Vísir - 11.08.1958, Page 8
Ekkert Ua8 er édýrarm f áskrlft ea Ví*lr.
LátiS hana fœra yður fréttir eg annað
leitrarefnl helm — án fyxlrhafna* af
yðar hálfn. UiéMi]
Súnl 1-16-60.
VXSIR
Munið, að þelr, sem gerast áskrifendnr
Vísii eftir 10. hvers mánaðar, fá hlaSfl
ókeypls til mánaðamóta.
Sími 1-16-60.
Mánudaginn 11. ágúst 1958
15 m. hátt stálmastur
á Helgusker í Kollafirði
Það ber uppi háspennustrenginn, sem
fiytur orku frá Sogi til Akraness.
Lagning háspennulínunnar
frá Elliðáarstöðinni til Akra-
ncss er nú að verða lokið. Einn
af síðustu áföngum verksins er
að leggja línuna yfir Kollafjörð,
það er nokkrum vandkvæðuni
hundið en við það sparazt löng
3ögn inn fyrir fjÖrðinn.
Þar sem háspennustrengur-
inn liggur yfir Kollafjörð er
breidd fjarðarins 900 metrar,
«n þar hagar svo vel til að í
miðju fjarðarins er svonefnt
Helgusker og á því er nú verið
að byggja stall einn mikinn,
sem er 5 metra hár og á hann
verður sett 15 metra mastur,
sem ber uppi strenginn.
Vísir náði tali af Ólafi Jens-
-syni verkfræðingi hjá Verkleg-
um framkvæmdum h.f., sem
sér um uppsetningu masturs-
tumsins.
— Verkinu miðar vel, sagði
Ólafur, búið er að steypa und-
irstöðuna, en til þess varð að
sæta föllum, þv£ skerið kemur
•ekki upp úr fyrr en hálf fjarað
■er. Nú geta mennirnir verið
-öruggir á pallinum allan dag-
inn og þar drekka þeir kaffið
sitt. Við höfum notað innrásar-
prammann frá Akranesi til að
flytja efnið út í skerið, en til
— Hindrar strengurinn um-
snúninga notum við lítinn ára-
bát. !■' i
ferð báta um fjörðinn?
— Upphaflega mun hafa ver-
ið ætlað að leggja strenginn á
öðrum stað yfir Kollafjörð, en
með tilliti til umferðar báta á
þessum slóðum var þessi stað-
ur valinn, því þarna er traust
undirstaða fyrir hið háa stál-
mastur, sem ber strenginn svo
hátt að stórum bátum er óhætt
að sigla undir hann.
— Er þarna eins mikið mis-
vindi eins og af er látið?
— Engu mun vera logið til
um það. Það var um daginn að
við vorum að legga af stað á
prammanum út í skerið að
hvítalogn var, en svo nötraði
pramminn allt í einu og er við
litum upp var förðurinn eitt
sælöður. Það hefur skeð að
meðan við vorum að róa út í
skerið, þessa 450 metra að
vindur hefur blásið á okkur úr
öllum áttum og vorum við þá
ýmist á fleygiferð út í skerið
eða okkur rak til baka og svo
höfum við líka orðið að lenda
þeim megin farðarins, sem við
ætluðum ekki að taka land. Og
eitt sinn fauk báturinn.
„Hatta-Nína" í ónáð
ásamt stallsystur.
Tilkynnt hefur verið, að tvœr
sovézkar íþróttákonur hafi ver-
ið reknar úr landsliði þjóðar
sinnra, sökum eigingirni og illr-
ar hegðunar.
Konur þessar eru Nina Pano-
mareva og Galina Sobina, en
sú fyrrnefnda er kringlukast^r-
inn frægi, sem dæmd var fyrir
hatttastuld I Lundúnum fyrir
tveim árum og hlaut þá viður-
néfnið „Hatta-Nína“.
Viðræðuan um
Kýpur Bokið.
Macmillan, forsætisráðherra
Breta, hefur lokið viðræðum sín-
um um Kýpurmállð við Mender-
es, forsætisráðherra Tyrkja, í
' Ankara, en auk þeirra tóku þátt
I í viðræðunum tyrkneski utanrík-
isráðherrann og landstjóri Breta
' á Kýpiu’.
