Vísir - 18.10.1958, Blaðsíða 8
5 . - --------------------------------
' Ekkert blaS er ódýrara f áskrift en Vísir.
; LátiS hsna fasra yBur fréttir *g uuuð
; leitrarefnl helm — án fyrirhafnar af
i. ySar hálfo. . j *,• !
S Síml 1-18-80.
Laugardaginn 1S. október 1958
MuciJ, aS þelr, sem gerast áskrifendnr
Ví«is e-tir 10. hver* mánaðar, fá blaSil
ókeypis til mánaðamóta.
Sími 1-18-80.
99
Hugur og hönd
NýstárSeg handavínnusýning Kl@pps-
sjúkEinga í Þjóðminjasafnlnu.
6Ȏ
í dag eftir hádegið verður
opnuð í bogasal þjóðminja-
safnsins handavinnusýning geð-
veikisjúlclinga á Kleppi og ber
sýningin heitið „Hugur og
hönd“.
Þórður Möller yfirlæknir á
Kleppi sýndi fréttamönnum
sýninguna í gær og gefur þar
að líta hina fegurstu muni sem
skipta vafalaust þúsundum
talsins. Margir þeirra svo hag-
'lega gerðir, að aðrir gera þar
ekki betur þótt geðheilir séu.
Á sýningunni er hverskonar
saumur, prjón, vefnaður, bast-
vinna, handhnýtt teppi og
fleira. í stærstu teppunum, sem
eru allt að 6 fermetrar að stærð
eru um 90 þúsund hnútar og
tekur að sjálfsögðu langan tíma
að hnýta slík teppi. Þarna er
mikill fjöldi muna smíðaður úr
hvalbeini, nautshorni og hrein-
dýrahorni. Sumir þeirra frá-
bærlega vel gerðir og eru það
jafnt skartgripir, svo sem næl-
,ur, eyrnarloklcar o. þ. h. og
líka nytjagripir. Þá eru þarna
einnig skrautöskjur smíðaðar
“úr óbrjótanlegu plastgleri, eru
þær límdar saman og síðan
.brenndar á þær myndskreyt-
ingar.
Meginþorri munanna er til
'sölu.
Þórður læknir sagði að til-
gangurinn með handavinnu
geðveikisjúklinganna væri
fyrst og fremst í læknislegu
tilliti. Með því kæmust lækn-
arnir og hjúkrunarfólkið í já-
kvæða snertingu við — oft
annars lokaðan hugarheim
sjúklingsins — fyndi umræðu-
efni sem hann hefði áhuga fyrir
og jafnframt ykist honum
sjálfstraust við starfið.
Su&austan hvass-
viðri á miðunum.
Frá fréttaritara Visis.
Sandgerði í gær.
I»rír bátar reru með reknet
héðan í gærkvöldi, en jjeir voru
komnir að snemma í morgun
vegna þess að skollið var á suð-
austan hvassviðri og veiði svo
til engin.
Svanur var með 7 tunnur og
Víðir 2. með 10 tunnur og eitt-
hvað svipað hefur verið hjá Guð-
björgu. Einnig voru nokkrir aðr-
ir bátar á sjó og lögðu sumir
mjög grunnt til að reyna.
Þrátt fyrir aflaleysi í einar
þrjár vikur eru menn vongóðir
um að síldveiði verði meiri er á
líður, enda hefur það verið
reynsla undanfarinna ára.
Vegna aflaleysis hefur verið
dauft yfir framleiðslustörfunum,
en talsverð vinna við ýmsar
framkvæmdir 5 landi. Verið er að
stækka skólahúsið og auk þess
eru verkamannabústaðir í smíð-
um og eins er verið að byggja
íbúðarhús fyrir einstaklinga.
Með sýningunni væri ekki
fyrst og fremst stefnt að því að
sýna handavinnu sjúklinganna
né selja þá, heldur það að sýna
almenningi hvaða geta og
hæfni búi í þessu fóiki og að
það sé hægt að beita huga þess
og orku að fögrum og nytsam-
legum hlutum og viðfangsefn-
um ef réttilega er að farið,
sama hvort sjúklingurinn dvel-
ur á geðveikrahæli eða utan
þess.
Fyrsta vísi að þessari handa-
vinnustarfsemi var komið á
stofn á Kleppi 1933, en bylting
varð á þessu sviði árið 1945
þegar spítalinn fékk sérmennt-
aðan starfskraft, Jónu Kristó-
fersdótur, sem hefur stjórnað
þessari kennslu af einstæðum
dugnaði síðan.
