Vísir - 06.09.1958, Blaðsíða 4

Vísir - 06.09.1958, Blaðsíða 4
V í S IR Laugardaginn 6. september 1953 Atómöldin 10: Nýr heimur birtist. Kennmg Einsteins. — Er járn og Ijös hið sama, — Þegar atomkjarninn var klofinn í fyrsta sinn. — festy en . . . eins og vatn og ts? — Kenning Einsteins stað- Eitir Christian Ðahlcvup Mtoch. Þegar 26 ára gamall aðstoðar- maður á rannsóknarstoíu einni í Bern, lýsti þvi yfir árið 1905, að E sé jafnt m sinnum c í öðru veldi, voru ekki margir sem tóku það alvarlega. Þetta þýddi nefnilega, að t.d. eitt gramm af járni jafngilti allri þeirri raforku, sem notuð er í landi eins og Danmörk á tveim- ur og hálfum sólarhring, eða sama og sá hiti, sem fæst, þegar 15,000 smálestum af kolum er brennt, eða 10.000 smál. af oliu. Nánar sagt þýddi þetta, að orka og efni væru í raun og veru það sama, alveg eins og ís og Vatn og gufa eru það sama. Það þýddi, að orkan (E) er jöfn efnismagninu (m) sinmun hraði ljóssins í öðru-veldi (c sinnum c eða c2). Ef maður táknar orkuna með erg (það eru 36 billjónir erg í 1 kilówatttíma Og i Danmörk eru að meðaltali notaðar 10 milljónir kílówatt- tíma á sólarhring), mælir maður magnið í grömmum og hraða ljóssins í centimetrum á sek- úndu. Það þýðir: orkumagnið, sem svarar til 1 framms af efni .(eða massa) er — mælt í erg — sama og 1 sinnum 30 milljarð- ar sinnum 30 milljarðar. Það er sama og 1 sinnum 900.000.000.000. 000.000.000 — 900 trilljónir erg eða 25 milljónir kilówatttimar. Nýr heimur birtist. Það líkist óráðshjali, að segja, að svolítil ögn sem eitt einasta gramm af efni gæti samsvarað jafn óhemjumikilli orku og t. d. hitanum af 15.000 smál. af 'kol- urn, en þar að auki og ekki sið- ur var það óskiljanlegt, að svo ólíkir hlutir sem efni og o’rka _(t.d. járn og ljós) gætu í raun og veru verið eitt og hið sama — óg birtist oss hinsvegar í tveim- ur, ólíkum myndum. En það kom að því, að það rann upp fyrir fáeinum vísinda-" mönnum, sem fóru að skyggn- ast i völundarhús það, sem hinn ungi aðstoðarmaður hafði kann- að, að hann mundi vera á réttri leið. Þegar menn uppgötvuðu það loks einnig, að það undur skeði í náttúrunni, að efni breytist í orku, og, að orkumagnið og efn- ismagnið var nákvæmlega í þeim hlutföllum, sem aðstoðarmaður- inn hafði sagt, Þ.e.a.s. „E á móti m sinnum c í öðru veldi" — já, þá urðu allir að viðurkenna, að ungi maðurinn hafði haft rétt fyrir sér. Þá fluttist Albert Einstein úr Skrifstofunni í Bern. Loks skeði það, að vísinda- mennirnir fóru að sýna mikinn áhuga fyrir því að breyta efni i orku og orku í efni. Afleiðingarnar urðu þær, að farið var að kljúfa atómin og það leiddi aftur til þess, að einn góðan veðurdag fundu menn | leið til að leysa orku atómkjarn- ' ans úr læðingi í svo stórum stíl, * að það hafði verklega þýðingu — fyrst sem sprengjuorku i at- ] ómsprengjur og síðan sem hita í kjarnorkuofnum. Og nú skildist mönnum, að Einstein hafði numið nýjan heim. Hin dularfullu, geisla- virku efni. Reyndar var það ekki eingöngu þessi djarfa kenning Einsteins, sem kom skriðunni af stað, held- ur og ekki síður forvitni manna, sem rak þá út í tilraunir og glímu við atómkjarnann. Þar að auki komu nú til sögunnar ýms tæki, sem gerðu þessar tilraunir mögulegar, en ekki höfðu verið til áður. Hin frönsku hjón María (fædd Sklodowska frá