' I sameiginlegri yfirlýsingu, er
' forsætisráðherrarnir hafa gefið
j út er skýrt frá því, að viðræður
þeirra hafi verið opinskáar og
vinsamlegar. Hafi hvor um sig
gert grein fyrir sjónarmiðum
stjórnar sinnar, en fullnaðar-
samkomulag ekki náðzt.
Að viðræðunum loknum átti
Macmillan viðræðufund með
sendiherrum Kanada, Pak-
istan og Indlands í Ankara en
hélt að því búnu heimleiðis um
hádegisbilið í dag.
Tiðindamaður brezka útvarps-
ins átti í gær viðtal við Makari-
os, erkibiskup, og innti hann eft-
ir skoðunum hans á þvi, hvort
vopnahlé það, sem ríkt hefur á
Kýpur að undanförnu, yrði var-
anlegt. Erkibiskupinn kvaðst
ekkert geta um það sagt, en hins
vegar vonaði hann að svo yrði.
Aðspurður sagði Makarios enn-
fremur, að ekki hefði hann rætt
sérstaklega við Sir Hugh Foot,
landstjóra, að fá leyfi til þess að
snúa aftur til Kýpur, en meira
kvaðst hann ekki óska að segja
um það atriði.
Murphy, aðstoðarutanríkisráð-
^ heri-a Bandaríkjanna, hefur lýst
I þvi yfir í Lundúnum, að Banda-
riska stjórnin muni gera það
sem í hennar valdi stendur, til
þess að stuðla að lausn Kýpur-
deilunnar.
Talsverð síld tíl Húsa-
víkur um helgina.
Húsavík f morgun.
Frá því á laugardag þar til í
morgun liafa um 5000 mál og
tunnur af síld borizt til Húsa-
víkur.
Hefur tekizt að salta mest af
þessari síld, þótt skortur hafi
, verið á vinnuafli á plönin, því
nokkrar stúlkur munu hafa
i farið héðan til Raufarhafnar.
í morgun voru þessir bátar
I væntanlegir með síld: Helga
I Th. 250 tunnur, Smári 100, Pét-
ur Jónsson 60. Komin er bræla
og nokkrir bátar liggja hér inni
og bíða veðurs.
Sementsgeymslan er mikið hús, og þar sækja bílar frani-
leiðsmia. (Sjá grein á bls. 5).
Tvö umferðarsfys hér í gær.
Telpa lærbrotnaði - maður féll af
bifhjóli og skrámaðist á fæti.
Tvö slys urðu hér í bænum
í gœr, en hvorugt mjög mikið,
þótt um meiðsli vœri að rœða
í báðum.
Laust fyrir hádegið varð telpa
fyrir bifreið á gatnamótum
Hofsvallagötu og Hringbrautar.
Var sendiferðabifreið að koma
að gatnamótunum norðan Hofs-
vallagötu og sveigði inn á
Hringbrautina. Segja sjónar-
vottar, að bifreiðinni hafi verið
ekið mjög hægt, en um leið og
bifreiðinni var beygt, hljóp
þriggja ára telpa — Anna Björg
Daníelsdóttir, Kamp Knox A —
út á götuna fyrir framan bif-
reiðina og varð fyrir vinstra
hjóli hennar. Bifreiðarstjórinn
stöðvaði bifreiðina þegar, en
telpan hafði fallið á götuna og
lærbrotnað á vinstra læri.
Laust eftir miðnætti varð slys
á Laugavegi. Langferðabifreið
var á leið vestur Laugaveg, og ,
var ætlunin að beygja niður
Höfðatún hjá Mjólkurstöðinni.
Rétt þegar bifreiðin var að byrj
að beygja, tók ökumaðurinn eft-
ir manni á bifhjóli, er kom úr
vesturátt. Segja sjónarvottar, að
bifhjólið hafi verið Ijóslaust, en
um þetta leyti var bæði orðið
dimmt af nóttu, og auk þess
þungbúið loft og rigning, en lýs-
Biðröð við
útsvaflrsskrána.
Útsvarsskráin var lögð fram
til sýnis í morgun í gamla Iðn-
skólanum á mótum Vonar-
strætis og Lækjargötu.
