Vísir - 13.08.1958, Page 8
KkJcert blað er ódýraia 1 áskrlft ea Vfalr. • _____ Munið, aS þelr, aem gerast áskrifendar
LátlB hanm færa yður fréttir og annað VMi eftir 10. hvera mánaðar, fá blaSII
lattrarefnl helm — án fyrirhafnaK ai VBfll MimSL THT IWSBF ókeypis til mánaðamóta.
yðar hálfn. Sími 1-16-60.
Síml 1-16-60. VBBW urnm f Bwy uíhI
Miðvikudaginn 13. ágúst 1958
Íslenzka landsíiðið
hefur verið valið.
Landskeppni Dana
fram í Randers
Islenzka liðið, sem tekur þátt
í landskeppni Islendinga og
Dana i frjálsum íþróttum íRand-
ers á Jótlandi dagana 30.—31.
_ágúst hefur verið valið. Þar á
xneðal eru 10 íþróttamenn, sem
jvaldir hafa verið til þátttöku í
-Evrópumeistaramótinu í Stokk-
(hólmi 19.—24. ág.
Hinir 10 fara til Svíþjóðar þ.
16. n. k. en að mótinu loknu fara
l>eir til keppni í Danmörku. Sið-
ari hópurinn fer héðan þ. 28.
tBrynjólfur Ingólfsson formaður
’F.R.l. verður fararstjóri.
Hér á eftir eru talin nöfn
keppanda í hinum ýmsu grein-
um í landskeppni Islendinga og
.Dana:
100 m. hlaup: Hilmar Þor-
björnsson Ármann, Valbjörn Þor
láksson IR.
400 m. hlaup: Þórir Þorsteins-
,son Á, Hörður Haraldsson Á.
1500 m. hlaup: Svavar Mark-
ússon KR, Kristleifur Guðbjörns
son KR.
5000 m. hlaup: Kristján Jó-
,hannsson ÍR, Hafsteiun Sveins-
son HSK.
Engin veiði
fyrir norðan.
Frá fréttaritai’a Vísis.
Baufarhöfn i morgun.
Enn er sama brælan, en fá
skip eru hér inni, þau liggja í
vari liingað og þangað m. a.
sunnan undlr Langanesi og þar
voru nokkrir að kasta í morgun.
Jón Kjartansson fékk 150 mála
kast í morgun og rétt áðan fékk
liann stórt kast og fyllti sig.
Það lítur út fyrir að lokin séu
í nánd. Stúikurnar eru á förum
og margar eru farnar. Þær tín-
ast burt í smáhópum og ef svo
og íslendinga fer
30.-31. ágúst.
I 110 m. grindah.: Pétur Rögn-
valdsson KR, Björgvin Hólm ÍK.
400 m. grindah.: Guðjón Guð-
mundsson KR, Daniel Halldórs-
son ÍR.
Hástökk: Jón Pétursson KR,
Sigurður Friðfinnsson FH.
Langstökk: Vilhjálmur Eínars
son lR, Einar Frímannsson KR.
Kringlukast: Plallgrimur Jóns
son Á, Friðrik Guðmundsson KR
200 m. hlaup: Hilmar Þor-
björnsson Á, Valbjörn Þorláks-
son IR.
800 m. lilaup: Svavar Markús-
son KR, Þórir Þorsteinsson Á.
10.000 m. lilaup: Kristján Jó-
hannsson ÍR, Hafsteinn Sveins-
son HSK.
3000 m. hindrunarhlaup: Krist-
leifur Guðbjörnsson KR, Hauk-
ur Engilbertsson UMSB.
Stangastökk: Valbjörn Þorláks-
son lR, Heiðar Georgsson ÍR.
Þrístökk: Vilhjálmur Einarsson
iR Jón Pétursson KR.
Kúluvarp: Gunnar Huseby I<R,
Skúli Thorarensen iR.
