Vísir - 28.06.1958, Síða 12

Vísir - 28.06.1958, Síða 12
( Ekkert blað er ódýrara í áskrift en Vísir. Látið hann færa yður fréttir og annað I lestrarefni heim — án fyrirhafnar af yðar hálfu. Sími 1-16-60. WÍSIK. Munið, að þeir, sem gerast áskrifendur Vísis eftir 10. hvers mánaðar, fá blað ókeypis til mánaðamóta. Sími 1-16-60. ur j •ð í Laugardaginn 28. júní 1958. A ð wstan z y Skipbrotsmannaskýli reist í Stlgahlíð. ísaf. 14. júní 1958. Slysavarnasveitin Hjálp í Bolungarvík reisti í gær nýtt skipbrotsmannaskýli á Stiga- hiíð. Skýlið er staðteett innan- vert í svonefndu Hvassaleiti, en þar urðu flest slys og báts- tapar meðan árabátaútgerðin stoð. Heita þarna Ölvisdalir, og eru frekar stórar lægðir en dal- ir inn í strandlengjuna. Stærð skýlisins er 13X3.6 metrar. í því eru 8 rúm og öll venjuleg eldhúsáhöld. Auk þess matvæli, svefnpokar, vatt- teppi og fatnaður. Yfirsmiður skýlisins var Jón Friðgeir Einarsson, en uppsetn- ing þess var unnin í sjálfboða- vinnu. Fóru 28 Bolvíkingar út á Stigahlíð kl. 8 í gærmorgun. Var gengið frá uppsetningu skýlisins á einum degi. Stjórn slysavarnasveitarinn- ar Hjálp skipa þessi: Gísli Hjaltason, hafnarvörður, form., Hálfdán Einarsson, skipstjóri, gjaldkeri; frú Hólmfríður Haf- liðadóttir, ritari. Vélbáturinn Einar Hálfdáns flutti skýlið frá Bolungarvík út að Hvassafelli, svo og sjálf- boðana, sem að verkinu unnu. Slysavarnasveitin Hjálp hef- ir jafnan starfað vel og kom- ið til framkvæmda í Bolungar- vík ýmsu til aukins öryggis sjömanna. Leikarar leggja land undir fót. Innan fárra daga mun fiokk- IV leikara lcggja fland undir fót og sýna nýja revíu, eða öllu heldur revíettu eins og þeir sjálfir kalla það, víða úti á landi. Leikararnir eru Auróra Hall- dö'rsdóttir, Nína Sveinsdóttix-, Sigríður Hagalín, Lárus Ingólfs son og Bessi Bjarnason og mun revíettan samanstanda af söng, kómiskum dönsum og gamni í hverskonar mynd og verður ekki nánar sagt frá þessu að sinni, því framkvæmdastjóri Stúdentaskáksveftin fer utan á morgun. Stúdentaskáksveitin sem taka mun 'þátt í V. Heimsmeistara- móti stúdenta í skák, er hefst í Varna í Búlgaríu 5. júlí, fer uían með flugvél í lyrramálið. I sveitinni eiga sæti þeir Frið- í-ik Ólafsson, Ingvar Ásmunds- son, Freysteinn Þorbergsson, Scefán Briem, Bragi Þorbergs- son og Árni G. Finnsson. Frey- steinn er við nám í Moskvu um þessar mundir og mun brátt leggja af stað suður á bóginn, eti hinir fara héðan á morgun til Kaupmannahafnar, þaðan á- fram til Warnemiinde og siðan um Austur-Berlín tii Búlgaríu. Skýrsla fiskifræðinganna: Góðar horfur á að síldfn þéttist er líður á sumarið. Útlit fyrir að rauðátumagn aukizt fyrir norðan. Húsið Bjarkargata 8, sem Blindravinafélagið liefur keypt var byggt af Agli Vilhjálmssyni. Nýtt húsnæði fyrir starf- semi blindra í Reykjavík, lllinclrafélagiA lie£ur keypí lljjai’kar^ölu 8. Blindravinafélags íslands lief- nr nýlega keypt húsið Bjarfea- gata 8 hér í bæ fyrir starfseani sína, sem á síðari árum hefur að nokkru takmarkast af skorti á hentugu húsnæði. Er aðstaða fyrir vinnustofu blindra og Blindraskólann stórlega bætt hinu nýja húsnæði. Þeir Helgi Tryggvason kenn- ari og Helgi Elíasson fræðslu- málastjóri, úr stjórn Blindra- vinafélagsins, skýrðu blaðamönn um frá því í gær að horfið hefði verið frá