Vísir - 03.10.1958, Side 1

Vísir - 03.10.1958, Side 1
»8. árg. Föstudaginn 3. október 1958 218. tbl. Stefáni ákaft fagnað í gær. | , Stefán Islandi óperusöngvari söng í Gamla bíói í gærkvöldi við fádæma hrifningu áheyr- enda, sem voru eins margir og húsrúm frekast leyföi. Á söngskránni voru gamal- kunn íslenzk lög og nokkur er- lend, ásamt aríum úr ,,Tosca“ og „Werther". Var söngvaran- um fagnað ákaflega og honum óspart klappað lof í lófa, enda bar mönnum saman um, að sjaldan eða aldrei hefði rödd hans hljómað fegurr en að Jaessu sinni. 5 Varð Stefán að syngja mörg 'aukalög, áður en söngskemmt- ; unin var á enda og barst hon- um fjöldi blómvanda. Nokkrir tugir manna biðu eftir þvi, að söngvarinn yfirgæfi húsið og klöppuðu innilega, þegar hann steig upp í bifreiðina á- samt Fritz Weisshappel undir- leikara. , Eins og kunnugt er af fréttum, hefur franska lögreglan gert margvíslegar ráðstafanir, til þess að reyna að koma í veg fyrir skemmdarverk alsírskra uppreistarmanna. Hér á myndinni sézt lögreglumaður með vélbyssu standa vörð við umferðartálma á götu einni í París. Riíssar tffkynna opinberEega, að þeér hafi byrjað tifraunir með kjarnavopn á ný. Hafa þegar sprengt fjórar sprengjur nú í vikunni. Ráðstjórnin rússneska hefur nú viðurkennt opinberlega, að hafnar hafi verið af nýju til- iraunir með kjarnorkuvopn í Ráðstjórnarríkjunum. Var birt Um þetta opinber tilkynning í morgun. Segir þar, að Bretar og Bandaríkjamenn hafi notað sér ákvörðun ríkisstjórnarinnar frá í vor, að hætta tilraunum með kjarnorkuvopn, og þá afstöðu ráðstjórnarinnar, að tilraunum með kjarnorkuvopn yrði þegar heett, til þess að geta haldið áfram tilraunum af kappi og komist fram úr Ráðstjórnar- ríkjunum. Vegna þessa aðstöðumunar, sem þannig hafi skapast, en Bretar og Bandaríkjamenn hafi í engu sinnt samkomulags- viðleitni Rússa, hafi þeir ekki séð sér annað fært en lýsa yfir því, að þeir væru ekki lengur bundnir við yfirlýsingu sína frá í vor. Jafnframt tekur ráðstjórnin fram, að hún muni áfram beita sér fyrir því, að gert verði al- þjóðasamkomulag um bann við kjarnorkuvopnum og við tilraunum með slík vopn. í London og Washington er litið svo á, að þessi nýja til- kynning sé í rauninni endur- tekning á yfirlýsingu Krúsévs frá í ágúst, en hún var birt í viðtalsformi í Moskvublaðinu Pravda. Sprengingarnar orðnar 4. Nærri samtímis og fregnin barst um tilkynningu ráð- stjórnarinnar tilkynnti Kjarn- orkuráð Bandaríkjanna, að Rússar hefðu sprengt tvær kj arnorkusprengj ur til viðbót- ar, og hefðu þeir þannig sprengt fjórar nú í vikunni, en það var í gærmorgun, sem fregnin barst um hinar fyrri tvær. Utanríkisráð- herrafundur. Þeirri tillögu ráðstjórnar- innar, sem frá var sagt í gær, að utanríkisráðherra Bret- lands, Bandaríkjanna og Sovét- Rússlands ræði bann við fram- leiðslu á kjarnavopnum og til- raunum með þau, er fremur vel tekið í brezkum blöðum, „Batnandi rnanni er bezt að lifa." Hermann farinn að hlýða * ráðuan Olafs Thors. „Batnandi manni er bezt að Iifa,“ segir fornt spakmæli, og kemur sannleiksgildi þess oft í ljós. Nú síðast birtist þessi gamli sannleikur íslendingum, þegar Hermann Jónas- son tekur sig til og hlýðir Ólafi Thors. — Þegar haldinn var fundurinn í Stúdentafélagi Reykjavíkur fyrir nokkrum dögum, drap Ólafur m.a. á það, að ekki kæmi til mála að leyfa herskipum Breta að taka við mönnum af togurunum og flytja til lands. Hermann brá við skjótt og kallaði sendi- herra Breta fyrir sig tveim dögum síðar, til að skýra frá því, að hann hefði tekið þessa ákvörðun. — Þau tíðindi gerðust á framsóknarheimilinu við tjörnina í gærkvöldi, þegar þcssi tíðindi spurðust þar, að gamlir og