Sleggjukast: Þórður Sigurðs-
son KR, Friðrik Guðmundsson
KR.
Spjótkast: Gylfi Gunnarsson
IR, Jóel Sigursson ÍR.
Keppendum í boðhlaupum
verður raðað niður síðar.
[]] Heilbrigðismálaráðuneytið
brezka hefur fyrirskipað
rannsókn á geislaáhrifum í
öllum tegundum matvæla.
vildi til að kæmi smáhrota myndi
skorta stúlkur. Það er farið að
bera á heimferðarhug hjá sjó-
mönnum og nokkrir bátar eru
hættir. Búið er að bræða það
sem var í þrónum og nú er ekk-
ert að gera. Ekkert hefur frétzt
af síld á vestursvæðinu.
*
Okyrrð í Argentínu vegna
verðhækkana á kjöti.
Verðlag hefir tvöfaldazt og kjöt er aðalfæða
landsmanna.
Ókyrrð hefur verið í Argen-
tínu síðustu dagana vegna gif-
urlegrar verðhækkunar á kjöti,
sem er undirstaðan í mataræði
landsmanna,
Óttast stjórnarvöldin, að koma
kunni til óeirða af þessum sök-
um, og er ástandið svo alvarlegt,
að ráðherrar hafa ávarpað þjóð-
ina til að reyna að sefa hana.
^Hefur almenningi verið bent á,
áð hann verði að draga úr kjöt-
neyzlu sinni, bæði til þess að
spara við sig en einnig til þess,
áð hcegt sé að auka útflutning-.
Inn.
Á undanförnum tíu árum hef-
ur landsmönnum fjölgað um
fjórðung — úr 16 millj. i 20 —
búfjárstofninn hefur staðið i
stað, því að þótt nautgriparækt
hafi vaxið lítið eitt, hefur kjöt-
neyzlan vaxið enn meira, svo að
almenningur etur nú tvo þriðju
hluta alls þess kjöts, sem nauð-
synlegt væri til útflutnings.
Stjórnin hefur heimilað mikl-
ar verðhækkanir til bænda, til
þess að hvetja þá til'aukinnar
nautgriparæktar, og er það únd-
irrót ókyrrðarinnar. '
Fluglier Dana hefur kvennasveit til aðsto'ðar, og til skamms
tíma var Margrét prinsessa þar í þjálfun. Hér sést hún æfa sig
að heilsa og er hún lengst til vinstri á myndinni.
Dómur fallinn í máli skip-
stjórans á Northern Sky.
Sllatti ÍOO /iií.v. liv. soht, ttili tif§
voiihttritovi tfovii ttppitoh.
Dómur er nú fallinn í máli
Alberts Williams Kissaks, skip-
stjóran á brezka togaranum
Northern Sky.
Erlendur Björnsson, bæjar-
fógeti á Seyðisfirði, dæmdi
skipstjórann í 100 þús. króna
sekt fyrir landhelgisbrot. Með
tilliti til hinnar dólgslegu
hegðunar skipstjórans við þá
varðskipsmenn á Óðni var
sektin höfð 26 þús. krónum
hærri en vani er við fyrsta
brot. Og mun þetta vera í fyrsta
skipti sem landhelgisbrjótur er
dæmdur sérstaklega fyrir mót-
þróa.
Skipstjórinn neitaði öllum
sakargiftum þess efnis að hann
hefði verið að veiðum innan
landhelgi, en aftur á móti við-
urkenndi hann að möskvastærð
botnvörpu hefði verið 100 mm.
í stað lögskyldra 110.
Stevenson prédikar
í Moskvu.
Sunnudag einn fyrir nokkru
flykktust um 2000 ábeyrend-
ur til Baptistakirkjimnar i
Moskvu.
Voru það mest megnis kon-
ur sem komu til að, hlusta á
Adlai Stevenson flytja stól-
ræðuna. Hann var þá á ferða-
tagi um Sovétríkin.
