Vísir - 02.10.1958, Qupperneq 5
Fimmtudaginn 2. október 1958
V 1 S I B
5
Friðrikssjóður þarfnast
fjárframlaga almennings.
Stjérn sjóðsins undírbýr nýja fjársöfn-
un til styrktar stórmeistaranym.
Fyrir fjórum árum gekkst
Stúdentaráð Háskóla íslands
fyrir því að stofnaður var sjóð-
ur, er hafði það að markmiði að
stju-kja Friðrik Ólafsson skák-
meistara til skákiðkana. Frið-
rik hafði þá þegar sýnt, ungur
að árum, að þar fór gott efni í
afreksmann á sviði skáklistar-
innar. Hann hafði þegar unnið
stóra sigra á innlendum vett-
vangi m. a. hreppt titil skák-
meistara íslands og Norður-
landa og staðið sig með prýði
tvívegis á heimsmeistaramótum
unglinga í skák svo að eitthvað
sé nefnt. Flestum, er til þekktu,
var það ljóst um þessar mundir,
að ju-ði Friðrik Ólafssyni skap-
aðar aðstæður til þess að helga
sig skáklistinni að verulegu
leyti, þá myndi þess skammt að
bíða, að hann kæmist í fremstu
röð skákmanna heimsins, og
ynni stór afrek á skáksviðinu
sjálfum sér og þjóð sinni allri
til hins mesta sóma og kynnti
hvort tveggja glæsilega.
Fyrsta fjáröflun
Friðrikssjóðs.
Á þessum forsendum byggð-
ist stofnun Friðrikssjóðs. For-
ráðamenn hans hófu nú brátt
að leita sér fjár. Sneru þeir sér
í fyrstu til allt að 150 fyrirtækja
með þeirri ósk, að þau hvert
um sig greiddu kr. 500.00 árlega
í fimm ár í sjóðinn til reynslu.
Undirtektir voru að vonum mis-
jafnar. Menn voru misjafnlega
áhugasamir og trúaðir á mál-
efnið. Þó fór það svo, að all-
mörg fyrirtækjanna urðu við
fjárbeiðninni og gengu að samn-
ingnum. Önnur vildu hafa
samningana á lausu og sjá til ár
frá ári en örfá vildu ekkert með
styrktarsjóð Friðriks hafa að
gera. Enn eru gjafir þessara fyr-
irtækja sá fasti grunnur, sem
Friðrikssjóður byggir á.
Stuðningur sjóösins
við Friðrik.
Af því fé, sem þannig safnað-
ist, var Friðrik Ólafssyni m.
a. styrktur til farar á Hastings-
mótið 1955—56. Þar varð Frið-
rik sigurvegari og staðfesti enn
einu sinni ágæti sitt sem skák-
manns. Þá hefur Friðrikssjóður
og styrkt Friðrik til þátttöku í
skákþingi Norðurlanda í Osló
1955, heimsmeistaramóti stúd-
enta í Uppsala 1955, Olympíu-
skákmóti í Moskva 1956, Hast-
ingsmóti um áramótin 1956—
57, svæðakeppni í Wageningen
1957, alþjóðamóti í Dallas 1957,
heimsmeistaramóti stúdenta í
Varna 1958 og nú loks milli-
svæðakeppni í Portoroz. Á flest
þessara móta hefur sjóðurinn og
kostað aðstoðarmenn með Frið-
riki.
Við dyr
heimsmeistaratitils.
Um frammistöðu Friðriks Ól-
afssonar á þessum skákmótum
þarf ekki að ræða hér, svo ræki-
lega sem hún er öllum lands-
mönnum kunn. Hann hefur í
stuttu máli staðið sig með af-
ffrlgðum vel, jafnan verið í
fremstu röð, lagt margan góð-
an skákmanninn að velli og ver-
ið yndi áhorfenda vegna góðrar
taflmennsku og fágaðrar fram-
komu. Friðrik hefur hlotið titil
stórmeistara. Hann er nú tví-
mælalaust í hópi tíu beztu skák-
manna heimsins og bezti skák-
maður í allri Vestur-Evrópu.
