Vísir - 27.09.1958, Blaðsíða 1

Vísir - 27.09.1958, Blaðsíða 1
48. árg. Laugardaginn 27. september 1958 213. tbl. Friðrik teflir ekki á 01- ympíumótimi. Ingí M. verðm* á 1. Friðrik Ólafsson stórmeistari i skák liefir nú tekið þá á- lcvörðun, að taka ekki þátt í Olympíuskákmótinu í Miin- c-hen, sem hefst í næstu viku. Kennir hann um ofþreytu. I’in í íslenzku sveitina, sem teflir á þessu móti, kemur þá annað hvort Baldur Möller eða Arinbjörn Guðmundsson. Bald- xn' er kunnur skákmaður frá gamalli tíð og hefir orðið Norð- urlandameistari. Armbjörn tefidi á skákmótinu í Moskvu árið 1956 og náði þar allgóðum árángri. Eftir þessa ákvörðun Frið- riks færast allir hinir íslenzku keppendurnir upp í röðinni, og keppir Ingi R. Jóhannsson þá á fyrsta borði. Þeir Ingi R., Guðm. Pálma- son og Jón Kristjánsson frá Hafnarfirði flugu áleiðis til Miinchen í morgun, og vara- menn fara sennilega á þriðju- tíag. * Oskar Þórðarson læknir. Síðdegis í fyrradag lézt í Landspítalanum Óskar Þórðar- smi læknir eftir stutta legu, 61 árs gamall. Oskar Þórðarson var fæddur að Gerðhömrum í Dýrafirði, sonur séra Þórðar Ólafssonar síðar prófasts á Söndum. Hann lauk stúdentsprófi 1921 og em- bættisprófi í læknisfræði 1927 og var nokkur ár við fram- haldsnám í Danmörku og Þýzkalandi. Hann hafði verið starfandi læknir í Reykjavík állt frá árinu 1930 og var við- urkenndur sérfræðingur í ba rnas j úkdómum. Óskar var kvæntur Guðrúnu Sveinsdóttur frá Hrauni á Skaga. — • — Bók uni Norðurhöf og ísland. Frú Evelyn Stefánsson, kona Viihjálms Stefánssonar land- könnuðarins fræga hefur ný- lega skrifað bók sem hún nefn- ir „Here is the far North“. Bókin fjallar um norðurhvel jarðar og segir m. a. frá flug- ferðum frúarinnar um það. En verulegur hluti bókarinnar fjallar um ættland bónda henn- ar — Island, sem frú Evelyn dáir og metur. Er þar getið ís- lendinga að fornu og nýju og eim borin vel sagan. Bókin er prýdd fjölda mynda. Áður hefur frú Evelyn skrif- að tvær bækur og’ fjórða bók hennar mun nú vera í undir- búningi. Freysteinn Þorbergsson og Ingimar Jónsson frá Akureyri eru nýkomnir til Miinchen frá Portoroz. Af þeim er það annars að segja, að eftir að millisvæða mótinu lauk og Friðrik var far- inn heim, tóku þeir félagar þátt í rnóti þar í borginni, og varð Freysteinn tíundi í röð- inni. Þetta var allsterkt mót, og var Bent Larsen á meðal keppenda og margir varamenn stórmeistara. -- o -- Heyfengus' s meðaliagi \ Húnaþlng!. Heyfengur húnvetnskra bænda verður að teljast í meðallagi á þessu sumri. Vegna kuldanna í vor og sí- felldra þurrka spratt seint og má segja að sprettan hafi verið með iélegra móti þegar sláttur hófst. Hinsvegar varð nýting heyja eftir fyrri slátt víðast hvar ágæt. Veðrátta breyttist mjög til batnaðar eftir höfuðdaginn og verður septembermánuður að teljast óvenju hlýr og mildur með stöðugri sunr.anátt. — • — SmábiSun á vatnsleiðslu v!5 Miklubraut; Vatnsleiðsla sprakk við Miklu- braut síðdegis í gær, og þurfti að loka fyrir vatnið um stund. En þegar viðgerðarmenn frá Vatnsleiðslunni komu á vettvang, kom í ljós, að þar var aðeins um smávægilega skemmd að ræða. Viðgerð tók skamman tíma, og urðu engin teljandi óþægindi af lokuninni. Þannig líta atkvæðaseðlarnir út í kosningu þeirri, sem fram fer í. Frakklandi og frönskum lendum á morgun um stjórnar- skrárfrumvarp de Gaulle.