Togarinn var með lítinn afla
innanborðs, og var hann aðeins
metinn á 10 þús. kr. Aftur á
móti voru veiðarfæri er upp-
tæk voru gerð metin á 81 þús.
kr. — Kissak hefur áfrýjað
dómnum, en er sett hafði verið
trygging fyrir greiðslu sektar-
innar, hélt togarinn úr höfn.
Sorpeyðingarsföðin:
Aburðarframleföslan
tefst sökum bílunar,
Sorpeyðingarstöðin hefur að-
eins verið í gangi að hálfu leyti
síðan hún tók til starfa uni
jiniðjan júnímánuð, en vonir
standa nú til að áburðarfram-
leiðsla þar geti hafist af fulIuiK
krafti innan skanuns.
Orsök þess, að ekki hefur
verið um full afköst að ræða
fram til þessa, er sú, að báðir
„gírkassarnir“ í vélasamstæðu
stöðvarinnar- hafa brugðist.
Hefur því verið horfið að því
ráði, að fá nýja frá Danmörku,
og er annar þeirra kominn og
verður settur upp fljótlega, en
hinn er væntanlegur.
Sá áburður, sem stöðin hef-
ur þegar framleitt, hefur ekki
verið seldur enn — en hinsyeg-
ar lítilsháttar notaður til
reynslu fyrir forgöngu garð-
yrkjuráðunauts bæjarins. —
Áburðurinn verður að öllum
líkindum tilbúinn til afgreiðslu
í haust.
Áfengi fyrir 35
milljónir króna.
Áfengisverzlun ríkisins hefw
látið áfengisvarnaráði í té eft-
irfarandi greinargerð um sölu
áfengis tímabilið frá 1. apríl til
30. júní 1958: ,
I. Heildsala:
Selt í og frá:
Reykjavík .. Kr. 27.864.033,00
— 2.950.770,00
— 1.169.900,00
— 711.662,00
— 998.089,00
| Akureyri
; ísafirði ..
Seyðisfirði
Siglufirði
genginn
i
Frá fréttaritara Vísis. —
ísafirði í gær.
Utlit er nú fyrir að fiskur sé
genginn inn um allt Djúp.
Handfærabátar héðan sækja afl
ann rétt út fyrir fjarðarmynnið
og hafa margir fengið sem
svarar hálfri lest á færi eftir 7
til 8 klukkusturula drátt und-
antarna daga.
Dýpkunarskipið Grettir hef-
ir verið óstarfhæft síðan
strókkur í vél skipsins sprakk.
Bilunin varð er verið var að
færa til Stórgrýti innan við
öldubrjótinn á Bolungarvík.
Grettir var síðan dreginn til
ísafjarðar til viðgerðar.
Togarinn Isliorg kom s.l.
sunnudag með iullfermi að hin-
um nýju miðum við Nýfundna-
Kr. 33.694.454,00
II. Sala í pósti til
héraðsbannsvæðis:
Frá aðalskrifstofu
í Rvík Kr. 933.795,00'
III. Áfengi til veitingahúsa
Selt frá
aðalskrifstofu Kr. 864.525,00
Á sama tímabili í fyrra var
áfengissala í Reykjavík heldur
meiri en í ár, en þess ber að
geta að verð. á áfengi var þá
nokkru lægra. Hinsvegar er
heildarsala áfengis heldur meiri
í ár en í fyrra.
Sprengingar í
BraziBíu.
Sprengingar miklar urðu í
skotfærageymslu brasilska hers-
ins nærri Bio de Janelro í sJU
vilui.
Kom upp eldur í herstöðinni
og síðan urðu margar sprenging-
ar. Um fimmtíu manns slösuð-
ust, en tveir eða þrír menn dóu
af hjartaslagi vegna hræðslu við
sprengingamar. Tjónið er metið
á ca. 20 mlllj. dollara.