kvíðnir Fram- sóknarmenn brostu út að eyrum og sögðu hver við annan, að vonandi færi nú eitthvað að lagast hjá Hermanni og^ stjórninni, úr því að hún væri farin að hlýða heilræðum Sjálfstæðismanna. Ovíst om framíialdsvið- ræður Breta og Dana. Sluílai' fundur í gær — málónu vísað til sédræðinga. en þeir eru aðalsamningamenn- Einkaskeyti til Vísis. — Khöfn í morgun. Viðræður Breta og L'ana um landhelgismál Færeyja hófust I í nýjan leik í London í gær, ! en fundurinn var stuttur, og að honum loknum tilkynnt, að sérfræðingar beggja (þ. e. Dana og Breta) myndu nú fjalla um málið. Fundurinn var haldinn fyrir luktum dyrum. Sérfræðingarn- ir munu ræða um grunnlínur, hrygningarstöðvar o. fl. Ekkert verður sagt að svo stöddu hvenær næsti við- ræðufundur fer fram, þar sem þeir mæta Kampmann fjár- málaráðherra og John Hare fiskimálaráðherra Bretlands, írmr. Fæstir búast við, að neinar mikilvægar ákvarðanir verði teknar fyrr en að afstöðnum Lögþingskosningunum í Fær- eyjum í næsta mánuði. (Bret- um mun hafa verið mjög hug- leikið, eftir ýmsum fregnum að dæma, að ná samkomulagi við Dani um landhelgi Færeyja hið fyrsta, til þess að benda á sam - komulag til fyrirmyndarlausn- ar deilunni um landhelgi ís- lands. Hinn stutti fundur og málsvísunin til sérfræðinga bendir til, að Bretar hafi séð, að vonlaust sé að samkomulag náist í bili). Kjarasamningar hafa tekizt í Kefiavík, Akureyri og viðar. Verkfalli vörnliifreiðastjóra a Sufðuriicsjiim frestað um sinn. Þessa dagana hefur verið gengið frá nýjum kjarasamn- ingum við nokkur verkalýðs- félög úti u,m land og á sumum stöðum standa viðræður yfir. Þær kjarabætur, sem samið hefur verið um, verkalýðnum til handa, hafa yfirleitt verið hinar sömu og reykvískur verkalýður fékk nýlega eða 9,5% grunnkaupshækkun á- samt nokkrum minniháttar til- færingum. Á þessa lund eru samningar sem náðst hafa milli vinnuveitenda og verkakvenna í Keflavík og Njarðvíkum og gilda munu til 1. des. 1959. — Auk þess mun samkomulag um svipaðar kjarabætur hafa tek- ist við verkamenn á þessum stöðum. A Akureyri hefur verið und- irritaður nýr samningur við verkamenn á sama grundvelli og samningur Dagsbrúnar. Samningaviðræður hafa einnig staðið yfir á Akranesi að undanförnu, en ekki er blaðinu kunnugt um, hvort samningar hafa tekizt. Verkfalli vörubílstjóra frestað. Eins og skýrt var frá hér í blaðinu nýlega, boðuðu vöru- svo sem í Times (óháð) og Daily Telegraph (íhaldsbl.) en bæði þessi blöð eru í miklu áliti. Tillaga Rússa í þessu efni kom fram í orðsendingum, sem nú eru til athugunar í London og Washington. bifreiðastjórar á Suðurnesjum verkfall á allan akstur á vegum íslenzkra aðalverktaka, til þess að leggja áherzlu á vissar kröf- ur sínar á hendur þessum aðila, og skyldi verkfallið hefjast 1. þ.m. ef samkomulag hefði ekki náðst. Deilumálið hefur enn ekki verið leitt til lykta, en samkomulag náðist um að fresta verkfallinu fram til 15. þ.m. og freista þess að finna lausn á málinu. Samúðarverkfalli, sem „Þróttur“ í Reykjavík hafði boðað, að því er snertir flutn- inga fyrir umrætt fyrirtæki, hefur einnig verið frestað jafn- lengi. IVIaður fellur af húsþaki og mjaðmarbrotnar Laust fyrir klukkan 1 í gær- dag varð það slys við Sorpeyð- ingarstöðina, að maður féll ofan af þaki. Hann var þegar fluttur í Slysavarðstofuna. Þegar læknar þar höfðu at- hugað manninn, kom í Ijós, að hann hafði meiðzt talsvert mikið og meðal annars brákazt á mjaðmargrind. Var þá farið með hann í Landakotsspítalann, og liggur hann bar nú. Einar Gerhardsfen forsætis- isráðherra Noregs kom til Belgrad 25. f. m. í D daga opinbera heimsókn.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.