Póllandi) og Pierre Curie höfðu uppgöt- vað, að bikblendi hafði inni að halda tvö óþekkt efni auk hinna áður þekktu frumefna, úraníuni og thoríum. Annað þessara efna var nefnt pólónium, eftir föður- landi frú Mariu Curies, en hitt fékk nafnið radíum, af því að það hafði mjög greinilegt, dular- fullt einkenni: Það geislaði „eitt- hvað“ af því. Reyndar var þetta hka að nokkru leyti einkennandi fyrir hin þrjú líka, en ekki voru þau einkenni jafn áberandi. Geisli heitir radius á latínu, því mætti einnig kalla radium geisla- efni. Þessi dularfulla útgeislan er það, sem vér nú köllum geisla- verkun eða að efnið sé geisla- virkt. Hvað var nú þetta, sem efnin geisluðu frá sér? í fyrsta lagi voru það einskon- ar agnir, sem gerðar voru af tveimur prótónum og tveimur nevtrónum, þrýstum saman í klump. Þegar hér var komið sögu, vissu menn reyndar ekki að þessi ögn eða klumpur sam- anstóð af þessum fjórum eindum og menn vissu heldur ekki, að „klumpur", sem gerður var af einmitt þessum fjórum eindum, var það sama og það, sem nú er þekkt sem helíum-atóm. Menn gáfu þessum ,,klump“ því nafnið eftir fyrsta bókstafnum í staf- rófinu griska og kölluðu hann alfa-eindina, og geislana nefndu menn „alfa-geisla“. I öðru lagi var hér um að ræða hinar velþekktu agnir, nefnilega hinar venjulegu elektrónur. Or því að byrjað hafði verið á gríska stafrófinu, varð að halda þvi á- fram, og elektrónurnar fengu þvi í þessu sambandi nafnið beta-eindir. í þriðja lagi kom i'ljós, að hér var um einskonar rafsegulmagn. aða geisla með ótrúlega lágri bylgjulengd að ræða — nvjögj „harða“ geisla, „afar samþjapp- aó efnisform" og vroru þeir nú nefndir gamma-geislar (eftir þriðja bókstafnum i gríska staf- rófinu). Loks voru þarna einskonar geislar, sem að visu voru ekki eins ,,harðir“ og gamma-geislarn. ir, en þó miklu „harðari" en sýni- legt Ijós. Þá þekktu menn að vísu áður, því þýzki vísindamaðurinn Röntgen hafði uppgötvað þá ár- ið 1895 — það voru röntgen-geisl- Fallbyssur, þrestir og atómkjarnar. Það er svo sem hægt að skjóta þröst með fallbyssu, en það verð- ur þá sennilega lítið eftir af þrest inum. Ætli maður hinsyegar aðj skjóta þröst og ná honum svo litið skemmdum, að hægt sé að stoppa hann upp, er betra að nota „þrastahögl“. Á sama hátt er betra að nota „kúlur“ sem eru bara agnar-agn- ir, ef maður ætlar að „skjóta á atómkjarna", en svo litlar „byssu kúlur“ voru ekki fáanlegar fyrr en menn komust yfir geislana eða agnar-agnirnar frá geisla- virku efnunum. Nú var lausnin nærri. Þessar agnir voru nógu smáar til þess að nota. þær sem „skotfæri" og „púðrið“ var einnig nógu öflugt, þar sem hinn geislandi kraftur var. Alfa-agnir fara með 25.000 km hraða á sekúndu en það sam svarar því að þær „slái“ h.u.b. milljarð-sinnum hraðar en fall- byssukúla af sömu stærð (ef hún væri hugsanleg). Nú tóku visindamennirnir til óspilltra málanna og hófu skot- hríðina á atómkjarnana með röntgengeislum, gammageislum, betaögnum og alfaögnum, og ár- ið 1919 gat hinn mikli, breski uppfinningamaður, Lord Rut- herford, tilkynnt, að honum hefði, fyrstum allra, tekist að kljúfa atómkjarna svo óyggjandi væri. Hafði hann skotið á nokkra köfnunarefniskjarna með alfa- ögnum og tekist að kljúfa eina prótónu úr hverjum kjarna. Seinna komst hann að þvi, aS þótt köfnunarefnis-kjarnina