Læknirinn sagði að þessari
starfsemi væri þröngur stakk-
ur skorinn sökum húsnæðis-
ieysis — því sjúklingum fjölg-
ar stöðugt án þess að húsnæðið
1 stækki. Árangur taldi hann
[ samt i mörgum tilfellum blátt
áfram undraverðan.
Sýningin verður opnuð kl. 2
e.h. á morgun fyrir boðsgesti
og þar mun forsetahjónin verða
meðal annarra bcðsgesta. Kl.
4 e.h. verður sýningin opnuð
fyrir almenning.
Síðan verður sýningin opin
daglega kl. 2■—10 e.h. til sunnu-
dagskvölds 26. þ.m.
Aðsókn hefur verið góð að sýningu Guðmundar frá Miðdal,
sem hann heldur í húsakynnum sínum við Skólavörðustíg 43,
og eru gestir orðnir hátt á fimmta hundrað, og 27 myndir hafa
seizt. Myndin hér að ofan heitir „Svanir“.
Ung ísíenzk söngkona heldur fyrstu
tónleika sína á föstudag.
(iiiArnn Tómasdnöir liefír stimdað
söiigiiam í Nen Yurk í 5 ár.
Bourgiba fékk einróma traust
samþykkt í þjóiþinginu.
Nann segir Arabíska lýðveldið verkfæri í höndm
Sovét-rikjanna.
Ung íslenzk söngkona, Guð-
rún Tómasdóttir, efnir til fyrstu
sjálfstæðu tónleikanna sinna í
Gamla bíói n.k. föstudagaðloknu
fimm ára tónlistarnámi í New
York.
Fréttamenn áttu tal við söng-
konuna yfir síðdegiskaffi að
Hótel Borg i gær.
Guðrún lauk stúdentsprófi hér
heima vorið 1949 og settist um
haustið í læknadeild Háskóla ís-
lands, en var þar aðeins einn
vetur. Hún var í Útvarpskórn-
um á þessum árum, og munu
margir muna eftir henni, því að
hún söng einsöng á tónleikum
sem kórinn hélt í Dómkirkjunni,
og einnig söng hún einsöng á
skemmtun stúdenta 1. desember.
Guðrún ætlaði sér að halda til
London og var búin að leggja
drög að því að leggja stund á
söngnám við Royal Scool of Mus-
ic. Hún gerði sér vonir um að
fá námsstyrk frá Menntamála-
ráði. en það virðulega ráð dauf-
heyrðist við styrkbeiðninni. Þá
venti hún sínu kvæði í kross og
hélt til New York með lítiinn
farareyri þó. Hún var ókunnug
í borginni og komst að þvi, að
það var vandi að velja sér kenn-
ara og fór hún krókaleið til þess.
Hún rakst á auglýsingu í blaði,
þar sem auglýst var eftir kven-
röddum í söngkór. Það kom á
daginn, að það var hvorki
meira né minna en sjálfur Ro-
bert Shaw, sem var stjórnandi
kórsins (Robert ShaW er ein-
hver mesti söngstjóri, sem nú
er upi.) Nítíu umsóknir bárust,
en aðeins sex stúlkur voru tekn-
ar, og var Guðrún á meðal þeirra
sem hlutu hnossið. Þegar hún
var farin að æfa með kórnum,
var henni bent á úrvals kennara,
en það var Júgóslavinn Mirko
Pugelj. Hjá honum hefur Guð-
rún lært í einkatímum i fimm
ár. Varð hún að vinna fyrir sér
jafnframt. Hún hefur fengið
styrk irá Menningar- og minn-
ingar sjóði kvenna, en ekki ann-
arsstaðar frá. Minnist Guðrún
veru sinnar i stórborginni með
ánægju, og hún átti þess kost að
ferðast nokkuð með kórnum og
einnig að syngja í Carnegie
Hall.
Guðrún er fædd að Hólum í
Hjaltadal, dóttir Tómasar Jó-
hannssonar, sem var kennari við
bændaskólann á Hólum. Þess má
geta, að föðursystir Guðrúnar
er Jóhanna Jóhanhsdóttir, sem
var mjög vinsæl söngkona hér á
árunum fyrir stríð.