Þar var fyrir hádegið mikil
þröng manna og náði biðröð
þeirrat, sem athuga vifdu
skráná, út á götu, en. lögreglan
hélt uppi rjjÖ ag reglu.
ing léleg þarna, svo að skyggni
var slæmt,
Langferðabifreiðinni var
hemlað og maðurinn á bifhjól-
inu reyndi að víkja, svo að varla
varð um snertingu að ræða, en
farþegi aftan á hjólinu kastaðist
af því við sveifluna, sem á það
kom. Skrámaðist hann á fæti,
en ekki alvarlega.
Malbiksleifum og
tunnum brennt
Það vakti nokkra athygll
fólks hér í höfuðstaðnum i gær,
að reykjarmökkur mikill sást
| stiga upp af Reykjanesi.
| Létu sumir sér detta í hug. að
; um skaðsamlegan bruna væri
að í'æða, en samkvæmt upplýs-
ing'um, er blaðið aflaði sér hjá
slökkviliðsstjóranum í Kefia-
vík í morgun, var sú ekki raun-
in. — Það sem fram fór þar
syðra var bi'ennsla á gömlum
malbiksleifum og -tunnurn á
vegum vaniarliðsins, en þeira.
hafði vei'ið ýtt saman með til-
styrk jarðýtu á opnu svæði,
skammt fyrir ofan Keflavík, og
síðan kveikt í í gær af því a5
vindur var þá hagstæður og
lagði í'eykinn á haf út, án þess
að verða nokkrum til óþæginda.
Jóhann strýkur -
Framh. af 1. síðu.
ar gerð leit að Jóhanni þar í
nágrenninu, án árangurs.
Það er að frétta af Jóhanni,
að honum mun hafa tekizt að
fá far með bíl til bæjarins, og
segir síðan ekki af ferðum hans
fyrr en snemma í morgun, er
lögreglan var að svipast eftir
honum í bænum, að hann fannst
inni á einum af greiðasölustöð-
um borgarinnar.Var hann strax
handtekinn og fluttur í geymslu.
Ekki mun Jóhann hafa sýnt
neinn mótþróa við handtökuna.
Hann verður að sjálfsögðu flutt-
ur að Litla-Hrauni aftur.
ai) salta um 280
tn. af síld nyrDra
Nærri lokið að salta upp í samninga. — Engin
veiði í gærkvöldi eða í morgun.
Sildarhrotunni, seni hófst í
byrjun fyrri viku, lauk í gær um
liádegisbilið og var þá kominn
bræla fyrir austan og uni kl. 8
í gærkvöldi var komin bræla á
öllu veiðisvæðinu fyrir norðan.
Siðan hefur engin veiði verið. —
Siðasta sólarhringinn eða á
laugardag frain á aðfaranótt
sunnudags bánist á land fyrir
norðan imi 30 þúsund niál og
tunnur af 80 skipum. Megnið af
síldinni fór i salt og mun láta
nærri að bú:ð sé að salta upp í
samninga af Norðuriandssild
uxn 280 þúsund tunnur. Síldar-
lýsingum frá Ægi er mikil rauð-
áta miðsvæðis og lóðað hefur
verið á síld. Nær öll síldarskipitx
eru á svæðinu milli Langaness
og Siglufjarðar, en mörg hafa
leitað hafnar í nótt vegna bræl-
unnar.
Á aðfaranótt sunnudags komu
þessi skip með sild til Raufar-
hafnar: Gunnar EA 200, Stelta
100, Álftanes 200 Svanur SH 120,
Guðmundur Þórðarson 500, Ás-
geir 230, Ei'lingur 3. 200, Bjarni
Jóhannesson 200, Vilborg 250,
Helga TH 100, Vonin KE 200,
Ólafur Magnússon 300, Þorbjörn
saltendtmi hafði ekki í niorgun 250, Suðurey 100, Ófeigur 3. 150,
verið tilkynnt um að iáta. hætta Garðar 300, Hamar 350, Goða-
að salta, en saltað var á flestum! borg 200, Sæljón 400, Hrönn SH
höfnum norðanlands í gær. I 400, Svala 150 og Stjarni 130.
Þrátt fyrir bræðsluna eru menn ! Síldin, sem Gissur hvíti, 550 tn.
almennt vongóðir að síldveiðin ' og Björg SU 500 tn., fengu út af
standi lengur en vérið hefur j Vopnafirði, var ihillisíld og fór
undanfarin Sr, Samkvæmt upp- hún öll í bræðslu.