hefði þannig misst eina prótónu, hafði hann aftur á móti fengið tvær nýjar í staðinn — aulc tveggja. nýrra nevtróna — nefni- lega þær tvær prótónur og þæc tvær nevtrónur sem mynda alfa- ögnina. Höfðu þær „borað“ sig inn í köfnunar-efniskjarnan og sátu þar fastar, en það þýddi, aá köfnunarefnis-kjarninn, sem upphaflega var gerður af 7 pró- tónum og 7 nevtrónum, hafði nú 8 prótónur og 9 nevtrónur, en slíkur kjarni er ekki lengur* köfnunarefniskjarni, heldur súr- efniskjarni — að vísu með eintr.i nevtrónu um of. ; Draumur "J gullgerðarniannanna. ’ Vér höfum áður rætt um gull« gerðarmenn miðaldanna og drauma þeirra. Var það ekki ein- mitt draumurinn þeirra, sem nú, var loks að rætast? Hafði Rut- herford ekki einmitt breytt eitiu frumefni í annað •— köfnunar- efni i súrefni? Að vísu ætluðu miðaldamennirnir að breyta öðr« um efnum i gull. Þó að það hefði nú tekist að kljúfa kjarna að nokkru leyti og breyta einu efni í annað, fannst fáum mikið til um þetta í fyrstu. En það var haldið áfram með tilraunirnar. Valin voru önnur skotmörk og prótónur klofnac úr ýmsum kjörnum, en þá kom I Ijós, að þvi stærri sem kjarnarn- ir voru, þeim mun erfiðara var að koma á þá skoti. Þetta kann að virðast nokkuð öfugmæla- kennt, en ef nánar er að gáð, verður þetta ofur skiljanlegt: Alfa-eind, þ.e.a.s. helíum-kjarni, er, eins og kunnugt er, gerður af tveimur ómögnuðum nevtróm um og tveimur aðhverft-hlöðn- um prótónum — (pósitívum. Þetta þýðir 1 fyrsta lagi, að hinar fráhverfu (negatívul elektrónur, sem eru i kringum kjarnann, sem á að hitta, munu leitast við að draga helíúm-kjarnann (sem er aðhverfur) til sín og halda Frh. á 9. s. í Manstu eftir þessu Sprenging mikil varð í Búrgerbraú- bjórkjallaranuin í Múnchen þann 8. nóvember 1939 — aðeins ellefu mínút- um eftir að Hitler hafði ávárpað gamla' nazista þar og haldið leiðar sínnar. Sjö menn biðu bana en 63 slösuðust. Sam- koman var haldin til að minnast þess, að 16 ár voru liðin frá byltingartilraun nazista í Miinchen. Þegar Hitler frétti um sprenginguna, komst hann svo að orði: „Nú er ég ánægður . . . því að forlögin ætla mér að ná marki mínu.“ Hálfu sjötta ári sfðar framdi Hitler sjálfsmorð í kanzlarahöllinni í Berlín. Ný kirkja, sem kennd var við lieilag- an Jóhannes, var opnuð í New York þarin 30. nóvember 1951, og voru alls 10,000 manns viðstaddir vígsluhátíðina. Kirkja þessi, sem er eign kirkjufélags biskupakirkju.nnar, er mesta guðshús á meginlandi Norður-Ameríku, því að hún er 180 m. á lengd og 96 m. á breidd. Byggingarstíllinn er gotneskur. Hæð undir loft í aðalskipinu er 37 metrar. Hornsteinn byggingarinnar var lagður 1892, og enda þótt byggingin sé ekki fullgerð enn, hefur liún verið notuð frá því að vígslan fór fram. Oft gerist nauðsynlegt að flytja skipa- kvíar, flotakvíar eða hurrkvíar langa vegu, og getur það reynzt býsna erfitt. Vorið 1949 þurfti bandaríski flotinn að flytja eina af stærstu flotkvium sína frá Kyrrahafi til Atlantsliafs og var vitanlega hægt að fara suður fyrir Horm, en það hefði tekið marga mánu.ði. Varð þess vegna að ráði, að farið var nm Panama-skurðinn og var gripið til þess ráðs að fleyta kvínni á hliðinni gegninia lásana. Þannig var kvíin eins há og 10 hæða hús. — Það tók 3 daga að gera þetta. j

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.