----- Kjósendur geta valið um „oui" (já) eða „non“ (nei), nema þeir skili auðu eða sitji heima. Forsœtisrá ðis erra scffir : fjóðum málstað sæma aðeins drengileg vopn. Vopnin eru að snúast í höndum Breta. Hermann Jónasson forsætisráðherrar, talaði í gærkveldi í vopn þeirrg manna erlendra sem fréttaauka Ríkisútvarpsins út af atburðunum í fyrradag er tala okkar máli. beðið var Ieyfis um að flytja sjúkan mann til íslenzkrar hafnar Hitt átriði þessa máls er og ennfremur um töku hins brezka togara í íslenzkri landhelgi, hvort nota átti tækiíærið til sem blöðin skýrðu frá í gær. Hér fer á eftir ræða forsætis- ráðherra: þótt öldur óvildar og réiði rísi hátt með þjóðinni. Það er því ekkert undarlegt þótt þessar til- finningar, sem eru í alla staði , , . . „ eðlilegar hafi nokkur áhrif á herskipið „Diana“ til varðskips- , 1 1 domgremd manna i þessu mali. Góðir Islendingar! í gærmorgun leitaði brezka íns „Maríu Júlíu“ um leyfi til að flytja sjúkan mann af brezk- um togara til Patreksfjarðar. Spurði varðskipið, hvort togar- inn gæti ekki farið sjálfur með manninn til lands, tii þess þyrfti ekki leyfi, hinsvegar yrði að sækja um leyfi til ráðuneytisins fyrir herskipið. Fékk varðskipið þær upplýsingar, að sjúklingur- inn þyldi ekki flutning yfir í tog- arann aftur, enda reyndist hann svo veikur þegar komið var með hann til Patreksfjarðar, að hann þurfti þegar i stað að ganga und- ir uppskurð. Var þá leitað til ráðuneytis mins og beiðst leyfis til að her- skipið mætti flytja sjúklinginn til Patreksfjarðar. Var það leyfi þegar veitt. Áður en herskipið lagði af stað til Patreksfjarðar.gaf það brezku landhelgisbrjótunum fyrir- mæli um að fara þegar út fyrir landhelgislínu, og gerðu togar- arnir það misfljótt. Eitt skipið tnegðaðist þó meir við en önnur og var það einmitt sá togarinn, sem sjúklingurinn var af. Kast- aði þessi togari vörpunni aftur innan landhelgi og lögðu varð- skipin „Óðinn“ og „María Júlía“ að skipinu og handtóku það eins En þeir, . sem bera ábyrgð á framkvæmd mála, mega ekki fkipsmanna var láta tilfinningar sínar ráða gerð- um síiium um of, heldur dóm- greind og yfirvegun. Eftir að fullyrt var, að hinn sjúki maður þyldi ekki flutning yfir í togarann, myndi íslenzku þjóðinni naumast hafa verið unninn öllu meiri bjarnargreiði með því, að neita um leyfi til þess að reyna að bjarga lífi mannsins, — enda hygg ég að slíkt hefði verið í algeru ósam- ræmi við réttlætis- og mannúð- artilfinningu landsmanna. Við á- lítum að Bretar hafi komið mjög ranglega fram og á vítaverðan hátt við okkur og allar líkur. benda til, að vopnin séu að snú- ast í höndum þeirra. Meðal er- lendra þjóða eigum við marga |veia^ a^ skapa tækifæri til þess ágæta talsmenn og þeim fer fjölgandi. Við teljum okkur hafa góða-n málstað og réttan, en slík- um málstað sæma ekki önnur vopn en þau, sem eru mannúð- leg og drengileg. Með því að þess að taka togara meðan her- skipið flutti hinn sjúka mann með fullu leyfi til Patreks- fjarðar. Varðskipin hafa al- menna fyrirskipun um að taka landhelgisbrjóta, ef