Alþýðublaðið - 22.10.1957, Page 1
f Stmar blaflsint:
Ritstjórn'
14901, 1H277
149H5
Símar T>Ia®*i»*:
■Z&-$ 'ÚV j
Anglýnír.gar 149n»,
Auglýslngar og af-
greiSsla: 149«S.
XXXVIII. árg.
Þriðjudagur 22. október 1957
138. tbl.
ja
fl
Bonn, mánudag, XTTB.
ANNA KETHL-Y, sem var í
stjórn Imre Nagy í Ung-verja-
landi var í áag kjörinn formáö-
ur í jafnaðarmá.nnaflokki, er
ungverskir útlagar hafa stofn-
að. Var flokkurinn stofnaður á
fundi í Bonn í dag. Samþvkkt
var áskorun á þing Sameinuðu
þjóðanna um að séð verði um
að framfylgt verði Ungverja-
landsályktun SÞ. Einnig skor-
aði íundurinn á SÞ að fordæma
ofsóknir Kadarstjórnarinnar á
hf:ndur ungverskum frelsishetj
um. Þess var krafizt, að rúss
neski herinn yrði á brott úr Ung
verjalandi o.g að Ungverjnr
þeir, er fluttir hefðu verið nauð
ugir til Rússlands fengju að
hverfa heim.
r
slands var endan
um helgina
2 féVég f 11 viðbótar gerðust stofnendur
FRAMHALDSSTOFNFUNDI Sjómannasambamls íslands
lauk á sunnudag. Hefnr Sjómannasambandið því cndanlega
verið stofnaft. Tvö félög til viöbótar gerðust stofnendur. Kosin
var stjórn íyrir sambandið' og var Jón Sigurðs.son kosinn for-
maður.
Alþýðublaðinu barst í gaor
s vohl j óðandi fréttaölkynning
frá SjómannasambaBdi íslands.
„Dagana 19. og 20. okt. s. 1.
var hald/nn framhaldsstofn-
fundur Sjómannasambands ís-
iands, en í febrúar á s. 1 vetri,
var sambandið stofnað af Sjó-
mannafélagi Reykjavíkur og
Matsveinafélagi SMF.
4 FÉLÖG AÐILAR.
Á framh-j Idsstofnfundinum
gerðust tvö félög' tS viðbótar
sem stofnendur, en það voru
Sjómannadeildirnar í Kefla-
vík oy G-rindavík svo ná eru fé
lögin i sambandinu fjögur, með
samtals um 1920 félagsmenn.
Auk fulltrúa frá þessum fé-
lögum mættu á fundinum full
aS Cofy Frakklandsforseti
snúi sér aífur fil jafnaðarmanna
Schoman gafs-t upp. AstanciiS veróur
ístcyggilegra niets hverjum degimcoi
.
PARÍS, manudag, (NTB). Stjórnarkreppan í Frakklandi
hefur nú staðið í þrjár vikur virðist engin von vera um skjóta
lausn hennar eftir að Robert Schuman úr kaþólska fiokknum
tilkynnti Coty forseta í dag. að hann gæti ekki tekið að sér að
mynda 24. ríkisstjórn Frakklands frá stríðslokum.
Schuman byggöi afsvar.sitt
á því, að enginn stjórnmála-
maður gæti myndað stjórn fyrr
en leiðtogar stjórnmálaflokk- ,
anna féllust í meginatriðum á j
stefnu í efnahagsmálum, er leitt j
geti landið út úr erfiðleikurn,
er verði alvarlegri með hverj-
um deginum, sem líður.
Meðal stjórnmálamanna í
París er gert ráð fyrir því, að
eftir neitun Schumans, muni
Coty snúa sér á ný til Guv Moll-
et, leiötoga jafnaðarmanna. Þá
benda menn einnig á, að forset
inn hefur sent -sérstaka flúgvél
til að sækja íhaldsmanninn Ant
oine Pinay, sem verið hefur úci
á landi síðan þingið felldi hann
s. 1. föstudag sem forsætisráö-
herra. — Áreiðanlegar heimiid-
ir telja, að samkomulag um
efnahagsmál sé eini grundvöil-
urinn, sem mögulegur sé fyrir
nýrri stjórnarmyndun. Ríkis-
kassinn er að tæmast og.gjald-
eyrisforði landsins fer minnk-
andi með degi hverjum.