Friðrik Ólafsson hefur vissu-
lega sýnt hvað í honum býr.
Hæfileikar hans sem skák-
manns eru ótvíræðir. Flann hef-
ur nú náð svo langt, að hann
stendur ásamt sjö öðrum við
dyr heimsmeistaratitilsins í í-
Friðrik Ólafsson.
þrótt sinni. Óþarfi er um það
að ræða, hversu glæsilega land-
kynningarstarfsemi þessi af-
reksmaður hefur innt að hendi.
Víða erlendis þekkja menn ís-
land mest og bezt af Kiljani og
Ólafssyni. Fyrir alla þá, sem
lagt hafa Friðriki styrk, má
þetta allt vera mikið ánægjú-
efni, því að óvíst er með öllu,
að hann væri búinn að ná svo
langt, sem raun ber vitni, ef
ekki hefðu honum vegna fjár-
styrks skapast aðstæður til þess
að helga sig skáklistinni og vera
þátttakandi í svo mörgum al-
þjóðlegum skákmótum.
Fjárþörf mikil
og jöfn.
Fjárþörf Friðrikssjóðs er mik-
il og jöfn. Hann þarf að standa
straum af kostnaði Friðriks og
aðstoðarmanna hans á alþjóð-
legum skákmótum, sem æski-
legt er að Friðrik sé sem víðast
þátttakandi í. Jafnframt vill
sjóðurinn eftir fremsta megni
geta stuðlað að því að Friðrik
hafi góðan tíma til undirbún-
ings undir harðar keppnir. Einn
ig í slíkum undirbúningi væri
æskilegt að hann gæti haft
mann með sér til aðstoðar. Slík-
ur tími er nú framundan. í
febrúar n.k. hefst hin svonefnda
kandidatakeppni, þ.e.a.s. keppni
átta manna um það, hver þeirra
skuli fá rétt til þess að skora á
heimsmeistarann ;í skák um
titilinn. Friðrik hefur nú staðið
sig með slíkum ágætum, að
hann er einn þessara átta kandi-
data. Það væri æskilegt, að Frið
rik gæti notað þann tíma, sem
eftir er fram að þessari keppni,
til þess að undirbúa sig, því að
nú verður við erfiðari andstæð-
inga að etja heldur en nokkru
sinni fyrr.
Eigi Friðrikssjóður að geta
búið svo í haginn fyrir Fri'ð-'
rik að hann geti snúið sér að
undirbúningi fyrir mótið þá
þarf honum að koma til fé
og er þar sem fyrr heitið á
alla velunnara skáklistarinn-
ar hér.
Jafnan þegar Friðrik Ólafsson
hefur staðið sig vel á skákmót-
um hafa gjafir streymt í Frið-
rikssjóð. Þjóðin hefur þá ávallt
sýnt, að hún metur þennan af-
reksmann sinn að verðleikum
og fagnar þeirri landkynningu,
sem hann hefur stuðlað að. Iiún
vill jafnan veita honum verð-
laun fyrir unnin sigur, sem
jafnframt er hennar allrar um
leið. Hún getur og verið nokkuð
ánægð með sinn hlut, ef hún
veit, að hún hefur skapað Frið-
riki aðstöðuna til þess að helga
sig íþrótt sinni og þar með að
ná svo langt sem staðreynd er
orðin. Friðrik hefur ekki brugð-
izt í því, sem af honum var
vænzt. Við skulum heldur ekki
bregðast honum fyrir það, sem
hann hefur unnið landi sínu,
heldur veita honum áfram tæki-
færi til þess að gefa sig að skák-
listinni að verulegu leyti. Þá
mun hann skila sínu sem endra
nær.
Styrkjum sjóðinn
með framlögum.
Framlögum í Friðrikssjóð er
veitt viðtaka hjá blaðinu, en
auk þess má senda þau til stjórn
ar Friðrikssjóðs, c/o Stúdenta-
ráð Háskóla íslands, Reykjavik.
í stjórn Friðrikssjóðs eru nú:
Hrafn Þórisson, Fornhaga 25,
Rvík, Jón L. Arnalds, Sund-
laugav. 26, Stefán Briem, Ægis-
síðu 60, og Sverrir B. Bergmann
Miðtúni 54, Rvík. Taka þessir
menn einnig persónulega við
framlögum í sjóðinn.