herskipin koma ekki í veg fyrir það með ofbeldi. Framkvæmd varð- því eðlileg. Þeir yfirbuguðu skipshöin togarans og ætti það að sýnai Bretúm ljósléga, hvernig fara muni fyrir togurum þeirra þegar herskipanna nýtur ekki við. Hinsvegar er alveg aug- Ijóst, að ef handtakan hefði verið framkvæmd til fulls, myndu andstæðingar okkar er- lendis, sem ráða daglega yfir kevptum blaðakosti til áróðurs og rógburðar gegn okkur, hafa gripið þetta tækifæri fegins hendi til þess að rægja okkur á- eftirminnilegan hátt fyrir að leyfa herskipinu, undir yfir- skini mannúðar, að leita hafnar með fárveikan mann, þótt til- gangurinn hefði bersýnilega að handtaka togara á meðan. Frá sjónai-miði hins íslenzka málstaðar, kæri ég mig ekki um að fá andstæðingunum svo handhægt vopn í hönd og það einmitt sama daginn og verið beita þeim vopnum, og þeim ein-! er að ræða landhelgismálin á um, mun okkur takast að sigra í landhelgismálinu. Ef við vær- þingi Sameinuðu þjóðanna. Bretar hafa, eins og ég sagði um svo ólánssamir að víkja frá áðan, sýnt okkur tillitslausan þessum bardagaaðferðum. yfirgang og ofbeldi, — en við og skýrt hefur verið frá í frétt um. Eftir að varðsldpin höfðu j ökkar eigin málstað yfirunnið mótstöðu togara- | manna, var lagt fyrir þau frá ráðnneyti mínu að yfirgefa tog- arann. Þess' virðist gæta meðal manna, að vafasamt hafi verið að leyfa flutning sjúklingsins til Patreksíjarðar á hei-skipi og að yíirgefa togarann, sem tekinn hafði verið. sem yið munum auðvitað aldrei skulum láta þá eina um slik gera, — værum við að veikja vinnubrögð. Þau eru að verða oS slæva | Framh. á 7. síðu. Það er deginum ljósara, að framferði Breta á í.slandsmiðum hefur vakið mikla reiði og and- úð íslendinga, sern fer eðlilega vaxandi með hverjum degi sem líður. Vopnlaus smáþjóð, sem færir út fiskveiðilandhelgi sína af meiri nauðsyn en nokkur önn- ur þjóð. er eina þjóðin af þeim, sem fært hafa út landhelgi ein- hliða, sem beitt er vopnavaldi til að reyna að ræna hana þessum es'ferð í Moskvu gegn háværism slörkurum. SeSitÚB' fýreiðist es fýiétasBss ssti. í Moskvu-sovétinu var fyrir jgrammófóngargi, hávaðasamri nokkru hafiu herferð mikil ' útvarpsmúsik og því um líku, gegn fylliröftum og raunar er þeir væru að skemmta sér öiium, sem eru hávaðasamir um of, er þeir bióta Bakkus. Sérstök nefnd hafði til at- hugunar hvað gera skyldi til þess að kenna mönnum góða siði, og' voru tillögur hennar samþykktar. Hámarkssekt var ákveðin 100 rúbiur fyrir þá, sem slokra í sig óhæfilega miklu magni af vodka og trufl- í heimahúsum. Sjálfur Krúsév, sem eitt sinn þótti sopinn góð- ur að sögn, mun hafa staðið á bak við. Nefndin datt niður á óvana- legt greiðslufyrirkomulag sekta: Hámarkssekt í rétti 100 rúblur, en ef hinn seki greiddi lögreglumanni sektina á götu úti, skyldi hann sleppa með 25 rúblna greiðslu. Þeir, sem neita greiðslu verða að sætta uðu frið reglusamra borgara rétti með ofbeldi, m. a. með því jmeð söng og gargi og illum lát- að reyna að sigla í kaf íslenzk [ um, svo og mátti sekta þá, sem sig við, að sektarfé sé dregið varðskip. Það er engin furða ! trufluðu frið manna með 1 frá launum þeirra.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.