Það hefur ekki bætt úr skák,
að verkalýðssamband kaþólsk-
ra hefur með yfirgnæfandi
meiri'hluta atkvæða samþykkt
að skora á meðlimi sína að
mótmæla um land allt verð-
bólgunni á föstudag, með vinnu
stöðvun, ef þörf krefur. Sarna
dag hafa öll verkalýðssambönd
i’n tilkynnt verkfall á járnbraut
um um land allt.
AFP skýrir frá því í kvöld,
að Coty forseti hafi rætt við
þá Guy Mollct og Antoinc
Pinay síðari hluta dags í dag.
Stóð viðtalið við Mollct í
klukkutíma.
Jón Siguðsson
trúar frá Sjómannadeild Vlf.
Akraness, Skipstjóra- og stýxi-
mannafélaginu Gróttu og Fram
reiðslumannafélagið SMF.
Á fundinum voru rædd ým-
is hau mál er sjómannastéttina
varðar, svo sem kjaramál, skipa
eftirlitið, önnur' öryggismál o.
fl.
REGLULEGT SAMBANDS-
ÞING HALDIÐ í SEPT-
EMBER.
Ákveðið var að fyrsta reglu
legt sambandsþing verði hald-
ið í srptember eða október
næsta Jiaust og má þá fyllilega
búast' við að fleiri félög hafi
gerst aðilar að sambandinu.
í stiórn voru kosnir með sam
hljóða atkvæðum, þessir menn:
Formaður Jón Sigurðsson rit
; ari Sjómarrnafélags Reykjavik
ur og meðstjórnendur þeir Ol-
afur Björnsson, formaður S-jó-
mannadeildar Keflavíkur,
Hilmar Jónsson, varaformað-
ur Sjómannafélags Reykjavík-
ur og meðstjórnendur þeir Ól-
afur Björnsson, formaður Mat
sveinafélags S.M.F. og Ragnar
Magnússon, formaður Sjó-
mannadeildar Grindavíkur“.
Hvassafell rak upp í
Siglufirði í fyrrakvöid
Skipið náði sér ekki út í gærmorgun, en
Jökulfeli átti að reyna að ná Hvassafelii
út á flóði í gærkvöldi.
Fregn til Alþýðublaðsins. SIGLUFIRÖI í gær,.
. HVASSAFELL, flutnihgaskip S.Í.S., rak upp í fjöru í
Siglufirði í fyrrakvöld, þegar skipið ætlaði að leggjast að
Hafnarbryggjunni. Orsök þessa er sú, að akkerisfestin slitnaðí
og rak þá skipið, sem var nær ófermt, þvert yfir fjörðima, enda
norðaustan hvassviðri. Tók Hvassafell niðri á Staoarhálsfjöru,
andspænis Siglufjarðarkaupstað.
Fjaran er þarna grýtt, en að-
djúpt, og ekki nema 2—3 skips-
lengdir til lands. Siglfirðingar
fóru á vettvang og tóku á móti
nokkrum skipverjum, sem fóru
þegar í land. Hinir héldu kvrru
fyrir um borð, enda enginn sjór
í skipinu. í gærmorgun var sk;p
ið á floti aftan til og reyndi að
komast út af eigin rammleik,
en án árangurs. í gærdag var
Jökulfell og björgunarskipið
Albert komið á vettvang', og átti
að reyna að ná Hvassafelli út í
gærkvöldi á flóði með aðstoð
þeirra.
Síðustu fréttir:
Náðisl úl á
Siglufirði í gærkvöldi.
JÖKULFELL dró Hvassafell
á flot kl. 9,20 í kvöld. Gekk vel
að ná skipinu á flot. Ekki er
enn vitað hvort einhverjar
skemmdir hafa orðið á Hvassa-
fellinu.
LÉTTHLAÐIÐ SKIP
Þegar Iivassafell strandaði,
var það að koma frá Ólafsfirði.
Átti skipið að lesta síld á Siglu
firði til útflutnings, og var því
næst ófermt og mjög létt í sjó.
s. s!
leppl
Siglufirði í gær.