,/ttaftu mér - slepptu mér" sýnt
til ágéða fyrir feikara.
Þau félagarnir, Lárus, Helga j til skemmtana og leiksýninga á
og Rúrik, sem skemmt hafa undanförnum árum, til þess að
bæjarbúum með gamanleikn-
um „Halltu mér — slepptu
mér“, í sumar, munu sýna
gamanleik þennan í Ai’.stur-
bæjarbíói næstkomandi laug-
ardagskvöld, kl. 11,30 og bá til
ágóða fyrir Félag íslenzkra
leikara. — Aðeins bessi eina
sýning.
Leikhús Heimdallar hefur
góðfúslega leyft sýningu þessa
fyrir sitt leyti og einnig hefur
Þjóðleikhússtjóri leyft þeim
Lárusi Pálssyni og Rúrik Har-
aldssyni að leika í þessari sýn-
ingu.
Leikarar hafa marg oft efnt
Punnur brandari !
í dag voru tólf brezkir tog-
arar um og innan við fiskveiði-
landhelgi fyrir Vestfjörðum,
fimm voru í landhelgi út af
Horni, en tveir fyrir utan. Ut
af Langanesi var eitt herskip
og fjórir togarar langt utan
landhelgi.
Brezkur togari, „Cape Pall-
iser“, H-354, hefir í dag verið
að veiðum innan tólf mílna
markanna út af Vestfjörðum
og haft uppi rússneskan fána,
auk brezka fánans. Varðskipið
,,Þór“ spurði eftirlitsskipið
„Diana“, hvort þessi fánanotk-
un væri' samkvæmt fyrirmæl-
um eftirlitsskipsins, en ,,Diar,a“
kvað svo eigi vera, heldur
myndi þetta gert „ykkur til
skemmtunar11 („to keep you
amused“), eins og' það var orð-
að.
1. okt. 1958.
B. Th.
Réttarraifnsókn í Irak.
Rætt ubu samsæri stjórnar Uml es Sald
við Bretland og Bandaríkin.
Stjórn Nuri es-Said, sem
steypt var af stóli í byltingunni
í írak í s.l. mánuði, var i sam-
særi við Bretland og Bandaríkin
Sýrlandi, sagði saksóknarinn fyr
ir herrétti í Bagdad um síðustu
helgi.
Höfðað verður mál á hendur
meira en 100 herforingjum og
embættismönnum Feisals kon-
ungs. Fyrsti maðurinn, sem sak-
sóttur var fyrir „samsæri um að
véla Irak í styrjöld“, var Ghazi
Daghastani, yfirhershöfðingi.
Saksóknarinn Majid al Amin
krafðist, að þetta yrði talið til
föðurlandssvika, sem dauðarefs-
ing liggur við. Hann hélt því
fram fyrir fimm mann rétti, að
Daghastani hafi verið valinn til
að komast í samband við sýr-
lenzka andstæðinga Nassers til
þess að útvega fé og vopn og
stjórna samsærinu.
Krónprinsinn
fyrir konung.
Ríkisstjórn Nuri es-Said, sagði
saksóknarinn, „stóð að samsæri
með-Englandi og Bandaríkjun-
um og öðrum heimsvaldasinn-
um, er eyðileggja átti bræðra-
land okkar og síðan átti að koma
Abdul Illah óvini Guðs á vald-
stól i Syriu." Hér átti hann við
krónprinsinn Abdul Illah, sem
drepinn var ásamt Feisal kon-
ungi þann dag er uppreisnin
brauzt út.
„Iranskar hersveitir“ sagði sak
sóknarinn, „áttu að halda innreið
sina í Sýrland frá Irak og Jór-
daníu, undir því yfirskyni að þær
væru að verja Sýrland. Síðan
átti að setja á’ syið byltingu til
að steypa stjórninni."