því, að gera Háteig í flokksins, Indriði Halldórsson, var floginn út um dyrnar áður en fréttamanninum tókst að setja pappírinn í ritvélina. Garðahreppi að blindaheimili að allega vegna vatnsskorts, en við- horf manna til staðarvals hefði einnig breytzt þannig að heppi- legra væri að dreifa blindum meðal sjáandi fólks í stað þess að einangra þá marga á hverjum stað. Með tilkomu hins nýja hús- næðis er það ætlun blindravina- félagsins að gera starfsemi sína fjölbreyttari og umfangsmeiri svo sem að veita þeim fyrir- greiðslu, sem koma utan af landi til sjónrannsókna eftir því sem við verður komið, því margt af hinu fullorðna fólki sem kemur þeirra erinda á ekki í neitt hús að venda er í bæinn kemur og vegna sjóndepru á í margskon- ar örðugleikum. Þá er það markmið Blindra- vinafélagsins að komið verði á fót fullkomin sjónrannsóknar- stöð í Reykjavík. Þess má geta, að nú munu vera um hálft þús- und blindra manna á íslandi, en glákom blinda er hér tíðari en í öðrum löndum. Fyrir nokkru hljóp hraðlest af teinunum nærri Bari á S.-Italíu og slösuðust þá 34 menn. Þann 24. júní konni hafrann- sóknarskipin til Seyðisf-jarðar og báru haffræðingarnir þar saman bækur sínar. Fer hér á eftir úrdráttur úr skýrslu þeirra: Út af norðvesturlandi var ís- röndin álíka langt frá landi og á sama tíma 1956 og 1957. Hita- stigið í yfirborðslögunum við Is- land var lægra í júní enr á sama tíma í fyrra. Einkum var það lægra út af vestanverðu Norður- landi. en þar voru yfirborðslög- in blönduð köldum pólsæ. Magn atlantíska sjávarins við norður- strönd Islands var mun minna en á sama tíma undanfarin ár. Stafar þetta vafalaust af minna innstreymi á Atlantssæ en á und- anförnum árum. Austur-lslands- straumurinn virtist nokkru sterk ari en i fyrra. Á svæðinu norðan Færeyja var hitastig köldu tungunnar nokkru lægra en 1957, en blöndunarsvæðin voru á mjög svipuðum slóðum og þá. Rannsóknir rússnesku fiski- fræðinganna bentu til þess, að Atlantsstraumurinn norður með Noregsströnd sé mun veik- ari en í fyrra. Islenzku og rúss- nesku fiskifræðingarnir hafa dagt mikla áherzlu á rannsókn á jútbreiðslu átunnar, og var þvi ilslands. I Rússnesku fiskifræðingarnir Óvinurinn unninn. Satju unt viðureiyn við ábaðinn fjest * suniurhústað. Tékkar vísa Breta úr landi. Öðrum sendiráðsritara Breta í Prag hefur verið vísað úr landi. Hann er sakaður um að hafa fengið mann nokkurn til þess að láta af hendi leynilegar upplýs- ingar um landvarnir Tékka, og heitið honum að hjálpa honum til að flýja, ef grunur félli á hann. Þetta loforð reyndi sendiráðs- ritarinn síðan að efna, en maðurinn var handtekinn, seg- ir í fregnum frá Prag, og allt komst upp. Fyrir nokkrum dögum sá maður nokkur, sem á sumar- bústað í nágrenni Reykjavíkur, óvæntan gest bera að garði — ref, sem gekk rakleitt inn í bú- 1 staðinn og hrakti húsráðanda á flótta. > Húsráðandi kunni tvíbýlinu illa, hugsaði ráð sitt og taldi að því búnu bezt að leita ásjár lögreglunnar. Lögreglan vísaði á veiðistjóra og fór hann ásamt húseigandanum á staðinn til þess að vinna dýrið. En það var engu líkara en skepnan hafi fengið einhverja nasasjón eða grunað hvað væri í vændum, því þegar hinir vopn uðu menn komu á staðinn í miklum vígahug og til alls bún- ir, er engan ref og enga skepnu að íinna í