SIGLUFJARÐARSKARÐ
tepptist í gær. Sitja nokkrir bíl
ar fastir í Skarðinu. Send verð-
ur ýta til að ryðja skarðið við
fyrsta tækifæri.
Tyrkir og Sýrlendingar hafa tekið boði
Sauds Arabíukonungs um málamiðlun
Tyrkir vilja, að rannsóknarnefnd SÞ rannsaki einnig
ástandið við landamæri Rússlands og umfrarn allt
beggja vegna landamæranna.
Elísabel Bretadroitning ávarpaði alls-
herjarþing SÞ í New York í gær
Hefur lokið heimsókn sinni til Kanada og USA
New York, mánudag.
SAMEINU'ÐU þjóðirnar eru
enn langt frá því að hafa látið
rætast þau takmörk, sem stofn;
endurnir höfðu í huga, en allar
þjóðir heims væntu þess, að SÞ |
muni halda áfram að leitast við.
að ná þeim takmörkum, sagði,
Elisabet Bretadrottning í ræðu |
á allsherjarþingi Sameinuðu
þjóðanna í dag, áður cn liún fór
aftur áleiðis til Bretlands eftir
sex daga heimsókn til Banda-
ríkjanna.
í ræðu sinni kvað drottning
brezku samveldislöndin mundu
halda áfram styrkum stuðningi
Framhald á 3. síðu.
Jedda, mánudag (NT'B-AFP).
SÝRLENDINGAR og Tyrkir
hafa tekiö tilboði Sauds Arabíu
konungs um meðalgöngu til að
binda endi á átök þau, sein stafa
af spennu þeirri, er ríkir á
landamærum landanna. Sendi-
nefndir frá báðum ríkjunum
munu einhvern næstu daga fara
flugleiðis til fundar við Saud
konung. Þessar uplýsingar gaf
talsmaður upplýsingaráðuncyt-
is Sudi-Arabiu og staðfesti jafn-
framt fréttir frá Washingtoxi
um, að Saudi-Arabia hefði til-
kynnt Bandaríkjatsjórn um
helgina, að Sýrlendingar og
Tyrkir hefðu tekið boði Sauds
konungs um meðalgöngu.
Talsmaður bandaríska útan-
ríkisráðuneytisins skýrir frá
því, að tilkynning þessi hafi ver
ið afhent sendiherra USA í
Saudi-Arabiu. Segja opinberir
aðilar í Washington, að mecn
fylgist af mikilli athygli með
aðgerðum Sauds, en annars forð
ast menn að segja mikið um
þetta af ótta við; að það muni
gera málamiðlun erfiðaii.
Frá Istanbul er tilkynnt, að
tyrknesk yfirvöld fari mjög
heimulega með allt, er snertir
hinar væntanlegu samningaum-
leitanir í Saudi-Arabiu. —
Jafnframt fylgjast tyrknesk yf-
irvöld mjög nákvæmlega með
því, sem gerist hjá SÞ, þar sem
ræða á kæru Sýrlendinga á
hendur Tyrkjum. Tyrkir telja
fréttirnar um spennu á landa-
mærum ríkjanna mjög orðum
auknar og ekki sé nein ástæða
til þess ótta, sem allur heimur-
inn virðist þjást af í þessu sam
bandi.
Tyrkir hafa í grundvallar-
atriðum fallizt á, a3
SÞ setji á laggiraar
rannsóknarnefrxd, en vilja ó-
gjarna taka skýra afstöðu fyrr
en starfssvið nefndarinnar he£
ur verið ákveðið í öllum atfið-
um. Mun tyrkneska stjórain
vera þeirrar skoðunar, að SÞ-
nefndin eigi ekki að takmatka
rannsókn sína við sýrlenzku
landamærin, heldur skuli hún
einnig rannsaka ástandið við
landamæri Sovétríkjannn.
Annað atriði, sem Tyrkir vilja
fá fram, cr, að rannsóknin
fari ekki aðeins fram á tyl'k-
nesku landssvæði, heldur
beggja megin landamæranna.
Veðrið í dag
S. og S.-V. stinningskaldi
slidda og síðar rigning.