Daghastani sagðist ekki hafa
neina vitneskju um neitt slíkt
samsæri. Rafia, hershöfðingi
sem einnig mun verða leiddur
fyrir rétt neitaði því að nokkur
slík áætlun hefði verið til. ,,Við
höfðum áhyggjur af Sýrlandi og
ráðgerðum æfingar. Það er allt
og sumt“, sagði hann.
Næsta vitni var Fahdel el
Jamali, fyrrverandi utanríkis-
ráðherra, sn hann verður einnig
leiddur fyrir rétt. Hann kvaðst
ekki vita um neitt samsæri eða
áætlun um slikt.
„Eg var viðstaddur fundi nokk
urra ráðamanna i Bagdad um
þann vanda sem steðjaði að Sýr-
landi vegna kommúnismans.
Bandarikin sögðu okkur að þau
yæru reiöubúin að veita. aðstoð
sf hennar væri þörf vegna ut-
anaðkomandi ógnana, en ég
taldi að atburðirnir i Sýrlandi
hefðu ekki i för með sér yfir-
vofandi hættu fyrir Sýrland."
afla fjár í sjóði félagsins og
jafnvel þreytt íþróttir og knatt-
spyrnu. Þeir hafa haldið kvöld-
vökur með fjölbreytilegum,
skemmtiatriðum, haldið dans-
leiki og sýnt þar dans og leik.
í þetta skipti er það sþreng-
hlægilegur franskur gaman-
leikur. Enda er það leikur fyrir
þessa ágætu leikara að leika
þetta.
Skátafélag ieykjavíkur
byrjar vetrarstarfið.
Siinnudaginn 5. okt. kl. 2 e.li.
byrjar vetrarstarfsemi Skátafé-
lags Reykjavíkur með því að all-
ir dreng'jaskátar og ylfingar
láta skrásetja sig.
Ennfremur verður tekið á
móti nýjum félögum, en þeir
þurfa að fá sérstakt innritun-
arblað sem foreldrarnir þurfa að
fylla út, og fæst þetta blað í
Skátabúðinni.
Skátafélagið starfar í 10 deild-
um þar af 2 R. S. deildir, þeirra
starfssvið er allur bærinn þann-
ig, að það eru eldri og yngri R.
S. skátar í hvorri deild. Deildar-
foringi eldri R.S. er Jón Odd-
geir Jónsson en deildarforingi
yngri R.S. er Páll H. Pálsson.
Hinar 8 deildirnar eru venjuleg-
ar skátadeildir sem skiptast i
bæjarhverfi þannig:
Jórvíkingar eru í Vesturbæn-
um deildarforingi Óttar Októs-
son. Völsungar eru i Skjólunum,
deildarforingi Ingólfur Ö. Blön-
dal. Landnemar eru í Þingholt-
unum, Skuggahverfi að Snorra-
braut, deildarforingi Sævar Krist
björnsson, Vikingar eru í Hlíð-
unum, deildarforingi Ágúst Þor-
steinsson, Sturlungar eru í Bú-
staðahverfi, deildarforingi Ing-
ólfur Petersen, Skjöldungar eru
í Voghverfi, deildarfoi'ingi Jón
Þorvarðarson. Birkibeinar .eru í
Laugarneshve.rfi, deildarforingi,
Ivlagnús Stephensen og Jónsvík-
ingar i Höfðahverfi deildarfor-
ingi Einar Logi Einarsson.
Aðalstarfið hvílir á þessum
deildarforingjum og þeim til að-
stoðar koma sveitarforingjar, en
í hverri deild eru 3 skátasveitir
og í hverri sveit eru 5 flokkar
með 6—8 drengi hver flokkur.
Stjórn Skátafélags Reykjavikur
skipa: Félagsforingi Hörður
Jóhannesson, aðstoðarforingi
Jón-Mýrdal, gjaldkeri Októ Þor-
grímsson ritari Steinar Guðjóns-
son, fylkjar eru Óskar Pétursson,
-Guðmundur Ástráðsson, Guð-
mundur G. Pétursson, r' ar
Ólason og Gunnsteinn Jóh.anns-
son.
Ódýr sófaborð
Maghogni spónlögð
Plötustærð: lengd 1 metri.
Verð kr. 450,00.
Sendið pantanir í
pósthólf 287, Reykjavík. J