppi aðeins einn
listi, sem er skipaður þessum:
Halldóri Magnússyni, Kristjáni
Sveinbjörnssyni, Ágústi Hálf-
dánssyni, Birgi Benjamínssyni
og Albert Kristjánssyni..
IVIikilvægustu mann-
réttindi að engu höfð.
*
Islóitzkir Iiit/Hrtrríin r/«r ntóinnvla
uíiökununt í Unfjvorjuluntli.
Hið nýstofnaða Lögfræðinga-
félag íslands hélt fyrsta al-
mennan fund sinn síðastliðinn
þriðjudag.
Próf. Ármann Snævarr, for-
_maður félagsins, setti fundinn
og kynnti fyrir fundarmönnum
vestur-íslenzka dómarann dr.
Joseph T. Thorson,. sem því
næst flutti mj'ög athyglisvert
erindi um „réttarríkið“ og vék
í því sambandi m. a. að starf-
semi Alþjóðanfndar lögfræð-
inga, en fyrirlesari er forseti
þeirra samtaka.
Þegar hinn góðkunni gestur
hafði lokið máli sínu, flutti próf.
Ármann Snævarr honum þakk-
ir fyrir snjallt erindi, en bar
síðan fram svohljóðandi til-
lögu frá stjórn félagsins:
„Lögfræðingafélag íslands
átelur aftökur þær, sem fram
hafa farið í Ungverjalandi og
tilkynnt var um hinn 17.
júní s.l. Með þeim hafa
stjórnvöld landsins virt að
vettugi grundvallarreglur
réttarríkis um meðferð opin-
berra mála, framið griðrof
og haft að engu hin mikil-
vægustu mannréttindi“.
Tillaga þessi var einróma
samþykkt.
Að lokum kvaddi Bjarni
Benediktsson ritstjóri sér hljóðs
og lét í ljósi áriægju yfir heim-
sókn dómarans. Síðan var fundí.
slitið.
íslendingur skipaöur
lektor viö Edinborgar-
háskóla.
Frá fréttaritara Vísis. —*■
Akureyri í morgun.
Islenzkur maður, Páll S. Áiw
dal frá Siglufirði, hefur veriffi
skipaður lektor við Edim-
borgarhóskóla.
Páll S. Árdal er sonur Stein*-
þórs Árdals á Siglufirði og
sonarsonur Páls Árdals skálds.
Hann lauk stúdentsprófi við
Menntaskóla Akureyrar og
vakti athygli á sér í skóla fyrir
frábæra námshæfileika. Var
hann sæmdur þar ýmsum
námsverðlaunum.
Að stúdentsprófi loknu fór
hann til Edinborgar og ’Jas
heimspeki, latínu og frönsfku
við háskólann þar. Seinna geið-
ist hann kennari við sama
skóla og heíur nú fyrir
skemmstu verið skipaður pró-
fessor við háskólann. Var Páll
eini útlendingurinn sem sótti
um embættið.
Þá má og geta þess að Páll
hefur að undanförnu unnið að
doktorsritgerð, en ekki varið
hana ennþá.
RAFGEYMAR
\
fyrir báta og bifreiðir 6 volta, 82—90—105—120—170 |
amperst. Rafgeymasambönd, allar stærðir og rafgeyma-
klemmur. 11
SMYRILL, Húsi Sameinaða — Sími 1-22-60.
FUNDUR
UM ÖL- OG GOSDRYKKJAMÁLIÐ
Undirrituð samtök halda sameiginlega félagsfundi í
Félagsheimili V.R- Vonarstræti 4 í dag kl. 3.
Fun duroSn i :
Skvrl i‘ra s<aiigi iil- og “osd r vk k ja 111 á Isí n s
Beiii sala verksmiAjaniia til nevteiida
Fyrirlmgaftar aftgerftir
Félag matvörukaupmanna
Félag tóbaks- og sælgætisverzlana
Samband smásöluverzlana
Félag söluturnaeigenda
Kaupmannafélag HafnarfjarÖar
Samband veitinga- og gistihúsaeigenda