Á tónleikunum á föstudag mun
Guðrún syngja lagaflokk eftir
Schumann, sjö spænsk þjóðlög
eftir De Falla og loks sönglög
eftir íslenzk tónskáld eldri og
yngri.
IVfaimi bjargað
ur hoTuifivii
Um miðnærtið i nótt var
drukknum manni bjargað úr
Rey kj avikurhöf n.
Barzt lögreglunni tilkynning
klukkan rúmlega 12 i nótt að
maður hafi dottið/ í sjóinn af
hafnarbakkanum gegnt kola-
krananum.
Nærstaddir menn, sem sáu
þegar maðurinn datt fram aí
Brezk blöð í gærvorgun eru
ánægð yfir afstöðu Bourgiba
Túnisforseta til vestrænna
þjóða, en vara við afskiptum
af innbyrðis deilum Araba-
ríkjanna.
Þau segja efnahagsástandið
í Túnis hið versta og það sé
á efnahagssvæðinu, sem vest-
rænar þjóðir geti komið Túnis
til hjálpar, og eru slíkrar að-
stoðar mjög' hvetjandi. Benda
þau m. a. á, að nú heimti Tún-
isbúar að efnd verði ýmis gull-
in lofoi'ð Bourgiba, áður en
sjálfstæðið endurheimtist.
Bourgiba flutti í fyrradag
í þjóðþinginu ræðu þá, sem
boðuð hafði verið, að hann
myndi flytja til þess að gera
grein fyrir því, hvers vegna
Túnis sleit stjórpmálasam-
bandi við Arabiska sambands-
lýðveldið.
Var hann harðorður í garð
Egypta og sakaði þá um þátt-
töku í samsæri til að myrða
sig fyrir einu ári. Hann kvað
arabíska sambandslýðveldið,
með forystu Nassers, verkfæri
í hendi Sovétríkjanna, til þess
að þau gætu náð tökum á Ar-
abaríkjunum. í þessu vildi
Túnis engan þátt taka, væri
mótfallið kommúnisma í Ar-
abalöndum, og vildi halda
tengslum við hinn vestræna
heim. Aukins skilnings væri
þörf á þessum málum meðai
vestrænna leiðtoga.
í Kaíró hefir hin opinbera
fréttastofa birt frétt, þar sem
Bourgiba er sakaður um að
styðja heimsveldastefnu gegn
Arabiska sambandslýðveldinu
og hindrað það í að veita upp-
reitsarmönnum í Alsír hjálp
— en Bourgiba hafi beyg af
sjálfstæðu Túnis.
Að loknum umræðium á
þjóðþingi Túnis var samþykkfc
tillaga til þingsályktunar ein-
róma, en í henn var lýst yfir
stuðningi við ákvöi'ðun stjói'n-
arinnar.
Norðmenn þreyttlr á ver&hóígn.
Gallup-aílingnn leiddi það í ljns.
Norðmenn þreyttir á verðbólg-
unni.
Samkvæmt rannsókn sem
norska Gallup-stofnurxin fram-
kvæmdi nú nýlega eru Norð-
menn hlyntir því að gefa eftir
launauppbætur, ef með því
væri hægt að stöðva vei'ðbólg-
una þar í landi.
í rannsóktxinni tóku þátt tvö
þúsund kjósendur viðsvegar um
landið.
Spurningin sem fjTÍr þá var
lögð hljóðaði þannig:
Viljið þér afsala yður lauua-
uppbótum, ef nieð því væri hægt
að stöðva verðlxækkanir og verð-
bólgu?
bakkanum, vörpuðu til hans
bjarghring og rétt á eftir var
honum bjargað upp í dráttarbát-
inn Magna, sem þar var rétt
hjá.
Svör manna skiftust þannig:
12% vildu ekki.
80% vildu afsala sér launaupp-
bót.
8 Við athugun á svörunum
kom í Ijós að mjög lítill munur
var á afstöðu manna eftir því
hvar i flokki þeir standa, atvinnu
þeirra og öðru er að jafnaði
hefur áhx'if á skoðanir manna.
(Frá Isl. Gallup-stofniuiinni.)
Jafnstór brezkur her
áfram í V.Þ.
Tilkynnt er í London, að
Bretar hafi sama herafla og nú
í Vestur-Þýzkalandi allt árið
1959.
Þeir hafa þar nú 55,000
marma lið. — Það er m.a. vegna
bætts fjárhags Bretlands, sem
þessi ákvörðun var tekin.