sumarbústaðnum. Hún var gersamlega horfin og höfðu þó allar rúður, dyr og önnur op á húsiriu verið ramm- lega byrgð áður en húseigand- inn ‘lagði á fund lögreglunnar. Hvergi hafði þó verið rofið nýtt gat á húsið svo dýrið hlaut að vera inni í því — en hvar? Nú voru góð ráð dýr. Eitt hið snjallasta þeirra var að fá Karlsen minkabana með veiði- hunda sína til þess að láta þá þefa upp dýrið. Og þetta tókst. Hundarnir röktu sporin að tróði milli þilja, þangað hafði óvin- urinn sloppið, en smugan var of þröng fyrir alla venjulega hunda. Sem betur fór átti Karl- j sen einn óvenjulegan hund, sem var minni en hinir hundarnir i - sennilega hvolpur - og hann var sendur á eftir óvættinni á milli þiljanna. Að vörmu spori kom hundur- inn til baka með bráðina í kjaft inum, sem reyndist þó öllum til undrunar ekki vera refur — heldur stór og loðinn fresskött- ur. f viðtali við Svein Einarsson, veiðistjóra, skýrði hann blaðinu frá að nokkuð algengt væri að fólk þekkti ekki sundur ketti, minka, refi og rottur, ruglaði þessu saman og þess vegna væri algengt að sér bærust alls- konar tilkynningar um minka og refi sem væru á algerum misskilningi byggðar. telja sig hafa orðið vara v.’.ð síld argöngu frá blöndunar.svæðinu norðan Færeyja til Jan Mayen- hægt að gera yfirlitskort um átu- magn á norðanverðu Noröurhafi og við strendur Islands. Á rann- sóknartímabilinu var miklu meira plöntusvif við strendur ís- lands en undanfarin ár, en rauð- átumagnið yfirleitt talsvert minna. Þetta gæti þó bent til þess, að rauðátan muni eiga á- kjósanleg skilyrði til uppvaxtar á þessu sumri. Langmesta átumagnið fundu rússnesku fiskifræðingarnir fyr- ir norðan Jan Mayen og milli Bjarnareyja og Noregs. Með til- liti til samanb. við fyrri ár virð- ast fæðuskilyrði síldarinnar vera óvenju góð á þessum hafsvæð- um. Leiðangrar undanfarinna ára hafa gefið markverðar niður- stöður um dreifingu síldarinnar í Noregshafi í júnímánuði. Ekki virðast hafa átta sér stað stór- vægilegar breytingar hin síð- ustu ár. Islenzku fiskifræoingarnir telja nú nauðsynlegt að beir.a rannsóknunum á tiltekin svæii vegna hinna öru breytinga ser.i eiga sér einmitt stað í júnímán- uði. Var svæðaskipting rann- sóknarskipanna því endurskoð- uð, og varð samkomulag um, að íslenzka rannsóknarskipið rann- sakaði svæðið suðvestan og vestan íslands ásamt norður- svæðinu að Melrakkasléttu og landgrunnssvæðið umhverfis landið. Standa vonir ÍO, að á þann hátt fáist ýtarlegri upplýs- ingar um göngur síldarinnar inn ^ á norðvestursvæðið en nú eru jfyrir hendi. Norðmenn munu rannsaka svæðið frá Melrakka- sléttu allt til Noregs sunnan 68. breiddargráðu. | Þeir munu því safna upplýs- ingum um síldargöngur austan úr hafi. Rússnesku skipin munu rannsaka svæðið norðan 68. breiddargráðu, allt norður að Svalbarða. Rússar munu leggja aðaláherzlu á rannsóknir varð- andi göngur sildarinnar á Jan Mayen-svæðinu. Færeyska skip- ið mun rannska svæðið milli Færeyja og suðausturstrandar Framhald á 6. síðu. Síld miðsvæðis í gærdag. Samkvæmt frcguum frá Siglu firði í gærkvöldi var síldarafli þá ekki ýkja mikill. Mörg skip köstuðu miðsvæðis fyrir Norðurlandi í gær og fengu einhvern afla, en ekki var vitað nákvæmlega hve mik ið, síðast er fréttist.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.